Tíminn - 25.08.1994, Side 1

Tíminn - 25.08.1994, Side 1
SIMI 631600 78. árgangur Skyttur á hálendinu: Góð gæsa- veiði Veibi á gæs, sem hófst um helgina, hefur gengiö nokkub vel. Skotveiðimenn eru sam- mála um ab nokkuð mikið sé af fugli í ár. Veiðar á grágæs og heiðargæs voru heimilaðar 20. ágúst. Frést hefur af þokkalegri veiði, bæði norðan heiða og sunnan. Skot- veiðimenn hafa aflað meira upp á hálendinu, en gæsirnar eru á þessum tíma lítið sem ekkert á ræktuðu landi. Skyttur sem rætt var við í gær veiddu þokkalega á sunnaverðu há- lendinu, en tíðindamenn Tím- ans á Norðurlandi sögðu að lít- ið hefði sést af gæs á hálendinu þar. Hins vegar hefur sést óvenju mikið af gæs í úthaga í byggð fyrir norðan. „Þeir sem eitthvað kunna fyrir sér í veiðiskap held ég að hafi veitt flestallir vel," sagöi Einar Páll Garðarsson í Veiðihúsinu í Nóatúni. „En þeir sem höfðu mikið áfengi um hönd og kunna lítið fyrir sér veiddu ekki vel eins og gefur að skilja." Helsingi og Blesgæs hafa ekki sést ennþá. Báðar tegundirnar verpa á Grænlandi en koma hér vib á leibinni til vetrarstööva á Skotlandi og írlandi. Þessar teg- undir má veiða eftir mánaða- mót samkvæmt nýrri reglu- gerö. ■ Stakkholti 4 Inngangur frá Brautarholti STOFNAÐUR 1917__________________________________________________ Fimmtudagur 25. ágúst 1994 157. tölublað 1994 Stórfínt! Þœr virtust ánœgbar meb nýja rauba litinn á Pósthúsinu í Reykjavík þœr Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Gubrún Ágústsdóttir og Sigrún Magnúsdóttir eba „ Borgarstjórnar-Rúnurnar" eins og sumir kalla þœr, þegar þœr litu á framvindu málningarverksins ígær. Eins og sjá má á handahreyfingunum á myndinni var enginn ágreiningur um einkunna- gjöfina hjá borgarstjóranum, forseta borgarstjórnar og oddvita borgarstjórnarflokks R-listans. Tímamynd: GS Stjórnvöld munu styöja viö bakiö á útgeröarmönnum eins og mögulegt er ef Norömenn beita hörku á Svalbaröasvceöinu. Niöurstaöa LÍÚ- fundarins: Ótvíræður veiöiréttur Ottó Jakobsson, útgerðarmað- ur Blika EA frá Dalvík, segir að á fundinum á Akureyri í gær hafi komið fram sú yfir- lýsing af hálfu stjórnvalda ab þau muni styðja við bakið á útgerbarmönnum eins og möguiegt er, ef Norðmenn beita hörku vegna veiba ís- lenskra togara á Svalbarða- svæbinu. Þab var hinsvegar ekki tíundab nánar í hverju sá stubningur mundi felast. Hann segir að þessi yfirlýsing breyti því hinsvegar ekki að veiðar í Barentshafi veröi eftir sem áður á ábyrgð viökomandi útgerða. Aftur á móti sé viðbúið að þessi yfirlýsing muni geri það ab verkum að menn verði ör- uggari með sig en áður á Sval- barbasvæðinu og líklegt að þar veröi trollið bleytt áður en langt um líður. Sérstaklega í ljósi þess að lítið hefur fengist í Smug- unni að undanförnu. Ottó segir að það megi ekki gerast að menn gefist upp og haldi heim. Hann telur þó einsýnt að ísfisk- togarar haldi fljótlega heim ef aflabrögð verða áfram treg en frystiskipin muni reyna að halda sjó. Hátt í 100 manns sátu fund LÍÚ meb Þorsteini Pálssyni sjáv- arútvegsráðherra og Jóni Bald- vini Hannibalssyni utanríkis- ráðherra á Akureyri í gær. A fundinum voru stjórnvöld brýnd til að vera ávallt reiðubú- in þegar og ef eitthvað gerðist á miðunum í Barentshafi. Jafn- framt var því beint til stjórnar LÍÚ að hún hefði nokkra út- vegsmenn úthafsveiðiskipa sér til ráðgjafar þegar á þyrfti aö halda. A fundinum kom m.a. fram að réttarstaöa íslendinga á Svalbarðasvæðinu væri sterkari en í fyrstu var álitiö og því til sönnunar var m.a. bent á þaö sem fram kemur í áliti breska þjóðarréttarfræbingsins sem ný- lega skilaði áliti sínu til ríkis- stjórnarinnar. Nokkur umræða var um þá hugmynd að Islendingar mörk- ubu sér fiskiveiðistefnu í Bar- entshafi með því ab ákveða hversu mikiö þeir myndu veiða á svæbinu. Enginn tillaga kom hinsvegar fram um það á fund- inum enda skiptar skobanir mebal fundarmanna um málið. í ályktun stjórnarfundar LÍÚ kemur m.a. fram sú skobun ab réttur íslendinga til veiða á svæbinu sé ótvíræður. Fundur- inn telur jafnframt að skilgrein- ing Norðmanna á hvað teljist sögulegur réttur til veiða á svæðinu, standist ekki enda sé hún ekki viðurkennd á alþjóða- vettvangi. Þá hvatti fundurinn stjórnvöld til aö þess að fisk- veiðideila þjóbanna verði leyst meb samningum. Að öðrum kosti verði leitað til alþjóðlegra dómstóla til ab fá viðunandi lyktir í deiluna. Ottó Jakobsson segir aó stjórn- málamennirnir vilji fara samn- ingaleibina við Norðmenn en sjálfur sé hann á þeirri skoðun ásamt mörgum öðrum fundar- mönnum ab menn eigi að fara sér hægt í þeim efnum. Hann segir að menn eigi að veiða í Smugunni eins og þeir framast geta. Það sé alþjóðlegt hafsvæbi og því sé ekkert um að semja þar. ■ Kúabœndur skora á landbún- abarrábherra ab beita sér fyrir lagabreytingu: Dýralæknar fái aö selja lyf Landssamband kúabænda sam- þykkti á abalfundi áskomn til landbúnabarráðherra og landbún- aðarnefndar ab beita sér fyrir breytingum á nýbreyttum lyfsölu- lögum á þann veg að dýralæknar hafi ótvírætt leyfi til sölu dýra- lyfja. Enda hafi þær breytingar sem samþykktar voru á lyfsölulög- unum í maí s.l. í för með sér bæbi óhagræði og verulegan kostnaðar- auka fyrir bændur. Sömuleiöis samþykkti aðalfund- ur LK að fela stjórn samtakanna að vinna að rábningu dýralæknis í nautgripasjúkdómum. Stöðuna ætti að nýta til fræðslu og rann- sóknarstarfa og til að koma á sjúk- dómaskráningu og öðru því tengdu. ■ Aksturslag umhverfisráöherra kemur í veg fyrir aö hann bjóöi sig fram út á landi: • • Ossur fram í Reykjavík Össur Skarphébinsson „Eg hef aldrei íhugab það í neinni alvöru að gefa kost á mér annars staðar en í Reykjavík. Menn hafa rætt þetta við jnig úr tveimur kjördæmum, en ég hef aldrei gefið upp annab en ég ætli í framboð í Reykjavík. Ég hef allt- af ætlab mér þab, ekki síst vegna þess að ég er svo vondur ab keyra ab ég get ekki verið í landbúnab- arkjördæmi. Ég hef abeins haft bílprof í tvö ár og hef lítið brúkað það, umhverfinu mjög til heilla," segir Össur Skarphéðinsson. Talsvert hefur verið um það rætt á undanförnum missemm að Össur Skarphéðinsson, umhverf- isrábherra, fari fram fyrir Alþýðu- flokkinn annars staðar en í Reykjavík fyrir næstu kosningar. Mest hefur verið talað um Vest- urland og Norðurland vestra en formabur kjördæmissambands Alþýöuflokksins á Vesturlandi, Böðvar Björgvinsson, segir það fyrir löngu hafa verið komið út af borðinu ab Össur bjóöi fram þar. En samkvæmt heimildum Tímans hefur það verið ósk for- manns Alþýðuflokksins að Össur bjóði sig fram út á landi. Sjálfur segir umhverfisrábherra ab þab hafi ekki staöib til af hans hálfu að gefa kost á sér í frambob ann- ars staðar en í Reykjavík.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.