Tíminn - 24.09.1994, Side 10
10
fwmm
Laugardagur 24. september 1994
Hagvrbingaþáttur
Nýjar fréttir og nýlegar
Knár og stœltur stundar djamm,
styður grimman bœndaher,
en neitar að koma nakinn fram
Nonni kratamínister.
ísland gerði engin mörk,
ólán má það heita.
Og útlands bjálfar Íslands-Björk
engan heiður veita.
(Til stóö að Björk fengi alls konar verðlaun).
Það mun varla vera spaug;
í Washington á froegan rann
einhver vitlaus asni flaug
og œtlaði að drepa forsetann!
(Búi)
í kirkjugarði
Hverjum er holað hér niður?
Það er ég. Ein — því miður,
sagði Bergljót B.
við Bjama G.,
en bráðum ligg ég — með yður.
Frétt af mislukkuöum vegabótum
Vond er þessi vœtutíð,
vökna margan lœtur.
Ekki klökknar œskan fríð,
en „olíumölin grœtur".
(Vale)
Ort á síðsumardögum 1994:
Hugsað upphátt
Frjálshyggjan er falsið tómt,
í felum liggurgœra,
fósturland og fólkið frómt
í fjötrana að fœra.
Við því sporna viljum við
og vemda landið kæra.
Við heimaverkin hugsið þið
heimilið að mæra.
Ráðvilltir hugsa
Gjöldin hækka, gengið lækkar,
getum við nokkuð gert í því?
Skuldin hækkar, kjötið lækkar,
við emm eins og lömb í kví.
(Stafkarl)
Addi í Holti hefur áhyggjur af síglottandi stjórnmála-
manni, sem hann sér oft myndir af og telur vafasamt að
komist á þing í vor:
Aldrei sá ég aulaglott
einum fara betur.
Hafir þú hvorki háð né spott,
hjarir máski í vetur.
Sami kveður um Gorbatsjov:
Hjó hann Gordíonshnútinn á,
er hnýtti Lenín forðum.
Rauðar sveitir riðlast þá
rtkið gekk úr skorðum.
Fölnar roðinn austri í
yfir svona snilli.
Skipuleggja skal á ný,
skælist öjfga á milli.
Sjóbrýmun
Oss gera nafnkunnir nóg blekkta;
naumast má finna menn ósvekkta.
Sagt hefur maður
— og mun ekki þvaður —
að Miðhúsasilfrið sé óekta.
(Búandkarl)
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4
105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA
Heilsusamleg-
ur kynþokki
Ærverðug frú spyr hvað
þaö sé eiginlega að stilla
dónalegum undirfatnaði
kvenna út í búðarglugga á al-
mannafæri. Hún vill líka fá að
vita hvaða konur það séu sem
ætlað er að ganga í þessu og til
hvers. Varla er það til að halda á
sér hita, svo efnislitlar sem flík-
urnar eru og ekki hylja þær nekt-
ina.
Svar: Undirfatatískan er hluti af
fatatískunni og er svolítib breyti-
leg og hver og ein verður að finna
sér eitthvaö við hæfi til að ganga í
næst sér.
Það eru nokkrar búðir sem sér-
hæfa sig í undirfatnabi af þeirri
gerð sem sú æruverðuga kallar
kannski dónalegan. Þessar versl-
anir eru náttúrlega með sínar út-
stillingar eins og aðrar verslanir
og ef þær hneyksla einhvern er
auðvelt ab líta undan þegar geng-
ib er framhjá gluggunum.
Ef svona útstillingar særa vel-
sæmiskennd einhverra er hægt að
fara að eins og með sjónvarpið. Ef
mann langar ekki til að horfa á
eitthvað sem þar er sýnt er aub-
velt að slökkva eöa líta undan í
abra átt.
Margar þær flíkur sem hér um
ræðir eru ekki eiginleg undirföt.
Farið er í þetta og úr aftur án þess
að klæðast öðrum flíkum utanyf-
ir.
Annars er undirfatnaður tísku-
vara og á boðstólum er mikíð úr-
val af alls kyns þokkafullum und-
irfatnaði fyrir konur á öllum
aldri.
Þab eru margar fullorðnar og
aldraðar konur sem hafa afskap-
lega fínan skrokk og kynþokka-
fullur undirfatnaður er aíveg jafnt
fyrir þær eins og ungu konurnar.
Karlarnir líka
í dag er mikið talað um Wonder-
bra, sem er brjóstahaldari með
fyllingu sem gerir það ab verkum
að brjóst konunnar stækka og
lyftast vel þegar svona haldari en
notaður.
Ég hef alltaf viljað meina ab nær-
buxur eigi að ná upp í mitti. En
nú eru á markaöi líka nærbuxur
sem eru ekki annað en þríhyrn-
ingur meb böndum aftur fyrir og
allt um kring.
Þetta er viðurkenndur fatnaður
og í þessu ganga margar konur í
dag og þykir þægilegt. Ég sem
karlmabur hef náttúrlega ekki
prófað þetta en ég held að þaö
hljóti að vera heppilegra að vera í
sokkabuxum undir þessu, ab
minnsta kosti úti fyrir.
En karlmenn ganga í svipuðu. í
sólarlandaferðum sér maður ab
annar hver karl er í svona sund-
flík á strönd. Það þykir ekkert
ósiðlegt þar.
Allir ánægbir
Svo er það samfellan sem fram-
leidd er afskaplega siðleg og svo
líka heldur efnisminni. Mér
finnst mjög tilhlýðilegt að þegar
kona fer í sparifötin sé hún í eins
efnislitlum flíkum innan undir og
hún getur.
Þaö er afskaplega gaman fyrir
konur í dag, á tímum HIV veir-
unnar, að hátta sig annab slagið
úr sparifötum yfir í mjög glæsileg-
an og kynþokkafullan undirfatn-
ab fyrir manninn sinn. Hún held-
ur honum þá betur heima og þau
deyja síður úr eyöni en ef hann er
ab dingla í lauslæti úti í bæ.
í sambandi við þetta er svolítil
ekki kann að tjá sig því þá missir
þab stjórn á sér og leiðist út í alls
kyns vitleysur sem betur væru
ógerðar.
Að halda körlunum
heima
Það getur aukib andlega vellíðan
konu að finna sig vera kynþokka-
fulla og það hefur líka góð áhrif á
karlmenn sem em í návist hennar.
Ég vil vinsamlegast benda fólki á
ab líta ekki kynþokkafullan
klæðnað hornauga. Það er samt
enginn kominn til með að segja
ab allar konur eigi ab klæðast
svona. Finnist þeim þab ósiðlegt
og ónotalegt eiga þær bara að láta
þab vera. Kynþokkafull undirföt
em aðeins fyrir þær sem vilja
ganga í þeim.
Það þarf ekki að vera neinn
gleðikonubragur á því þótt kven-
fólk klæbi sig á eggjandi hátt. Þab
er sjálfsagt ab þær ge;i það fyrir
eiginmenn sína. Þá leita þeir síður
til gleðikvenna til að fá örvun og
svo drepast heilu fjölskyldurnar
úr eyðni.
Kynþokkafull undirföt eru því
heilsusamleg og fyrirbyggja upp-
lausn fjölskyldu og sjúkdóma ef
svo vill vera. Svo má benda á að
íslendingar eru fáir og þab er
meira en í lagi að þjóðinni fjölgi.
Og rétt undirföt og meöferð
þeirra geta haft gób áhrif á fólks-
fjölgunina. ■
Hvernig
áégað
vera?
HEIÐAR JÓNSSON
SNYRTIR
svarar spurningum lesenda
tvöfeldni í siögæðinu. Ef við
gagnrýnum kynþokkalegan fatn-
ab og hann særir augun gæti þab
bent til þess ab vib tjáum okkur
ekki kynferöislega og hegöum
okkur ekki eftir því sem hneigð-
irnar beinast ab.
íslendingum hættir til ab fá sér
tvö glös og þrjú og enn fleiri. Það
skapar hættu hjá því fólki sem