Tíminn - 19.05.1995, Blaðsíða 10

Tíminn - 19.05.1995, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 19. maí 1995 Um gengisfall dollars Rafrœn greiöslukortaviöskipti í leigubílum: „19 af stöðinni" meb posa Undir lok apríl 1995 seldist dollar á gjaldeyrismörkubum á kringum 80 jen (jafnvel rétt undir 80 jenum). Seblabankar heims hafa ekki undanfarnar vikur kostab kapps ab draga úr þessu gengisfalli dollars, hvab þá ab stöbva þab — ef þeir eru þá þess megnugir. Á fundi fjár- málarábherra helstu ibnveld- anna sjö í Washington 25. apr- íl 1995, daginn fyrir ársfund Alþjóblega gjaldeyrissjóbsins, voru uppi skiptar skobanir um hvernig bregbast beri vib fall- andi gengi dollars, en fyrir rétt- um 10 árum, í apríl 1985, seld- ist dollar á 238 jen. í forsíöufrétt Intemational Her- ald Tribune 26. apríl 1995 gagn- rýndi abalbankastjóri Bundes- bank á fundi fjármálarábherra helstu ibnríkjanna sjö í Wash- ington daginn áöur stefnu Bandaríkjanna í efnahagsmál- um. Sagbi aöalbankastjórinn, Hans Tietneyer, „markaöi ganga of hart aö dollarnum, en skyggn- ast þyrfti til grundvallarvanda- mála aö baki þess." Kvaö hann þörf á „traustvekjandi stefnu" Bandaríkjanna vegna greiöslu- halla síns við útlönd og fjárlaga- EFNAHAGSMAL og VIÐSKIPTI halla. Taldi Tietmeyer ekki kost á samhæföum aðgerðum helstu iönríkjanna sjö til aö koma á stöbugleika í gengismálum fyrir sakir tilfærslna á vöxtum, „sem í besta falli dygðu um skamman tíma." Aftur á móti lét Clinton forseti þau orö falla í vibtali viö Des Moines Register, aö sögn Int- ernational Herald Tribune 26. apríl 1995, aö „vel færi ekki á að stofna til efnahags bakfalls hér innanlands meö því aö hækka vexti frekar." Hver tök hafa seðla- bankar á gjaldeyris- mörkubum? Tveir bandarískir háskóla- kennarar, Kathryn Domingues og Jeffrey Frankel, hafa nýlega greint frá athugunum sínum á tökum tveggja seðlabanka á gjaldeyrismörkum, hins banda- ríska og hins þýska, frá 1985 til 1991. Á þeim árum tóku seðla- bankar 11 sinnum höndum sam- an um íhlutun á þeim og heppn- aðist hún 10 sinnum. Þess má geta, aö hin fyrsta þeirra var aö Plaza-samkomulaginu í septem- ber 1985, þegar seölabankar þröngvuöu niður gengi banda- rísks dollars, þá ofmetins. Á fjór- um mánuðum, fram til janúar 1986, var gengi dollars lækkað um 25%. í nýútkominni ársskýrslu Bundesbank, þýska seölabank- ans, kemur fram aö fyrsta fjórð- ung ársins 1995 hafa evrópskir seðlabankar varið jafnvirði $ 29,2 milljaröa til að halda uppi gengi gjaldmiðla sinna gagnvart þýsku marki, en frá lokum mars mun gengi þeirra hafa veriö all- stööugt. Samkvæmt birtum töl- um bandaríska seðlabankans varði hann 1994 um $ 6,11 millj- örðum til aö halda uppi gengi dollars á gjaldeyrismörkuöum. í þessu tilliti er þó hvað athyglis- verðast, að gjaldeyris- og gull- forði Japans jókst um $ 27,3 milljarða 1994 og enn um $ 18 milljarða fyrstu mánuði þessa árs, 1995. ■ Nú hefur fyrsti leigubíllinn á íslandi veriö búinn posa og prentara, jafnt fyrir debet- sem kreditkort. Er þar um ab ræöa hinn sögufræga bíl, „79 af stöbinni". Unnið hefur verið aö því verkefni aö undanförnu, í sam- vinnu VISA og Hreyfils, að þróa hagstæba lausn sem gerir raf- ræn greiöslukortaviðskipti í leigubílum möguleg. Þetta er orðið mjög brýnt eftir að debet- kortin urðu almenningseign auk þess sem mjög algengt er að fólk greiði fyrir aksturinn með kreditkortum sínum. Þá hefur hlutfall „gúmmítékka" í leigu- bílum verið hærra en annrs staðar. Lausnin byggir á venjulegum posa, sem tengdur er farsíma bílsins og nettum hitaprentara. Auk spennubreytis er komið fyr- ir sérstöku millistykki til að auð- velda boðskiptin. Búast má vib að margir leigu- bílstjórar muni nú hugsa sér til hreyfings ab þessu leyti og fá sér slíkan búnað í bíla sína, bæði til að auka greiðsluöryggi og bæta þjónustu við viöskiptavini. ■ Bridqe UMSJÓN: BjÖRN ÞORLÁKSSON íslandsmótiö í paratvímenningi: Dröfn og Ásgeir höfðu öruggan sigur Síðasta íslandsmóti vertíbarinnar, paratvímenningi, lauk í Þönglabakkanum um síbustu helgi. Dröfn Gubmundsdóttir og Asgeir Ásbjörnsson höfbu öruggan sigur eftir ab hafa leitt allan síbari hluta mótsins. Sigurinn var næsta öruggur, Dröfn og Ásgeir skoruöu 444 stig yfir meðalskor en í öðru sæti urbu Anna Þóra Jónsdóttir og Sverrir Ármannsson með 366 stig og Esther Jakobsdóttir og Aron Þorfinnsson urbu í þriðja meö einu stigi minna, 365 stig. Alls tóku 52 pör þátt og fór mótið hið besta fram undir keppnisstjórn Kristjáns Hauks- sonar. Þess má geta að Anna Þóra og Aron eru börn landsliöskon- unnar kunnu, Estherar Jakobs- dóttur, og er árangur þeirra glæsilegur. í 4.-8. sæti uröu: 4. Jakobína Ríkharðsdóttir- Þorlákur Jónsson 349 5. Erla Sigurjónsdóttir-Jakob Kristinsson 271 6. Guðný Guðjónsdóttir-Jón Hjaltason 241 7. Hrafnhildur Skúladóttir- Jörundur Þórðarson 221 8. Gunnlaug Einarsdóttir- Hrólfur Hjaltason 216 Það er skondiö að aðeins tvö af 8 efstu pörunum tengjast ekki einhvers konar vensla- böndum. Þannig em 4 pör í sambúð eða gift; Dröfn og Ás- geir, Jakobína og Þorlákur, Guöný og Jón og Jörundur og Hrafnhildur. Esther og Aron eru mæbgin og Gunnlaug er frænka Hrólfs. Kíkjum á spil úr næstsíbustu umferö íslandsmótsins þar sem Dröfn og Ásgeir fengu nánast toppskor: Subur/AV á hættu + ÁKT6 ¥ G874 ♦ Á832 + D + 82 N + GT73 ¥ T63 ¥ 5 ♦ KT75 V A ♦ DG64 + ÁT42 S + 9765 + 954 ¥ ÁKD92 ♦ 9 + KG83 Subur Ásgeir Vestur Noröur Dröfn Austur 1 V pass 4* pass 4* dobl 4a pass 4grönd 6v pass allir pass 5v pass Vestur hitti á ágætt útspil, lítið hjarta en það var ekki nóg. Ásgeir drap heima og spilaði strax laufi (eins og verður að gera). Vestur drap og spiiaði aftur hjarta sem Asgeir drap í borði. Nú tók hann tvo efstu í spaða, tígulás og trompaði tíg- ul. Þá komu kóngur og gosi í laufi og báöum spöðunum kastað í blindum. Eftir þab víxlaði Ásgeir rest sem gaf mjög góða skor. Snoturt hand- bragð og vel sagt á spilin hjá ís- landsmeisturunum. í spili 10 síðari daginn stóbu margir norðurspilarar fyrir erf- iðri ákvörðun: Dröfn Cubmundsdóttir hefur ástœbu til ab brosa ásamt eig- inmanninum Ásgeiri Ásbjörns- syni en þau eru nýbakabir ís- landsmeistarar í paratvímenn- ingi. + ÁK8 V C ♦ ÁG7 + KG9752 + D97643 ¥ 932 ♦ K4 + ÁD N V A S + GT52 ¥ ÁKDT7 ♦ T6 * T8 A - ¥ 8654 ♦ D97643 + 643 Austur opnar á hjarta í spil- inu, vestur segir spaða en fram- haldið er mismunandi. Sumir völdu að dobla á noröurhönd- ina á meðan aðrir sögðu 3 lauf en það er ekki vandamáliö. Segjum að sagnir gangi líkt og á einu borðinu: Austur Subur Vcstur Noröur lv pass 1* dobl 4* pass pass ? Það er meir en freistandi að dobla og þannig endubu sagnir í flestum tilvikum. Norður spil- ararnir urðu þó ekki feitir af því, þar sem spilið er óhnekkj- andi með öllum útspilum og hvaöa framhaldi sem er. Norð- ur fær tvo slagi á spaða og tígu- lás en fleiri verba þeir ekld. Annað er athyglisvert: NS eiga bæði 5 lauf og 5 tígla í spil- inu. Þeir sem hörkubu sér í 3 tígla á jöfnum hættum yfir hjarta austurs uppskáru því ríkulega. Flestir spilarar kannast viö að hafa látið það eftir sér ab „fúla" einhvern tíma í spilinu. Spil 25 er dæmi um velheppnaða blekkisögn en það er skammt á milli lífs og dauða í slíkum stöðum. A D97 ¥ T64 ♦ T743 * ÁT9 ♦ KGT5 ¥ Á2 ♦ D962 ♦ K84 N V A S A Á8 ¥ D853 ♦ KG8 + D732 A 6432 -.¥ KG97 ♦ Á5 + G65 Austur Subur Vestur Norbur 1* dobl! redobl 1 grand pass pass dobl pass pass 2v 2a pass 2grönd pass 3 grönd a/pass Suöur ákvab ab opnunardo- bla með ljóta níu, redobl vest- urs lýsti a.m.k. 10 háp., norður ströglaði á grandi en eftir refs- idobl vesturs breytti suöur því í 2 hjörtu sem eru ekki svo slæm, aðeins 2 niöur utan hættu. Vestur sagði þá frá spað- alitnum og hækkaöi síðan 2 grönd í 3 grönd sem voru spil- uö um allan sal. En í þessu tilviki vissi suöur af hjartafyrirstöðu austurs og spaða vesturs og fann því gott útspil, lítið lauf. Sagnhafi setti lítið í blindum, norður níuna og drottningin átti slaginn. Þá kom tígulkóngur sem suður drap og spilabi laufgosanum sem fékk að eiga slaginn. Meira lauf og norður skipti nú í lítiö hjarta. Átta, nía og ás. Nú á sagnhafi minnst 7 slagi og 8 með því að finna spaðadrottn- inguna og e.t.v. níu ef tígullinn brotnar. Sagnhafi þóttist viss um að spaðadrottningin væri hjá suðri eftir opnunardoblið og spilabi spaða á ás og spaða á tíuna. Þegar noröur drap með drottningu var martröðin orð- in að veruleika fyrir AV. Hjarta- tíunni var spilað og meira hjarta og NS fengu því 1 á spaða, 3 á hjarta, einn á tígul og 2 á lauf. 300 í NS gaf hrein- an topp. Á næstu borðum gaf ab líta 630-660! Búiö ab draga í 1. um- ferb bikarsins Eftirtaldar sveitir drógust saman í Bikarkeppni BSÍ, en dregiö var í fyrrakvöld. Um- ferbinni á að ljúka fyrir sunnu- daginn 25. júní nk. 1. Garðar Garbarsson, Keflavík- Helgi Bogason, Borgarfirði eystri 2. Bjarni Á. Sveinsson, Egilsstöð- um-Sævin Bjarnson, Reykjavík. 3. Haraldur Sverrisson, Mosfeils- bæ-Guðmundur H. Sigurösson, Hvammstanga 4. Eðvarð Hallgrímsson, Bessa- staðahreppi-Heiðar Agnarsson, Keflavík 5. Sigmundur Stefánsson, Reykjavík-Jón Þ. Daníelsson, Reykjavík 6. Kristinn Þórisson, Reykjavík- Jóhannes Ágústsson, Reykjavík. • 7. Gunnar P. Halldórsson, Hornafirði-Sigurjón Harðarson, Hafnarfiröi 8. Lyfjaverslun íslands, Reykja- vík-Páll Þ. Bergsson, Reykjavík 9. TVB 16, Reykjavík-Hjólbarða- höllin, Reykjavík 10. HAKK, Reykjavík-Elín Jó- hannsdóttir, Reykjavík 11. Héðinn Schindler lyftur hf. Reykjavík-Guðmundur Ólafsson, Akranesi 12. Skytturnar, Reykjavík-Sveinn Aðalgeirsson, Húsavík 13. Valdimar Elíasson, Hafnar- firði-Sparisj. S.-Þing. Húsavík 14. Neon, Kópavogi-Guðrún Óskarsdóttir, Reykjavík 15. HXH, Egilsstöðum-Anton Haraldsson, Akureyri 16. Sveinn R. Eiríksson, Reykja- vík-Karl G. Karlsson, Sandgerði 17. Aðalsteinn Jónsson, Eski- firði- Esther Jakobsdóttir, Reykja- vík 18. Guðni E. Hallgrímsson, Grundarfirði-BÍNA, Reykjavík 19. Guðiaugur Sveinsson, Reykjavík-Loðnuvinnslan hf, Stöövarfirði 20. Gísli Þórarinsson, Selfossi, Grallarar, Keflavík 21. FriðrikJónsson, Húsavík-Erla Sigurjónsdóttir, Kópavogi 22. Ragnar T. Jónsson, ísafirði- Metró, Reykjavík 23. Guðmundur T. Gíslason, Reykjavík-Jóhann Magnússon, Dalvík 24. Runólfur Jónsson, Hvera- gerði-Alfreö Kristjánsson, Akranesi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.