Tíminn - 05.07.1994, Blaðsíða 1
SIMI
631600
78. árgangur
Stöö 2:
Eggert
Erjum á Stöb 2 og Bylgjunni er
engan veginn lokib þótt ný
stjórn íslenska útvarpsfélagsins
hafi skipt meb sér verkum og
nýr útvarpsstjóri verib rábinn í
stab Páls Magnússonar sem nú
hefur tekib sæti í stjórn sem
fulltrúi abila í fráfarandi meiri-
hluta. Eggert Skúlason frétta-
mabur var kosinn í nýju stjórn-
ina, tilnefndur af stjórn starfs-
mannafélags fyrirtækisins, en í
framhaldi af því var honum
sagt upp störfum á fréttastof-
unni.
Bobab hefur verib til fundar í
starfsmannafélagi íslenska út-
varpsfélagsins í hádeginu í dag og
er búist vib harkalegum vibbrögb-
um þess fundar vib brottrekstri
Eggerts. Starfsmannafundurinn
mun taka afstöbu til þess hvort
Vilja rannsókn
Enn sem komib er hefur ekki
enn verib gefin út opinber yfir-
lýsing hvab hafi í raun og veru
valdib því ab gæbingurinn
Gýmir fótbrotnabi í úrslita-
keppni A-flokksins.
Eins og getib er um ában eru
uppi ýmsar kenningar um tildrög
slyssins. Ein er sú ab hesturinn
hafi stigib af sér hófhlífina á
vinstri fætinum.
Abrir vibmælendur Tímans
sögbu ab þetta væri enginn
möguleiki, óhugsandi væri aö
leöuról hefbi slíkan styrk. Þetta
væru ólar sem slitnubu viö
ákveöiö átak.
Önnur kenningin er sú aö Gým-
ir hafi alls ekki gengiö heill til
skógar. Þaö hafi gfeinilega sést í
töltinu þar sem hver gæöingur-
inn á fætur öörum reiö fram úr
honum en Gýmir var fyrst og
fremst mikill rýmishestur.
- Sjá umfjöllun um lands-
mótiö á bls. 7, 8, 9 og 10.
STOFNAÐUR 1917
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
Þriðjudagur 5. júlí 1994
123. tölublað 1994
rekinn
starfsmenn skuli áfram eiga full-
trúa í stjórn íslenska útvarpsfé-
lagsins.
Heimildarmenn Tímans halda því
fram ab Eggert hafi veriö geröur
út af stuöningsmönnum fráfar-
andi meirihluta en Páll Magnús-
son, fráfarandi útvarpsstjóri, telur
ab Elín Hirst hafi látiö nýja meiri-
hlutann kúga sig til aö reka Egg-
ert. Því neitar Elín afdráttarlaust.
„Ég taldi sjálfstæöi fréttastof-
unnar ógnaö meb setu eins af
fréttamönnum Stöövar 2 í stjórn
íslenska útvarpsfélagsins, og á erf-
itt meö ab sjá hvernig ég hefbi í
framhaldi af því átt aö framfylgja
kröfu um þaö ab enginn í stjórn
útvarpsfélagsins heföi afskipti af
fréttum," segir Elín Hirst, frétta-
stjóri Stöbvar 2. „Ég bab Eggert aö
endurskoöa þá ákvörbun sína aö
taka sæti í stjórninni en hann
vildi þaö ekki. Því sagöi ég hon-
um upp störfum. Þab er eftirsjá aö
Eggerti. Ég harma aö hann skuli
ekki hafa viljaö taka sjónarmiö
mitt til greina og skil raunar ekki
hvaö hann rekur þetta mál af
miklum ákafa."
Eggert Skúlason kveöst ósam-
mála þessu sjónarmiði Elínar
Hirst og segir: „Ég var hreinlega
rekinn og þaö kom mér vægast
sagt á óvart. Ég veit aö ég get
mætavel sinnt hvoru tveggja, því
að vera fréttamaður og að vera
fulltrúi starfsmanna í stjórn ís-
lenska útvarpsfélagsins."
Um þá ráðstöfun að segja Eggerti
Skúlasyni fréttamanni upp störf-
um segir Jóhann J. Ólafsson, einn
fulltrúa hins nýja meirihluta í
stjóm íslenska útvarpsfélagins:
„Élín Hirst hefur mannaforráö á
fréttatofunni og gætir þess greini-
lega mjög vel aö ekki leiki
minnsti vafi á sjálfstæði frétta-
stofunnar. Maöurinn er aubvitað
áfram velkominn í stjórn og þaö
er vonandi aö hann geti fengið
starf annars staðar í fyrirtækinu."
Svífbu seglum þöndum
Krakkar úr Þróttheimum í Reykjavík voru ígœr upp viö Hafravatn aö lcera aö standa á seglbrettum, en þar er rekinn sér-
stakur seglbrettaskóli. Veöriö var eins og best veröur á kosiö, ekki of lygnt og ekki of hvasst fyrir byrjendur. Á myndinni
er Eydís leiöbeinandi aö sýna einni stúlkunni handtökin viö seglbrettasiglingarnar. Tímamynd cs
Forsœtisráöherra kynnir drög aö spá þjóöhagsstofnunar fyrir áriö 1995.
Hillir undir lok kreppunnar?
Kaupmáttur mun aukast nokk-
ub á næsta ári, landsfram-
leibsla verbur meiri en á þessu
ári, þjóbartekjur aukast og vib-
skiptakjör fara batnandi. Þjób-
arútgjöld munu einnig aukast
og gert er ráb fyrir ab hailinn á
ríkissjóbi verbi innan vib tíu
milljarbar. Þetta er mebal nib-
urstabna undirbúningsvinnu
fyrir þjóbhagsáætlun og fjár-
lagagerb sem Davíb Oddsson
forsætisrábherra kynnti í gær.
Davíö Oddsson sagði ekkert
benda til þess ab efnahagskreppa
undanfarinna ára myndi verða
meiri en oröiö er. Þvert á móti
sæist loksins hilla undir lok
kreppunnar bæbi hér á landi og
erlendis. Hann sagbi tvennt or-
saka þessa jákvæöu spá, annars
vegar hefði þróun efnahagsmála
verið jákvæb í heiminum að
undanförnu og hins vegar hefbu
íslendingar brugbist skynsam-
lejga viö kreppunni.
I drögum ab þjóbhagsspá er því
spáð að hagvöxtur muni smám
saman taka vib sér á íslandi þótt
þaö veröi hægar og seinna en í
mörgum öbrum löndum. Á móti
komi að viðleitni til eflingar
fiskistofna feli í sér von um hrað-
ari hagvöxt þegar fram í sæki.
Spáb er aö landsframleiðsla verbi
hagstæðari á þessu ári en áður
var gert ráb fyrir, þ.e. ab hún
muni standa í stað milli áranna
1993 og 1994 í stað samdráttar.
Landsframleiðslan muni síöan
aukast um 1% á næsta ári, sam-
kvæmt spánni.
Þjóðartekjur eru taldar aukast
meira en landsframleiösla á
næsta ári, eba um 1,6%, vegna
batnandi viðskiptakjara. Búist er
við aö útflutningur vöru og þjón-
ustu veröi sá sami á næsta ári og
þessu þrátt fyrir minni fiskafla. A
móti vegur aukinn útflutningur
ibnabarvara og auknar tekjur af
ferðaþjónustu. Reiknab er meö
ab viðskiptakjör batni um 1,4% á
milli áranna 1994 og 1995.
Gert er ráb fyrir ab kaupmáttur
muni aukast nokkuð á næsta ári
og jafnframt að atvinnuleysi
muni standi í staö. Verölag verb-
ur áfram stööugt, samkvæmt
spánni, og er gert ráb fyrir ab
verðbólgan verði um 2% á næsta
ári. Davíö segir ab ríkisstjórnin
miöi viö að hallinn á ríkissjóöi
veröi innan við tíu milljarðar og
ab áfram veröi beitt aðhalds-
samri stjórn peningamála.
Reiknab er meb ab þjóðarútgjöld
aukist um 2,2% á næsta ári. I áliti
þjóbhagsstofnunar segir aö þótt
þessi áætlaba aukning sé ekki
ýkja mikil feli hún í sér mikla
breytingu frá ámnum á undan
þar sem þjóöarútgjöld hafi dreg-
ist saman undanfarin þrjú ár.
Viðskiptajöfnuður er talinn
veröa hagstæbur á árinu 1995.
Gangi þab eftir yröi það í fyrsta
sinn frá stofnun lýðveldisins sem
afgangur veröur á vibskiptajöfn-
uði þrjú ár í röb. í framhaldi af
því er gert ráð fyrir ab erlendar
skuldir minnki bæbi aö raungildi
og sem hlutfall af landsfram-
leibslu. ■
Davíö Oddsson forsœtisráöherra og ráögjafar hans á blaöamannafundi í
gœr. Tímamynd CS