Tíminn - 03.06.1995, Side 3
Laugardagur 3. júní 1995
3
Mjög brýnt að sinna
þessum ungmennum
Flugrekstarnefnd hefur áhyggjur afóheftu flugfrelsi sem ríkir á Evrópska efnahagssvœöinu.
„Þriöji pakkinn" enn óútskýröur. Birgir Þorgilsson:
Gæti valdiö Flugleiðum miklum skaða
Flugrekstrarnefnd hefur
áhyggjur af frjálsræbi Evr-
ópska efnahagssvæðisins og
hættu á einskonar „sjóræn-
ingja"flugi flugfélaga sem
vilja fleyta rjómann ofan af
flutningum til íslands á sumr-
in.
Birgir Þorgilsson formaður
Ferðamálaráðs veitir nefndinni
forystu, en hér er um að ræða
opinbera nefnd sem heyrir und-
ir samgönguráðherra.
„Fyrst og fremst hef ég
áhyggjur af erlendum flugfélög-
um sem kannski fara halloka
vegna nánast óheftrar sam-
keppni í Evrópu. Þegar þau sjá
markaö 110 þúsund farþega frá
Kaupmannahöfn til Reykjavíkur
gætu þau hugsanlega ákveðib að
efna til sumarflugs, en sinna þá
ekki vetrarflugi, þegar lítið er ab
gera," sagði Birgir Þorgilsson í
gær.
Birgir sagði að samkeppnin
gæti orðið svo heiftúðug að al-
mannaheill mundi líða fyrir.
Augu alheims beindust að vísu
ekki mikið að íslandi í dag, en
það gæti hins vegar orðið. Birgir
sagði að enn hefði ekki reynt á
samkeppni af þessum toga. Hins
vegar gæti slík samkeppni vald-
ið Flugleiðum og íslenskri ferða-
þjónustu óbætanlegum skaða.
Birgir var spurður um flug SAS
til og frá landinu. Hann sagðist
viðurkenna að SAS flygi aðeins
að sumri til, en það félag væri í
góðri samvinnu við Flugleiðir.
Nefndin væri ekki að beina
spjótum sínum að SAS en vildi
hafa augun opin.
Frelsið í flugi samkvæmt EES-
samningnum má mögulega
bremsa af samkvæmt skýrslu
Flugrekstrarnefndar. Fargjöld
milli landa á Evrópska efnahags-
svæðinu eru ekki lengur háð
samþykki stjórnvalda þótt til-
kynna þurfi fargjaldabreytingar,
en sækja þarf um staðfestingu til
samgönguráðuneytis á fargjöld-
um milli Íslands og ríkja utan
EES- svæðisins. Stjórnvöldum er
áfram heimilt að hafa afskipti af
fargjaldamálum, ef grunur leik-
ur á um að „óeðlilegar orsakir
liggi að baki fargjaldabreyting-
um", eins og segir í skýrslu flug-
eftirlitsnefndar.
Þriðji pakkinn sem svo er kall-
aður í EES-samningnum hefur
reynst flugmálayfirvöldum hér
nokkur ráðgáta, ákvæði óljós. í
samráði við embættismenn var
settur saman spurningalisti í
flugeftirlitsnefnd sem tekinn
var með á fund ESB/EES. Ekki
hefur enn gefist tóm til að fjalla
um svörin sem embættismenn-
irnir komu með til baka, en það
verður gert á næstu vikum. ■
Reykjanes stendur Oddi til boba. Jón Cauti Jónsson,
sveitarstjóri í Súöavík:
Nýjar leiöir fyrir þá sem hafa
takmarkaöan nálskilning:
Margmiðlun
eflir málþroska
Nú stendur yfir ráðstefna í Nor-
ræna húsinu um margmiblun
(multimedia) þar sem aballega er
fjallab um hvemig hægt sé ab
þróa gerb einfaldrar alfræbi á
geisladiski fyrir þá sem hafa tak-
markaban málþroska og mál-
skilning.
Ab rábstefnunni stendur starfs-
nefnd á vegum Norburlandaráðs
sem vinnur að gerb útgáfu efnis á
auðlesnu máli fyrir alla aldurshópa
þroskaheftra. Um 20 manns frá
Norðurlöndum sækja stefnuna auk
íslendinga, en henni lýkur í dag.
„Þessi mál eru öll í athugun
skilst mér," sagði Jón Gauti
Jónsson, settur sveitarstjóri í
Súðavík í samtali við Tím-
ann í gær, en sú hugmynd
hefur komib fram aö bjóða
Oddi Albertssyni, skólastjóra
í Reykholti pláss fyrir sinn
skóla í Reykjanesi. Þar stend-
ur héraðsskólahúsið autt og
hefur gert síban kennslu var
hætt og skólanum lokað fyr-
ir nokkrum árum. Grunn-
skólinn á staðnum er hins
vegar í annarri byggingu.
Reykjanes er inni í Djúpi og
kemur mabur fljótlega að
því þegar komið er ofan af
Steingrímsfjarðarheibi.
Jón Gauti segir menn sam-
mála um það fyrir vestan að
hugsunin á bak við skólann
hjá Oddi væri mjög jákvæð.
Það væri brýnt að sinna þess-
um ungmennum sem þrífast
ekki í hefðbundnum skóla. Þar
hafi verið mjög vel staðið,
m.a. að allri verkmenntun og
aðstaða öll verið hin besta.
Einnig sé skólinn mjög ódýr í
rekstri, þar sé hitaveita á
staðnum. „Ég er alveg sann-
færður um það af kynnum
mínum af skólamálum síðustu
tuttugu árin, svona frá sjónar-
hóli sveitarstjórnarmannsins,
að það er full þörf, ekki bara
fyrir svona skóla, heldur jafn-
vel tvo eða þrjá. Þess vegna ber
okkur að sinna svona þróunar-
starfi, vegna þess að við höf-
um trúlega gert allt of lítið
af því að vera með sjálfstætt
þróunarstarf í skóla," segir
Jón Gauti.
TÞ - Borgamesi.
Útskrift Fjölbrautaskólans í Breiöholti:
300. sjúkraliðinn útskrifaður
Fjölbrautaskólinn í Breib-
holti útskrifaði nemendur
sína í gær. Alls fengu 320
manns burtfararskírteini, þar
af eru 136 stúdentar. Af öbr-
um svibum útskrifubust 35
meö burtfararpróf af tækni-
sviði, 18 húsasmiðir, 20 raf-
virkjar, 21 af vélsmíðabraut,
5 pípulagningarmenn, 16
sjúkralibar, 7 snyrtifræbing-
ar, 26 með almennt verslun-
arpróf, 3 af tveggja ára upp-
eldisbraut,
níu af eins árs handíbabraut
og 75 luku grunnnámi af
tækni- og matvælasvibi.
Útskriftin var merkileg fyrir
þær sakir að FB útskrifaði nú í
fyrsta sinn nema af eins árs
handíðabraut. Þá var 300.
sjúkraliðinn útskrifaður frá
upphafi, en Helgu Hjaltadóttur
áskotnaðist sá heiður. Þá settu
útskriftarnemendur, aðrir en
stúdentar, í fyrsta sinn upp
húfu.
Alls hefur Fjölbrautaskólinn
útskrifað rúmlega 2.600 stúd-
enta alls. Skólinn á 20 ára af-
mæli í haust og verður þeirra
tímamóta minnst með tilheyr-
andi hætti. ■
Nýútskrifaöir snyrtifrœbingar úr Fjölbrautaskólanum ÍBreibholti.
abrir en stúdentar, setja upp sérstaka húfu í tilefni dagsins.
Þetta er í fyrsta sinn sem útskriftarnemendur,
Tímamynd: CS
Ungmennafélögin aö fara afstaö meö átakiö Umhverfiö í okkar höndum:
Forsetinn hefst handa
á annan í hvítasunnu
Frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti Islands, mun ríða á
vaöib í hreinsunarátaki ung-
mennafélaganna, Umhverf-
ib í okkar höndum, sem
hefst næstkomandi mánu-
dag, annan í hvítasunnu.
Forsetinn mun ásamt ung-
mennafélögum safna rusli á
bökkum Þingvallavatns, en í
þessu átaki veröur sérstök
áhersla lögb á bætta um-
gengni um hafið og vib
strendur, ár og vötn.
Að undanförnu hefur Ung-
mennafélag íslands staðið fyr-
ir fræðslufundum þar sem
meðal annars er fjallað um
umhverfismál. Þetta er for-
smekkur að hreinsunarátak-
inu sem hefst svo á mánudag.
Verður síðan rusli og öðru
slíku safnað á vatns- og ár-
bökkum í allt sumar.
Á blaðamannafundi í gær
sem Umgmennafélag íslands
boðaði til í fjörunni við Geld-
inganes sást berlega hve mikib
verk er óunnið í hreinsunar-
málum við fjörur landsins. Þar
voru haugar af ýmis konar
drasli í næsta nágrenrii við
íbúabyggð og má gera mikið
átak til að þessi mál verði við-
unandi.
Anna Margrét Jóhannes-
dóttir, verkefnisstjóri átaksins,
sagði að markmiðið væri fyrst
og fremst að efla viðhorf al-
mennings til bættrar um-
gengni við strendur, hafið, ár
og vötn landsins og þýðingar-
mikið væri að einstaklingur-
inn fyndi til ábyrgðar og leit-
aðist við að bæta umgengni
sína við náttúru landsins. Að-
standendur verkefnisins, auk
UMFÍ, em umhverfisrábu-
neytib, Samband íslenskra
sveitarfélaga og Bændasamtök
íslands. Styrktaraðilar eru
Landsvirkjun og Olíufélag ís-
lands, en OLÍS leggur m.a. til
pokana undir ruslið. LÍÚ, Sjó-
mannasamband íslands, Far-
manna- og fiskimannasam-
bandið og Vélstjórafélag ís-
lands styðja átakið.
Að sögn Engilberts Olgeirs-
sonar, framkvæmdastjóra Hér-
aössambandsins Skarphéðins
á Suðurlandi, hafa fjölmörg
ungmenna- og íþróttafélög á
sambandssvæðinu lýst yfir
áhuga á þessu verkefni og ætla
að vera með. Hann nefndi
meðal annars ungmennafé-
lögin á Skeiöum og í Villinga-
holtshreppi en þau ætla að
safna msli og bæta umgengni
almennt á Þjórsárbökkum. Þá
ætla ungpiennafélög í ofan-
verðri Rangárvallasýslu að
safna rusli við Veibivötn síðla
sumars. Engilbert sagði við-
brögð við þessu átaki hafa ver-
ið góð og alrrtenning þess
meðvitaðan að umhverfið
væri í þeirra eigin höndum.
-SBS, Selfossi
Konur í Sellunni vilja sjá
konu í formannsstól Al-
þýöubandalagsins, en:
Stybja Margréti
ekki formlega
Konur í Sellunni, Alþýöubanda-
lagsfélagi, fagna því að kona er í
framboði við formannskjör í
flokknum. Félagib vill veg
kvenna í pólitík sem mestan og
jafnframt sjá konu í stóli for-
manns Alþýðubandalagsins —
en stybur Margréti Frímanns-
dóttur þó ekki opinberlega.
„Þessi ályktun er sett saman í
tilefni af kjörinu sem framundan
er. Hún á ekki að lesast eins og
einhver sérstök stuðningsyfirlýs-
ing vib Margréti Frímannsdóttur
sjálfa," sagði Hildur Jónsdóttir rit-
stjóri Vikublaðsins í gær.
Á fundi Sellunnar, sem er hreyf-
ing Alþýðubandalagskvenna og
annarra róttækra jafnaðarkvenna,
sem haldinn var í gær var sam-
þykkt ályktun þar sem lýst var yf-
ir ánægju með aö fólk af báðum
kynjum skuli gefa kost á sér til
formennsku í Alþýbubandalag-
inu. Væntir stjórnin þess að kona
veröi einnig í framboði til varafor-
manns. Hvetur stjórnin Alþýöu-
bandalagskonur til að taka virkan
þátt í komandi kosningum. ■