Tíminn - 08.10.1994, Síða 11

Tíminn - 08.10.1994, Síða 11
Laugardagur 8. október 1994 11 Börn Jökuls Jakobssonar gefa út leikrit föbur síns, sem eru alls 23 aö tölu. Hrafn Jökulsson: „Sumt af þessu er skolli vel skrifað" Hart í bak fyrir eliefu árum síban: Kristján Franklín Magnússon og Sofffa Jakobsdóttir í hlutverkum Lqka og Áróru. , „Hart í bak" Ritsafn verka Jökuls er alls um 950 blaðsíður og sem fyrr segir eru þaö börn hans sem að útgáf- unni standa. Hafa þau myndað með sér Útgáfufélagið Hart í bak. Ritsafnið fæst í öllum helstu bókaverslunum. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að Fyrir skömmu kom út tveggja binda ritverk, sem hefur að geyma öll leikrit Jökuls heitins Jakobssonar rithöfundar. I>að eru eftirlifandi börn hans sem gefa verkið út, en það hefur að geyma alls 23 leikverk af ýms- um toga. Jón Viðarjónsson leik- húsfræðingur hefur annast út- gáfuna fyrir hönd barna Jökuls. „Hugmyndin að gefa leikrit Jökuls út er gömul. Það hefur alltaf legib ljóst fyrir að verkin þyrftu að vera til í aðgengilegu formi. Leikrit eru bundin öör- um lögmálum en aðrar bók- menntir. Lítib er um að þau komi út á prenti, en þar sem framlag Jökuls til íslenskrar leik- ritagerðar er mikið og merki- legt, er nauðsynlegt ab svo sé," sagði Hrafn Jökulsson, rithöf- undur og sonur Jökuls. Víba þurfti að leita fanga Öll böm Jökuls standa að útgáf- unni. Fyrst skal nefna þau Hrafn, Illuga og Elísabetu, sem Jökull eignaðist með Jóhönnu Kristjónsdóttur blaðamanni, fyrri eiginkonu sinni. Hin börn Jökuls, sem taka þátt í útgáf- unni, eru Unnur Jökulsdóttir, sem Jökull átti fyrir hjónaband, og svo Magnús Haukur, sonur hans af síðara hjónabandi. Ritverk þetta hefur að geyma 23 leikverk, eins og áður sagði. 10 stór sviðsverk fyrir leikhús, fjögur sjónvarpsleikrit og níu einþáttungar og útvarpsleikrit. Abeins þrjú þessara verka hafa komið út áður: Hart í bak, Sjó- leiðin til Bagdad og Dómínó. Þaö eru líka einhver þekktustu verk höfundarins og þau sem oftast hafa verið færð upp. Hin handritin voru reyndar hvergi öll til á vísum stað og þurfti víða að leita þeirra. En nú eru þau öll komin á einn stað og er það vel. Fyrsta fullgilda leikritaskáldib „Öllum leiklistarunnendum ætti að vera það gleðiefni að geta nú loksins gengið að leik- ritum Jökuls á einum stab. Jök- ull er í rauninni fyrsta fullgilda leikritaskáld okkar og ekki vansalaust, að verkum hans skuli ekki hafa verið sýnd meiri rækt en raun ber vitni. Fyrsta fullgilda leikskáldið segi ég og efast ekki um ..." segir Jón Við- ar Jónsson, umsjónarmaður þessarar merku útgáfu, í formála hennar. Á öbrum stað segir Jón Viðar jökull jakobsson ríthöfundur á góbrí stundu. að nokkurt vandaverk hafi verið ab koma leikritum höfundarins í prenthæft ástand. Þannig hafi Jökull sjaldnast komiö með full- mótað handrit þegar æfingar á verkum hans hófust. Undir þetta tekur Hrafn Jökulsson og segir ab faðir hans hafi oft að- eins verið búinn ab skrifa um það bil helming handrits þegar æfingarnar á leikriti eftir hann hófust. Hann hefði svo fylgst með fyrstu samlestrum leikara, séð hvernig þeir túlkuðu per- sónurnar og spunnið svo fram- hald verksins eftir því. Þannig hefðu flest leikrit hans orðið til. Er haft eftir Fríöu Á. Sigurðar- dóttur rithöfundi, sem sérstak- lega hefur kannað verk Jökuls, ab ekki nema tvisvar sinnum hafi hann lagt fram fullbúin handrit. Þetta voru leikritin Sjó- leiðin til Bagdad og Kertalog. Þegar Hrafn Jökulsson er spurður hvað honum finnist helst einkenna leikrit föbur síns, segir hann þau fyrst og fremst vera íslensk leikrit úr ís- lenskum veruleika og skrifuö fyrir íslendinga. „Honum var lagið að ná fram andblæ hvers tíma, þess tíma sem sagan í hverju leikriti á að gerast á. Ein- kenni þessara leikrita er skemmtilegur húmor og þó það hljómi sem ákveðnar andstæð- ur, þá finnst mér felast í þeim hlý kaldhæbni. Oft fjalla þessi leikrit um fólk sem er á örlaga- punkti í lífi sínu. Er ab koma eða fara og enginn reynist vera sá sem hann í raun er bak við grímuna," segir Hrafn. Hann bætir því við að sér hafi komið á óvart hve þessi leikrit njóta sín vel á prenti, ekki síður en á sviði. „Og svo er margt af þessu svo skolli vel skrifað," bætir hann við. Hrafn jökulsson meb ritsafn leikverka föbur síns. Myndin er tekin fyrir ut- an Norburkot á Eyrarbakka þar sem hann býr nú. ritsafninu og fá það á talsvert lægra verði. Þá má hafa sam- band við Hrafn Jökulsson, sem býr í Norðurkoti á Eyrarbakka og síminn hjá honum er 98- 31080. -SBS, Selfossi HEFUR ÞÚ FENGIÐIÐGJALDAYFIRUTIÐ? Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur sent sjóðfélögum yfirlit yfir móttekin iðgjöld á tímabilinu 1. mars 1994 til 31. ágúst 1994. Ekki er óeðlilegt að greiðslu fyrir mánuðina júní 1994 til ágúst 1994 vanti íyfirlitið. Hafir þú ekki fengið yfirlit, en dregið hafi verið af launum þínum í Lífeyrissjóð verzlunarmanna, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, þá vinsam- legast hafið samband við innheimtudeild sjóðsins hið allra fyrsta og eigi síðar en 1. nóvember n.k. Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð geta dýrmæt réttindi glatast: ELLILÍFEYRIR-ÖRORKULÍFEYRIR-MAKALÍFEYRIR-BARNALÍFEYRIR GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS! í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars: Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa vegna gjaldþrota skulu laun- þegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til við- komandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grund- velli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna. LÍFEYRISS JÓÐUR VERZLUNARMANNA HÚSI VERSLUNARINNAR, 4. HÆÐ, 103 REYKJAVÍK, SÍMI (91) 814033, TELEFAX (91) 685092.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.