Tíminn - 24.09.1994, Blaðsíða 2
2
Laugardagur 24. september 1994
Erró í Hafnarhúsib
Hjá Reykjavíkurborg eru uppi
hugmyndir um ab taka hluta
Hafnarhússins undir Listasafn
Reykjavíkur og koma þar mebal
annars fyrir þeim verkum Er-
rós, sem fyrrverandi borgar-
stjórn ætlaði sérstakt Erró-safn
að Korpúlfsstöðum undir, aö
lokinni umfangsmikilli viögerö
og endurbyggingu húsakosts
þar.
Tíminn hefur heimildir fyrir því
ab rætt sé um að taka fyrstu tvær
hæðir hússins undir starfsemi
Listasafns Reykjavíkur, en eftir
nauösynlegar endurbætur yrbi
þar um ab ræba tæplega 2 þúsund
fermetra grunnflöt. Brábabirgða-
tölur um kostnað vib að gera
þessar tvær hæbir tilbúnar til inn-
réttingar hljóba upp á 200 millj-
ónir króna.
Reykjavíkurhöfn er eigandi
Hafnarhúsiö í Reykjavík.
Hafnarhússins og nýtir nú sjálf
smáhluta af jarbhæð hússins, um
hálfa fjórðu hæb og svo þá
fimmtu sem er langminnst að
grunnfleti. Félags- og samgöngu-
málaráðuneytib er á fjórbu hæö
hússins, í austurendanum. Dag-
vist barna er á verulegum hluta
þriðju hæðar, en miklar geymslur
eru líka í húsinu, svo og annaö
rými sem hefur takmarkab nota-
gildi eins og er.
Fyrir nokkrum misserum var
mikið um það rætt að gera Hafn-
arhúsið að verslunarmiöstöb,
ekki síst í ljósi þess að í miðbæinn
vantaði stórmarkað meb matvöru
og þess háttar. Þær hugmyndir
eru úr sögunni, að sögn kunnugra
sem benda á aö það sé ekki hús-
næðisskortur í miðbænum sem
hafi staðið í vegi fyrir stórmarkabi
þar. / ■
Foreldrafélag Austurbœjarskóla krefst þess ab abstöbu heilsdagsskólans veröi lokab:
Ekki börnum bjóöandi
Foreldra- og kennarafélag
Austurbæjarskóla krefst þess
að bráðabirgðaaðstöðu heils-
dagsskólans verbi lokað þar
sem húsnæðið sé algerlega
óvibunandi. Félagib lýsir yfir
undrun sinni á því hvernig
undirbúningi fyrir skólastarf
vetrarins var háttað.
í ályktun sem samþykkt var á
fundi félagsins í fyrrakvöld
segir að skólinn hafi verið al-
gerlega vanbúinn til að taka á
móti börnum í heilsdagsvistun
þegar þau mættu í skólann í
haust. Sú bráðabirgðaaðstaða
sem síðan hafi verib tekin í
notkun sé fullkomlega óvið-
unandi, auk þess að vera á
kostnað annarra barna í skól-
anum. Foreldrafélagið ályktar
því að nauðsynlegt sé að loka
þeirri aðstöðu þangað til við-
unandi lausn fáist á málinu. Á
fundinum samþykkti Alfreð
Eyjólfsson skólastjóri kröfu
foreldra um að loka aðstöb-
unni og sagðist gera það innan
tveggja vikna.
Steinunn Jóhannesdóttir,
sem sæti á í foreldraráði Aust-
urbæjarskóla, segir ab aðstað-
an sem börnunum sé boðin
upp á sé salur á háalofti skól-
ans sem hafi verið notaöur
sem matar- og félagsabstaða
eldri nemenda. „Þab er í raun
engum börnum bjóðandi upp
á þessa aðstöbu, hvorki þeim
eldri né þeim yngri. Hreinlæt-
isaðstaða þar er mjög bágborin
og ég efast um að heilbrigðis-
yfirvöld myndu samþykkja
hana. Rafmagnsmál eru líka í
ólestri í þessum sal þar sem 30-
40 börn áttu að dvelja í einu.
Ég á sjálf sex ára stúlku sem er
að byrja sína skólagöngu og ég
get ekki hugsað mér að láta
hana dvelja þarna þótt ég hafi
veriö á biðlista síðan í vor; Ég
ætla ekki að taka þá áhættu að
eyðileggja afstöðu barnsins til
skólans með því að láta hana
lenda í því að vera rekin eins
og lamb í rétt í svona fullkom-
lega óviðunandi gæslu."
Steinunn jóhannesdóttir í
foreldrarábi Austurbœjarskóla.
Júlíus Sigurbjörnsson, deild-
arstjóri á Skólaskrifstofu
Reykjavíkur, sagði í Tímanum
fyrr í haust að ein ástæða þess
að málefni heilsdagsskólans í
Austurbæjarskóla væru í
ólestri væri sú að foreldrar
hefðu ekki svarað fyrr en í
haust hvort þeir óskuðu eftir
þjónustu hans. Steinunn vísar
þessu alfarið á bug. „Það voru
70 til 80 foreldrar sem svöruðu
strax í vor, þannig að þab er
fullkomlega rangt að ekki hafi
veriö vitab um þörfina. Ein-
hver börn hafa bæst við í
haust en það er alrangt að for-
eldrar hafi ekki tekið við sér,"
segir Steinunn. ■
Nýtt dagblab í stab
Eintaks og Pressunnar:
Páll og Gunnar
Smári í rit-
stjórastólana
Nýtt dagblað veröur stofnað á
rústum Eintaks og Pressunnar
innan skamms. Ritstjórar blaðsins
verba þeir félagar Gunnar Smári
Egilson, ritstjóri Eintaks, og Páll
Magnússon, fyrrv. sjónvarpsstjóri
Stöðvar 2. Ekki fengust upplýsing-
ar um það hvort blaðib muni
koma út á morgnana eða síðdegis
eða hvort þab verður „Gul pressa"
eða eitthvað annað. ■
Starfsmenn nýja dagblabsins ab koma sér fyrir á ritstjórninni í gœr.
-Tímamynd GS
* Ó P Ý R A R FRYSTIKISTUR, KÆLI - OG FRYSTISKÁPAR*
VESTFROST A FRABÆRU VERÐI
VERÐFRÁ- ^
37.81°
stgr.
\ Frystikistur í mörgum stœrðum
Yfir 25 ára reynsla á íslandi.
Niðurfall í botni fyrir afþíðingu
óryggisrofar v/hitabreytinga og barna
Sparnaðarstilling - djúpfrystirofi
Ljós í ioki
Danfoss kerfi
Dönsk gœðavara - 3ja ára ábyrgð
Úrval kœli- og
frystiskápa
• Orkusparandi -
• Tvœr pressur í
sambyggðum
skápum
• Hœgri eða vinstri
opnun
• Djúpfrystirofi —
öryggisrofi
• Danfoss kerfi
OGJ&33
• FAXAFíN 12 • SlMI 38000 •
•ÓÝRAR FRYSTIKISTUR, KÆLI - OG FRYSTISKÁPAR*
Engin lausn í sjónmáli á
húsnœbisvanda Austur-
bœjarskóla. Júlíus Sigur-
björnsson:
Foreldrar
sýni um-
burðarlyndi
Júlíus Sigurbjörnsson, deildar-
stjóri á Skólaskrifstofu
Reykjavíkur, segir ab ennþá sé
engin lausn fundin á húsnæð-
isvanda Austurbæjarskóla.
Hann segist ekki skilja kröfu
foreldra um að bráöabirgba-
húsnæðinu verði lokað enda
sé það foreldrum í sjálfsvald
sett hvort þeir láti börn sín
dvelja þar eða ekki. Júlíus tel-
ur skorta á umburöarlyndi
foreldra.
Júlíus telur bráðabirgðahús-
næði heilsdagsskólans í Austur-
bæjarskóla ekki vera óviðun-
andi eins og foreldrar halda
fram. „Húsnæöið er ekki eins
slæmt og af er látið. Það er alveg
klárt að þetta er ekki húsnæði til
frambúðar enda er þar ýmislegt
sem betur mætti fara. Þetta er
þó húsnæði sem unglingarnir
hafa gert sér ab góbu og haft af-
not af athugasemdalaust af öll-
um yfirvöldum. í sjálfu sér er
ekkert öbruvísi að nota hús-
næðib fyrir yngri börnin en þau
eldri því allir nemendur eiga
sama rétt til þokkalegs húsnæð-
is."
Júlíus segir að sér finnist skrýt-
ið að foreldrar krefjist þess að
bráðabirgðahúsnæðinu verði
lokað þangað til betri lausn
finnist. „Foreldrarnir eru að
krefjast þess að skólastjórinn
sendi börnin heim. Þetta er auð-
vitað alveg fráheyrð krafa því
það er foreldranna að ráða því
hvar börnin eru staðsett. Ef frí-
viljugt tilboð skólans er þannig
að foreldrarnir geta ekki hugsaö
sér ab taka því þá er það þeirra
að ákveða það. Það er ekki
skylda að veita þessa þjónustu
og það er ekki hægt að gera
kröfu til þess að þetta risavaxna
verkefni sé fullskapað eftir einn
vetur." ■
Kjarasamningar:
Sjómenn
semja til
ársloka
1995
í fyrradag var undirritabur
kjarasamningur á milli Sjó-
mannasambands íslands og
Landssambands ísl. útvegs-
manna og gildir samningurinn
til ársloka 1995.
Engar beinar kauphækkanir eru í
þessum samningi en helstu atriöi
hans eru þau að eldri kjarasamn-
ingur er framlengdur meö við-
auka er lýtur aö ýmsum sérkjara-
atribum. Þar á mebal er samning-
ur um rækjuveibar þegar afli er
frystur um borb, söltun um borð í
togara, einnig þegar afli er frystur
eða saltaður um borb í línu- og
netabátum, um síldveibar og síld-
arfrystingu á frystitogara, humar-
frystingu í bátum, tveggja skipa
botnfiskveiöar með einu trolli og
þegar loðna er fryst um borb í
frystitogara. Þessu til viðbótar
voru gerðar nokkrar lagfæringar
og breytingar á eldri samningi.
Hinsvegar er enn ólokið gerb
kjarasamninga á milli LÍÚ og Vél-
stjórafélags íslands og Farmanna-
og fiskimannasambandsins. ■