Tíminn - 10.06.1994, Blaðsíða 24
32
Föstudagur 10. júní 1994
Tæknilegir yfirburðir!
Austurrísk gæðaframleiðsla!
Fyrsta flokks viðhaids- og varahlutaþjónusta!
Atlas
Borgartúni 24, Sími: 621155, Fax: 616894
Hríngdu strax í síma 621155
og fáðu nánari upplýsingar
Nýtt samvinnufélag stofnaö í Borgarfiröi,
sem cetlaö er aö yfirtaka rekstur Mjólkur-
samlags Kaupféiags Borgfiröinga:
Mjólkurbú
Borgfirðinga
stofnab
Síöastliðinn þriðjudag var stofnað samvinnufélag
um rekstur mjólkurbús í Borgarfirði, Mjólkurbú
Borgfirðinga, með það fyrir augum að yfirtaka
rekstur Mjólkursamlags Kaupfélags Borgfiröinga.
Að sögn Guðmundar Þorsteinssonar, bónda á
Skálpastöðum og formanns samlagsráðs Mjólkur-
samlags Borgfirðinga, er ástæðan sú að aðstand-
endum samvinnufélagsins þykir eðlilegt að mjólk-
ursamlagið sé í eigu mjólkurframleiöenda og undir
stjórn þeirra.
Undirbúningur að stofnun félagsins hófst fyrr á
þessu ári og hefur aðalfundur Kaupfélags Borgfirð-
inga fallist á þessar hugmyndir, en fyrir liggur að
hefja samningaviðræður við fulltrúa kaupfélagsins
um yfirtökuna.
Ásamt samningum við Kaupfélagið mun samráð
verða haft við Mjólkursamsöluna, enda er mjólkur-
samlagið hluti af samsölukerfinu.
Ekki er enn hægt að segja hvenær breytingarnar
geta átt sér stað, ef samningar takast, enda máliö
enn stutt á veg komið. Samlagsráði hefur verið fal-
ið að undirbúa stofnun félagsins, en að baki félag-
inu standa mjólkurframleiðendur í héraðinu. Á
stofnfund félagsins mætti um helmingur innleggj-
enda í Mjólkursamlagi KB. ■
Finnska Valmet-dráttarvélin
Nýjar finnsk-sænskar dráttarvélar hafa bæst í
þungavinnuvélaflóruna á íslandi. Vélarnar koma
frá Valmet í Finnlandi, en þær eru þær einu sem
fluttar eru inn hingað frá Norðurlöndum. Það er
Bújöfur sem flytur inn vélarnar.
Valmet er eitt af stærstu fyrirtækjum Finnlands og
framleiðir auk dráttarvéla, þungavinnuvélar, dísel-
mótora, pappírsvélar o.fl. Fyrirtækið á að baki
meira en 40 ára sögu í smíði dráttarvéla, en þær
tegundir, sem nú eru á markaðnum, eru hannaðar
og framleiddar í samvinnu við Volvo í Svíþjóð.
Þetta eru vandaðar vélar, sem hafa náð mikilli út-
breiðslu á hinum Norðurlöndunum, en þegar hafa
selst nokkur eintök hér á landi. ■
STIGA Collector
sláttuvél, 3,5 ha.,
4 hæöastillingar.
52 Itr uppsafnari.
Einstök heimilisvél
STIGA Dino
sláttuvél
3,75 ha.,
3 hæðastillingar.
Góö heimilisvél.
Kr. 31.140 stgr. Kr.19.800 stgr.
Allar geröir af sláttuvélum
og sláttuorfum.
STIGA sláttuvélarnar eru
þrautreyndar viö íslenskar
aöstæöur. Traust varahluta-
og viögeröaþjónusta.
Umboö: Vetrarsól hf.
VETRAR
SÓL
VETRABSÓL HF., HAMRABORG 1-3,
KOPAVOGI. SIMi 91-64 18 64
STIGA aksturssláttuvélar,
liöstýröar.
Fjöldi fylgihluta fáanlegur.
Frá kr. 180.000 stgr.
TANAKA 4000
vélorf, 0,8 ha.
Fyrir heimili
og sumarbústaöi.
Kr.16.910 stgr.