Tíminn - 06.09.1994, Side 6

Tíminn - 06.09.1994, Side 6
6 ttTrrr- '8* TWV'rWrr Þri&judagur 6. september 1994 íslendingar sigursœlir í hestaíþróttum í Þýskalandi: Hinrik og Eitill unnu þrátt fyrir mótmæli íslendingar voru sigursælir á þýska meistaramótinu í íþrótt- um á íslenskum hestum, sem fram fór fyrir rúmlega viku. Hinrik Bragason sigrabi í gæö- ingaskeibi og 250 metra skeiöi á Eitli frá Akureyri, en hann haföi fengiib tilmæli um a& keppa ekki fyrir mótiö. Hinrik fékk fyrir mótiö bréf frá þýska hestaíþróttasambandinu, þar sem farib var þess á leit aö hann keppti ekki á mótinu. Ástæðan var slysið á hestinum Gými, sem Hinrik reið á Lands- móti hestamannafélaga á Hellu í sumar. Hinrik segist ekki hafa orðið var við að þessi gerningur hafi bitnað á sér í keppninni. „Þeir höfðu ekki neinar hald- bærar upplýsingar, þeir höfðu bara kjaftasögur," sagði Hinrik. „Á þeirri forsendu fannst þeim tilvalið að senda mér bréf, þar sem ekki var óskað eftir mér sem þátttakanda þarna. Þeir fengu þá bara bréf frá okkur á móti, þar sem það eru lög um svona hluti og það verður að fara eftir þeim. Þeir voru ekki að bjóða í neina afmælisveislu, þetta var bara venjulegt hestamannamót." August Beier er eigandi Eitils, en Hinrik hefur keppt á honum erlendis frá því á heimsmeistara- mótinu í fyrra. Eitill var í góðu formi og sigraði 250 m skeiðið á 22,1 sek., en þar var Styrmir Árnason á Sindra í öðru sæti. í tölti sigraði Rauður frá Ellenb- Hinrik Bragason á Eitli. ach, en knapi á honum var Bent Wieth, Jolly Schrenk varð í öðru sæti á Ófeigi og Ágúst Beier á Pjakk frá Torfunesi. Fyrstu tvö sætin voru óbreytt í fjórgangi, en í þriðja sæti var Nana Degen- haft á hestinum Eldjárn frá Hof- dölum. Rúna Einarsdóttir var efst í fimmgangi á hestinum Feyki, en önnur varð Tanja Gundlach á Geysi frá Hvoisvelli. í þriðja sæti varð Rosel Rössnel á hryssunni Prúð. Hjónin Rúna Einarsdóttir og Charli Zingsheim náðu fyrsta og öðm sæti í slaktaumatöltinu á Feyki og Gyðju frá Mosfelli. Jolly Schrenk, gullverðlauna- hafi Þjóðverja frá því á heims- meistaramótinu í fyrra, vann hlýðnikeppnina á Ófeigi, en hún var jafnframt stigahæsti keppandi mótsins. Brautskráning frá Hólaskóla: 15 nýir búfræbingar Nemendur Bændaskólans á Hólum sem útskrifubust frá skólanum 26. ágúst. Einn þeirra vantar á myndina. Ljósm. Valgeir Bjamason Föstudaginn 26. ágúst sl. var brautskráning frá Bændaskólan- um á Hólum. Athöfnin fór fram í Hóladómkirkju þá um kvöldið. Bolli Gústavsson vígslubiskup flutti hugvekju og Gerður Bolla- dóttir söng við undirleik Rögn- valds Valbergssonar. Brautskráðir voru 15 nýbúfræð- ingar, 7 stúlkur og 8 piltar. Tveir brautskráðust af Fiskeldisbraut. Sl. vor brautskráðust 23 búfræðingar, þannig að á þessu ári hefur skól- inn brautskráð 38 manns, eða fleiri en nokkru sinni á sama ári. Fyrir rúmu ári var gerð sú breyt- ing á námsskipulagi skólans að hægt er að ljúka náminu á einu ári. Hafa þá undirbúningskröfur við inntöku verið auknar og skól- inn fellt niður kennslu í ýmsum grunngreinum, sem nú eru kenndar í almennum framhalds- skólum, en leggur þess í stað meiri áherslu á sérgreinar sínar. Einkum er verklegi þáttur kennslunnar aukinn. Vegna þessara skipulagsbreyt- inga útskrifast tveir árgangar nú á sama árinu. Nokkrir nemenda frá í vor völdu að fresta verknámi þar til næsta vetur og munu braut- skrást næsta vor. Nemendur voru mjög ánægðir meö þessa breytingu á námsskipu- laginu og veröur því haldið áfram næsta vetur. Með þessari breyt- ingu nýtast bæði vor og haust bet- ur til verklegrar kennslu í skólan- um en áður var. Fyrir um tveim árum var gert Vegageröarmaöur í tvígang vitni aö vandrœöum traktorstjóra í flutningum á heyrúllum: Brýnt að fara varlega í heyrúlluflutningum „Á ferö um Vestfirði nýlega kom ritstjóri Framkvæmdafrétta tvisvar þar að sem ökumenn dráttarvéla höfðu lent í vandræöum með heyrúllufarm," segir í nýjum Fram- kvæmdafréttum Vegagerðarinnar. Blaðið segir mikiö um það þessar vikurnar að bændur séu að aka heyrúllum heim af túnum. Flutn- ingatækin séu ekki öll merkileg og hleðslan stundum rífleg. Það sé því full ástæða til að brýna fyrir bændum að fara varlega við þessa flutninga og jafnframt að minna aðra ökumenn á að sýna tillits- semi. „Þegar svona boltar fara að lenda," segir ritstjóri Fram- rúlla er það tilviljun ein hvar þeir kvæmdafrétta. ■ Skólastjórinn, jón Bjarnason, afhendir dúx skólans, Kristjáni Óttari Ey- mundssyni, prófskírteini. samkomulag milli Hólaskóla og Félags tamningamanna um starf í fræðslu og kennslu. Nemendur skólans, sem útskrifast af Hrossa- ræktarbraut og uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur í árangri, geta nú sótt um aðild að Félagi tamninga- manna og öðlast þar full félags- réttindi. Við athöfnina þ. 26. ágúst var formaður félagsins, Trausti Þór Guðmundsson, viðstaddur og flutti ávarp þar sem hann fagnaði þessum áfanga og veitti 25 nem- endum formlega inngöngu í fé- lagið. Þetta samkomulag Hólaskóla og Félags tamningamanna er mikill áfangasigur í eflingu skipulagðrar menntunar innan hestamennsk- unnar. Fjórir erlendir nemendur braut- skráðust ab þessu sinni, tvær stúlkur frá Sviss og piltur og stúlka frá Noregi. Erlendir nemendur standa sig yfirleitt mjög vel og svo var í þetta sinn. Skólinn telur það heiður fyrir starf sitt að svo marg- ir útlendingar skuli sækjast árlega eftir námi vib skólann. Námsárangur nemenda var mjög góður. Hæstu einkunn fékk Krist- ján Óttar Eymundsson frá Ár- gerði, Skagafirði. Fékk hann fyrir þab viöurkenningu frá Búnaðarfé- lagi íslands. Ennfremur hlaut hann viðurkenningu í almennum jarðræktar- og búfjárræktargrein- um. Petra Liggenstorfer frá Sviss var næsthæst yfir skólann með ein- kunnina 9,3. Hlaut hún einnig bókarverðlaun fyrir góban náms- árangur í hrossarækt og bústjórn. Jens Óli Jespersen frá Engimýri í Öxnadal hlaut aðaleinkunnina 9,2 og bókarviðurkenningu frá Trésmiðjunni Borg fyrir bestan námsárangur í byggingar- og bútæknigreinum. Ásta Kristín Guðmundsdóttir fékk aðaleinkunnina 9,1 og viður- kenningu fyrir góðan námsárang- ur í verknámi og hrossaræktar- greinum. Guðmundur Björnsson frá Sauö- árkróki fékk viðurkenningu frá Landssambandi veiðifélaga fyrir námsárangur á Fiskeldisbraut. Og Veiðimálastofnun á Hólum veitti þeim Guðmundi og Ásgeiri Ás- geirssyni viðurkenningu fyrir áræði og bjartsýni aö leggja út í fiskeldis- og fiskræktarnám. Það sýndi aö nú færu bjartari tímar í hönd fyrir þá atvinnugrein. Svissneski ræöismaburinn á ís- landi, Hjalti Geir Kristjánsson, sendi þeim Petru Liggenstorfer og Sylviu Rossel árnaðaróskir við brautskráninguna. Ab athöfninni lokinni þágu allir veitingar í boöi skólans. Jón Bjamason * i t‘ ♦ •

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.