Tíminn - 03.06.1995, Blaðsíða 6

Tíminn - 03.06.1995, Blaðsíða 6
6 Wmtom Laugardagur 3. júní 1995 Stokkseyri: Febgin halda mál- verkasvningu hvort í sínu lagi Nú um helgina halda feðginin Elfar Gubni Þóröarson og Elfa Sandra Elfarsdóttir á Stokks- eyri málverkasýningu hvort í sínu lagi í tveim húsum á Stokkseyri. Elfar sýnir myndir sínar í samkomuhúsinu Gimli, en Elfa Sandra í kaffi- húsinu Vib fjöruborbiö, sem er næsta hús viö Gimli. Mörg undanfarin ár hefur Elfar ævinlega haldiö málverka- sýningu í kringum hvítasunnu- helgina, og í ár er £ar engin undantekning gerö á. Á sýningu Elfars nú eru á veggjum uppi margar myndir frá sjávarsíö- unni, svo sem frá Eyrarbakka og Stokkseyri, en einmitt þaöan hafa margar af myndum Elfars verið í þau tæpu 20 ár sem hann hefur fengist við myndlist. Þær myndir, sem Elfa Sandra sýnir, eru af öörum toga en myndir karls fööur hennar. í sameiningu tala þau um „kyrr- látar sólarlagsmyndir frá Banda- ríkjunum", eins og þau oröa þaö, en á síöasta ári var Elfa viö störf sem au pair þar vestra. Þar fór hún fyrst aö fást viö mynd- list, en hún segir þó ab mynd- listaráhuginn hafi alltaf átt ein- hvern samastaö í hjarta hennar. -SBS, Selfossi Febginin ífjörunni. Elfa Sandra og Elfar Gubni, fabir hennar, á bryggjupollanum á Stokkseyri. Páll Pétursson segist vilja koma 15 ára tillögum framsóknarmanna í höfn, hugmyndum um fjölskyldustefnu í landinu. Enn er ekki Ijóst hvaöa ráöuneyti á aö flytja frumvarpiö: BÆIARMÁL Heyrir fjölskyldan undir utanríkismál? „Ég hef ákveðib aö taka þráö- inn upp aftur og ab vinnu- hópnum verbi skapaöar þær abstæbur aö hann geti sinnt viðfangsefni sínu af fullum krafti og árangur sjáist strax í haust," sagöi Páll Pétursson, félagsmálarábherra á Alþingi í vikunni, þegar hann svaraöi fyrirspurn frá Bryndísi Hlöb- versdóttur alþingismanni um opinbera fjölskyldu- stefnu og fullgildingu sam- þykktar um starfsfólk meb fjölskylduábyrgö. Vinnuhóp- ur ráöuneytisins, sem fjallar um fjölskyldustefnuna, hefur ekki starfaö um hríb en Páll vill ab hann taki nú aftur til starfa og ljúki verkefni sínu. Páll sagöi í ræöu sinni að Framsöknarflokknum væri ljúft að flytja mál af því tagi sem hér væri um aö ræöa. Raunar heföu tveir þingmenn flokksins, Alex- ander Stefánsson og Haraldur Ólafsson, flutt frumvarp um fjölskylduvernd árib 1980, og síöar ásamt Níelsi Árna Lund aöra tillögu um stefnumörkun í fjölskyldumálum. „Kannski voru þessir braut- ryöjendur á undan sinni sam- tíb, en vonandi tekst mér aö framkvæma ætlunarverk þeirra þótt þaö sé hálfum öörum ára- tug síöar," sagöi félagsmálaráb- herra. Páll svaraöi spurningu Bryn- dísar Hlöðversdóttur um hvort hann hygðist fylgja eftir tillög- um landsnefndar um ár fjöl- skyldunnar 1994 um aö full- gilda samþykkt Alþjóbavinnu- málastofnunarinnar um starfs- fólk meö fjölskylduábyrgö. „Það hefur komiö hvaö eftir annað til umræöu aö fullgilda þessa samþykkt og nú síöast í síðustu ríkisstjórn. Háttvirtur þáverandi félagsmálaráðherra vildi beita sér fyrir fullgildingu samþykktarinnar samkvæmt 50 ára venju. Þau gögn sem ég hef undir höndum sýna að þáver- andi háttvirtur utanríkisráö- herra, Jón Baldvin Hannibals- son, taldi það í verkahring utan- ríkisráöuneytisins ab flytja mál- iö. Mér hefur ekki unnist tími til aö kanna hvort ennþá er ágrein- ingur viö utanríkisráöuneytiö, og fyrsta atriðið er aö fá botn í þaö mál," sagöi Páll Pétursson. Páll sagöi ágreininginn aðal- lega varöandi fullgildingu 8. greinar samþykktarinnar, en Páll Pétursson. samkvæmt henni skal aðildar- ríki tryggja að fjölskylduábyrgð sem slík skuli ekki vera gild ástæöa til uppsagnar. Miöaö viö aöstæöur hér á landi telur ILO þaö fullgilda tryggingu aö ákvæöi séu í kjarasamningum eöa að sett séu lög. Sagöi Páll aö ráða mætti af af- stööu vinnuveitenda að stjórn- völd veröi aö setja lög til aö hrinda í framkvæmd ákvæöi 8. greinar samþykktarinnar. Þar kæmi til greina tvennt, aö end- urskoba lög um rétt verkafólks til uppsagnarfrests og launa vegna slysa- og sjúkdómsfor- falla meö þaö aö markmiði aö taka þar upp ákvæöi 8. greinar ILO-samþykktarinnar um fjöl- skylduábyrgö, aö slíkt geti ekki veriö ástæöa til uppsagnar starfsfólks. Rannveig Guömundsdóttir fyrrum félagsmálaráöherra sagöi á Alþingi í gær að þrátt fyrir þrýsting hafi málið ævin- lega verið sett síðast á mála- skrána, eftir að það komst á dag- skrá. Þaö væri umhugsunarefni. Rannveig sagði aö þegar hún kom í félagsmálaráöuneytið í nóvember heföi ekkert legið fyr- ir í málinu. Hún sagöi aö ljóst væri aö vinnuveitendur væru andsnúnir því að ILO-sam- þykktin nái fram aö ganga. Bryndís Hlöðversdóttir, fyrir- spyrjandi, þakkaöi félagsmála- ráöherra. Bryndís kvaöst þekkja ágreining félagsmála- og utan- ríkisráöuneyta um hvort ráöu- neytið á aö bera fram tillöguna. Hún taldi þaö ljóst aö þaö væri ábyrgö félagsmálaráðuneytisins aö beita sér fyrir fullgiídingu ILO-samþykktarinnar. ■ Neytendur munu sáralítinn ávinning hafa af GATT-samningnum, segir stjórn Neytendasamtakanna: „GATT- frumvarpið þjónar ekki hagsmunum neytenda" Stjórn Neytendasamtakanna segir ljóst ab neytendur muni sáralítinn ávinning hafa af GATT-samningnum verbi nýtt frumvarp um breytingu á lögum vegna aöildar íslands aö Alþjóöaviöskiptastofnun- inni samþykkt óbreytt. Þær búvörur sem leyft verbi aö flytja inn á lágmarkstollum (sem svarar 3-5% af neyslu hverrar tegundar) muni samt bera þaö háan toll aö smá- söluverb þeirra veröi í lang flestum tilvikum mun hærra en innlendra vara. Aöeins á kalkúnum, kjúklingum, eggj- um, svínalærum og kak- ómjólk gæti heildsöluverö orbib lægra m.v. lágmarkstoll á innfluttum vörum en innlendum, samkvæmt út- reikningum Neytendasamtak- anna. Þeir tollar sem frumvarpið gerir ráð fyrir á innflutning um- fram 3-5% lágmarkib gætu virst mjög lágir miöaö viö þá tolla sem íslensk stjórnvöld áskildu sér í GATT tilboði sínu. „Engu aö síöur eru þeir þaö háir aö ekki verður um neinn innflutn- ing aö ræöa og því enga sam- keppni viö innfluttar vörur," segir stjórn Neytendasamtak- anna. Að mati samtakanna væri eblilegt aö framkvæmd GATT samningsins væri meö þeim hætti aö lágmarksinnflutning- urinn bæri þaö lága tolla aö neytendur sjái muninn á verö- lagi hér í samanburöi við önnur lönd. Innflutningur þar um- fram yrði tollaður þannig að verö innfluttra vara yröi ámóta og á innlendum vörum. Á þann hátt væri tryggt aö GATT samn- ingurinn skilaði neytendum ár- angri þegar í upphafi og veitti innlendum landbúnaöi eðlilega samkeppni og aöhald. ■ Kópa- vogur Bæjarráö Kópavogs hefur beint þeim tilmælum til skólanefndar og skóla- stjórnenda aö á næsta skólaári veröi aukin fræösla í umhverfismálum í grunnskólum Kópavogs. Sérstök áhersla verbi lögb á aö kenna nem- endum ný viöhorf í mebferö á endur- nýtanlegum efnum, t.d. dagblöðum og meðferb á húsasorpi. • Bæjarráð hefur samþykkt ab styrkja Blaksamband íslands, sem nemur ein- um apex-flugmiða, fyrir hvern lands- liösmann í blaki, sem búsettur er í Kópavogi. • Bæjarráb hefur samþykkt aö takast á hendur einfalda ábyrgb á skulda- bréfi Tennisfélags Kópavogs til þriggja ára ab fjárhæö 12 milljónir króna. Til tryggingar ábyrgðinni verbi tekiö veö í tennisaöstöðu félagsins, þ.m.t. tenn- isvöllum. • íslenska blissnefndin fékk 30 þús- und kr. styrk frá Kópavogsbæ vegna fundar norrænu blissnefndarinnar sem haldinn var nýveriö. • Ákveöið hefur verib aö rába í 7 stööur sumarafleysingafólks í 70% stööur á leikvöllum í Kópavogi í sum- ar. Þegar hefur verib ráðib í þessar stöbur. • Hafnarstjórn Kópavogshafnar er ekki nógu ánægb meö nýtingu flot- bryggju í höfninni og ákvab því ab auglýsa abstöðuna í fjölmiblum. Skammt er síban og árangur ekki kominn í Ijós. • Bæjarráb hefur samþykkt ab styrkja hóp skáta á Alheimsmót skáta í Hol- landi um kr. 108 þúsund. • Hagnaöur varö af rekstri Almenn- ingsvagna bs. fyrstu fjóra mánubi árs- ins sem nemur rúmlega þremur millj- ónum króna, en tekjur af akstri námu um 39 milljónum króna á tímabilinu. Bæbi tekjur og gjöld voru lægri en áætlanir gerbu ráð fyrir. • Uppsetning á bensínstöð ab Smibjuvegi 2 í Kópavogi hefur verib samþykkt. Um er aö ræba uppsetn- ingu á bensíndælum á lób þar sem Bónus er til húsa og verður um sjálfs- afgreibslu aö ræba. Þab er Orkan hf., sem er í eigu Hagkaupa og Skeljungs, sem mun reisa bensínstöbina. • Bæjarstjórn Kópavogs hefur sam- þykkt ab veita þremur milljónum til menningarfélaga og menningarstarf- semi. Eftirfarandi abilar fengu 300 þúsund hver: Samkór Kópavogs, Skólahljómsveit Kópavogs, Myndlist- arskóli Kópavogs, Skólakórarnir, Tón- listarskóli Kópavogs og Leikfélag Kópavogs.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.