Tíminn - 13.05.1995, Page 16
16
Laugardagur 13. maí 1995
JONA RUNA á mannlegum nótum:
Ráðdeild
Eins og við vitum, erum við
mismunandi útsjónarsöm og
hyggin í fjármálum. Við leggj-
um jafnframt ólíkar meiningar í
og áherslur á, hvað talist getur
viturlegt, þegar kemur að hver
kyns ráðdeild og sparnaði. Við,
sem erum eyðslusöm og fyrir-
hyggjutæp, lendum ibulega í
hremmingum og ógöngum sök-
um þess arna.
Það skiptir vissulega máli fyrir
okkur flest, að við séum meðvit-
uð um mikilvægi búhyggju og
sparnaðar í okkar daglega lífi.
Við þurfum t.d. að vera framsýn
og fyrirhyggjusöm gagnvart
þeim kröfum sem samfélagiö
gerir til okkar m.a. varðandi
skatta og skyldur, ekkert síður
en gagnvart heimili okkar og
fjölskyldu. Ef við erum óvarkár í
peningamálum og eyðum
meiru en við öflum, hijótum
við aö standa frammi fyrir
brostinni og örvæntingarfullri
lífsafkomu fyrr en síðar.
Best er, að við eyðum ekki
því, sem við höfum ekki ráð á
og hyggilegast er að við miðum
alla eyðslu við aödrátt og líklega
afkomu. Ágætt er, aö við neit-
um okkur frekar um hlutina,
fremur en að sækjast eftir þeim,
sérstaklega ef við eigum ekki
fyrir þeim. Þetta er áríðandi að
athuga í tilvikum sem snerta
t.d. eyðslu í óþarfa hégóma og
pjatt.
Ahyggjur, sem eru tilkomnar
vegna þess að vib erum fyrir-
hyggjulítil og óvarkár í pen-
ingamálum, eru óþægilegar og
óttablandnar. Það er mjög erfitt
fyrir okkur, ab rækta hyggileg
og réttlát samskipti, ef við erum
bókstaflega hlaðin streitu og
ótta. Ekki síst ef það er vegna
þess, að við getum ekki staðið í
skilum með þær skuldbindingar
sem við höfum komið okkur í.
Ágætt er, ab við íhugum og
temjum okkur rábdeild í pen-
ingamálum, þó ekki væri nema
til þess að fyrirbyggja möguleg
vanskil og vanlíðan. Þetta sjón-
armið er gagnlegt og áríðandi
fyrir þau okkar, sem kjósa að
vera sómakær og heiðarleg í
samskiptum. Við, sem höfum
tilhneigingu til óvarkárni í pen-
ingamálum, verðum að átta
okkur á því, að þannig hugs-
andi völdum við þeim, sem við
bregðumst, örvæntingu og
basli.
Við getum skapað ótrúleg
vandræði með skorti á hagsýni
og áreiðanleika í samskiptum.
Tillitsleysi gagnvart þeim, sem
treysta á heiðarleika okkar og
fyrirhyggju, er óafsakanlegt.Við
getum auðveldlega stofnað til
ófyrirséðra vandræða, ef við lát-
um eins og okkur komi ekki vib
hvernig við eyðum því sem við
höfum á milli handanna. Það er
sorglegt, ef við veröum til þess,
einungis vegna óábyggilegheita
og ábyrgðarleysis, að skapa
glundroða og vonleysi.
Allur abdráttur og eyðsla, sem
er útsjónarsöm og ábyrg, er af
hinu góða. Ágætt er þó að
muna þab, að það er ekki nauð-
synlegt að eyða því, sem aflast,
um hæl. Temjum okkur því
frekar sparsemi og búhyggindi
en eyðslusemi og óáreiðanleika.
Best er, ab við örvum með okk-
ur aukna ráðdeild og hagsýni,
því það leiðir til góðs árangurs í
leit okkar að ytra sem innra ör-
yggi. Ef við erum séð og sniðug,
ásamt því að vera vinnusöm og
ábyrg, farnast okkur vel. ■
Wknmm KROSSGÁTAN NR. 19
A
KÓPAVOGSBÆR
HÚSNÆÐISNEFND
Umsóknir
um félagslegar eignar- og kaupleiguíbú&ir
Húsnæbisnefnd Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um félags-
legar eignar- og kaupleiguíbúbir. Um er að ræba 2ja, Bja, 4ra
og 5 herbergja íbúðir í fjölbýlishúsum.
Þeir einir koma til greina sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign.
2. Eru innan tekju- og eignamarka Húsnæbisstofnunar ríkisins.
3. Sýna fram á greibslugetu sem mibast við ab greiðslubyrði
lána fari ekki yfir vibmiðunarmörk samkvæmt ákvæbum laga
nr. 58 1995 og reglugerbar sem í gildi verður þegar úthiutun
fer fram.
Umsóknareyðublöb verða afhent á skrifstofu Húsnæbisnefndar
Kópavogs, að Fannborg 4, sem er opin frá kl. 9-15 mánudaga-
föstudaga. Umsóknarfrestur er til 5. júní 1995.
Athygli er vakin á því að eldri umsóknir falla úr gildi.
Allar frekari upplýsingar veitir húsnæbisfulltrúi mánudaga, mib-
vikudaga og föstudaga, frá kl. 10-12 í síma 5545700.
Húsnæbisnefnd Kópavogs
LAUSN Á GÁTU NR. 18
1 <s& /WOÓO •tutn v5 % s j'lSu ' tilMTA W 0 HUrlAi JUeiv\ vb c 'rikx s 'A
! í< F 1 Æ wfl' s & /timá m K O' K u K
E £ & wcr r Æ Q A f/ r/ wT PÍACAK Gr £ 0 (
1
LL £ I L T Mt/t- •tfr/ t ÍL ÍL u K hJóo mo D A° /V 1 R SL>
I7i ' í r T $ AfTut, s 'A T T HotA* flXK T 0 K F M £
E!S ■ íltLi □ fllKKl G- E Á 4 A M/tL- ottt bfl H A F u. Æ s <DMST LCi/a f 'fí
7/ \yh K un K A fj A RJlT HKri E '0 4 uen/ s t £ tf h A
ö :nínMi l B f/ u VléiUt L A K 1 RJOTI HlKLI K 'A / HAHCt- samac b
ffirl K f/ / ÍMM- itiCvA Kttj/ F A £ h Uu A Ihuu ILMA Æ s 1 T G s
£ K K JMÍTTA SKAÓ/ A U S1 Æ 0005 Í7YUl T 'A A * & <1 'o 4
• ?'f f A. / Af G *4Virj S K £ fJrtUA ÓAfrtr 1 z f/ A ÁÁwuC BfiMi A A
a yj r/ A UnrA re*ur £ Æ Q J TÍI& íUKAA F E /7 Q ( HfjCut f!SK Æ A A t'tLti* 15
M Z du at. £ S 1 f6*iu A k 1 CcíLT A WÍ& 60CI 'A S btíiúA Tlí. u
\h lÆ $E« £ úi.- , ÍL 'A A f/ ] T G E 4 T Æ b T
K 0 ft ± ± M B M b/ DiBfél s 'A öj l tTuKDI l A K 1