Tíminn - 22.03.1995, Blaðsíða 6

Tíminn - 22.03.1995, Blaðsíða 6
6 Mibvikudagur 22. mars 1995 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM Langhæsti bónus- inn í Fiskibjunni Meðaltalsbónusinn hefur verið langhæstur hjá Fiskiðj- unni á Sauðárkróki af norð- lenskum frystihúsum það sem af er ári, samkvæmt samantekt Alþýðusambands Norðurlands. Bónusinn hef- ur að meðaltali verið 215 fystu tvo mánuðina í Fiskiðj- unni og í febrúar var hann 219 krónur. Til samanburðar var meðaltalsbónus allra húsanna 170 kr. í febrúar og hefur verið 172 kr. fyrstu tvo mánuðina. Erling Ólason, verkstjóri í Fiksiðjunni, segir ástæður þessa vant fólk og gott hrá- efni. Afbragðs hráefni hafi komiö af línubátum á Snæ- fellsnesi sem eru í viðskipt- um við Fiskiðjuna og einnig hafi vinnsla á Rússafiski komið vel út en Fiskiðjan fékk fýrir nokkru 300 tonn úr Barentshafi. Af besta hrá- efninu eru um 70% skorin niður í bita sem fara í laus- frystingu og sú vinnsla gefur mestan bónus. Frambjóbendur út um sveitir á snjóslebum Frambjóðendur eru mikið á ferðinni í kjördæminu þessa dagana og eiga sjálfsagt eftir að koma víða við á næstunni. Það er þó ekki heiglum hent að komast á milli sveita og dugar sumum svæðum ekkert annað en snjósleði til að komast á milli. Séra Hjálmar Jónsson hefur ferðast á milli bæja á vélsleða sem hann fékk lánaðan hjá félaga sínum Sigfúsi Jónssyni á Laugarbakka er skipar þriðja sæti listans. „Hann var hinn vígalegasti, kominn í gallann og meb derhúfuna," segir Páll Brynjarsson, kosn- ingastjóri sjálfstæðismanna. Mikil fjölskyldu- hátíb í Húna- þingi í sumar Þœr eru afkastamiklar bónuskonurnar í Fiskibjunni. búningsnefndin fundað vikulega og það er mikil vinna eftir fram að móti. Við erum ákveðin í að gera þetta eins vel úr garði og mögulegt er. Ýnislegt verður til skemmt- unar, kvöldvaka, varbeldur í fjörunni við Bakkakotsvöll og hlöðuball," segir Vaidi- mar Gubmannsson í Bakka- koti, formaður USAH, en 14.- 16. júlí í sumar fer fram Ung- lingalandsmót UMFÍ sem USAH annast framkvæmdir á. „Vib vonumst til þess að þetta verði ein allsherjar fjöl- skylduhátíð. Ég held að ekki sé of mikil bjartsýni að gera ráð fyrir 5-6 þús. manns, börnum og fullorönum," sagði Valdimar. FJflRDflR tástunffl HAFNARFIRÐI „Gæsapartý ' á slökkvistöbinni Þeir höfðu snör handtök slökkviliðsmennirnir okkar þegar gæs í nauðum ranglaði magnþrota fram hjá slökkvi- stöðinni nýlega. Gæsinni óx þróttur dálitla stund þar til hún uppgötvaði að það voru góðviljaðir veibimenn sem vildu hand- sama hana. Raunar var einn þeirra formaður Skotveiðifé- lags Hafnarfjarðar, Helgi Harrysson, en hann var óvopnaður og tók gæsin gleði sína eftir að hafa áttað sig á því. Ðálítill eltingarleik- ur endaði í portinu við Áhaldahúsiö en þá hafði gæsin magalent nokkrum sinnum þunglamalega eftir árangurslausar tilraunir til flugtaks. kverkarnar. Morguninn eftir endurheimti hún svo frelsi sitt niðri á Læk. Jón Hjartarson skólameistari: Nemendur hætt- ir námi Jón Hjartarson, skólameist- ari Fjölbrautaskóla Norður- lands vestra á Sauðárkróki, segir að nú þegar hafi nokkr- ir nemendur sagt sig úr námi við skólann. „Nú þgar er þessi önn orð- in veik. Að því gefnu að deil- an leysist á næstu dögum er ljóst að ekki verður unnt að ljúka þesari önn nema kenna fram í júnímánuð. Við það myndu skapast mörg vanda- mál og hagsmunaárekstrar. Ég nefni t.d. hótelhald hér á Iandsbyggðinni. „Ég er sannfærður um ab til ab leysa þessa deilu þarf eitthvað nýtt að koma til. Tillaga mín um nýskipan í samninganefndir ríkisins sést kannski í réttu ljósi í lok júní ef ekki verður búið að semja þá." Jón staðfesti að nokkrir menendur, innan við tugur, hefðu þegar sagt sig frá frek- ara námi á þessari önn og ætlun þeirra væri sú ab ráða sig nú þegar í vinnu og hefja aftur nám næsta haust. Slmrtlm (rintr- KEFLAVIK Kjaftfull höfn af kollu Það er óhætt að segja að Keflavíkurhöfn hafi verið kjaftfull af kollu síðustu daga. Mebfylgjandi mynd er tekin af æbarkollum og blik- um sem voru í hundraða eba þúsunda vís á höfninni. Sandgerðishöfn: Mabur handtek- inn fyrir ab landa framhjá vigt Lögreglan í Keflavík hand- tók fyrir skömmu aðila fyrir ab landa framhjá vigt. Lög- reglunni barst tilkynning frá eftirlitsmönnum sem töldu að landab hefði verið fram- hjá vigt í Sandgerði. Grunur þeirra reyndist á rökum reist- ur. „Jú það er búinn ab fara mikill tími í undirbúning. Frá áramótum hefur undir- Cœs bjargab úr vetrarkuldanum. Slökkviliðib skaut yfir hana skjólshúsi um nóttina, hún hámaði í sig ein fjögur rúnn- stykki og drakk vatn úr brunaslöngu til að væta Hreppsnefnd Biskupstungnahrepps: Vill bætt skilyrbi garðyrkjubænda Bæta verbur rekstrarskilyrði garbyrkjubænda þar sem staba þeirra hefur veikst verulega. Breyta verbur innlendum ab- stæbum og eins ab herba öll þau skilyrbi sem EES og GATT samn- ingar kveba á um. Ella gæti stab- an orbib enn verri. Þetta kemur m.a. fram í ályktun sem hrepps- nefnd Biskupstungnáhrepps hef- ur sent frá sér, en þar er tekib undir kröfur Sambands garb- yrkjubænda til stjórnvalda um bætt skilyrbi til ha.ida garbyrkju- bændum. Kröfur þessara tveggja abila eru mebal annars þær að sjóðagjöld garðyrkjunnar verði lækkuð og ekki innheimt í sjóði bændahreyf- ingarinnar á þeim tíma sem inn- lend framleiðsla er í samkeppni við þá erlendu. Einnig er nefnt að raf- orkukaup þurfi ab vera hagstæðari, heimildartími innflutnings sam- kvæmt EES samningi þurfi ab vera styttri, ekki megi hvika frá holl- ustukröfum innflutnings, ríkið þurfi aftur að hefja greiöslu mót- framlags garðyrkjubænda í lífeyris- sjób þeirra - eins og gert er varð- andi aðrar búgreinar. Þá segir að ríkib þurfi að endurgreiöa söluskatt af fjárfestingu garðyrkjubænda áð- ur en virðisaukaskattur kom til, og einnig þurfi bændur í greininni að fá aukið svigrúm til skuldbreytinga á Iánum sínum. Margir séu í knappri stöðu. í ályktun hreppsnefndar Biskups- tungnahrepps segir að garðyrkja sé afar mikilvæg atvinnugrein í sveit- inni og að henni verbi ab hlúa. Hún skapi mörgum atvinnu - fyrir utan það sjónarmið að íslendingar skuli sjálfir framleiða sinn eigin mat. - SBS, Selfossi Héraösdómur Suöurlands dœmir um söluna á Stór- ólfsvöllum í Hvolhreppi: Héraðsnefnd greiðir málskostnaðinn Hérabsdómur Suburlands hefur sýknab Ríkissjób og félagib Stórólf af öllum ákæruatribum Hérabsnefndar Rangárvalla- sýslu vegna sölu ríkisins á eign- um og Ieigusamningi jarbarinn- ar Stórólfsvalla í Hvolhreppi til Stórólfs. Er Hérabsnefndinni gert, samkvæmt dómi, ab greiba 160 þúsund kr. í máls- kostnab til ríkissjóbs og sömu upphæb til Stórólfsmanna. Málavextir eru þeir að vorið 1993 seldi ríkissjóöur Stórólfi húseignir á Stórólfsvöllum ásamt leiguréttindum, en þau eiga að gilda í 16 ár frá og meö undirrit- un samningsins. Héraösnefnd haföi forkaupsrétt að nefndri eign og samningi — en nýtti sér hann ekki í tíma. Var því gengið til samninga við Stórólf og greiddar voru fyrir 15 millj. kr. Eftir það vildi héraðsnefnd riftun þessa samnings, en niðurstaða dóms er sú sem áöur segir: að samningur- inn frá 1993 skuli standa. Það var Kristján Torfason dómsstjóri við Héraðsdóm Suöur- lands sem dæmdi í þessu máli. Héraðsnefnd Rangæinga getur áfrýjað niðurstöðu undirréttar til Hæstaréttar og hefur til þess frest fram að mánaðamótum. Áfrýjun- arbeiöni hafði ekki borist til Hér- aösdóms í gærdag. - SBS, Selfossi Akureyri: Nítján gera tilboð í smiði orlofshúsa Frá Þórfti Ingimarssyni, fréttaritara Tím- ans á Akureyri: Nítján aðilar gerðu tilboð í smíði orlofshúsa við Kjamaskóg, en fyrir skömmu buöu Úrbóta- menn hf., sem standa aö bygg- ingu húsanna, smíði þeirra út. Áætlað er að byggja allt að 40 hús á orlofshúsasvæðinu, en í fyrsta áfanga er áætlaö að byggja tíu til tólf hús. Kostnaöaráætlun um smíöi húsanna hljóöar upp á 5,2 milljónir króna fyrir hvert hús, þannig að í heild er um allt að 200 milljón króna verkefni að ræða. Lægstu tilboðin eru frá byggingaaöilum á Sauöárkróki og Akureyri. Lægsta tilboð í smíði orlofs- húsanna er frá Trésmiðjunni Borg og fleiri aðilum á Sauðár- króki, en þeir buöu 83,8% af kostnaðaráætlun eða tæpar 4,360 milljónir fyrir smíöi hvers húss. Næstlægsta tilboö er frá Stefáni Jónssyni, Ingólfi Her- mannssyni og fleirum á Akureyri og önnur tilboð undir kostnaö- aráætlun eru frá: Trénausti og Kötlu hf., S.G. Einingarhúsum, Hyrnu hf., Trésmiðju Hilmars, Tréverki og frávikstilboö frá Ossa hf. og voru þau flest á bilinu 95% til 100% af kostnaðaráætl- un. Auk þeirra bárust nokkur til- boð, sem hljóðuöu upp á hærri upphæö en kostnaöaráætlunin gerir ráð fyrir, en þau eru frá: Timburtaki, sem átti hæsta til- boðið eða 138,5% af áætluðum kostnaði, frá SJS verktökum, Fjölni, SS-Byggi hf., Trésmiðju Siguröar og Fagverki, Ossa hf., en þaö fyrirtæki átti einnig ann- að og lægra tilboð, Trésmiöju Fljótsdalshéraðs, Trésmiöjunni Akri og Trésmiöjunni Ösp. Sveinn Heiðar Jónsson, einn Úrbótamanna, kvaðst í samtali við Tímann vera mjög ánægður með áhuga byggingamanna á þessu verkefni og einnig þær undirtektir sem bygging hús- anna hefur fengið. Hann sagði að þegar hafi mikið verið spurst fyrir um orlofshúsin og mikill áhugi viröist v.era fyrir þeim. Einkum hafi forsvarsmenn starfsmannafélaga leitað eftir upplýsingum um húsin og sýnt áhuga á kaupum og sé það í fullu samræmi við áætlanir um nýtingu þeirra. Ekki er enn Ijóst hversu mörg hús veröa smíðuð í sumar, því þótt áætlanir geri ráð fyrir um 10 til 12 húsum, getur farið svo að fleiri verði reist ef eftirspum veröur mikil. Ákvörð- un um byggingaraðila verður tekin á næstu dögum. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.