Tíminn - 08.10.1994, Blaðsíða 13

Tíminn - 08.10.1994, Blaðsíða 13
Laugardagur 8. október 1994 13 Margrét J. ísleifsdóttor Hvolsvelli, 70 ára Mikil öndvegiskona á afmæli í dag. Samstarfsfólk hennar á sýsluskrifstofunni á Hvolsvelli sendir henni sínar bestu kveðj- ur — þakkar vináttu og samstarf um langt árabil. Þegar Margrét er nefnd fylgir oft: - og Pálmi. Maður hennar er Pálmi Eyjólfsson, fv. sýsluskrif- ari í Hvolsvelli. Saman hafa þau gengib götuna frá 20. apríl 1946, er þau gengu í hjúskap pg fluttu í nýbyggt hús sitt við Hvolsveg, Hvolsvelli, og þar stendur enn þeirra rausnargarð- ur. Kunningsskapur þeirra hófst þó nokkru fyrr en bæði þénuðu í gömlu kaupfélagsbúðinni, þar blómstraði rómantíkin hjá unga fólkinu! Þau hjón störfuðu um langt árábil á sýsluskrifstofunni, voru máttarstólpar embættis, andlit þess og kjölfesta í hópi góbra starfsmanna. Sýslumenn er meb þeim hafa starfað meta þau að verðleikum. Ég tel raunar að þessi hjón séu sjaldgæft dæmi um farsæla útkomu þess er hjón starfa saman á litlum vinnu- stað. Því veldur prúðmennska á bába vegu, gagnkvæm virðing og miklir hæfileikar til sam- starfs og samskipta við fólk, þar sem allir fundu sig velkomna og fengu bestu þjónustu. Afmælisbarnið, Margrét J. ís- leifsdóttir, er fædd 8. okt. 1924 ab Miðkoti í Fljótshlíð. Foreldr- ar hennar voru hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir, fæddd að Voð- múlastöðum í Austur-Landeyj- um 20.12. 1891 d. 05.10 1970 og ísleifur Sveinsson, fæddur að Skíðabakka, Austur-Landeyjum, 18.06. 1900, d. 21.04. 1980. Hann stundaði búskap í Mib- koti, Fljótshlíð, til 1942 er þau hjón fluttu í Hvolsvöll. ísleifur var smibur góður og brautryðj- andi um trjárækt og garðrækt í Hvolsvelli, ásamt konu sinni. Hún á því ekki langt að sækja natnina í ræktun og umhirðu garðs síns hún Magga. Börn Margrétar og Pálma eru: Guðríbur Björk, f. 05.03. 1945, sölufulltrúi í Reykjavík, gift Guðmundi Ingvari Guðmunds- syni stýrimanni, þau eiga 2 börn. Ingibjörg, hjúkrunarfræð- ingur og alþingismaður, f. 18.02. 1949. Hennar maður er Haraldur Sturlaugsson útgerbar- maður, þau eiga fjóra syni og búa á Akranesi. ísólfur Gylfi, sveitarstjóri í Hvolsvelli, f. 17.03. 1954. Hans kona er Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir kennari og eiga þau fjögur börn. Margrét hóf störf á skrifstofu Rangárvallasýslu 1. apríl 1965.- Hennar aðalstarf hefur verið við almannatryggingar sem fulltrúi í þeirri deild embættisins. Margrét er sem kjörin í starf þetta, sem er vandasamt, krefst mikilla hæfileika á mannlegum samskiptum, skilnings, natni og vilja til að greiða fyrir fólki, sem oft er sjúkt og aldrað. Einnig þarf að vaka yfir því hvaba rétt þetta fólk á og benda á það, hjálpa til við að útvega læknis- vottorð, semja umsóknir og út- skýra málin. Allt þetta er Margr- éti eðlislægt og tiltrú bótaþega og trúnaðarsamband við trygg- ingafulltrúann er eins og best verður á kosið. Er ég undirritaður kom til starfa við sýslumannsembættið í Rangárþingi fyrir tæpum níu árum, féll mér einkar vel starfið og öll kynni við Margréti, hafði raunar verib henni málkunnug- ur um skeið og notið gestrisni þeirra hjóna. Er mér kunnugt um að nú, sem allan þeirra bú- skap, hafi þau hjón Margrét og Pálmi verið sótt heim af fólki í héraði og lengra ab komnu, mér er nær að halda flesta daga. Hús þeirra stendur fólki opið og gestrisni er einstök, myndar- skapur húsmóður í veitingum með því albesta, glaðværb og hlýtt viðmót skapar það and- rúmsloft að öllum líður vel. Upp kemur í hugann atvik sem sýnir í senn jafnaöargeð Margr- étar en um leið andúb hennar á ARNAÐ HEILLA ósanngirni og yfirgangi. Framan við afgreiðsluborðið á sýslu- skrifstofunni stendur ábúðar- mikill maður sem verið er ab libsinna. Maðurinn er þó afar ókurteis og finnur að öllu með dólgslegu orðfæri. Stendur þá Margrét upp frá skrifborði sínu, gengur til mannsins, horfir á hann brosandi og segir með hægð en mikilli festu: „Vib er- um nú vön því að gera fólki til hæfis hér á skrifstofunni." Það var eins og hleypt hefði verið úr blöðru. Ribbaldinn steinþagn- aði, roðnaði eins og skólastrák- ur og hefur frá þessum degi ver- ið prúðmennskan holdi klædd þegar hann á erindi við sýslu- skrifstofuna. Á okkar fámenna vinnustað er hún hinn góði andi og fyrir- mynd um góða hætti, allt í röð og reglu, aldrei mætt of seint og ekkert slugs. Nei, gamli góði rík- issjóður hefur fengið mikið fyrir þá hungurlús í formi launa er Margrét hefur þegið í hart nær 30 ára starfi. Það væri henni þó víðs fjarri að nöldra um kaup og kjör, kröfugerð í eigin þágu er ekki hennar máti. Ég lít á Margr- éti ísleifsdóttur sem einstaka manneskju og kvíði þeirri stund er starfi hennar lýkur hér á sýsluskrifstofunni um nk. ára- mót. Sumt fólk verður manni afar náið og einhvern veginn hefur hún Margrét oröið okkur eins og besta móðir. Ég held við verðum hálf hnípin og líkt og munaðarlaus þegar samstarfinu lýkur. Með krefjandi heimilisstörf- um, uppeldi barna og vinnu ut- an heimilis hefur Margrét lagt fjölmörgum samfélagsmálum lið, svo sem verið gæslumaður barnastúku í 11 ár. Þá var hún virk um áratugi í kvenfélagi í stjórn og sem formaður. Þau hjón Margrét og Pálmi sáu um Stórólfshvolskirkju í aldar- fjórðung. Kirkjan var ávallt hrein og hlýleg og ekki var skömm ab meðhjálparanum. Margrét er kona sviphrein, nett og fríð. Hún er ávallt glöð í við- móti og hefur góðan húmor — hlær innilega og sér það já- kvæba í lífinu. Margrét er engan veginn skaplaus heldur kona með staðfestu og sterkan vilja, sem stefnir ótrauð að settu marki — og nær því. Hún er ekki að trana sér fram eða olboga sig áfram í tilver- unni. Þab er hins vegar sómi að henni hvar sem er, enda smekk- vís og vel uppáfærð og ber mikla persónu. Margrét er trúuð kona og bibl- íufróð, einnig á þeim vettvangi er hún gefandi. Það hef ég sann- reynt persónulega. Nú veit ég ab Margrét myndi segja: „Þetta er nú fullstór skammtur húsbóndi góður." Á móti verð ég að segja: „Allt er það satt og rétt og af bestu sam- visku tíundað." Lifðu heil um langa tíð og þakka þér vináttuna vib mig og mína. Margrét er stödd erlendis meb fjölskyldu sinni Friðjón Guðröðarson. F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskab eftir tilbo&um í verkið „Mælaskipti". Verkiö felst í því aö skipta um mæla á veitusvæ&i Hitaveitu Reykjavíkur. Alls er um a& ræða 2.000 mælaskipti. Verkinu skal loki& á innan við 10 vikum. Útboöiö er opið fyrir alla pípulagningarmeistara, sem löggildingu hafa í Reykjavík. Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 19. október 1994, kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR (REYKJAVÍK PURCHASING CENTER) Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 Arkitekt Byggingarfulltrúinn í Reykjavík óskar eftir að ráða arkitekt. Umsækjendur skulu hafa lokib prófi í arkitektúr og hafa starfs- reynslu á því svibi. Umsóknir með greinargóbum upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist fyrir 21. október n.k. til starfsmannastjóra borg- arverkfræðings, Skúlatúni 2, þribju hæb, sem ásamt byggingar- fulltrúa gefur upplýsingar um starfiö. Fréttir í vikulok Máli Gubmundar Árna vísab til Ríkisendurskobunar Vafasamar embættisfærslur Guðmundar Árna Stefánssonar fé- lagsmálarábherra eru enn í kastljósinu og hefur Alþýðuflokkur- inn ákveðið að vísa málinu til Ríkisendurskoðunar. Margir telja þá stofnun ekki í aðstöðu til að meta mál hans og þeirra á meðal er Davíð Oddsson forsætisráðherra, sem telur að flokk- urinn þurfi sjálfur að taka ákveðna afstöðu með eða gegn Guð- mundi. Veiöar stöbvabar í Smugunni? Sjómannasambandið vill stöðva veiðar í Smugunni vegna ís- ingarhættu yfir vetrartímann. Skiptar skoðanir eru um þetta. Víba pottur brotinn í stjórnsýslu- kerfi borgarinnar Óljós verkaskipting, óregla í yfirstjórn einstakra málaflokka eins og menningarmálum, skortur á skýrum markmiðum o.fl. eru á meðal atriða sem Stefán Jón Hafstein kynnti í skýrslu sinni um stjórnkerfi borgarinnar, sem hann gerði að beiöni borgarstjóra. Leiðir til úrbóta eru m.a. nefndar aukið sjálfstæði stofnana. Banaslys í Skagafirbi Annað banaslysib á stuttum tíma varð í Skagafirði, þegar tví- tugur Húsvíkingur ók út af veginum skammt norðan Miðhúsa í Akrahreppi. Eykon og Ingi Björn ekki meö í próf- kjöri sjálfstæöismanna Tveir þekktir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík gefa ekki kost á sér til prófkjörs sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir næstu alþingiskosningar. Þeir eru Eyjólfur Konráð Jónsson og Ingi Björn Albertsson. Deilur hjá krötum Gunnlaugur Stefánsson, formaður heilbrigðis- og trygginga- nefndar, segir að Sighvatur Björgvinsson hafi tekið þá ákvörð- un að Björn Önundarson sæti áfram sem tryggingayfirlæknir, þrátt fyrir að hafa verið kunnugt um skattsvik hans í öðru starfi. Björnsmálib sé því í raun ekki mistök Gubmundar Árna. Sighvatur andmælir þessu. Jón Helgason hættir þingsetu Jón Helgason, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, mun hætta þingsetu í vetur. Hann hefur setið á þingi í 21 ár. Formannsskipti hjá Framsóknar- flokknum Þingflokkur Framsóknarflokksins kom saman til fundar eftir setningu Alþingis sl. laugardag. Kosið var um nýjan formann, þar sem Páll Pétursson gaf ekki kost á sér áfram. Valið stóð á milli Ingibjargar Pálmadóttur og Finns Ingólfssonar og var Finnur kosinn. Læknasorp í jarövegsgámum Ab undanförnu hafa fundist notaðar sprautunálar og annað læknasorp í jarðvegsgámum á höfuðborgarsvæbinu, en þeir eru losaðir vib gömlu öskuhaugana í Gufunesi. Ekki er vitað hvaðan sorpið kemur. Skólaáriö ekki lengt Menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson, leggst gegn því að skólaár í skyldunámi verði lengt í tíu mánuði, eins og nefnd, sem endurskoðað hefur lög um gmnnskóla og framhaldsskóla, lagbi til. Þá leggst hann einnig gegn tillögum nefndarinnar að stytta framhaldsskólann úr fjórum árum í þrjú. Jóhanna vill skattadómstól Jóhanna Sigurðardóttir, sem nú starfar á Alþingi sem einn þingflokkur, hefur lagt fram frumvörp um skattamál. Þar legg- ur hún til ab viðurlög gegn skattsvikum verði stórhert og sér- stakur skattadómstóll verði stofnaður til að dæma í málum skattsvikara. Grunnskóladrengir stórauka reykingar Reykingar hjá 16 ára strákum hafa aukist um 15% á fjórum ár- um. Skýringar eru taldar aukin áfengisneysla, minni áróbur gegn reykingum og of lágt verð á tóbaki. Tóbaksvarnarnefnd leggur til að tóbak hækki um 10%. Verkfalli frestaö Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur frestað áður boðuðu verkfalli, sem átti ab hefjast 10. okt. hjá flugfélaginu Atlanta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.