Tíminn - 19.05.1995, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.05.1995, Blaðsíða 3
Föstudagur 19. maí 1995 3 Formabur skólanefndar Reykholtsskóla: Nefndin vill fá skoriö úr um stööu skólans „Skólanefndin hefur aldrei tekiö afstöbu til manna. Skólanefndin hefur ævinlega lagt megin áherslu á ab þab verbi skýrt hver er staba skól- ans," sagbi séra Geir Waage, formabur skólanefndar Reyk- holtsskóla, er Tíminn spurbi hann í gær hvort þab væri ósk skólanefndarinnar aö Oddur Albertsson yrbi áfram skólastjóri viö Reykholts- skóla í Borgarfirbi, en Ólafur Þ. Þóröarsson fyrrverandi al- þingismabur hefur, eins og kunnugt er, kallab eftir stöbu sinni sem skólastjóri vib skól- ann. Geir sagði aö hann kæmi til meö að eiga fund meö mennta- málaráðherra innan tíöar þar sem hann mundi leggja áherslu á aö skorið yröi úr um stööu Reykholtsskóla, en skólanefnd skólans hefur sent mennta- málaráöherra bókun frá fundi sínum 13. þessa mánaðar þar sem er einnig lögð áhersla á þaö. „Skólanefndin hefur stutt þær áherslur sem hafa verið mótaðar í starfi skólans nú und- anfarin þrjú ár. Skólanefndin er þeirrar skoðunar aö þessar áherslur í starfi skólnas hafi skilaö merkilegum árangri sem ekki megi kasta á glæ. Við nú- verandi aðstæður þá ítrekar skólanefndin aö það beri fyrr að taka afstöðu til skólans og starf- semi hans, heldur en einstakra manna sem stjórnenda skólans. Stofnunin kemur á undan ein- staklingum," sagöir Geir enn- fremur. Hann sagði að skólanefndin hefði ekki farið út í neina um- ræðu um einstaka menn í þessu samhengi, hvorki skipað sér í sveit með Oddi né Ólafi. Til þeirra hluta sagði hann að af- staða hlyti aö verða tekin þegar fyrir lægi hver væri staða stofn- unarinnar. TÞ. Borgamesi Borgarstjóri um ágreining vegna Búseta: „Ur einhverju verða menn að búa til pólitík" Reykjavíkurborg hefur gert samning til tveggja ára vib Bú- seta um alla eignaumsýslu vegna 98 leiguíbúba í eigu borgarinnar. Minnihlutinn í borgarstjórn var andvígur þessari samningsgerb og vildi ab forval færi fram til ab kanna hverjir hefbu hug á því ab taka verkefnib ab sér. „Ákveðið var að gera tilraun með það að fela öðrum viðhald á hluta þeirra íbúða sem borgin á, í því skyni aö fá samanburð sem yrði síðan forsenda þess að bjóða þessa eignaumsýslu út með venjulegum hætti. Búseti átti reyndar hugmyndina að þessu en félagið hefur þegar þró- að ákveðið viðhaldskerfi vegna þeirra 250 íbúða sem það á og rekur, og mér fannst ekki óeðli- legt að láta félagið njóta þess í þessari tilraun, í stað þess að taka af því frumkvæðið og af- henda verkefnið einhverjum öðrum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, og þegar hún er spurð hvernig standi á andstöðu sjálfstæðismanna í Ingibjörg Sólrún borgarstjórn við þessa málsmeö- ferð segir hún: „Úr einhverju verða menn að búa til pólitík. Aðra skýringu kem ég ekki auga á vegna þessa máls, því að hér er ekki verið að víkja frá stefnu meirihlutans í innkaupa- og út- boðsmálum. Við lítum á þetta sem tilraunaverkefni sem geti, ef vel tekst til, leitt til útboðs á eig- naumsýslu." „Það skiptir máli í þessu sam- bandi að eftir viðræður við full- trúa byggingadeildar og Félags- málastofnunar þá virðist svo sem viðhald og rekstur á íbúðar- húsnæði sé ódýrara hjá Búseta en okkur. Vera má að það sé vegna þess aö þeir hagi tilfall- andi viðhaldi á annan hátt en borgin, geri t.d. ekki eins mikið og við, en þá vaknar auðvitað sú spurning hvort við séum að gera of mikið innanhúss. Vib viljum gjarnan fá einhvern samanburð, m.a. til að sjá hvert viðhaldið er á tilteknum húseignum en hing- að til hefur viðhaldskostnaður vegna íbúða í eigu borgarinnar verið gerður upp í einu lagi," segir borgarstjóri. I samningi borgarinnar við Búseta um við- hald og rekstur þeirra 98 íbúða sem hér um ræbir er gert ráð fyr- ir 11 milljóna króna kostnaði þetta árið og 15 milljónum á hinu næsta, en að sögn borgar- stjóra mun þóknuri til Búseta vegna þessarar eignaumsýslu nema að hámarki 1,9 milljónum á samningstímanum. ■ Davíö Oddsson, forsœtisrábherra, í stefnurceöu sinni í gœr: Göngum hægt um dyr efnahagsbatans Bjartsýnn tonn var í stefnu- ræbu Davíbs Oddssonar, for- sætisrábherra, sem hann flutti á Alþingi I gær. Davíb sagbi ab nú væri ab verba bati á flestum svibum efnahagslífsins og mikilvægt ab þar yrbi enginn afturkippur. Hinu væri þó ekki ab leyna ab þab tæki tíma fyrir þjób ab vinna sig út úr sjö ára stöbnunarskeibi. „Þab verbur ekki gert á einum degi eba einum mánubi, en ekki er óeblilegt ab ætla ab á fjögurra ára kjörtímabili megi takast ab byggja atvinnulífinu traustan grundvöll, stubla ab bættum kjörum í landinu og minnk- andi atvinnuleysi," sagbi for- sætisrábherrann í ræbu sinni. Rökrétt framhald kosningabaráttu í upphafi stefnuræbu sinnar sagði Davíð Oddsson að engin óvissa hefði skapast í lands- stjórninni í kjölfar kosning- anna, ríkisstjórn var myndub 15 dögum eftir kosningar. Sú stjórn hefði verið rökrétt framhald af kosningabaráttu tveggja flokka sem vissulega hafi haft ólíkar áherslur í kosningunum, enda ólíkrar gerbar og kæmu úr ólík- um áttum, annar hefði leitt rík- isstjórn, hinn komið úr stjórnar- andstöðu. Davíð sagbi að flokkarnir legðu áherslu á traust, öryggi og festu á öllum sviðum þjóðlífsins. Nokkur áhersluatriði væru tí- unduð í stefnuyfirlýsingu flokk- anna, sem fylgja yrði fast eftir. Jafnframt heföu flokkarnir ákveðið að vinna sérstaka verk- efnaáætlun sem verði tilbúin til kynningar fyrir þingi og þjóð á haustdögum. Innvortls meinsemd velferbarinnar Forsætisráöherra ræddi vel- ferðarkerfið sem hann sagði ab væri ab komast í þrot. Af þessu hefðu forystumenn í stjórn- málalífi og leiðtogar verkalýðs- hreyfingar og atvinnulífs vax- andi áhyggjur. Kerfið sem slíkt nyti nánast óskoraðs stuönings allra stjórnmálaafla í landinu. Ekki væri vegið að velferðarkerf- inu utan frá, á pólitískum for- sendum, meinsemdin væri inn- vortis, lægi í kerfinu sjálfu og stjórnlitlum vexti þess, langt umfram það sem hagvöxtur hef- ur gefið tilefni til á hverjum tíma. Varaði forsætisráðherra við þeirri lausn á vanda kerfisins að taka lán eða ýta vandanum á undan sér og efna til stórkost- legs halla á ríkissjóði og söfnun skulda. „Slík stefna myndi springa fyrr en síðar. Þá myndi blasa við að sársaukafullur og stórfelldur niðurskurður væri óhjákvæmi- legur. Núverandi ríkisstjórn vill ekki fara þá leiö. Hún vill stöbva sjálfvirkni í útgjöldum ríkissjóðs á þessum sviðum sem öðrum í tæka tíð án þess að raska velferö- arkerfinu sjálfu," sagði Davíð Oddsson. Eyðslu ekki lengur velt á framtíbina Sagöi Davíð að ætlunin væri með kerfisbreytingum að nýta þá fjármuni sem varið er til stærstu útgjaldaráðuneyta og einstakra framkvæmda með sem bestum hætti. Undirstaðan yrði treyst þannig að takast mætti meb ráðdeild og skilvirkni að veita sambærilega þjónustu og sambærilegt öryggi með svipuð- um fjármunum og nú er gert. Davíð Oddsson sagbi að stefnt sé að ýmissi nýskipan í ríkis- rekstri, fjölgun útboða, samein- ingu stofnana, þjónustusamn- ingum og breyttu launakerfi sem efla á ábyrgð og frumkvæði stjórnenda. Keppikefli ríkis- stjórnarinnar er að ná jafnvægi í fjármálum ríkisins á kjörtímabil- Davíö Oddsson, forsœtisrábherra. inu. Fagnaði forsætisráðherra auknum skilningi almennings á að eyöslu okkar veröi ekki leng- ur velt yfir á framtíðina. Hér væri í raun ekki aðeins um ab ræða skuldir næstu kynslóða, heldur hefði óhagstæb afkoma ríkissjóðs þegar áhrif á allt okkar daglega Iíf. Ræddi um jafnræði í skattheimtu Davíð Oddsson ræddi um endurskoðun skattkerfisins sem ríkisstjórnin mun gangast fyrir. Markmiðið verður ab draga úr skattsvikum, lækkun jabar- skatta, sem ráöherrann sagði bersýnilega orðna truflandi og ganga gegn réttlætisvitund manna um jafnræði í skatt- heimtu. Þá verður leitast vib að einfalda skattkerfiö þannig að það megi verða hverjum manni skiljanlegra en nú er. Davíð ræddi um að skatta- ívilnunum yrði beitt til að hvetja fólk til ab leggja fram áhættufé í atvinnufýrirtæki. Ennfremur um þá ætlun ríkis- stjórnarinnar ab breyta rekstrar- formi viðskiptabanka og fjárfest- ingarlánasjóða í eigu ríkisins, sem og um sölu ríkisfyrirtækja á kjörtímabilinu. Vandamál útvegs og landbúnaðar Davíð Oddsson ræddi um óró- leikann sem gætir um skipan sjávarútvegsmála. Sagði hann stjórn sína leggja áherslu á að sjávarútvegurinn búi við festu í starfsskilyrðum og að þar verði ekki tjaldað til einnar nætur. Taldi ráðherrann að uppbygg- ingarstefna í nýtingu sjávar- fangs væri farin ab skila sér, jafnvel fyrr en menn höfðu ætl- að. Varaði Davíð menn við að draga of víðtækar ályktanir af of takmörkuðum upplýsingum, þótt margt benti til að við vær- um að komast yfir erfibasta hjallann varðandi þorskinn. Davíö fjallaði um erfiðleika landbúnaðar á íslandi. Búvöru- samninginn frá 1991 þyrfti að taka til endurskoðunar, ekki síst með tilliti til vanda sauðfjár- bænda. Treysta yrði tekjugrund- völl bænda og losa um fram- leiðsluhömlur og auka sveigjan- leika í framleiðslustjórn. Þá þyrfi að stuðla að nýsköpun og fjöl- breyttari atvinnu til sveita og auðvelda bændum breytingar á búháttum og búskaparlok. Sagði Davíð að neytendur og framleið- endur ættu ríka, sameiginlega hagsmuni. Þekking og menntun — gób fjárfesting Þá ræddi forsætisráðherra um gildi menntunar og þekkingar í nútímaþjóðfélagi. „Nú þegar margar auðlindir veraldar virðast fullnýttar þá horfa þjóðirnar til þekkingar sem þess brunns sem lengi megi ausa úr," sagbi Davíð og bætti við ab fjárfesting í menntun og þekkingu væri líklegri til ab skila arði en fjárfesting í sumum öðr- um þáttum heföbundinnar þjónustu og framleiðslu. Varðandi húsnæðismálin sagði Davíð Oddsson að nú á tímum væri það erfiðara fyrir yngra fólkið en áður að koma sér þaki yfir höfuðið. Ríkisstjórnin myndi leita leiða til að greiöa götu þessa unga fólks sem er að eignast sína fyrstu íbúb. Þá yrbi hugað að stöðu þeirra sem skulda í húsnæðiskerfinu. Heimsstyrjöldin, og þrefiö vib Norbmenn Ráðherrann ræddi síðan um heimsmálin og benti á að fyrir hálfri öld hefði litlu mátt muna ab nasistar hefðu sigrað í hern- aöinum á meginlandi Evrópu, hefði það leitt til langvarandi styrjaldar á Atlantshafi og stór- átaka um ísland. Undir lok ræðu sinnar gat Davíð Oddsson um stjórnun fiskveiða á úthafinu. Sagði hann íslendinga hafa staðið með ábyrgum hætti ab stjórnun fisk- veiöa, heima fyrir og á hinu al- þjóðlega hafsvæði. Gagnrýndi hann viljaleysi og þrekleysi Norðmanna til að útkljá deilur þjóðanna. Málin væru í einhvers konar pólitískri klemmu eða hnút hjá Norðmönnum. Sagði Davíð að ef ekki yrði höggvið á hnútinn á næstunni mætti bú- ast við að málin færu í enn harð- ari hnút, og það væri ekki í sam- ræmi við hagsmuni ríkjanna sem hlut eiga að máli. Davíð Oddsson benti að lok- um á nokkrar lykiltölur úr þjóð- arbúskap íslendinga, vaxandi hagvöxt, aukna landsfram- leiðslu og aðrar tölur sem stand- ast samanburð við okkar helstu viðskipta- og nágrannaþjóðir. „Ef við höldum þeirri festu sem fengist hefur og göngum hægt um dyr efnahagsbatans er bjart framundan í íslensku þjóð- félagi," sagði Davíö Oddsson forsætisráðherra. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.