Tíminn - 03.06.1995, Blaðsíða 9

Tíminn - 03.06.1995, Blaðsíða 9
Laugardagur 3. júní 1995 9 Akureyri: Menning og listir blómstra á vordögum Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tím- ans á Akureyri. Lista- og menningarlíf blómstr- ar á vordögum á Akureyri og nú standa nokkrar myndlistarsýn- ingar yfir í bænum auk fleiri listviöburba. í Listasafninu á Akureyri eru tvær sýningar, í austur- og miðsal þess er sýning á verkum Hauks Stefánssonar. Haukur var aldamótamaöur og Vestur-íslendingur er fluttist hingaö til lands fyrir 1940. Meö komu Hauks til Akureyrar efld- ist myndlist til muna því auk starfa aö list sinni stundaöi hann kennslu og vakti þannig áhuga fjölda fólks á heimi myndlistarinnar. í tilefni af sýningu á verkum Hauks í lista- safninu kemur út bók um lista- verk hans. í vestursal listasafns- ins stendur yfir sýning á nýjum aöföngum safnsins en þar er aö finna verk eftir Erró, Guðmund Thoroddsen, Jón Laxdal og Jón- as Viðar. Erlingur Valgarösson, sýnir nú olíu-, lakk-, og akrýlmyndir í Deiglunni í Grófargili og í Gallerí AllraHanda stendur yfir sýning á verkum Kolbrúnar S. Kjarval, leir- listarkonu. Samúel Jóhannesson sýnir á Café Olsen, sem er nýtt kaffihús í hjarta Akureyrar, nánar tiltekið við Ráðhústorg. Þá hefur Nonnahús verið opnað en þar er starfrækt safn tileinkaö barna- bókahöfundinum Jóni Sveins- syni, Nonna, sem var fæddur á Akureyri en dvaldi lengstan hluta æfi sinnar í Evrópu. Ritverk Nonna eru mörgum kunn en hann sótti efnivið til æskustöðva sinna á Akureyri og við Eyjafjörð. Með kvikmynd sem gerö var fyrir nokkrum árum um líf Jóns Sveinssonar vaknaði áhugi Evr- ópubúa á honum og hafa útlerjd- ingar og þá einkum Þjóöverjar kosið aö sækja æskustöðvar hans heim. Örn Ingi Gíslason, fjöllistamað- ur efndi til sérstakrar menningar- dagskrár í íþróttahöllinni um hvítasunnuna auk þess sem Dans- list '95 var haldin á sama stað þar sem efnt var til danssmiöju og unnið meö fjölbreyttar tegundir dansa. ■ Akureyri: AKO-plast og Plast- prent sameinast Frá Þórbi Ingimarssyni, fréttaritara Tím- ans á Akureyri. Fyrirtækin AKO-plast á Akur- eyri og Plastprent í Reykjavík hafa stofnað fyrirtæki um plastiönað á Akureyri. AKO- plast hefur rekib plastiönaö á Akureyri undanfarin ár og er í eigu sömu aðila og Prentsmiöj- an POB. Meö stofnun hins nýja fyrirtækis er gert ráb fyrir ab velta plastframleiöslunnar muni allt ab tvöfaldast og verða um 250 milljónir króna á ári. Þá er fyrirhugab aö starfsmönn- um viö plastframleiðsluna verbi fjölgab úr fjórum í átta. Segja má að stofnun þessa fyr- irtækis sé afleiðing af tilboði Sölumiöstöðvar hraðfrystihús- anna fyrr á þessu ári um flutning á atvinnustarfsemi til Akureyrar í tengslum við viðskipti þess við Útgerðarfélag Akureyringa. Viö- ræður hafa stðaið yfir að undan- förnu á milli fyrirtækjanna tveggja en sölumiðstöðin á hluta í Plastprenti. Þessar vibræður hafa nú leitt til stofnunar fyrr- greinds fyrirtækis en sérstakt hlutafélag verður stofnað um prentsmiðjurekstur AKO-POB. Hib nýstofnaða fyrirtæki mun einbeita sér að framleiðslu á plast-umbúðum fyrir sjávarút- veginn og meöal annars annast framleiðslu á umbúðum fyrir Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. .V.. > Viögeröir á aöalbyggingu Háskóla íslands fyrir tugi milljóna í sumar. Brynjólfur Sigurösson formaöur bygginganefndar: Islenskar steintegundir verba eingöngu notaðar „Þaö sem á aö gera núna er aö gera viö sprungur á veggj- um og þakkantinn allan. Þaö var fariö aö leka í vatnsveör- um, viö gátum ekki beöiö lengur meö viögeröina. Þaö eru farnar aö hrynja af göfl- unum silfurbergsflísar eöa plötur og einnig þaö sem er fyrir ofan innganginn. Þakk- antur hússins er alveg ónýtur og þarf aö steypa hann upp á nýtt. Þá þarf aö steina húsiö alveg upp á nýtt," sagöi Brynjólfur Sigurösson, pró- fessor, formaöur bygginga- nefndar Háskóla íslands, í samtali viö Tímann í gær. Viðamiklar framkvæmdir verða viö aöalbyggingu Há- skóla íslands í sumar. Fjórir verktakar keppa nú í lokuðu útboði um stórfelldar viögeröir á aðalbyggingunni og verða út- boö opnuö 13. júní. Verkinu á aö ljúka fyrir veturinn. Birgir Karlsson hjá Fram- kvæmdasýslu ríkisins greindi blaðinu frá því aö verktakarnir væru Ármannsfell hf., ístak hf., SM-verktakar sf. og Múr- og málningarþjónustan Höfn. „Vib höfum lagt mikla áherslu á ab ná í samskonar efni og notað var í bygginguna um 1940, allt íslenskt efni. Viö höfum verið að rannsaka sögu hússins frá upphafi, úr hvaöa efnum það er byggt og úr hvaöa námum efnið var tekið og lagt í nokkurn kostnað við þetta. Viö viljum gjarnan færa húsiö í upprunalegt horf. Námurnar við Hoffell og Helgustaðanámurnar eru nú friðaðar. En viö fáum silfur- bergiö annars stabar, erfiðast var að finna það, en út í þaö er blandað hrafntinnu. Viö erum búnir að hafa upp á efnunum, og einnig kvarsinu, sem er ut- an á húsinu, það kemur úr sömu námu og’upphaflega var tekið úr," sagði Brynjólfur. Hann sagöi ennfremur að Háskólinn réöi ekki yfir fjár- munum til aö ljúka allri við- gerðinni. Eftir væru gluggarnir sem gera yröi við og helst ekki síöan en á næsta sumri. „Þessi framkvæmd er okkur erfið en þetta varð ekki dregið lengur. Vonandi verður bygg- ingin hin fallegasta eftir þessa viögerö," sagöi Brynjólfur. Félag ísl. símamanna: Þokkalegar heimtur Ragnhildur Guömundsdóttir, formabur Félags ísl. símamanna og varaformabur BSRB, segist vera þokkalega ánægb meb ný- gerban kjarasamning félagsins viö ríkib. Hún er ekki frá því ab þab hafi skilab félaginu betri ár- angri en ella ab samninganefnd ríksins vísabi deilunni til ríkis- sáttasemjara. Sem dæmi um atriði í kjara- samningi félagsins þá hækka mánaðarlaun í algengum launa- flokki úr 69.796 kr. í 74.415 kr. og kemur sú hækkun strax til fram- kvæmda. Um áramót hækka þessi laun svo um 2700 krónur. Þessu til viðbótar hækkar yfir- vinnan, úr 1% í 1,0385%. Þá náð- ist fram gamalt baráttumál félags- ins þar sem félagsmenn geta feng- ið námsleyfi á föstum launum með fullu vaktaálagi. Þá verða málefni símsmiða tekin til sér- stakrar umfjöllunar á samnings- tímanum, samkvæmt bókun þar um. En síbast en ekki síst fær félagið, starfsmenntunarsjóðinn til sín. Ragnhildur segir að ætlunin sé að nota sjóðinn til að auka vib menntun félagsmanna og „gera okkur sterkari félagslega," eins og Ragnhildur oröar það. ■ I I.1.!.1.' .......................................................... i Hl Astand fjallvega Condition of mnuntain tracks •Vcgir á skyggaum Bvæðum cru loksðlr allri umvsrð þnr til annea ,v«rður auglýst '->r atí tœtífc tintH tmlhor . \ I a r i oi JCortJ __ N«íU kort wlúi acttó á D. lúnl í r Á * * f i Vegagerð ríkisins Public floacfe Administmi mim\ (IM 883-1S00 anmlraimct (tolUrst:) 5CC-fwt5 * NáttúrMverndarráð j Nature Cónservatlon CouiHjt

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.