Tíminn - 18.01.1995, Qupperneq 3
Mibvikudagur 18. janúar 1995
3
Harmleikurinn á Súöavík:
160-170 björgunarsveit-
armenn vib leitarstörf
Fjórtán Súðvíkingar létu lífið í
snjóflóðinu sem féll á Súðavík
á mánudag, síðasta
fórnarlambiö, ungur drengur
fannst látinn um kvöld-
matarleytið í gær. í fyrrinó.tt
fundust tvö ungmenni á lífi,
stúlka sem var nokkuð vel á sig
komin, og í gærmorgun fannst
ungur maður, sem hafði legiö
þá Iegið grafinn í 24 stundir.
Hann var í gær talinn úr iífs-
hættu. Um hádegisbil fundu
björgunarsveitarmenn tvo ein-
staklinga í viðbót og tvo síðar í
gær og voru þeir allir látnir.
í gær voru á bilinu 160-170
björgunarsveitarmenn við leit á
snjóflóðasvæðinu í Súðavík og
bættist við talsverður fjöldi
óþreyttra leitarmanna í gær, um
Yfirlýsing frá
ríkisstjórn
„Ríkisstjórn íslands færir því
björgunarfólki sem nú leggur svo
hart að sér í Súðavík eða berst vib
aö komast þangað þakkir þjóðar-
innar," segir m.a. í yfirlýsingu frá
ríkisstjórninni.
„Hörmungar síðustu sólar-
hringa munu verba til þess ab
forvarnir vegna snjóflóðahættu
verba teknar til endurmats í ná-
inni samvinnu viökomandi ráðu-
neyta og heimamanna á hverjum
stab," segir ennfremur. ■
Garðar Guömundsson, kaup-
maður í Björnsbúð á ísafirði,
segir að ekki þurfi ab óttast
skort á nauösynjum, þrátt fyrir
erfiðleika í samgöngum. Mjólk
fæst frá Mjólkursamlaginu á
ísafirði og nægar birgöir
eru af öðrum vörum, enda eru
aðeins liðnir tveir dagar frá
því að óveörið sem nú geng-
leið og hægt var ab skipta út
þreyttum mönnum.
Varðskipið Týr kom með um
60 björgunarsveitarmenn og
fleiri aðila til Súðavíkur
skömmu eftir hádegi, en þar
sem ekki var hægt að leggjast að
bryggju á Súðavík voru björgun-
artæki sett í land á ísafirði og
verða þau flutt landleiðina til
Súðavíkur. Um kl. 6.30 í gær-
morgun lögðu moksturstæki af
stað landleiðina til Súðavíkur,
en þeir urbu að hætta mokstri í
Súðavíkurhlíð um miðjan dag í
gær, vegna veðurs. Þar ætlubu
menn að bíða átekta.
Með leitarmönnum úr
Reykjavík hefur komib mikið
magn fullkominna björgunar-
tækja, sem flýttu mjög fyrir leit
á seinni stigum í gær. Bæbi Flug-
björgunarsveitin, Landsbjörg og
slökkviliðib í Reykjavík eru
mjög vel tækjum búnar til að
leita að fólki við aðstæöur sem
þessar.
í gærmorgun kom togarinn
Júlíus Geirmundsson til Súöa-
víkur meb 26 björgunarsveitar-
menn af suðurfjörbunum og
fóru þá um 40 björgunarsveitar-
menn, frá ísafirði er verið höfðu
við leit frá því snemma á mánu-
dagsmorgun með skipinu
til baka. Þeir menn voru ör-
þreyttir, enda búnir að leita í
rúman sólarhring við mjög erf-
iðar aðstæður. Þá fór Haffari í
gær sína fjórbu ferb meb vistir
ur yfir Vestfjarðakjálkann,
skall á.
Garðar segir stóran hluta at-
vinnulífs liggja niðri þessa
daga, enda væru allir vinnufær-
ir menn sem ekki þyrftu að
sinna brýnum störfum, við leit-
arstörf í Súðavík. Aðeins væru
opnar verslanir og nauðsynleg-
ustu þjónustufyrirtæki. ■
og björgunarlið, frá því í fyrra-
kvöld.
Enn eru fleiri björgunarsveit-
armenn á leiðinni, því togarinn
Engey var að berjast við mjög
erfiðar aðstæður meb 80 menn
innanborðs og Múlafoss var á
Húnaflóa meb um 25 menn
innanborðs.
Seint á mánudagskvöld féll
annað snjóflóð úr Traðargili,
þar sem snjóflóðið í desember
féll, og er talið að þab flóð hafi
hrifiö með sér tvö hús, auk þess
sem það hafi skemmt kaupfé-
lagshúsið, sem stendur nánast
alveg niður við sjó.
Flóöið var um eitt hundrað
metra breitt og reif í sundur raf-
magnslínur og af þeim völdum
varð rafmagnslaust í stjórnstöb-
inni í Frosta hf. og einnig fór
hiti af húsinu. í framhaldi af því
var stjórnstöbin færð í Fagranes-
ið, sem liggur við festar í höfn-
inni. Mikill fjöldi fólks hafði
samband vib Rauða krossinn til
að afla upplýsinga um sína nán-
ustu frá Súðavík. Á mánudag og
þriðjudag var víða flaggað í
hálfa stöng og víða loguðu frib-
arkerti úti við til að minnast
þeirra látnu. Þá voru í gær
bænastundir í Hvammstanga-
kirkju og í Hjallakirkju í Kópa-
vogi.
Færeyska landsstjórnin sendi
íslensku þjóðinni í gær sínar
dýpstu samúðarkveðjur vegna
harmleiksins og þá sendi ríkis-
stjórn íslands frá sér yfirlýsingu.
Tvö snjóflóð höfðu í gær fall-
ib á ísafirði og var annað þeirra,
sem féll við Grænagarð um 150
m. breitt og stórskemmdi sum-
arbústaö er stóð við Steiniðju.
Umferð á þessum slóðum hefur
verið takmörkuð og var mikil
snjóflóðahætta á Skutulsfjarðar-
braut frá Grænagarði inn að
bænum Seljalandi. Talsvert varð
vart vib taugatitring og hræbslu
fólks á ísafirði, sem býr í húsum
utan svokallaðs hættusvæbis og
virðist sem atburðir síðustu
daga hafi gert það að verkum að
það óttist að hús þeirra geti
samt sem áður orðið snjóflóði
ab bráð. Af þeim sökum hafa
margir þeirra yfirgefið heimili
sín.
Veðurútlit fyrir næstu daga
var ekki gott í gær, því í nótt
og í dag var gert ráð fyrir allt að
ellefu vindstigum og búist er við
slæmu veðri’Tfam undir helgi. ■
ísafjöröur:
Ekki nauösynjaskortur
Landssöfnun vegna
náttúruhamfara í
Súöavík:
„Samhugur
í verki"
Fjölmiðlar í landinu ásamt
nokkrum öðrum aðilum hafa
ákveöib ab efna til landssöfn-
unar til hjálpar og stuðnings
þeim sem illa hafa orbib úti
vegna harmleiksins í Súbavík.
Þjáning og sorg íbúa í Súbavík
og gífurlegt eignatjón kalli á
skjót vibbrögb annarra íslend-
inga þeim til hjálpar. Þab eru
Tíminn, Stöb 2, Bylgjan, Ríkis-
útvarpib (Rás 1 og Rás 2), Rík-
issjónvarpib, FM 95,7, Abal-
stöbin, X-ib, Brosib, Alþýbu-
blabib, Dagur, DV, Morgun-
blabib og Morgunpósturinn
ásamt Pósti og síma, sem hafa
ákvebib í samvinnu vib Rauba
Kross íslands og Hjálparstofn-
un kirkjunnar ab efna til söfn-
unar á mebal allra lands-
manna.
Landssöfnunin, „Samhugur í
verki", hefst annað kvöld, þann
19. janúar kl. 19.55 með ávarpi
forseta íslands, frú Vigdísar
Finnbogadóttur og verður því
útvarpað og sjónvarpaö á öllum
rásum. Eftir þaö verður tekið á
móti framlögum í símamiðstöð
söfnunarinnar til sunnudags-
kvölds, 22. janúar.
Landssöfnunin verbur með
því sniði að fólk getur annars
vegar hringt í símanúmer lands-
söfnunarinnar og tilgreint fjár-
hæb sem er sett á greiðslukort
eða heimsendan gíróseðil. Hins
vegar er hægt aö leggja beint inn
á bankareikning hjá öllum bönk-
um og sparisjóðum.
Sjóðsstjórn landssöfnunar-
innar er skipuö fulltrúum Rauba
kross íslands, Hjálparstofnunar
kirkjunnar, stjórnvalda, sóknar-
prestinum í Súðavík og fulltrúa
Rauða kross deildar Isafjarbar-
sýslu. Fjárgæsluaðilar söfnunar-
innar eru sparisjóðirnir á íslandi.
Þeir sem standa að söfnuninni
vegna náttúmhamfaranna í
Súbavík hvetja alla íslendinga til
að sýna samhug í verki og láta
sitt af hendi rakna svo að milda
megi áhrif hinna válegu atburöa
á líf og afkomu fjölskyldna og
einstaklinga í Súðavík.
Sími söfnunarinnar er 800
5050 (grænt númer)
Bankareikningur söfnunarinn-
ar er 1117-26-800 í Sparisjóðn-
um í Súðavík. ■
Páll Ægir Císlason, deildarstjóri hjá Slysavarnafélagi íslands:
Sjómenn hafa unnið
mikiö þrekvirki
Hátt á annab hundrab þjálfabir
björgunarmenn, aballega félag-
ar Slysavarnafélags íslands frá
höfubborgarsvæbinu, lögbu
upp frá Reykjavík og eru flestir
ab björgunarstörfum í Súbavík
þessa stundina ásamt björgun-
armönnum frá Vestfjörbum.
Allir hafa verib bobnir og búnir
ab koma til bjargar og ljóst ab
sjómenn og björgunarmenn
hafa lagt sig í hættu vib ab
komast vestur í því foráttuvebri
sem ríkir á siglingaleibinni. Út-
gerbarmenn hafa góbfúslega
bobib skip sín til björgunar-
starfans.
Páll Ægir Pétursson, deildar-
stjóri hjá Slysavarnafélaginu,
sagði í gær að samspilið milli
Slysavarnafélagsins og Lands-
bjargar, svokölluð landsstjórn
sem samræmir störfin, hafi tekist
vel.
„Ég hafði á minni könnu ýmis-
legt það sem lýtur að sjónum,
meðal annars það ab koma Engey
vestur og eins hafði ég meb togar-
ana á Vestfjaröamiðum og Múla-
foss að gera. Þá vorum við hafðir
með í ráðum varðandi varðskipið
og sendum hóp manna og tækja
meðjwí," sagði Páll Ægir.
„Ahafnir skipanna hafa unniö
gríðarlegt þrekvirki og hafa lagt
bæði sig og skipin í erfiðar sigl-
ingar vestur. Oft þegar á reynir
kemur í ljós að þaö em sjómenn-
imir okkar sem hvaö mest mæöir
á," sagöi Páll.
Páll Ægir segir aö hann hafi
strax haft samband viö Brynjólf
Bjarnason í Granda á mánúdags-
morguninn. Hann hafi þegar gef-
iö grænt ljós á aö útvega skipiö í
þetta verkefni og hafi það tekib
skamman tíma að manna skipiö.
Sama var aö segja um aöra sem
leitaö var til, allir voru reiöubúnir
til tafarlausrar hjálpar.
Engey gekk þolanlega á leiö
vestur og var væntanleg fyrir kl.
18 í gær til ísafjaröar eftir nærri
sólarhrings siglingu. Þaöan átti aö
ferja björgunarmennina yfir til
Súöavíkur.
Múlafoss var í gærkvöldi í ofsa-
veðri og hélt sjó á Húnaflóa og
þar um borð voru 32 björgunar-
menn. Slysavarnafélagið hafði
samband við tvo Vestfjarðatogara
strax á mánudagsmorgun. Ætlun-
in var að Júlíus Geirmundsson
tæki björgunarmenn á noröur-
fjörbunum sem hann gerði. Þá
haföi Páll Ægir samband viö Sig-
trygg Gíslason, skipstjóra á
Margréti, og baö hann aö taka
menn á Þingeyri og Flateyri, og
var ætlunin að togaramir tveir
yrðu á svipuðum tíma á ísafirði.
Sigling Margrétar fór illa og varö
skipiö fyrir miklum skakkaföllum
af völdum brotsjóa, eins og kunn-
ugt er. ■