Tíminn - 06.09.1994, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.09.1994, Blaðsíða 9
Þri&judagur 6. september 1994 9 Þeir voru sigurreifir Skagamenn eftir sigur á Breibabiiki á laugardag, enda nœr búnir ab tryggja sér íslandsmeist- aratitilinn þribja árib í röb. Á myndinni eru Mihajlo Bibercic, Sigurbur jónsson og Alexander Högnason ab fagna sigri. Tímamynd BC Breiöablik-ÍA 0-1: Þribji meistaratitillinn í röð á leið á Skipaskaga Knattspyrnuúrslit í Evrópu Spánn -1. umferð Atl. Madrid-Valencia .2-4 Zaragoza-Teneriefe ....2-2 Compostela-Sociedad ....0-2 Espanol-Oviedo .......4-2 Santander-Valladolid...0-0 Sport. Gijon-Barcelona ..2-1 Bilbao-La Coruna......0-2 Albacete-Celta........1-1 Sevilla-Real Madrid....1-4 Ítalía -1. umferð Bari-Lazio............0-1 Brescia-Juventus .....1-1 Fiorentina-Cagliari ..2-1 Napoli-Reggiana ......1-0 Parma-Cremonese ......2-0 Roma-Foggia...........1-1 Sampdoria-Padova.......5-0 Torino-Inter Milan ....0-2 AC Mílan-Genoa.........1-0 Þýskaland Kaisersl.-Stuttgart...3-2 1860 Munchen-Schalke .0-1 Hamburg-Karlsruhe ....3-1 Bochum-Leverkusen ....1-3 Frankfurt-Dortmund ...4-1 Köln-Uerdingen........2-0 Duisburg-B. Munchen ...0-3 Freiburg-Werder Bremen 1-3 Gladbach-Dresden.......2-0 Staða efstu liða W. Bremen ....4 3 10 10-4 7 B. Munchen ..4 3 0 1 13-6 6 Karlsuhe.....430 1 9-6 6 Stuttgart ........4 2 11 8-6 5 Danmörk AGF-Næstved..........2-2 Odense-Silkeborg.....3-0 Brondby-Fremad.......3-0 Lyngby-Álaborg ......3-0 Ikast-FC Köbenhavn ..2-0 Staðan er þannig: Álaborg 10 stig, Brondby 9, Lyngby 8, OB og Næstved 7, Silkeborg, Ikast og Fremad 5, FC Köben 2. Skagamenn hafa nær tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í knatt- spyrnu meö 0-1 sigri á Breiða- bliki á Kópavogsvelli á laugar- dag. Meö sigrinum er staöa Skagamanna þægileg, en á hinn bóginn er staða Breiðabliks orð- in æði erfið. Það má segja að það sé táknrænt fyrir gengi liðs- ins í sumar, að sigurmark Skaga- manna var sjálfsmark Einars Páls Tómassonar. Leikurinn var ágætlega leikinn af hálfu beggja liða og lengst af mátti vart sjá hvort liðið var á toppnum eða í botnbaráttu. Bæði liðin fengu nokkur færi sem ekki tókst að nýta og svo fór að sigurmarkið var sjálfs- mark Einars Páls. -PS KR og Fram geröu 3-3 jafntefli í stórskemmtilegum leik: Framarar jöfn- ubu í þrígang Valsmenn sigruöu í þriöja heimaleiknum í röö þegar þeir lögöu Þór aö velli, 1-0. Krist- inn Björnsson þjálfari Vals: „Hefndin sæt" „Miðað við færin í leiknum þá fannst mér sigur okkar vera sanngjarn og hefndin er sæt eft- ir stórtapiö fyrir Þór í fyrri leikn- um á Akureyri. Við höldum áfram okkar striki og gælum enn við 2. sætiö í deildinni," sagði Kristinn Björnsson, þjálf- ari Vals, eftir 1-0 heimasigur á Þór í 1. deild karla í knatt- spyrnu. Hún var ekki burðug knatt- spyrnan sem liðin buðu rúm- lega 200 áhorfendum upp á á laugardag. Háloftaspyrnur voru algengar og spil lítiö sem ekkert. Leikmenn geta samt alltaf afsak- aö sig með aöstæðunum, því völlurinn var bæði háll og blautur. Þórsarar voru ágengari upp við Valsmarkið í fyrri hálf- í kvöld Evrópukeppni landsliða skipuð- um leikmönnum U21 árs í Kaplakrika, Ísland-Svíþjóð kl. 17.15 4. deild karla, seinni leikir í 4- liða úrslitum Magni-Ægir kl. 17.30 Leiknir R.-KS kl. 17.30 leik og þeir Lárus Orri Sigurðs- son og Guðmundur Benedikts- son fengu báðir dauðafæri í sömu sókn Þórs á 36. mínútu en Lárus Sigurðsson, markvörður Vals, varði stórglæsilega frá þeim báðum. Eina mark leiksins kom á 52. mínútu. Davíð Garð- arsson, varnarmaður Vals, átti upphafið að henni þegar hann sendi rakleitt frá miöju vallarins á Ágúst Gylfason sem komst ná- lægt endamörkum og renndi boltanum framhjá markverði Þórs, þar sem Eiður Smári Guð- johnsen kom aðvífandi og setti boltann í markið af stuttu færi. Á 80. mínútu fengu Þórsarar gullið tækifæri til að jafna þegar Guðmundur Benediktsson fisk- aði víti fyrir Þór. Bjarni Svein- björnsson tók vítið en Lárus markvörður varði glæsilega, boltinn fór aftur til Bjarna en Lárus varði aftur frá honum. Frábært hjá Lárusi og kórónaði hann glæsilega markvörslu sína með því að verja vítið; Eftir þetta voru Þórsarar alveg búnir og Valur fékk tvö dauðafæri í lokin en klúöraði þeim. Þriðji heimasigur Vals í röð á heima- velli var því staðreynd. Fótboltinn sem KR-ingar og Framarar buðu áhorfendum upp á laugardag í 1. deild karla var stórskemmtilegur og litu 6 mörk dagsins ljós. Það var ekki annað að sjá en að þungu fargi væri létt af leikmönnum liðanna, enda hafa þau að litlu að keppa í deildinni. KR er komið með titil og Fram siglir lygnan sjó um miðja deild. Léttleikinn var því í fyrirrúmi og skemmtunin mikil fyrir áhorfendur. Tómasi Ingi Tómasson hóf leik- inn fyrir KR í stað James Bett, sem er meiddur, og stóð sig vel í fyrri hálfleik. Hann prjónaði sig í gegnum vörn Fram á 14. mín- útu og átti þrumuskot en Birkir Kristinsson varði en aðeins að hálfu leyti og varnarmaðurinn hjá KR, Daði Dervic, náði að skalla boltann í netið. Hólm- steinn Jónasson jafnaði fyrir Fram á 31. mínútu eftir að hafa fengið stungusendingu inn fyrir vörn KR. Dervic skoraði aftur á 31. mínútu meö skoti rétt utan vítateigs en Kristinn Hafliðason jafnaði fyrir Fram alveg undir lok hálfleiksins. Lætin héldu áfram í seinni hálfleik og Tryggvi Guðmunds- son kom KR yfir í þriðja sinn eft- ir að hafa hirt frákastið úr sinni eigin hornspyrnu og þrumað boltanum í hægra markteigs- hornið. Kristinn Hafliðason jafnaði síöan. eina. ferðina enn fyrir Fram þegar níu mínútur voru eftir og þar við sat. Ekki er hægt að segja að úrslit- in hafi verið sanngjörn. KR réð ferðinni nær allan leikinn og fékk fjölmörg dauðafæri og Heimir Porca var sérstaklega klaufalegur upp viö Fram-mark- ið. Dervic og Rúnar skutu líka í marksúlurnar á meðan Fram fékk þrjú færi og nýtti þau öll sem er nokkuð góður árangur. ■ FH stendur vel ab vígi í 2. sætinu FH-ingar gerðu góða ferð til Keflavíkur og sigruðu þar heimamenn 1-2 í miklum bar- áttuleik í 1. deild karla í knatt- spyrnu. Þessi tvö hafa háö mikla keppni í sumar um 2. sætið og nú virðist FH vera aö hreppa hnossið og um leið sæti í Evr- ópukeppninni að ári. Marko Tanasic gerði mark ÍBK og kom þeim yfir en Jón Erling Ragnars- son jafnaði áður en fyrri hálfleik lauk. í seinni hálfleik skoraði Hörður Magnússon sigurmarkið fyrir FH en samt voru Keflvík- ingar betri aöilinn allan leikinn og fengu fullt af dauðafærum. ■ Einkunnagjöf Tímans 1= mjöq lélegur 2= slakur 3= í meballagi 4= góbur 5= mjög góbur 6= frábær Valur-Þór 1-0 (0-0) Einkunn leiksins: 2 Lið Vals: Lárus Sigurðsson 6, Davíð Garðarsson 5, Kristján Halldórsson 4, Guðni Bergsson 4, Steinar Adolfsson 3, Atli Helgason 2, Hörður Már Magn- ússon 3, Jón Grétar Jónsson 2, Eiður Smári Guðjohnsen 4, Sig- urbjörn Hreiðarsson 3, Agúst Gylfason 3. Lið Þórs: Ólafur Pétursson 2, Hlynur Birgisson 2, Birgir Þór Karlsson 3, Júlíus Tryggvason 3, Sveinn Pálsson 2 (Elmar Eríks- son, lék of stutt), Lárus Orri Sig- urðsson 5, Páll Gíslason 3, Guð- mundur Benediktsson 4, Bjarni Sveinbjörnsson 2, Þórir Áskels- son 2 (Hreinn Hringsson á 67. mín. 2), Örn Viðar Arnarson 1. Dómari: Kristinn Jakobsson 5. Gul spjöld: Júlíus (Þór), Bjarni (Þór), Davíð (Val), Jón Grétar (Val), Sigurbjörn (Val). KR-Fram 3-3 (2-2) Einkunn leiksins: 4 Lið KR: Kristján Finnbogason 3, Óskar Þorvaldsson 3, Izudin Dabi Dervic 5, Þormóður Egils- son 3, Siguröur B. Jónsson 2 (Vilhjálmur Vilhjálmsson á 78. mín. 2), Heimir Guðjónsson 3, Rúnar Kristinsson 4, Hilmar Björnsson 4, Tómas Ingi Tóm- asson 4 (Einar Þór Daníelsson á 66. mín. 1), Tryggvi Guð- mundsson 4, Salih Heimir Porca 1. Lið Fram: Birkir Kristinsson 4, Pétur H. Marteinsson 3, Gauti Laxdal 2, Helgi Björgvinsson 3, Ágúst Ólafsson 3, Valur F. Gíslason 2, Hólmsteinn Jónas- son 4 (Haukur Pálmason lék of stutt), Kristinn Hafliðason 5, Steinar Guögeirsson 3, Ríkharö- ur Daöason 3, Helgi Sigurðsson 2. Dómari: Guðmundur Marías- son 3. ÍBV-Stiarnan 1-2 (1-2) Einkunn leiksins: 3 Lið ÍBV: Friðrik Friöriksson 4, Friðrik Sæbjörnsson 3, Heimir Hallgrímsson 4, Jón Bragi Arn- arsson 2 (Bjarnólfur Lárusson lék of stutt), Hermann Hreiö- arsson 3, Sigurður Gylfason 2 (Rútur Snorrason á 65. mín. 2), Nökkvi Sveinsson 3, Sumarliði Árnason 3, Þórir Olafsson 3, Zoran Ljubicic 3, Steingrímur Jóhannesson 2. Lið Stjömunnar: Sigurður Guö- mundsson 3, Valgeir Baldurs- son 3, Goran Micic 3, Ragnar Árnason 4, Heimir Erlingsson 4, Ottó K. Ottósson 3, Birgir Sigfússon 4, Ragnar Gíslason 3, Baldur Bjarnason 5, Ingólfur Ingólfsson 2 (Bjarni G. Sigurbs- son á 74. mín. 2), Leifur Geir Hafsteinsson). Dómari: Egill Már Markússon 2. UBK-ÍA 0-1 (0-0) Einkunn leiksins: 3 Lið Breiðabliks: Hazudurdin Cardaklija 3, Sigurjón Krist- jánsson 2 (79. mín, Jón Stefáns- son lék of stutt), Gunnlaugur Einarsson 4, Rastislav Lazorek 3, Willum Þór Þórsson 2 (55. mín. Guðmundur Guömunds- son 3), Gústaf Ómarsson 3, Há- kon Sverrisson 3, Arnar Grét- arsson 4, Vilhjálmur Haralds- son 3, Einar Páll Tómasson 3, Kristófer Sigurgeirsson 4. Lið ÍA: Þórður Þórðarsson 3, Pálmi Haraldsson 3, Sturlaugur Haraldsson 3, Theódór Her- varösson 3, Zoran Miljkovi 3, Alexander Högnason 3, Sigur- steinn Gíslason 4, Mihajlo Bi- bercic 3, Ólafur Þórðarson 3, Haraldur Ingólfsson 3 (86. mín. Kári Steinn Reynisson, lék of stutt). Dómari leiksins: Eyjólfur Óiafs- son 4.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.