Tíminn - 08.10.1994, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 8. október 1994
Hagvrðingaþáttur
Gestur í Vík sendir botn og lætur fylgja með skír-
skotun í ágæta vísu. Fer sending hans hér á eftir:
Fyrripartur Tímans:
Út um grundir ísafróns
iðka stundagaman.
Botn:
Bitlingshundar Beina-Jóns
bljúgir funda saman.
Samanber þessa vísu:
Af Beina-Jóni
Vini bein þó veitt'ann ör
— en víniö hreina öðrum bauð —
bólgna meinin, kreppir kjör,
koma steinar fyrir brauð.
Kristinn Gísli Magnússon botnar einnig fyrripartinn
eftir kúnstarinnar reglum:
Kyssir hrundir karl til nóns,
kannski hundruð saman.
Gylling
Halur víkur hugsun frá,
hefur spillinguna.
Guðmundur Ámi eflaust má
efla gyllinguna.
Aðalsteinn Ólafsson á Akureyri sendir eftirfarandi
vísur:
Óholl fæða
Ekkert lœrt til gagns hér geta
gamlir hreystimenn,
hangiket og hákarl éta,
helvítin lifa enn.
Götufrétt úr Reykjavík
Að sunnan við heyrum þann Salómonsdóm,
þið sannlega jafnréttis njótið.
Efstelpumar berjast á strœtum með klóm
skal strákunum henda í grjótið.
Framtíðarsýn
Ljós finnst mér að leiðin sé,
lygnir málin flœkja.
Æðstu menn hjá ESB
auðlindimar sœkja.
Að lokum dýr hvatning til þeirra sem unna ljóða-
gerð. Bragarsmiðir eru beðnir að senda þættinum
stökur, í stað þess að vera skúffuskáld sem ekki þora
að leyfa öörum að lesa hugarsmíðar sínar:
Hvatning
Leysum, bróðir, léttan óð
lífs úr tjóðurbandi.
Forðum þjóðin þuldi Ijóð
í þessu góða landi.
Heims á gmnd efgrimm var stund
gafst þó undansláttur;
hal og spmndi létti lund
Ijóða-bundinn þáttur.
Þennan geymum þjóðarseim;
þýðan hreim í Ijóðum.
Aldrei gleymum arfi þeim
á okkar heimaslóðum.
Búi
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4
105 Reykjavík P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA
Vellyktandi og illalykt-
andi karlar (og konur)
Snyrtivörur fyrir karlmenn eru
orbnar fyrirferðarmiklar á
markaði en eru notaðar af lít-
illi kunnáttu, að því er snyrtileg
kona telur og leggur þá spurningu
fyrir Heiðar hvort ekki sé full þörf
á því að kenna körlum að nota
þær snyrtivörur sem þeim eru
ætlaðar og oft eru keyptar af kon-
um til að gefa karlmönnum. En
leiðarvísa vantar.
Heibar: Flest herrasnyrtivörufyr-
irtæki, sem eru orðin mjög mörg í
dag, eru meö þennan venjulega
rakspíra sem íslenskir karlmenn
baða andlitin upp úr. Síðan eru
þau með balm, eða nokkurs kon-
ar krem, sem borið er á húðina
eftir rakstur og er mýkra og gott
fyrir viðkvæma húð sem illa þolir
spírann, en gerir sama gagn.
Sumir karlmenn þola þetta illa
og þá er hægt að fá krem sem
varnar að húðin þorni.
Eau de toilette fyrir karla er allt
annar hlutur, það er steinkvatn
og karlmenn eiga að nota það ná-
kvæmlega eins og konur. Bera
það á bak við eyrun og í olnboga-
bótina, en alls ekki maka því á sig
eins og rakspíra. Flestar línur hafa
einnig baðgel og baðsápur og allt
með sömu lykt. En er karlar vilja
vera flott á því og nota rakspíra,
eau de toilette, sápu, sjampó og
alit þaö í sömu lyktarlínunni, er
hætt við að hún verði heldur
sterk og svo bætist kannski svita-
lyktareyðir við.
Ef svona línumenn sleppa rak-
spíranum, en nota rakakrem í
staðinn, ilma þeir öllu skár. Fyrir
suma er alveg nóg að nota aðeins
góða ilmsápu eða baðgel.
Hóf og óhóf
Sumir karlar vilja ekki nota neitt,
ekki einu sinni Old Spice, og
finnst öll ilmefni tildursleg. En
svo erum við íslendingar ailtaf of-
boðsfólk og notum hlutina í
óhófi.
Það er dálítið leiöinlegt að fara á
veitingastað í dag og finna ekki
þessa gömlu góðu ilmvatnslykt
kvenna, vegna þess að þegar mað-
ur kemur inn er gengið inn í rak-
Hér er veriö aö auglýsa karlailm, sem konur vilja gjarnan líka nota.
spíraskýið. Mættu karlmenn að-
eins fára að huga aö því hvernig
þeir nota snyrtivörur og ilmefni.
Einstaka fyhrtæki eru farin að
framleiða perfume fyrir karla. En
ég vil meina að konur eigi að eiga
áfram einkarétt á fínustu og bestu
ilmefnunum og bera með sér
hinn höfuga, seiðandi ilm sem
perfumið er.
Einföld skilgreining á ilmefnum
er að ilmvatn eða perfume er al-
gjörlega óblandað, ilmefni hreint
Heiðar Jónsson, snyrtir,
svarar spurningum lesenda
Mocy'* f Towor Rccord*
/
CalvinKteín
\ '
a new fragronce for c mon or o womon
CaWin Klein framleiöir sömu ilmefni fyrir konur og karla.
og tært. Síðan kemur næsti styrk-
leiki, sem er eau de perfume og
perfume de toilette. Þá er búið að
þynna ilmefniö um það bil 30%
með vínanda. Þegar komið er út í
eau de toilette er búið að þynna
efnin um 60 af hundraði með
vínanda. Svo kemur eau de co-
logne og þá er þynningin orðin
100% með vínanda og vatni. Þaö
er núna að fara af markaðnum,
því það gefur afskaplega lítinn
ilm.
Munurinn
Talsverður munur er á ilmefnum
sem ætluð eru körlum og þeim
sem konur nota. En munurinn er
alltaf að minnka og er t.d. Calvin
Klein núna að markaðssetja í
Bandríkjunum unisex-ilm, sem er
að slá í gegn og er ætlaður konum
jafnt sem körlum.
Hægt er að fá þennan nýja ilm í
rakspíra sem öðrum snyrtivörum.
Munurinn er reyndar ekki svo
mikill fyrir, því margar konur eru
farnar að nota karlailm, sem þær
falla fyrir, og það er hellingur af
körlum sem nota konuilm. Þarna
ræður smekkur einstaklinganna.
Aðalmunurinn er að í konuilmi
er mikiö af blómum og ljúfum
kryddefnum, en í karlavöru er
barkarilmur og leöurlykt áber-
andi og jafnvel tóbaksessensar.
En svo er þess að gæta að sýru-
stigið er misjafnt í fólki, svo lík-
aminn bregst misjafnlega við ilm-
efnum. Sumar konur þola ekki
viss ilmvötn, það verður bara sú
lykt af þeim þegar þær bera á sig
vitlaus efni. En það getur orðið
mjög kvenleg og góð lykt af sömu
konum, þegar þær bera á sig ilm-
efni sem ætluð eru körlum.
Sama er um herrailm á körlum.
Hann getur orðið sterkur eins og
tóbakssvækja, sé ekki farið að öllu
með gát.
Málið er það að manneskja, sem
finnur góðan ilm af annarri
manneskju, getur aldrei gengið
að því vísu að sami ilmur lykti
eins vel á sér. Þegar nýr ilmur
kemur á markaöinn, er alltaf dá-
lítið spennandi að fá kunnáttu-
fólk til að setja hann á sig, bíða
svo dálitla stund og finna hvaða
lykt kemur af manni og hvernig
nýi ilmurinn passar manni.
Sjálfsagt er að biðja fagfólk að
aðstoða sig við val á ilmefnum. í
betri snyrtivöruverslunum er
hægt aö fá góða faglega ráðgjöf,
og svo auðvitaö á snyrtistofum og
fyrir karlmenn á vönduðum rak-
arastofum.
Hver og einn verður að finna
ilm við sitt hæfi. Karakter ilms
og manneskju má ekki stangast
á. Það er langt mál að fara nán-
ar út í þá sálma, en einfaldast er
að fá ráðleggingar fagfólks um
hvaö passar hverjum. Ekki samt
beina ráðgjöf, því það fólk hefur
sinn smekk líka og smekkur er
ajdr,ej óbrigðull,.........■