Tíminn - 12.01.1995, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 12, janúar 1995
Mtníim
13
-------------------------------------------------N
1J*
Elskuleg móðir okkar, tengdamóóir, amma og langamma
Svanlaug Auöunsdóttir
Stóru-Borg, Grímsneshreppi
sem andaðist 5. janúar, verður jarðsungin frá Stóru-Borgarkirkju laug-
ardaginn 14. janúar kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar er
bent á Sjúkrahús Suðurlands, Selfossi.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn
y
\
%
Faðir okkar
Guðmundur Björnsson
frá Grjótnesi,
til heimilis að Hlaðhömrum 2 í Mosfellsbæ
verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju föstudaginn 13. janúar klukkan
14.30.
Björn, Vilborg, Ragnhildur, Böðvar, Þórey
Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
Þingholtin
Endurbætur á gatnamótum Skothúsvegar, Laufásvegar,
Þingholtsstrætis og Hellusunds.
Á Borgarskipulagi Reykjavíkur eru til sýnis 3 mismun-
andi tillögur að endurbótum á ofangreindum gatnamót-
um.
Gögnin verða til sýnis á Borgarskipulagi Reykjavíkur,
Borgartúni 3, 3. hæð, virka daga frá kl. 8.30-16.00 frá
12. janúar til 10. febrúar 1995. Athugasemdum og
ábendingum, ef einhverjar eru, skal komið til Borgar-
skipulags fyrir lok kynningartíma.
Borgarskipulag Reykjavíkur,
Borgartúni 3,
105 Reykjavík.
Frá Borgarskipulagi
Tillaga að staðsetningu
bensínstöðva fyrir irving Oil
Á Borgarskipulagi, Borgartúni 3, 3. hæð, og í félagsmið-
stöðvunum við Frostaskjól, í Árseli í Árbæjarhverfi og í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, Efra-Breiðholti, eru til
sýnis kynningargögn varðandi tillögur að staðsetningu
þriggja nýrra bensínstöðva. Á öllum stöðunum verða
eyðublöð fyrir þá sem vilja koma meó ábendingar eða
athugasemdir varðandi þessar tillögur.
Staðirnir eru:
1) Vió Eiðsgranda (sjávarmegin við dælustöð), á móts
við Boöagranda.
2) Milli Stekkjarbakka og væntanlegrar nýrrar stofnbraut
ar Höfðabakka, austan Hamrastekkjar.
3) Vestast á ræmu milli Bæjarháls og Hraunbæjar á
móts við vestustu fjölbýlishúsin.
Gögnin verða til sýnis frá 12. janúar 1995 til og með 18.
janúar 1995. Allar ábendingar berist Borgarskipulagi í
seinasta lagi 22. janúar 1995.
Borgarskipulag,
Borgartúni 3,
105 Reykjavík.
FAXNÚMERIÐ
ER 16270
Ný könnun í Bretlandi:
Breska konungsveldib
mun líba undir lok
Flestir þegnar Elísabetar Bret-
landsdrottningar telja aö
breska krúnan riöi til falls og
muni konungsdæmið verða
lagt niður í byrjun næstu aldar.
Þetta kemur fram í nýrri skoð-
anakönnun The Guardian.
Þetta er mikið áfall fyrir
bresku krúnuna, en óumflýj-
anlegur skilnaöur Karls Breta-
prins og Díönu er talinn eiga
stóran þátt að máli í þessari út-
komu. Aöeins 32% sögðu að-
spurð að konungsdæmið yröi
enn við lýði eftir 50 ár, en 49%
töldu svo ekki vera. Fyrir
tveimur árum sýndi sambæri-
leg könnun að aðeins 34%
spáöu að breska krúnan yrði
lögð niður.
Myndirnar á síðunni eru
svipmyndir úr röðum bresku
konungsfjölskyldunnar frá
ýmsum tímum. ■
í SPEGLI
TÍIVIANS