Tíminn - 12.01.1995, Qupperneq 11
Fimmtudagur 12. janúar 1995
11
Er eitthvaö eftir?
Kjartan Flögstad. Fimbul, 297 bls. Ósló
1994. Cyldendal Norsk Forlag a/s. ISBN
82-05-22480-3.
Kjartan Flögstad tekur hér fyr-
ir neindina í sinni ýtrustu
mynd, það sem ekkert er. Tóma-
rúm tímans er algert í dag, að-
eins að vera uppi og klifra yfir
allt og alla er einhvers virði, for-
eldrar og vinir, hvað er það?
Hvaða máli skipta foreldrar og
arfur? Rekstur til hvers? Þegar
ölstofan PUB LÍK fer á hausinn
þá er bara að stofna nýja á rúst-
unum, BÖÐULINN, eða ætti ef
til vill heldur að kalla hana
HÖGGSTOKKINN? Hvar eru
eiginlega takmörkin milli vits
og brjálæðis?
En það er líka til fólk sem hef-
ir þörf fyrir að koma á vitrænu
skipulagi í heiminum. Sagan
gerist árið 1978. í lýsingu segir
frá manni, sem er í lyftingum í
kjallara framhaldsskólans á
Gunneng. Kennararnir eru
hinsvegar með hátíð uppi á efri
hæðunum, með rauðvíni og
nýjum útgáfum af plötum
ABBA. Eftir þetta fara svo hlut-
irnir að gerast. Sprengjukastari
hverfur úr herbúðunum viö
Soma, þar með fer upplýsinga-
þjónusta hersins í gang. Þetta
gera líka kennararnir í Gunn-
eng. Tveir þeirra fara ásamt
manninum í kjallaranum í aust-
urátt, akandi á líkbílnum, en
kistan afturí er sérstaklega
þung.
I Ósló eiga Sadat og Begin aö
fara að taka á móti friðarverð-
launum Nóbels.
Það er mikið sagt í bók Kjart-
ans, á meistaralegan hátt eins
og hans er von og vísa. Hann
getur lýst því hvernig við eigum
að skrifa niður frásagnirnar af
því sem var og gerðist, svo þær
hverfi í skriftina. Síðan vöðlum
við saman pappírnum og köst-
um honum á bálið í skóginum,
eða notum hann sem íkveikju.
Þá er líka allt horfið.
Bók þessi er enn eitt meistara-
stykkið frá hendi Kjartans
Flögstad. Hún er sjöunda skáld-
sagan hans, ef krimmarnir tveir
eru teknir með.
Launhelgar
Sissel Lie. Röd Svane, 165 bls. Ósló 1994.
Cyldendal Norsk Forlag a/s. ISBN 82-05-
22583-4.
Styrkur Sissel Lie liggur ekki
aðeins í frásögninni, heldur
ekki síður í þekkingu hennar á
sögum og sögnum, allt aftan úr
biblíutíma og fram á þennan
dag. Ævintýri og þjóðsögur eru
vafin inn í samband móður og
dóttur, þar sem þær fást við
vandamálin. Þessi vandamál,
sem um er að ræða, eru heldur
ekki neitt hversdagsleg. Þær eru
fangar Irkosa-indíánanna í
Norður-Ameríku á 18. öld. Hið
framandi, sem þær veröa fyrir,
áhrif og táknmál, leyndardómar
og launhelgar, verka óttavekj-
andi á móöurina, en dóttirin
hrífst af þeim. Þegar þær svo
loks fá frelsi sitt aftur, eru bönd
dótturinnar ef til vill orðin
sterkari til indíánanna en til
móðurinnar. Svona getur hiö
dulda verkað misjafnt á fólk.
Stundum verkar það sem afl-
gjafi fyrir ástríður og tilfinning-
ar, en einnig sem afl það sem
vekur ótta og jafnvel hrylling
við tilhugsunina um að missa
það sem maður hefir átt.
Myndmálið og frásagnar-
leiknin í bókinni er sérstök og
hrífur lesandann með sér á vit
Norskar bækur
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON
hins dulmagnaða, en þó skýran-
lega, sem þekkt er úr myndmáli
fornra tíma og á vissan hátt allt
fram á þennan dag. Góð og
trygg þekking liggur að baki því
sem slaifab er.
Milli hafs og
strandar
Erik Bystad: Speil og skygge, Ijóö, 51 bls.
Ósló 1994. Cyldendal Norsk Forlag a/s.
ISBN 82-05-22587-7.
Hér er á feröinni fimmta
ljóðabók Eriks Bystad. Hann
hefir þegar skapað sér öruggan
sess meðal norskra ljóðskálda og
í þessari bók tekur hann að tjá
okkur sem lesum, hvernig þetta
ég, sem við upplifum, staðsetur
sig í rýminu, þar sem háspeki-
legar og persónulegar spurning-
ar þrýsta á okkur. Þarna er inn-
sýn hans mikil og lífleg.
Rými hugleiðingarinnar milli
strandar og hafs, milli öruggrar
verundar og óþekktrar kyrrðar,
kemur fyrir aftur og aftur í þess-
ari bók. Það er sífelld endur-
tekning.
Ég vil aðeins vera til staðar
í Ijósinu sem þú kveikir
þegar dimmir
Ég vil aðeins vera orð
sem þú leitar að og finnur
þegar samtalið stöðvast
Ég vil aðeins vera hjá þér
sem eitthvað er þú aldrei hugsar
utn
Ljóð eða orð
Dagur í lífi
Marianne Fastvold: Död som en dronte.
Skáldsaga, 175 bls. Ósló 1994. Cyldendal
Norsk Forlag a/s. ISBN 82-05-22581-8.
Eftir lestur bókar Marianne
Fastvold um nútímann datt mér
helst í hug: Er hún að lýsa ís-
lenskum eða norskum veru-
leika?
„í sturtunni á mánudags-
morgun, meðan vatnið fossaði
um mig, ruddust spurningarnar
fram með krafti flóðbylgjunnar.
Af hverju ætti ég að fara út? Úr
þessum þægilega hlýja glerbæ
sem ég var í, þar sem ég gat öðl-
ast allt sem ég þráði, í fyrsta
sinn á minni fullorðnu ævi. Til
hver's átti ég að fara heim? í
íbúðina með storknuðu deigi,
bölvuðu rusli og reikningum,
sem ég aldrei gæti greitt. Hví
skyldi ég fara út í ískuldann? Á
væntanlegt nauðungaruppboð,
hina auðmýkjandi uppljóstrun
um eiginlegt líf Elísu. Áf hverju
heim fyrir jól? Til að veröa hent
út af uppboðsréttinum ásamt
jólatrénu."
Þetta eru ef til vill nokkrar
setningar úr íslenskum raun-
veruleika fyrir þessi jól. Þessi El-
ísa situr í heimabakaríinu, sem
hún er að reyna að lifa af, með
púrtvínsflösku. Hún er í raun al-
gerlega uppgefin á sál og lík-
ama. Maðurinn er farinn frá
henni og börnin koma ekki
heim um jólin. Allir notfæra sér
hjálpsemi hennar.
Nú snýst dæmið við. Með
þúsund krónur í vasanum fer
hún út í nýju kringluna, sem
ekki verður henni nein bana-
kringla. Líf hennar tekur hins
vegar alveg nýja stefnu.
DAGBÓK
janúar
12. daqur ársins - 353 daqar eftir.
2. vlka
Sólriskl. 11.02
sólarlag kl. 16.11
Dagurinn lengist
um 5 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Bridskeppni í Risinu kl. 13 í dag.
Þorrablótið verður laugardag-
inn 21. jan. Upplýsingar á skrif-
stofu félagsins, s. 5528812.
Gjábakki, Fannborg 8
Innritað verður á námskeiö á
vegum Gjábakka eftir hádegi í
dag. Meðal nýjunga í nám-
skeiðahaldi er leðurvinna.
Rússneskir dagar í
Hafnarfirbi 14.-30. jan.
í Hafnarborg verður opnuð kl.
17, laugardaginn 14. janúar,
sýning á vatnslitaverkum eftir
ýmsa þekkta rússneska málara.
Hér er um að ræða safn verka,
sem sett hefur verið saman til
sýningar í Hafnarborg í sam-
starfi við aðila í Rússlandi og er
úrval úr reglulegum yfirlitssýn-
ingum, sem haldnar hafa verið
af Listamannafélagi Rússa með
reglulegu millibili undanfarin
fimmtán ár.
Verk Rússanna eru fjölbreytt og
sýna vel hve mikilli breidd má
ná í málverki með notkun
vatnslita. Listamennirnir eru á
ýmsum aldri og verkin endur-
spegla þau umbrot sem orðið
hafa í rússnesku samfélagi und-
anfarna áratugi; sumir eru af
þeirri kynslóð sem man hörm-
ungar heimsstyrjaldarinnar, en
aðrir hófu listferil sinn um það
leyti sem fyrra stjórnskipulag
var að leysast upp. Þannig mæt-
ast á sýningunni ólíkar liststefn-
ur, en í heildinni má greina
hvaöa straumar hafa verið ríkj-
andi í rússneskri vatnslitamálun
síðustu fjóra áratugi.
Tveir listamannanna verða á ís-
landi í tilefni sýningarinnar,
þeir Anatolíj Bugakov og Vlad-
imir Galatenko. Með þeim
koma tveir tónlistarmenn frá
lýðveldinu Tatarstan, Rem Ur-
asin píanóleikari og Vladimir
Efimov óperusöngvari, en þeir
munu flytja tónlist við opnun
sýningarinnar, og halda tón-
leika í Hafnarborg kl. 17 sunnu-
daginn 15. janúar. Að sendi-
herra Rússa á íslandi, hr. Júríj
Reshetov, fjarstöddum mun
Gennadíj Pavlov sendiráösfull-
trúi opna sýninguna að við-
stöddum fulltrúum stjórnvalda
í lýðveldinu Tatarstan.
Meðan á sýningunni stendur
verða rússneskir dagar í veit-
ingahúsinu Fjörunni í Hafnar-
firði. Þar verður matreiðslu-
meistari frá Tatarstan, boðið
veröur upp á rússneskan mat-
seðil og tónlistarmenn frá Tat-
arstan munu leika undir borð-
haldinu.
Sýningin í Hafnarborg verður
opin frá kl. 12 til 18 alla daga
nema þriðjudaga, en hún stend-
ur til 30. janúar.
TIL HAMINGJU
Þann 6. ágúst 1994 voru gefin
saman í hjónaband í Áskirkju af
séra Árna Bergi Sigurbjörnssyni,
Birna S. Pálsdóttir og Þorsteinn
Hrafn Gubjónsson. Heimili
þeirra er að Laufengi 27, Reykja-
vík.
Ljósm. Sigr. Bachmann
Þann 10. september 1994 voru
gefin saman í hjónaband í Há-
teigskirkju af séra Irmu Sjöfn Ósk-
arsdóttur, Soysuda Soodchit og
Bóas Eiríksson. Heimili þeirra er í
Reykjavík.
Ljósm. Sigr. Bachmann
ARNAÐ HEILLA
Gubjón ingimundarson
áttræbur
Guðjón Ingimundarson, fyrrver-
andi kennari og forstjóri á Sauðár-
króki, er áttræður í dag.
Auk starfa sinna að kennslu- og
íþróttamálum gegndi Guðjón fjöl-
breyttum trúnaðarstörfum. Hann
sat lengi í bæjarstjórn Sauðárkróks,
sinnti fjölbreyttum nefndarstörfum
og var um skeib forseti bæjarstjórn-
ar. Hann sat í stjórn Framsóknarfé-
lags Saubárkróks og í stjórnum fyrir-
tækja. Hann var um skeiö sam-
bandsstjóri Ungmennasambands
Skagafjarbar, svo eitthvab sé nefnt
af þeim félagsmálastörfum sem
hann tók þátt í.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apöteka I
Reykjavlk frá 6. janúar tll 12. Janúar er I Apótekl
Austurbæjar og Brelðholts apótekl. Það apótek
sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00
að kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýslngar um læknls- og
lyfjaþjónustu eru gefnar I slma 18888.
Neyðai vakt Tannlæknafélags islands
er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Símsvari 681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apótek og Norðurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar I símsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búða. Apólekin skiptast á sina
vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opið i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00
21.00. Á öðrum timum er Mjafræðingur á bakvakt. Upplýs-
ingar eru gefnar I síma 22445.
Apótek Keflavlkur: Opið virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna Irídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga trá kl. 8.00-
18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til kl. 11.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.00.
Garðabær: Apótekið er opið rumhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
HELSTU BÓTAFLOKKAR:
1. janúar 1995.
Mánaðargreiðslur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir)........ 12.329
1/2 hjónalífeyrir.............................11.096
Full tekjutrygging ellilífeyrísþega...........22,684
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega.........23.320
Heimilisuppbót............................... 7,711
Sérstök heimilisuppbót.........................5,304
Barnalífeyrir v/1 barns......................10.300
Meðlagv/1 barns...............................10.300
Maeðralaun/feðralaun v/1 barns.................1.000
Mæðralaun/feðralaun v/2jabarna ................5.000
Mæðralaun/feðralaun v/3ja barna eða fleiri..10.800
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða ..............15.448
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða..............11.583
Fullur ekkjulífeyrir..........................12.329
Dánarbætur í 8 ár (v/slysa)...................15.448
Fæðingarstyrkur............................. 25.090
Vasapeningar vistmanna .......................10.170
Vasapeningar v/sjúkratrygginga................10.170
Daggreiðslur
Fullir fæðingardagpeningar............;....1.052.00
Sjúkradagpeningar einstaklings................526.20
Sjúkradagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ...1«2.80
Slysadagpeningar einstaklings...............665 70
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri ....142.80
GENGISSKRÁNING
11. janúar 1995 kl. 10,50 Oplnb. Kaup viðm.gengl Sala Gent skr.fundar
Bandaríkjadollar 68,01 68,19 68,10
Sterlingspund ....106,23 106,51 106,37
Kanadadollar 48,15 48,31 48,23
Dönsk króna ....11,225 11,259 11,242
Norsk króna ....10,099 10,129 10,114
Sænsk króna 9,057 9,085 9,071
Finnskl mark ....14,254 14,298 14,276
Franskur franki ....12,816 12,854 12,835
Belgfskur franki ....2,1478 2,1546 2,1512
Svissneskur franki. 52,80 52,96 52,88
Hollenskt gyllini 39,45 39,57 39,51
Þýskt mark 44,24 44,36 44,30
Ítðlsklíra ..0,04175 0,04189 0,04182
Austurrlskur sch 6,286 6,306 6,296
Portúg. escudo ....0,4289 0,4305 0,4297
Spánskur peseti ....0,5084 0,5102 0,5093
Japanskt yen ....0,6806 0,6824 0,6815
írsktpund ....105,15 105,49 99,75 105,32 99,60
Sérst. dráttarr 99,45
ECU-Evrópumynt.... 83,79 84,05 83,92
Grlsk drakma ....0,2846 0,2856 0,2851
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVtK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar