Tíminn - 25.08.1994, Síða 6

Tíminn - 25.08.1994, Síða 6
6 Fimmtudagur 25. ágúst 1994 föttutitim UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Sumttofeft FRÉTTABLAÐIÐ SELFOSSI Velheppnab kynningarátak: Margir þábu heimbob bænda Fjölmargir sóttu íslenska bændur heim fyrir skömmu er þeir stóöu fyrir kynningu á störfum sínum. Mjög vel tókst til ab sögn Jóns Hólm Stafáns- sonar, bónda aö Gljúfri í Ölf- usi og eins af þátttakendum í kynningarátakinu. Fólki var bobiö ab kynna sér starfsemi ög rekstur býlanna, fara á hestbak og komast í snertingu viö lífib í sveitinni. „Við áttum ekki von á svona mörgu fólki þar sem veðrib var fremur slæmt," sagbi Jón og bætti því viö ab hann teldi aö 7- 800 manns hefbu heim- sótt hann. í sama streng tók Ólafur Egg- ertsson á Þorvaldseyri í Aust- ur- Eyjafjallahreppi. Þangab lögbu leið sína rúmlega tólf hundrub gestir og skobuðu aöbúnað og vélar á bænum. Aö auki var gestum boðib upp á kaffiveitingar og þeir félagar, Jónas Þór kjötverkandi og Óskar Finnsson matreiðslu- meistari, buöu öllum aö smakka dýrindis nautakjöt frá Þorvaldseyri. Á Suburlandi tóku 9 býli þátt í heimboðinu af alls 43 bæj- um á landinu öllu. Smáfólkiö og þeir eldri líka höfbu gaman afþvíab skoba lömbin á Gljúfri. Ræktar lín í Austur-Eyjafjalla- hreppi „Ég er búin aö heita því aö mitt fyrsta listaverk úr líninu verði altarisdúkur í nýju kirkj- una að Skógum," segir Ingi- björg Styrgerður Haraldsdótt- ir, myndlistarkona og línrækt- andi, úr Garðabæ. Hún ræktar ásamt manni sínum, Smára Ólafssyni, lín til eigin nota á jörbinni Helgubakka í Austur- Eyjafjallahreppi. Ingibjörg segist eingöngu rækta hörinn til eigin afnota enda hafi hún enga aöstöbu til stærri ræktunar þó svo að allar aöstæbur til ræktunar hörjurtarinnar séu mjög góö- ar. „Ég hef kynnt mér ræktun á jurtinni í Svíþjóö og afbrigðin sem ég nota eru sérstaklega þróuö og henta vel fyrir nor- rænar abstæður. Reyndar er það svo að rigningin og rokiö á íslandi gerir jurtina harðger- ari sem hefur þab í för meb sér ab þráðurinn sem er uninn úr henni verður mjög sterk- ur." Aðspurö segist Ingibjörg hafa Ingibjörg stendur hér vib hörgrasvönd. Á borbinu eru ýmsir munir unnir úr líni. fengiö hugmyndina aö rækt- uninni í tengslum við mynd- list sína. Hún vill vinna úr náttúrulegu íslensku hráefni vegna þess að í verkum sínum leggur hún áherslu á íslenskt landslag. Ingibjörg segist enga opin- bera styrki fá úr sjóðum hins opinbera en bændur hafi ab- stoðað hana á ýmsan hátt, t.d. hafi Einar Þorteinsson í Sól- heimahjáleigu girt fyrir hana svæðib henni ab kostnaðar- lausu. Auk þess hefur hún haft aðstöðu að Þorvaldseyri til að teygja hörinn. „Við feyginguna losnar þráð- urinn frá stilknum og þá tekur vib ferli sem er sams konar og með allan annan þráð. Auð- vitað «r hægt að gera þetta allt með vélum en meban ég stend í þessu ein verður gamla aðferðin að duga." AusturJand Neskaupstabur: Nýtt íþróttahús rís Unnið er nú af fullum krafti við byggingu íþróttahúss í Neskaupstað. Þessa dagana er verið að reisa húsið, sem er límtréshús og kom límtréð frá Flúðum. Það er Nestak hf. í Neskaupstað sem sér um ab steypa plötuna, reisa húsið og loka því. Gert er ráð fyrir ab nýja íþróttahúsib verbi tekið form- lega í notkun fyrir upphaf skólaárs 1995 og verði heild- arkostnaður um 100 milljónir króna. Fyrsta notkun þess verður undir tónleika lands- móts lúbrasveita barna sem gert er ráb fyrir að haldib verbi í Neskaupstab í maí nk. Grunnur nýja íþróttahússins. Egilsstabir: Nýr skólameistari Ólafur Arnbjörnsson hefur verið skipaður skólameistari við Menntaskólann á Egils- stöðum. Tveir umsækjendur vom um stöðuna. Ólafur kem- ur frá Sauðárkróki þar sem hann hefur verið aöstoöar- skólameistari vib Fjölbrauta- skólana undanfarin ár. Hornafjörbur: Brjóstsykursgerb hafin Hafin er brjóstsykursgerð á Hornafirði. Hjónin Róshildur Stígsdóttir og Jón Sigmar Jó- hannsson keyptu brjóstsyk- ursgerðina Pálmann frá Hveragerbi og fluttu hana til Hornafjarðar. í verksmiðjunni eru framleiddar margar gerðir af brjóstsykri og sleikibrjóst- sykri. Jarbhitaleit vib Skagaströnd Á fundi hreppsnefndar Höfðahrepps í síðasta mánuði var samþykkt að leggja fram 300 þús. kr. til jarðhitaleitar í nágrenni Skagastrandar. Sam- ib var við Jarðfræbistofuna Stapa um ab sjá um tilrauna- boranir á svæðinu. Nú þegar hafa veriö boraöar þrjár tilraunaholur, við Brandaskarð, Steinnýjarstaði og Eyjarkot. Mælingar í hol- unum sýndu ab holurnar við Brandaskarð eru kaldar, eða með 70 grábur á km en holan við Eyjakot hefur gefiö 90 gráður á km sem gæti bent til jarhita innan 5 km. 1000 nemendur í VMA Verkmenntaskóhnn á Akur- eyri verður settur í Gryfjunni, sal skólans, 1. september nk. Að sögn Bernharðs Haralds- sonar skólameistara hafa á bil- inu 960-970 nemendur stað- fest skólavist næsta vetur. Hann sagðist reikna með ab nemendafjöldinn í heild yröi rétt innan við eitt þúsund en það er svipaður fjöldi og hóf nám í skólanum í fyrrahaust. Hiti í formannskjöri sauöfjárbænda Frá Jóni Daníelssyni, fréttaritara Tímans í Hrútafirbi. Arnór Karlsson var endurkjör- inn formaður Landssamtaka sauðfjárbænda í lok aðalfund- arins á þriðjudagskvöldið með 24 atkvæðum eftir talsverðar sviptingar. Gunnar Sæmunds- son í Hrútatungu fékk 15 at- kvæbi. Lagabreytingu þurfti til að Arnór gæti setið áfram í embætti formanns. í lögum samtakanna er endur- nýjunarregla sem í upphafi var ætlab ab girða fyrir ab menn gerbu setu í stjórn að ævistarfi. Samkvæmt þessu ákvæbi mátti enginn sitja lengur í stjórn en sex ár samfellt. Arnór Karlsson hefur setið í stjórn samtakanna í fimm ár, þar af síðustu þrjú árin sem formaður. Á abalfund- inum var samþykkt breyting á þessu ákvæði þannig að nú er ekki lengur tekib tillit til fyrri stjórnarsetu formannsins. Þessi lagabreyting gekk þó alls ekki átakalaust fyrir sig. Fjölmargir tóku til máls bæði með og á móti og talsveröur hiti færöist í umræbuna. Þeir sem tölubu gegn breyt- ingunni lögðu yfirleitt áherslu á ab þeir vildu ekki hrófla við endurnýjunarreglunni en þó virðist Ijóst að einhverjir muni hafa bundist samtökum um að reyna að koma í veg fyrir end- urkjör formannsins og óánægja með hann eöa störf hans hafi ráðið méiru um afstöbu ein- hverra andmælenda en látiö var í veðri vaka. Svo mikib er víst að atkvæðatölur urðu nán- ast þær sömu í atkvæðagreibslu um lagabreytinguna og for- mannskjörinu. Lagabreytingin var samþykkt með 23 atkvæbum gegn 16 og í formannskjörinu sem á eftir fylgdi fékk Arnór Karlsson 24 atkvæði en Gunnar Sæmunds- son 15. Fiskveiöideilan í Barentshafi: Norskir grænfriðung- ar hvetja til sátta Samtök Grænfribunga í Noregi hvetja íslensk og norsk stjórn- völd til að Ieita sátta í deilu þjóðanna um fiskveiðar í Bar- entshafi. Samtökin skora á viðkomandi stjórnvöld ab leggja sitt af mörkum til að settar verbi al- þjóölegar reglur um skynsam- lega nýtingu fiskistofna í úthöf- unum. í því sambandi minna þau á tilgang og markmið út- hafsráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna sem stendur yfir um þess- ar mundir í New York. Að mati norskra grænfriðunga getur það verið hagkvæmt af Norðmönnum að gefa eftir í andstöðu sinni við veiðar í Bar- entshafi ef þab kynni að leiða til þess sátt næbist um alþjóð- lega fiskveiðistjórnun og skyn- samlega nýtingu fiskistofna. Ný bók um Cuömund Böövarsson: „Skáldið sem sólin kyssti" „Skáldið sem sólin kyssti" heitir ævisaga Gubmundar Böðvars- sonar skálds en 1. september nk. eru 90 ár liðin frá fæbingu hans. Það er Silja Aðalsteins- dóttir sem skráði söguna en út- gefandi er Hörpuútgáfan á Akranesi. Skömmu eftir andlát Guðmundar 1974 var stofnaður minningarsjóbur um hann og konu hans, Ingibjörgu Siguröar- dóttur, en sjóðurinn hefur gengist fyrir ritun ævisögunnar. Þá hefur stjórn minningarsjóðs- ins ákveðið að veita úr honum ljóbaverðlaun, kennd við Guð- mund Böðvarsson, á þriggja ára fresti, en auk þess verður borg- firskum aðila veitt viðurkenn- ing fyrir framlag sitt til menn- ingarmála héraðsins. Verðlaun- in verða veitt í fyrsta sinn 28. ágúst nk. en þá er efnt til sam- komu með fjölþættri dagskrá í Hótel Borgarnesi, ma. kynningu á ævisögunni. Titill ævisögunnar á samhljóm í titli fyrstu ljóðabókar Guð- mundar Böðvarssonar skálds og bónda á Kirkjubóli í Hvítársíðu, en hún hét „Kyssti mig sól". A kápu ævisögunnar segir ma.: „Á bak vib skáldþroska Gubmund- ar standa ættgengir hæfileikar, meðfæddar gáfur — og tvær konur. Önnur var Ragnheiður Magnúsdóttir frá Gilsbakka í Hvítársíðu sem sjálf var skáld. Þroskasaga Guðmundar birtist Cubmundur Böbvarsson ekki síst í bréfum sem hann skrifaði henni frá 16 ára aldri og mynda rauðan þráb þessarar bókar. Hún var rökkurdísin í ljóðum hans. Hin var sólin sem kyssti hann, Ingibjörg Sigurðar- dóttir, eiginkona hans." Það eru börn þeirra hjóna, Ungmennasamband Borgar- fjarbar, Samband borgfirskra kvenna, Búnabarsamband Borg- arfjarðar og Rithöfundasam- band íslands sem standa ab Minningarsjóði Guðmundar Böbvarssonar skálds og bónda á Kirkjubóli í Hvítársíöu og Ingi- bjargar Sigurðardóttur konu hans. i t,- ■

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.