Tíminn - 13.05.1995, Blaðsíða 19

Tíminn - 13.05.1995, Blaðsíða 19
Laugardagur 13. maí 1995 19 Kvenhetjan á Hverabökkum I’egar eg kom fyrst í Hveragerði var þar að myndast vísir að sveitaþorpi. Líklega hefur þó ekki verið búiö að staðaldri nema í svona 8-10 húsum, en þarna var þó þegar orðin eins- konar miðstöð sveitarinnar. Þarna var símstöð, barnaskóli, kvennaskóli og samkomuhús hreppsins. Og þarna var hið myndarlega garðyrkjubýli Fagrihvammur. Eg kunni fljótlega vel við þetta litla samfélag þarna undir Kömbunum. Tveir íbúar þess vöktu sérstaklega athygli mína. I>að voru þau Árný Filippus- dóttir, sem átti og rak kvenna- skólann á Hverabökkum, og Lárus Rist, sundkennari, sem um þetta leyti var kominn vel á veg með að byggja sundlaug rétt ofan við Varmána. Þau voru bæði miklar athafna- manneskjur, sem börðust langa ævi ótrauð fyrir hugsjónum sínum. Árnýjar hefur nú veriö minnst og mjög að verðugu, því aö á síðasta ári kom út ævi- saga hennar, „Lifir eik þótt lauf- ib fjúki". Höfundar bókarinnar eru þær Anna Ingólfsdóttir, Katrín Jónasdóttir og Margrét Björgvinsdóttir. í bókinni er skilmerkilega rakinn æviferill Árnýjar frá vöggu til grafar og er það mikil saga og merk. Hún fæddist að Hellum í Landsveit 20. mars 1894. For- eldrar hennar voru hjónin Fil- ippus Guðlaugsson, bóndi á Hellum, og kona hans, Ingi- björg Jónsdóttir, ljósmóðir. Árný þráði mjög ab mennt- ast, en þar var auðveldara um að tala en í aö komast. En 15 ára gömul yfirgaf hún átthag- ana og réði sig í „vist" til að byrja með. Haustiö 1910 fór hún svo vestur að Núpi í Dýra- firði og stundaði þar nám í tvo vetur. En „út vil eg" og haustiö 1918 lét hún verða af því og sigldi til Kaupmannahafnar. Hugöist nema þar hjúkrun, en heilsubrestur hamlaði. Varö hún sér þá úti um vinnu, en stundaði jafnframt kvöldnám við Det tekniske Selskabs Skole. Fór námsferðir til Póllands og Þýskalands 1924-1925. Hvarf þá aftur til Kaupmannahafnar og tók nú að nema margvísleg- ar listgreinar við Dansk Kunstfl- BÆKUR MAGNÚS H. GÍSLASON idforenings Skole. Heim kom hún svo árið 1926. Hafði þá boðist kennarastaða í Ameríku, en hafnaöi því boði. Seinna dvaldist hún tvö sumur í Sviss. Og enn fór hún til Kaupmanna- hafnar sumarið 1928 til þess að kynna sér þar ýmis handa- vinnuverkefni. Þetta sama ár bauö Arnór Sigurjónsson, skólastjóri á Laugum í S.-Þing- eyjarsýslu, henni kennarastarf við skólann, sem hún þáði og kenndi þar í þrjú ár. Þá var hún skólastjóri Kvennaskólans á Blönduósi frá 1929-1932. Næstu þrjú árin stóð hún fyrir námskeiðum á vegum Sam- bands sunnlenskra kvenna, þar sem hún kenndi fatasaum, út- saum, leðurvinnu o.fl. En nú var þess skammt að bíða að í starfsævi Árnýjar hæf- ist sá kafli, sem hún er kunnust fyrir. Sumariö 1935 hóf hún að koma upp húsnæði í Hvera- geröi, og nefndi þaö Hvera- bakka. Upp úr áramótum 1935- 1936 hélt hún námskeið í hinu nýja húsnæði. Sóttu það 12-14 stúlkur. Var það upphafið aö hinu heilladrjúga skólahaldi hennar á Hverabökkum, sem stóð til 1954. Þá var tekið fyrir fjárveitingar til skólans, sem auðvitað var dauðadómur yfir honum. Þótt Árný ætti oft á brattann að sækja með skólahaldið, þá naut hún samt velvilja og að- stoðar margra mætismanna. Yrði of langt mál að geta þeirra hér, en skylt er þó aö nefna hann Hebba — Herbert Jónsson — sem alla stund var önnur hönd Árnýjar við skólastarfið. Enda þótt Árný neyddist til þess að loka skólanum sínum, sem verið hafði óskabarn henn- ar um árabil, var hún þó engan veginn á því ab leggja árar í bát, þótt orðin væri sextug. Hún kom sér upp húsi í Hveragerði 1951, þótt hún flytti ekki í það fyrr en 1956, er hún seldi Hverabakka. Og áfram hélt hún kennslunni, þótt með öðrum hætti væri en áður, og kenndi bæði við Hlíðardalsskólann og Gagnfræðaskólann í Hvera- gerði. Bókin um Árnýju er hin vandaðasta ab allri gerð. Auk þess að vera ítarleg ævisaga þessarar sérstæbu athafna- og hugsjónakonu, prýða bókina myndir af nokkrum listaverka hennar, auk fjölskyldumynda. Og loks eru svo í bókinni skóla- spjöldin frá Hverabökkum, nemendatal, ritaskrá Árnýjar og nafnaskrá. Árný var ógift, en ól upp fóst- urbörn. Hún andaðist á Akra- nesi 2. mars 1977, 83 ára ab aldri. „Með menntun þeirri, sem eg aflaði mér, hafði eg fyrst og fremst í huga að geta orðið öðr- um að liði. Þetta hefur alla tíö verið mitt keppikefli, hvernig sem annars hefur til tekist," sagði Árný eitt sinn. Og það tókst henni svo sannarlega með sínu langa, óeigingjarna og far- sæla lífsstarfi. DAGBÓK |U\JUVAAJVAAJU\JU\J! Lauqardagur ugaraag 13 X mai 13B. dagur ársins - 232 dagar eftir. 19. vika Sólris kl. 4.21 sólarlag kl. 22.30 Dagurinn lengist um 7 mínútur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Brids, tvímenningur, í Risinu kl. 13 sunnudag og félagsvist kl. 14. Þriðji dagur í fjögurra daga keppni. Dansað í Goðheimum kl. 20. Skrifstofan er opin kl. 9 til 16 virka daga. Skáldakynning í Risinu á fimmtudag kl. 14. Félagar úr leik- hópnum ásamt Gils Guðmunds- syni flytja efni um líf og starf Dav- íðs Stefánssonar í tilefni aldaraf- mælis skáldsins. Vélprjónafélag íslands heldur vorfund í Grænu smiðj- unni, Breiðumörk 26, Hveragerði, í dag, laugardag, kl. 17. Fuglaskobun á Seltjarnarnesi Náttúrugripasafn Seltjarnamess stendur fyrir fuglaskoðun á sunn- anveröu Seltjamarnesi á morgun, sunnudag, kl. 13. Þar er mjög gott fuglaland og mikið líf um þessar mundir. Öllum er heimil þátt- taka. Safnast veröur saman viö fuglaskiltið við Bakkatjörn. Leið- beinandi verður Stefán Bergmann líffræðingur. Tvennir tónleikar í Seltjarnarneskirkju Um helgina veröa haldnir tvennir tónleikar í Seltjarnarnes- kirkju. Kl. 15 í dag, laugardag, efna Þuríöur Baxter, mezzo-sópr- an, og Ólafur Vignir Albertsson, píanóleikari, til tónleika. Á efnis- skránni eru ljóð og óperuaríur úr ýmsum áttum. Á morgun, sunnudag, kl. 17 heldur Selkórinn á Seltjarnarnesi vortónleika. Á efnisskránni eru bæði íslensk og erlend lög. Að- gangseyrir 1000 kr., greitt við inn- ganginn. Stjórnandi Selkórsins er Jón Karl Einarsson. Listasafn íslands lokab vegna vlbgerba Listasafn íslands verður lokað um mánaðartíma, frá og með 15. maí n.k., vegna endurbóta á gler- hvelfingu tengibyggingar. Plasthvelfingar í þaki verða endurnýjaðar og sett í gler sem dregur úr innrauðri og útfjólu- blárri geislun sólarljóssins inn í tengibygginguna. Verktaki er Álstoð hf., en arki- tekt er húsameistari ríkisins. Framkvæmdasýsla ríkisins sér um eftirlit með framkvæmdinni. Fundur um utanríkis- mál á Hótel Sögu Mánudaginn 15. maí nk. flytur Halldór Ásgrímsson, utanríkisráð- herra og formaður Framsóknar- flokksins, erindi á sameiginlegum fundi Samtaka um vestræna sam- vinnu (SVS) og Varðbergs. Fund- urinn verður í Átthagasal Hótels Sögu, hefst kl. 17.15 og lýkur ekki síðar en kl. 19. Þetta er fyrsta opinbera ræða nýja utanríkisráðherrans um ut- anríkismál íslands í upphafi nýrr- ar ríkisstjórnar. Fundurinn er opinn félögum SVS og Varðbergs svo og öðrum sem áhuga hafa á utanríkismál- um. Tónlist í Listaklúbbnum Nk. mánudag munu fjórir ungir tónlistarmenn halda tónleika í Listaklúbbi Leikhúskjallarans. Þetta eru gítarleikararnir Hinrik Bjarnason og Rúnar Þórisson, hörpuleikarinn Sophie Schoonj- ans (belgísk, en býr nú á íslandi) og flautuleikarinn Guðrún Birgis- dóttir. Hinrik og Rúnar leika sam- an spænsk og suöur-amerísk lög og er efnisskrá þeirra á léttum nótum. Sophie og Guðrún munu leika franska tónlist og verk eftir íslenska höfunda. Tónleikar í íslensku Óperunni Þriðjudagskvöldið 16. maí munu flautuleikarinn Martial Nardeau og píanóleikarinn Peter Máté halda tónleika á vegum Styrktarfélags íslensku Óperunn- ar. Báöir tónlistarmennirnir eru af erlendu bergi brotnir, en eiga þaö sameiginlegt að hafa sest að á ís- landi. Á efnisskránni eru verk eftir Ferenc Farkas, Georges Enesco, SergeLProkofjev, G. Bizet, Darius Milhaud, Francis Poulenc og Ro- ger Bourdin. Tónleikarnir verða haldnir í ís- lensku óperunni á þriðjudag kl. 20.30. Fréttir í vikulok Olíufélögin hækka bensín Olíufélögin hafa hækkaö verð á bensínlítra að meðaltali um 1,90 kr. Miðað við kjarasamningana rýrir þessi eina verðhækkun þann ávinning um 25%. Umdeild HM-keppni Heimsmeistaramótið í handbolta hefur verið mik- ið í umræðunni vegna hás miðaverðs og lítillar að- sóknar. Þá hefur lögreglu- stjórinn í Reykjavík haft af- skipti af bjórauglýsingum. Umdeildur síldarkvóti íslendingar og Færeyingar hafa gert samkomulag um allt að 250 þús. tonna síldarkvóta í Síldarsmugunni og mæt- ir sú ákvörðun haröri andstöðu Norðmanna. Margrét Frímanns í framboö Margrét Frímannsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í framboð til formanns Alþýðubandalagsins. Steingrím- ur J. Sigfússon og núverandi formaður, Ólafur Ragnar Grímsson, bjóða sig einnig fram. Alvarleg áhrif sjónvarps á börn? Nýlegar vísindarannsóknir sýna að hætta er á að há- tíðnibylgjur frá sjónvarpstækjum hafi áhrif á taugakerfi barna þannig að þau slævist á ákveðnum sviðum, sem aftur valdi óstöðugleika og jafnvel árásargirni. íslandi spáö slöku gengi Björgvin Halldórsson tekur þátt í Eurovision á írlandi í kvöld. íslandi er spáð slöku gengi og er hlutfali veð- banka 1 á móti 14 hvað íslenska lagið varðar. 260 milljóna kr. sparnaöur hjá borginni Sérstök sparnaðarnefnd hefur gert tillögur um hvernig megi spara í rekstri borgarinnar. Alls eiga 260 milljónir að sparast með ýmsum hætti, þar af á að spara 30 millj- ónir í æskulýðs- og íþróttamálum. Matarverö hækkar Matarverð hefur hækkað um 4,6% frá áramótum. Virðist þar með sem stöðugleiki síðustu ára sé horfinn í matar- verði. Hörö deila í Reykholtsskóla Hörð deila hefur risið vegna ágreinings um hver skuli stýra Reykholtsskóla. Ólafur Þ. Þórðarson er búinn að vera 15 ár í leyfi frá skólanum og hyggst setjast á ný í skólastjórastólinn, en Oddur Albertsson, núverandi skólastjóri, vill ríkja áfram.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.