Tíminn - 19.05.1995, Qupperneq 9

Tíminn - 19.05.1995, Qupperneq 9
Föstudagur 19. maí 1995 9 UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND UTLOND Klaus Kinkel, utanríkis- ráöherra Þýskalands: Segir af sér formennsku Bonn - Reuter Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, tilkynnti í gær að hann myndi segja af sér sem for- maður Flokks frjálsra demókrata í kjölfar þeirrar slæmu útreiðar sem flokkurinn hlaut í tvennum kosningum sem fram fóru í Þýskalandi um síðustu helgi. Hann sagöist þó ætla að halda áfram sem utanríkisráöherra og varakanslari landsins. Frjálsum demókrötum hefur gengiö illa í kosningum undir forustu Kinkels eftir að Hans-Di- etrich Genscher sagði óvænt af sér formennsku árið 1992. Flokk- urinn hefur einungis komið vel út úr tveimur kosningum af alls 14 á því tímabili sem Kinkel hef- ur verið formaður og hefur hann sætt sífellt meiri gagnrýni vegna þess, og það sem gerði útslagið voru þingkosningarnar í Bremen og Nordhrein-Westphalen um síðustu helgi. ■ Repúblikanar á Bandaríkjaþingi: Lýsa stu&ningi vi& si&væ&ing- arherferö krist- inna íhaldsmanna Washington - Reuter Margir af leiðtogun Repúblikana- flokksins í Bandaríkjunum hafa lýst yfir stuðningi sínum við siðvæöing- arherferð Bandalags kristinna, sem er hópur kristilegra íhaldsmanna með töluverð ítök í stjórnmálum. Ralph Reed, leiðtogi Bandalags kristinna, kynnti í vikunni nýja áætlun, eins konar stefnuskrá í tíu liðum, sem hann kallaði „Samning við fjölskylduna." Meðal þess sem þar er stefnt að er að bænahald verði heimilað í ríkisreknum skól- um og öðrum opinberum stofnun- um og að fóstureyðingar verði tak- markaðar. Þykir heitiö á plagginu minna nokkuð á „Samning við Am- eríku", sem var tíu liða listi yfir kosningaloforð Repúblíkanaflokks- ins fyrir síðustu forsetakosningar og átti sinn þátt í aö tryggja flokknum yfirburðasigur í kosningunum og meirihluta á þingi í fyrsta sinn frá því á sjötta áratugnum. Reed sagði að Bandalag kristinna væri að hrinda af stað tveggja millj- ón dollara upplýsingaherferð til að til að afla þessum hugmyndum stuðnings og þrýsta á þingmenn að ganga til liðs við málefnið. Meðal þeirra sem lýst hafa stuðningi við siðvæðingarherferðina eru Bob Doie, leiðtogi þingmeirihlutans í öldungadeild, og Newt Gingrich, forseti fulltrúadeildar þingsins. ■ Ný ríkisstjóm París — Reuter Jacques Chirac, nýorðinn Frakklandsforseti, tilkynnti í gær hverjir myndu sitja í ríkis- stjórn hans. Fjármálaráðherra verður Alain Madelin og utan- ríkisráðherra Herve de Charette. Einnig má nefna að Charles Millon verður varnarmálaráð- herra og Jean-Louis Debre inn- anríkisráðherra. Á miðvikudag, sama dag og Chirac tók formlega við emb- ætti forseta, haföi hann skipað Alain Juppe í embætti forsætis- ráðherra. Athygli vekur að 12 konur eru í ráðherrahópnum og að yngra fólk er nú í ráðherrastólum en áður hefur verið. ■ Japan: Með regnhlífar ab vopni Tokýo — Reuter Japanska lögreglan telur að sértrúarsöfnuðurinn sem grun- aður er um að hafa staðið að baki taugagasárásinn í Tokýo hafi verið aö undirbúa árásina í tvö ár, eða allt frá því að leiðtogi safnaðarins spáði því að heims- endir yrði árið 1997 og að engir myndu lifa hann af nema meö- limir safnaðarins. Talið er að tíu safnaðarmeö- limir, tveir og tveir saman, hafi hleypt gasinu út með því að pota oddhvössum regnhlífum í plastpoka sem innihéldu gasiö banvæna. m m Reuter Lag B omer ígœr héldu Qybingar hátíblegan Lag B'omer, íminningu uppreisnar Gybinga gegn Rómverjum íBar Kokhba á 2. öld. A þessum degi er mebal annars til sibs ab klippa hár ungra drengja ífyrsta sinn á cevinni. Á myndinni, sem var tekin íjerúsalem í gœr, má sjá Manashe Banon, þriggja ára, í fangi föbur síns, sem fylgist brosandi meb þegar sonurinn er klipptur. Gybingar hafa þab einnig til sibs ab kveikja brennur á þessum degi. Svo virbist sem fagnabarlœtin hafi gengib nokkub út íöfgar sums stabar í ísrael, einkum á hernumdu svœbunum. í gœr bárust þœr fréttir ab Gybingar, sem sest hafa ab í bænum Hebron á Vesturbakkanum, hafi stolib hurbum úr sjö trésmíbaverkstœbum til þess ab nota sem eldivib í hátíbarbrennurnar, m.a. var stolib 18 hurbum úr einu þeirra. Einnig var sagt ab Gybingar hefbu í Hebron brotib rúbur í 20 bifreibum í eigu Araba. fK ifiitúA. 0Wjd\ . A MIÐBAKKA VIÐ REYKJAVÍKURHÖFN Dæmt verSur eftir hraSa, nýtingu og gæSum þorskur, karfi og flatfiskur. Ekkert þátttökugjald. SkilyrSi fyrir þátttöku: AS kunna aS flaka Skráning, upplýsingar og afhending á keppnisreglum í síma 560 9670. Keppendur sem lenda í þremur efstu , sætunum hljóta skoSunar- og fræSsiu- fer&ir til Humberside-svæSisins á Englandi í verSlaun. rros ggpr MAREt HF IÍÍkKÍ * "•■jy REYKJAVÍKURBORG IðOr FAXAMARKAÐURINN Hf íslenskak sjavarai ukdir hf SAMVINNUFERÐIR tANDSVN HF SAMTÖK FISKVINNSLUSTÖDVA VERKAMANNASAMBAND ÍSLANDS SÖLUMIÐ5TÖÐ HRAÐFRVSTIHÚSANNA RANNSÓKNARSTOFNUN FISKIÐNAÐARINS SÖLUSAMBAND ÍSLENSKRA FISKFRAMLEIÐENDA HF W' iHIy lítM' AirW.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.