Tíminn - 10.06.1994, Qupperneq 7

Tíminn - 10.06.1994, Qupperneq 7
Föstudagur 10. júní 1994 Wímitm 15 Cunnar Sœmundsson, bóndi í Hrútatungu: Ekki viss um hvort til sameiningar kemur Gunnar Sæmundsson, bóndi í Hrútatungu og einn fulltrúa Stéttarsambands bænda í und- irbúningsnefnd sameiningar Búnabarfélags íslands og Stétt- arsambands bænda, segist ekki, vera viss um að af þessari sam- einingu veröi. Hann segir þó að líklegt megi teljast ab samein- ingin verbi samþykkt í kosn- ingu meðal bænda, en hann sé hins vegar í vafa um að hún verði samþykkt á fundi Stéttar- sambandsins í lok ágúst næst- komandi. Erfitt sé þó að segja til um það, en hann hafi heyrt raddir sem mæli sameining- unni bót og muni greiða at- kvæði gegn henni. Eins og fram kemur annars staðar í blabinu er undirbún- ingsnefndin skipuð sex mönn- um frá Búnaðarfélaginu og Stéttarsambandinu. Hann segir mikinn einhug ríkja innan nefndarinnar um sam- eininguna og mikilvægi henn- ar. Gunnar segir þab mikilvægt, ef af sameiningu verbur, verði að byrja á að skilgreina hlut- verk búgreinasambandanna og búgreinafélaganna í landinu annars vegar og hlutverk heild- arsamtakanna hins vegar. Til dæmis hafi það aldrei verið skilgreint hvert væri hlutverk búgreinasambandanna og stéttarsambandsins. „Að mínu mati á hlutverk bú- greinasambandanna að vera sölu- og markaðsmál, en heild- arsamtökin ættu að sjá um öll sameiginleg mál bændastéttar- innar í heild, s.s. innflutnings- mál, kjaramál og annað gagn- vart ríkisvaldi. Einnig ættu heildarsamtökin ab sjá um fræbslu og rannsóknir." ■ BÞÝSKAR HÁGÆÐA □ HEYVINNUVÉLAR U Mikil vinnslubreidd, 2,05 til 3 metrar. Aukin afköst. Minni orkuþörf. Öflugt drif. Sveigja á sláttuborði hefur ekki áhrif á rýmd milli tannhjóla í drifi. Hnífar festir með boltum. • Léttbyggð. FELLA stjörnumúgavélar. Vinnslubreidd 3,3 og 4,2 m. Mikil sporvídd og 4 hjól á veltibúkkum auka stöðugleikat • Auðveld í flutningi. • Fáanleg með knosara. FELLA lyftutengdar heyþyrlur. Vinnslubreidd 5,4 m. Lyft í flutnings-. stöðu og hjól skekkt með vökvaþrýstingi. Öllu stjórnað úr ekilshúsi. Hlífar á hjólum til varnar því að hey fari inn í hjóllegur. Stór og breið hjól á öll- um FELLA heyþyrlum og stjörnumúgavélum. Globus/ Lágmúla 5, s:681555

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.