Tíminn - 15.12.1994, Side 9
9
Fimmtudagur 15. desember 1994
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND . . .
Grátandi fabir
fabmar unga dóttur sína vib útför sonar síns í jerúsaiem ígœr. Sonur
hans var 21 árs hermabur og lét lífib þegar Hizbullah-menn gerbu hon-
um og sjö öbrum hermönnum fyrirsát á öryggissvœbi ísraelsmanna í Sub-
ur- Líbanon sl. sunnudag.
Gro Harlem Brundtland:
Norðmenn verða
að standa við
EES-samninginn
EFTA ákveður að ganga til
samninga við Slóveníu
Ráöherrafundur EFTA ríkjanna
var haldinn í Genf 13. og 14.
desember undir formennsku
Jóns Baldvins Hannibalssonar
utanríkisráðherra.
Fulltrúar Austurríkis, Finn-
lands og Svíþjóöar tilkynntu
brottför sína úr samtökunum,
en þau munu væntanlega gerast
aöilar aö Evrópusambandinu 1.
janúar nk.
Fulltrúar íslands, Noregs,
Sviss og Liechtenstein tilkynntu
að þeir myndu halda áfram
EFTA samstarfinu og að þeir
heföu stofnaö vinnuhóp til aö
ganga frá skipulagsmálum
vegna breyttrar aöildar sem
ljúka á störfum fyrir áramót.
Fram kom aö ekki yrði nauð-
synlegt að gera breytingar á EES
samningnum sjálfum viö aðild-
arskiptin. Hins vegar hafa ís-
land og Noregur gengiö frá
nauðsynlegum breytingum á
samningnum um eftirlitsstofn-
un EFTA og EFTA dómstólinn,
þar sem gert er ráö fyrir að eftir-
litsfuiltrúum og dómurum
fækki úr sjö í þrjá. Liechtenstein
er um þessar mundir aö ganga
frá samningum um aöild að EES
og gerir ráð fyrir að gerast aðili
innan skamms.
Ákveðið var aö þau fjögur
lönd, sem eftir eru í EFTA, gangi
til viðræðna um fríverslunar-
samning við Slóveníu sem fyrst.
Ef Norðmenn standa ekki við allar
skuldbindingar sínar samkvæmt
EES- samningnum er Evrópusam-
bandinu í lófa lagið að fella hluta af
samningnum úr gildi, segir Gro
Harlem Brundtland, forsætisráð-
herra Noregs. Aftenposten skýrir frá
því í gær að forsætisráðherrann hafi
einkum beint viðvörunum sínum
til þeirra stjórnmálaflokka sem
harðast gengu fram í andstööunni
við aðild Norðmanna að ESB.
Gro Harlem Brundtland leggur
áherzlu á að raunveruleikinn sé
ekki sá sem andstæðingar EES í
Stórþinginu vilji vera láta, þ.e. að
Norömönnum sé stætt á því að
velja sjálfir hvaða reglum þeim
þóknist að fara eftir í þessu sam-
bandi. „Það má ekki orka tvímælis,"
segir hún, „hvort við stöndum við
skuldbindingar okkar samkvæmt
EES-samningnum. Við getum
nefnilega ekki vænzt þess að ESB
horfi upp á það að við krækjum
okkur í beztu bitana, og enginn
skyldi undrazt þótt ESB notfæri sér
þann rétt að fella hluta af samn-
ingnum úr gildi. í sjálfum EES-
samningnum er gert ráð fyrir slík-
um viðbrögöum og samninginn
verðum við að halda," segir forsæt-
isrábherrann.
í forystugrein Verdens Gang er
bent á það að það verði nánast úti-
lokað fyrir Norðmenn að beita neit-
unarvaldi varðandi þær tilskipanir
ESB sem kveðið veröur á um í fram-
tíðinni, enda þótt þær kunni að
stríða gegn hagsmunum Norð-
manna. Vakin er athygli á því ab
þótt Gro Harlem Brundland hafi
ekki sagt það berum orðum enn
sem komið er, þá telji hún greini-
lega ab eina leiðin til að halda EES-
samningnum óbreyttum í meginat-
riðum sé sú að Norðmenn aðlagist
ESB án þess að eiga aðild að sam-
bandinu. Hún er sannfærð um að
ESB-ríki sem eiga annarra hags-
muna ab gæta taki til sinna rába ef
Norbmenn beiti neitunarvaldi þeg-
ar um sé að ræða tilskipanir og sam-
þykktir ESB sem hafa áhrif á öllu
EES-svæðinu, segir Verdens Gang.
Vald Satans
Hamborg - Reuter
Kona klauf í gær 72ja ára kirkjugest
í herðar niöur með exi vegna þess
að hún taldi að hann væri á valdi
Satans.
Atburður þessi átti sér stað í kaþ-
ólskri kirkju sem kennd er vib Mar-
íu guðsmóöur. Maðurinn, sem var
vistmaður á elliheimili, sat á kirkju-
bekk þegar morðkvendið réðst
skyndilega á hann, stökkti á hann
vígðu vatni, en sveiflaði síðan öx-
inni með þeim afleiðingum að fórn-
arlambið lét líf sitt skömmu eftir ab
þab kom í sjúkrahús.
Konan var handtekin og segir
lögreglan að hún hafi vanið komur
sínar í þessa kirkju um skeið. Haft er
eftir lögreglunni ab við handtökuna
hafi konan gefið til kynna að hún
hafi verið aö undirbúa verknaðinn í
hálft annab ár og nú væri henni
stórlega létt. ■
SAGA 17.JÚNÍ ER SAGA ÞÍN
•yrc&LM* r.OKAGJÖ'F Ti'TRTR TÓTJC Á t)T,T,TJM AT,OPT
PÖTnTMA TTOjpA
AT.LPv 500 L,JÓ5AÍYNPTP