Tíminn - 25.08.1994, Page 10

Tíminn - 25.08.1994, Page 10
10 WtWlwU Fimmtudagur 25. ágúst 1994 Gubbrandur Gubbjartsson fyrrverandi hreppsstjóri, Ólafsvík Fæddur 23. apríl 1907 . Dáinn 10. ágúst 1994 Gubbrandur Gubbjartsson var fæddur 23. apríl 1907 að Hjarö- arfelli í Miklaholtshreppi. For- eldrar hans voru Gubbjartur Kristjánsson bóndi og kona hans Guðbranda Þorbjörg Guð- brandsdóttir. Guðbrandur var annar í röð átta systkina, en þau voru í ald- ursröö: Alexander, Guðbrandur, Kristján, Sigríöur Elín, Þorkell Ágúst, Gunnar, Ragnheiður og Guðbjörg. Eftir lifa systurnar þrjár og Kristján. Guðbjartur og Guðbranda á Hjarðarfelli voru bændahöfð- ingjar síns tíma, báru hátt merki Hjarðarfellsættarinnar. Æsku- heimili Guðbrandar í stórum systkinahópi mótaði lífsviðhorf hans og skoðanir. Hjarðarfell var eitt af merkari menningar- heimilum sýslunnar. Þar var ungmennahreyfingin og Sam- vinnuhreyfingin í öndvegi og ræktun lands og lýös var boðorb dagsins. • Guðbjartur á Hjarðarfelli varð fljótlega forustumaður meðal sveitunga, vann að jarðabótum með tækni þess tíma, bætti húsakost jarðarinnar og gerði hana að stórbýli sem orb fór af. Hjarðarfell var í þjóðbraut, veg- urinn yfir Kerlingaskarð norður yfir Snæfellsnes lá um hlaðið á Hjarbarfelli, þar var því oft gest- kvæmt en opið öllum er þar áttu leiö. Það var reisn yfir heimilishald- inu undir öruggri stjórn glæsi- legrar húsfreyju sem var gestris- in og glaðvær, þab var fjöl- mennt og búið stórt á Hjarðar- felli á þeirra tíma mælikvarða. Hjarðarfellssystkinin voru lífs- glöð og kraftmikil til allra verka og þátttaka í félagslífi, íþróttum og söng voru í hávegum höfb á þessu stóra heimili. Ungmenna- félag Miklaholtshrepps starfaöi af miklum krafti, systkinin á Hjarðarfelli voru þátttakendur af miklum áhuga. Guðbrandur var í fremstu röb íþróttamanna félagsins. Guðbrandur átti kost á að fara í íþróttaskóla Jóns Þor- steinssonar í Reykjavík 1926 og t MINNING útskrifaðist þaðan með íþrótta- kennararéttindum, sem þótti mikilvægt á þeim árum. Guð- brandur var glæsilegur ungur maður, bjartur yfirlitum, líkam- lega sterkur og sópaði af honum hvar sem hann fór. Eftir námið vib íþróttaskólann kenndi hann íþróttir og þjóðdansa víðsvegar í sveitum Dalasýslu og á Snæfells- nesi við góðan orðstír. Á vegum Búnabarsambands Snæfellinga starfaði hann að jarðabótum, ferbaðist um sveitir með sérþjálfaða hesta og jarð- vinnslutæki og vann við jarð- rækt og túnasléttun, þetta voru erfib verkefni en Guðbrandur skilaði því með miklum ágæt- um, var eftirspurn mikil eftir þessum framkvæmdum víðs- vegar í héraði, enda kærkomin nýjung til framfara sem fljót- lega haföi jákvæð áhrif á af- komu bænda. í þessum ferðum við íþrótta-, þjóðdansakennslu og jarðrækt á sumrum kynntist hann konu- efni sínu, Kristjönu Sigþórsdótt- ur frá Klettakoti í Fróöárhreppi, dóttur Kristbjargar Gísladóttur og Sigþórs Péturssonar bónda og skipstjóra í Klettakoti. Þau Guðbrandur og Kristjana felldu hugi saman og gengu í hjónaband 18. október 1930 og hófu búskap að Klettakoti. Með þeim var jafnræði, glæsileg hjón sem voru samhent í öllu meðan þau lifðu. Þau eignuðust fimm börn, en misstu tvö þeirra í frumbernsku, börn þeirra eru: Pétur Þór, fædd- ur í KUettakoti 3.2.1932, dáinn 22.1.1933; Kristbjörg, fædd í Ól- afsvík 15.6.1934, kaupkona á Sauðárkróki, gift Magnúsi H. Sigurjónssyni framkvæmda- stjóra frá Nautabúi í Skagafirði, þau eiga þrjú börn; Bryndís, fædd í Ólafsvík 20.7.1939, dáin 10.6.1940; Guðbrandur Þorkell, fæddur í Ólafsvík 23.11.1941, skrifstofumaður á Sauðárkróki, kvæntur Droplaugu Þorsteins- dóttur frá Hólmavík, þau eiga þrjú börn; Sigurþór, fæddur í Ólafsvík 8.4.1944, bifvélavirki og starfsmabur RARIK, kvæntur Magneu Kristjánsdóttur frá Ferjubakka bankastarfsmanni, þau eiga tvo syni. Búskapur þeirra Guðbrandar og Kristjönu i Klettakoti, á jörð foreldra Kristjáns, stóð stutt. Heimskreppan var í algleymingi og búskaparhorfur slæmar. Þau urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa sitt fyrsta barn er það var á fyrsta ári. Þau brugðu búi og fluttu til Ólafsvíkur vorið 1933 og stofnuöu heimili að Fögru- brekku í Ólafsvík. í Ólafsvík stundabi Guðbrandur almenn störf er til féllu og Kristjana gerðist organisti við Ólafsvíkur- kirkju auk þess að vera organisti við Vallnakirkju. Vorið 1940 urðu þau fyrir öbru áfalli. Guðbrandur og dæturnar tvær veiktust skyndilega af ókenndum sjúkdómi. Heimilið var sett í sóttkví og var tvísýnt um líf Guðbrandar og dætr- anna. Þann 10. júní lést yngri dóttirin Bryndís en Guðbrandur og Kristbjörg náðu heilsu á ný eftir langa tvísýna legu. Ég nefni þetta hér sem dæmi um sér- stæða lífsreynslu fjölskyldunnar og ekki síst til að minna á bar- áttuþrek, bæði líkamlegt og andlegt, Kristjönu húsfreyju, sem í nær algjörri einangrun varð að berjast fyrir lífi ástvina sinna vikum saman. Ég fullyrbi að þessi lífsreynslusaga móbur og eiginkonu, Kristjönu Sigþórs- dóttur, sé einstæö hetjusaga, sem vert er að minnast. Guðbrandur og Kristjana gáf- ust ekki upp. Þau byggbu fallegt hús að Ennisbraut 33, sem þau nefndu Hjarðarból. Þar komu þau upp hlýlegu heimili sem varð framtíbarheimili þeirra og þriggja barna þeirra. Börn þeirra eru öll mannkostafólk, hafa komið sér vel fyrir í þjóðfélag- inu, njóta trausts samfélagsins, hafa eignast maka og myndar- heimili og eiga efnileg börn. Á Guðbrand hlóðust fljótlega ýmiss trúnabarstörf fyrir samfé- lagið, enda hæfileikaríkur. Hann var skipaður hreppsstjóri í Ólafsvík 1936 og gegndi því starfi í nær hálfa öld. Hann var formaður skattanefndar í mörg ár og síðan umboðsmaður skatt- stjóra. Hann átti sæti í kjör- stjórn og var formaður kjör- stjórnar í áratugi. Auk þessa var hann skipaður í ótal nefndir og ráð á vegum sýslu- og sveitar- stjórnar. Það er ástæða til að vekja at- hygli á að hreppsstjórastarfið á þessu tímabili var í raun lög- reglustjórastarf, hreppstjóri í sjávarþorpi varð ávallt að vera tiltækur ef eitthvað kom fyrir. Heimilib fór ekki varhluta af þessu starfi, ónæðið var ávallt fyrir hendi nótt sem dag, helgi- daga sem virka daga. Yfirum- sjón með alþingiskosningum og hreppsnefndarkosningum, ut- ankjörstaðakosningar og margs konar opinberar tilskipanir, vottorö og vandamál sem hreppstjóraembættið varð að fjalla um eða taka þátt í ab leysa. Kristjana studdi Guð- brand í öllum þessum störfum, þótt heimilib væri oft undirlagt — það kom sér vel að gestrisni var mebfæddur eiginleiki beggja. Guðbrandur var löggiltur vigt- armaður í Ólafsvík, mig minnir ab frá 1957 hafi hann staðið óslitið á hafnarvoginni í Ólafs- vík til 1978. Alltaf var Guð- brandur til staðar er á þurfti að halda. Starfið var krefjandi, hann var stundvís og samvisku- samur við störf sín, honum var hægt að treysta. Guðbrandur tók þátt í ýmsum félagsmálum, var virkur í Verka- lýðsfélaginu og sat meðal ann- ars þing ASÍ. Hann studdi bind- indishreyfinguna og stúkustarf- ið í Ólafsvík. í áratugi tóku þau hjónin bein- an þátt í kirkju- og safnaðar- starfi bæði við Brimisvallakrikju og Ólafsvíkurkirkju. Kristjana var organisti í Vallnakirkju og Ólafsvíkurkirkju í áratugi, Guð- brandur var safnaðarfulltrúi, sóknarnefndarmaður í Ólafsvík- urkirkjusókn, fulltrúi á kirkju- þingi og héraðsfundum, hann hafði ágæta söngrödd og var virkur þátttakandi í kirkjukór og sönglífi í áratugi. Kristjana Sigþórsdóttir lést í október 1980. Eftir lát hénnar brá Guðbrandur búi og dvaldist um tíma hjá dóttur sinni á Sauðárkróki en flutti subur á elli- og hjúkrunarheimilið Grund í Reykjavík, enda þrot- inn að heilsu og kröftum. Þar. lést hann 10. ágúst sl. Útför hans var gerð frá Ólafsvíkur- kirkju 17. ágúst sl. að viðstöddu fjölmenni. Ég átti því láni ab fagna að eiga náin samskipti við Guðbrand og Kristjönu í áratugi og starfa með þeim. Milli okkar og fjölskyldu þeirra var ávallt traust og góð vinátta. Ég minnist Guðbrandar ekki aðeins sem frænda heldur ekki síður fyrir trúnað og hollráö á ýmsum tímum sem hann var fús að veita og taka þátt í mál- efnum sem til heilla horfðu fyr- ir byggðina. Ég veit að ég mæli fyrir hönd margra íbúa Olafsvíkur ab flytja Guöbrandi og Kristjönu alúöar- þakkir og virðingu fyrir störf þeirra í þágu byggðarlagsins. Við Björg og börn okkar þökk- um vináttu og eftirminnilega samfylgd og vottum börnum þeirra og öörum ástvinum inni- lega samúð. Alexander Stefánsson Lesendur skrifa Trúog farsæld Minnisvarbi á Reykjum Á hálfrar aldar afmæli Garð- yrkjuskóla ríkisins, árib 1989, kom fram tillaga frá nokkrum nemendum og vinum skóla- stjórahjónanna Elnu og Unn- steins Ölafssonar þess efnis, að efnt yröi til fjársöfnunar meö það fyrir augum að þeim hjón- um yrði reistur minnisvarði á Reykjum i Ölfusi í heiðursskyni við mikilsvert brautryðjenda- starf þeirra í þágu skólans um nærfellt þriggja áratuga skeið. Tillagan hlaut góðar undirtektir og á liðnu hausti fól undirbún- ingsnefndin Helga Gíslasyni, myndhöggvara, að annast gerð minnisvarðans — sem er lág- mynd á blágrýtisdranga — og var hann formlega afhjúpaður laugard. 13. ágúst að viðstödd- um fjölda gesta. Þegar Reynir Vilhjálmsson hafbi f.h. undirbúningsnefndar- innar afhent Grétari Unnsteins- syni skólastjóra f.h. Garðyrkju- skólans minnisvarðann til um- sjár og varöveislu og hann verib afhjúpabur af Steinunni Elnu Eyjólfsdóttur, barnabarni þeirra stjóri umhverfi hans og gat þess, ab listaverkinu hefbi verib val- inn staður í lundi, sem gefið hafði verið nafnið Unnsteins- lundur. Þá sagði Jón H. Björns- son frá gróbursetningu í lundin- um, sem hann annaðist ásamt öðrum nemendum árið 1944. Að því búnu var gestum boðið til kaffisamsætis í Garðyrkju- skólanum þar sem skólastjóri bauð þá formlega velkomna og þakkaði fyrir hönd skólans og móbur sinnar, Elnu Ólafsson, listamanninum, undirbúnings- nefndinni — sem í sátu Halldór Ó. Jónsson, Magnús H. Gísla- son, Reynir Vilhjálmsson og Svavar Kjærnested — gefendum öllum og þeim sem með einu eða öbru móti hafa stuölað að framgangi málsins. Að loknu ávarpi skólastjóra flutti Magnús H. Gíslason ræbu og gerbi grein fyrir starfi Unnsteins og þeirra hjóna á Reykjum, einkum fýrstu árin. Halldór Ó. Jónsson las kvæði eftir Unnstein skólastjóra, sem hann flutti vib skólaslit 1941. Að, lakuf^jæ^ldi Grétar Unn- steinsson um þróun Garðyrkju- skólans og það sem helst er á döfinni í málefnum hans í ná- inni framtíð, þakkaði síðan gest- um fyrir komuna og bauð þeim að litast um á staðnum það sem eftir lifði dags. Jón Unnsteinn Ólafsson fædd- ist 11. feb. 1913 á Stóru-Ásgeirsá í Víbidal, V.-Hún, sonur hjón- anna Margrétar Jóhannesdóttur og Ólafs Jónssonar, bónda þar. Hann stundaöi nám vib Alþýðu- skólann á Hvítárbakka 1928-29. Búfræöingur frá Hvanneyri árið 1933 og lauk prófi í garðyrkju frá Garðyrkjuskólanum i Vilvor- de í Danmörku vorið 1935. Árib 1938 lauk hann kandidatsprófi í garðyrkju frá Landbúnaðarhá- skólanum í Kaupmannahöfn (fyrstur íslendinga) og tók árib 1939 vib stöbu skólastjóra Garð- yrkjuskóla ríkisins, sem hann gegndipar til hann lést 22. nóv. 1966. Ariö 1937 kvæntist Unn- steinn Elnu, dóttur hjónanna Hanne og Senius Johannes Christiansen, Óðalsbónda í Bjergby á Norður-Jótlandi og lif- Þ.S. Öll trúarbrögð eru einnar ætt- ar, en í meðförum manna hafa þau aflagast á ýmsan hátt og fjarlægst uppruna sinn. Öll trúarbrögð eiga uppruna sinn ab rekja til lengra þróaðs lífs á öbrum hnöttum, þar sem farsæld, máttur og viska tekur langt fram því sem hér gerist. Öll trúarbrögð mannkynsins byggja á ófullkominni vitn- eskju — að fjarhrifaleiðum — um guðlegar verur, sem aðrar stjörnur byggja. Öll trúarbrögð sækja þrótt sinn í allt of ófullkomin fjar- hrifasambönd milli jarðarbúa og lengra kominna stjarnbúa, og stafar þessi ófullkomnun af ónógum skilningi manna á sambandseðli lífsins. Trúarbrögð þurfa ab breytast í fullkomin lífsambönd við lengra komna stjarnbúa. Þá fyrst gæti líf allra jarðarbúa breyst í sanna farsæld: Farsæld er takmark lífsins. Líf án farsældar getur ekki kall- ast líf meb réttu. Líf og ófarsæld eru hinar mestu andstæður. Líf sem byggir á ófarsæld ann- arra (manna eða dýra) er hel- stefnueinkenni og hefur löng- um einkennt lifnaðarhætti mannkyns jaröar okkar. Örvandill

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.