Tíminn - 19.05.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.05.1995, Blaðsíða 1
STOFNAÐUR 1917 79. árgangur Föstudagur 19. maí 1995 92. tölublað 1995 Piper kennsluflugvél Tímamynd: CS Cagnrýni togaraútgeröa á smábátaútgerö kemur ekki á óvart. Landssambands smábátaeigenda: Viija aö aííur viðbót- arkvóti komi til báta magalenti á Reykjavík- urflugvelli í gœrmorgun. Tveir menn sluppu ómeiddir: Gleymdi að setja niður Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeig- enda, telur ab ef veibistofn þorsks sé 30% stærri en ábur hefur verib álitib, eba um 770 þúsund tonn, þá eigi ab úthluta þeirri vibbót sem þar fæst til smábáta á aflamarki og til hefb- bundinna vertíbarbáta. En þess- ir útgerbarflokkar hafa orbib einna verst úti á libnum árum vegna skerbinga á þorskveibi- heimildum. Fyrir utan vistvæn veibarfæri þessara útgerbar- flokka, þá hafa stóru sölusam- tökin lagt áherslu á ferskfiskinn sem nær eingöngu er ab fá hjá þessum bátaflokkum. Töluverður titringur hefur ver- ið meöal útvegsmanna að undan- förnu vegna boðaðra breytinga stjórnvalda á banndagakerfi krókabáta og sértækra aðgerða fyrir smábáta á aflamarki og ver- tíðarbáta. Talsmenn togaraút- gerða telja það einkennilegt að það eigi að auka hlut krókabáta í heildarþorskaflanum á sama tíma og þorskafli togara hefur minnk- að. Ferbu snjógöngin eba jarbgöngin? Nýlega var opnub leibin yfir Botnsheibi til Súgandafjarbar. Þar er fann- fergi mikib og göngin sem myndub voru meb snjóblásara eru eins og djúpur skurbur í fannbreibuna, svo djúpur ab ekki örlar á bíla sem leib eiga um heibina. Hérgeturab líta rútuna hans Ella Sveins í mibjum göngunum á leib til Subureyrar. Eins og sjá má eru göngin hœrri en bíllinn, sem er þó upp- hœkkabur vetrartrukkur. Menn segja gjarnan vib þá sem fara á milli: „Ætlarbu ab fara jarbgöngin eba snjógöngin?!" P.Bj. ísafírbi Örn Pálsson segir að málflutn- ingur togaraútgerða komi í sjálfu sér ekki á óvart. Hinsvegar kemur það á óvart þegar útvegsmenn eru farnir að hóta alþingismönn- um. Slík vinnubrögð séu fyrir neöan allar hellur og dæma sig raunar best sjálf. í því sambandi minnir hann á yfirlýsingu stjórn- ar Útvegsmannafélags Reykjavík- ur frá því í fyrradag þar sem sagt er fullum fetum að stjórnvöld eigi það á hættu að missa stuðn- ing annarra útgerða við kvóta- kerfið, ef þau auka hlutdeild krókabáta í þorskveiði á kostnað annarra útgerðarflokka. Örn segir að banndagakerfi krókabáta, aðstoð við smábáta á aflamarki og vertíðarbáta hafi verið í umræðunni í kosninga- baráttunni og fengið góðar und- irtektir meðal frambjóðenda í nær öllum kjördæmum og flokk- um. Það hefði því ekki átt að koma neinum á óvart að þessi at- riði skyldu hafa verið tekin með í málefnasamning ríkisstjórnar og síðan í verkefnaskrá sjávarútvegs- ráðuneytisins. Ef eitthvað er þá hefðu fulltrúar togaraútgerða átt að hafa sig í frammi í kosninga- baráttunni og koma málstað sín- um þá á framfæri. Hann minnir jafnframt á að á sama tíma og smábátar og vertíð'- arbátar hafa verið að tapa sinni hlutdeild í þorskveiðum og gerst leiguliðar hjá stórútgerðunum, þá hafa togarar veitt um 40 þús- und tonn af þorski á alþjóðlegum hafsvæðum og annað eins af karfa. Hinsvegar sé engin laun- ung á því að þorskafli krókabáta hefur aukist, samhliða því sem mikil fiskgengd hefur verið á grunnslóð og veðursæld. Það á aftur á móti ekki viö um alla landshluta, auk þess sem króka- bátum er bannað að veiða 136 daga á ári fyrir utan landlegur vegna ótíöar. ■ hjólin Tveir menn, flugkennari og nemandi hans sluppu ómeiddir þegar Piper vél, Flugskólans Flugtaks, sem þeir voru á maga- lenti á Reykjavíkurflugvelli, skömmu fyrir hádegi í gær. Vél- in var í kennsluflugi, þegar óhappib varb. Loftferðaeftirlit- ib varðist allra frétta af málinu í gær. Málið var sagt í rannsókn og enn á frumstigi. Mjög góðar aðstæöur voru til flugs þegar óhappib varð, en samkvæmt heimildum Tímans gleymdi nemandinn, eða kennari hans að setja niður hjólinn áður en vélinni var lent. Eins og áður sagði sluppu mennirnir tveir ómeiddir, en vélin er mjög illa farin. Loka varð flugbrautinni meðan rannsókn stóð yfir á vettvangi, en fjarlægja þurfti vélina með krana. ■ Félag þroskaþjálfa 30 ára: Félag Þroskaþjálfa er að velta því fyrir sér hvort félagið eigi að ganga úr Starfsmannafé- lagi ríkisstofnana, SFR, og stofna sjálfstætt stéttarfélag. Ástæðan er óánægja félags- manna með nýgeröan kjara- samning SFR og launakjör þroskaþjálfa, sem telja sig hafa farið halloka í launum í samanburöi t.d. viö leikskóla- kennara og kennara. Á blabamannafundi sem fé- lagið boðaði til í gær, en félagið er 30 ára um þessar mundir, kom m.a. fram ab laun deildar- þroskaþjálfa eru um 66 þúsund á mánubi eftir þriggja ára sérnám í Þroskaþjálfaskóla íslands ab af- loknu stúdentsprófi og a.m.k. hálfs árs starfsreynslu með fötl- uðum. Þá hefur starfsheiti og starfsvið þroskaþjálfa verið lög- verndað frá árinu 1978. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.