Tíminn - 03.06.1995, Blaðsíða 18
18
Laugardagur 3. júní 1995
ÍÞRÓTTIR • ÍÞRÓTTIR • ÍÞRÓTTIR • ÍÞRÓTTIR • ÍÞRÓTTIR • ÍÞRÓTTIR
Ruud Gullit, knattspyrnumaöurinn snjalli, hefur ákveöiö aö leika meö
Chelsea í Englandi. Jackie Charlton:
„Hinn fullkomni
nútíma knatt-
spyrnumaður"
a& kom talsvert á óvart í
vikunni, þegar Ruud
Gullit, hollenski knatt-
spyrnusnillingurinn, ákvaö
að leika meö Chelsea á næsta
keppnistímabili. Hann lék
síöast meö Sampdoria, en
fékk frjálsa sölu og því þurfti
Chelsea ekki aö greiöa Samp-
doria fyrir leikmanninn.
Hann er þó ekki ókeypis, því
líklega kostar hann Chelsea
um 1,5 milljónir punda, en
Gullit fær um 1,5 milljónir ís-
lenskra króna í vikulaun.
„Chelsea bauö mér upp á
tækifæri til aö takast á viö
nýtt verkefni eftir átta ár á
Ítalíu, þar sem ég vann allt
sem ég vildi vinna. Nú
hlakka ég til aö leika í Eng-
landi," sagöi hinn 32 ára
gamli Ruud Gullit. En hver er
þessi Ruud Gullit og hvernig
er ferill hans?
„Ellilífeyrisþegarnir"
Það má eiginlega segja aö
Chelsea hafi leitaö í fortíðina,
þegar liðiö var kallað „eftir-
launaþegarnir", og með kaup-
unum á Ruud Gullit megi í raun
segja það aö nýju. Þaö veröur
víst aö segja aö Gullit sé á síö-
ustu metrunum. Hins vegar,
þrátt fyrir aö átta ár séu síöan
hann var seldur fyrir metfé,
tæpar níu milljónir dollara, frá
PSV Eindhoven til AC Milan, þá
getur Ruud Gullit reynst mikil
vítamínsprauta fyrir Lundúna-
liöiö og enska knattspyrnu.
Framkvæmdastjóri Chelsea,
Glenn Hoddle, sem eitt sinn var
eins og Gullit einn af bestu
knattspyrnumönnum í Evrópu,
vill að Gullit leiki sem aftasti
maöur í vörn, eins og hann í
raun var í upphafi síns ferils.
Þetta er einnig ein aöalástæöa
þess að Gullit tók þá ákvörðun
að flytja sig um set til Englands.
Tuðrufræðingar í Englandi spá
því nú að koma Gullits komi til
meö að njóta sömu athygli og
þegar Júrgen Klinsmann ákvaö
aö leika með Tottenham. Hann
er nú farinn, en ekki síöri maö-
ur tekur hans sess.
Líkar hugmyndir
Hoddles
Fyrirliöi Englendinga, David
Platt, fyrrum félagi Gullits í
Sampdoria, segir: „Ég veit aö
Ruud var mjög ánægður þegar
hann hitti Hoddle. Hann lék
gegn honum í gamla daga og
„Innan viö tólf mánuðum
eftir aö Svíar þeystu hundruö
þúsundum saman um götur
Stokkhólmsborgar, eftir aö
landsliö þeirra haföi tryggt
sér bronsiö á HM í knatt-
spyrnu, sem haldiö var í
Bandaríkjunum, ríkir nú al-
ger glundroöi í herbúöum
þeirra, eftir 1-1 jafntefli viö
Islands", segir í fréttaskeyti
frá Reuter fréttastofunni.
Þetta ásamt úrslitum úr öör-
um leikjum á þessu ári, þýöi
nánast aö Svíar veröa ekki
líkar þær hugmyndir sem
Hoddle hefur um knattspyrnu.
Fyrir tveimur árum var þaö úti-
meö í úrslitakeppni EM í Eng-
landi á næsta ári.
í fréttaskeytinu segir enn-
fremur aö pressan á Tommy
Svenson, landsliðsþjálfara, til
að segja stööu sinni lausri sé
meiri nú en nokkru sinni fyrr,
en aðeins er mánuður síðan
hann neitaði stööu hjá spánska
liðinu Atletico Bilbao. Eitt
sænsku blaöanna skrifaði meira
aö segja eftir leikinn að Sven-
son myndi segja af sér, en það
var þó óstaðfest.
Ennfremur segir aö erfitt sé
lokaö aö knattspyrnumenn eins
og Klinsmann og Gullit léku í
Englandi, en Klinsmann ruddi
aö útskýra þetta lélega gengi,
sérstaklega þegar horft er til
þess aö fjölmargir leikmenn
liösins, leika meö sterkum lið-
um í Evrópu
Undir lok fréttar Reuters segir
að stjörnur Svía hafi mátt sín
lítils gegn vöðvastæltum varn-
armönnum íslenska liðsins og
aö Svíar veröi nú aö treysta á þá
til aö eiga möguleika á aö kom-
ast til Englands. Möguleikar
Svía felast í því að þeir vinni
Sviss og Tyrkland og aö íslend-
ingar geri slíkt hiö sama. ■
brautina og ég hugsa aö Gullit
bæti um betur meö Chelsea."
Allt þar til í síðustu HM-
keppni, sem haldin var í Banda-
ríkjunum, var Ruud Gullit enn
talinn einn af bestu knatt-
spyrnumönnum í heiminum,
en því miður fyrir knattspyrnu-
unnendur var hann ekld meö
hollenska landsliöinu vegna
ósættis við landsliðsþjálfara.
Berlusconi játaði
mistök
Þetta var þó ekki bara skoðun
milljóna aðdáenda og fjölmiðla,
sem voru svekktir yfir því aö
hann skyldi ekki vera meö,
heldur vel ígrunduö skoðun
stjórnenda AC Milan, sem
keyptu Gullit til baka eftir aö
hafa viðurkennt mistök sín aö
láta hann til Sampdoria í maí
1993. Silvio Berlusconi, eigandi
félagsins, viöurkenndi opinber-
lega aö þaö voru mistök, eftir
sex ára veru hjá félaginu. Hann
veðjaöi og tapaöi.
Eftir aö Gullit fór frá AC Mil-
an átti hann frábært tímabil
meö Sampdoria og Berlusconi
og félagar í Milan sáu sitt
óvænna og keyptu hann til
baka í maí 1994. Þrátt fyrir aö
þau kaup hafi ekki heppnast og
knattspyrnukappinn hafi síöan
á ný gengið til liðs við Sampdor-
ia nokkrum mánuðum síöar, þá
var það lýðnum ljóst að þar var
enn á ferð mikill knattspyrnu-
snillingur.
Sigur í Evrópu-
keppni landsliða
Hápunktur ferils Gullits voru
tvímælalaust seinni hluti ní-
unda áratugarins og fyrstu ár
þess tíunda. Áriö 1988 leiddi
hann þjóö sína, sem fyrirliði, til
sigurs í Evrópukeppninni í
knattspyrnu og ásamt löndum
sínum, þeim Frank Rijkaard og
Marco Van Basten, varð AC Mil-
an ítalskur meistari árin 1989
og 1990.
Blaöamenn hafa ávallt borið
Gullit á höndum sér og hann er
í raun draumur fjölmiðla-
manna. Hann talar fjölmörg
tungumál reiprennandi og hef-
ur látið til sín taka í viðtölum
um ýmis málefni. Sem dæmi
um þaö tileinkaði hann titilinn
Knattspyrnumaöur Evrópu suö-
ur-afríska leiðtoganum Nelson
Mandela, og barátta Gullits
gegn kynþáttafordómum hefur
gert hann aö hetju þeldökkra
knattspyrnuunnenda um allan
heim.
Ættabur frá
Surinam
Gullit er ættaöur frá Surinam,
faðir hans var þaðan, en móðir
hans hollensk. Hann lék sinn
fyrsta leik sem atvinnumaður
16 ára gamall meö liði frá smá-
bæ rétt hjá Haarlem í Hollandi.
Fljótlega fór hann til Feyenoord
og lék þar meö einum besta
knattspyrnumanni allra tíma,
Johan Cruyff, þegar þeir unnu
hollenska meistaratitilinn áriö
1984. Aörir meistaratitlar Gull-
its meö félaginu litu dagsins ljós
árin 1986 og 1987 og þaö var þá
sem Berlusconi var þess fullviss
aö Gullit var rétti maöurinn til
aö koma AC Milan aftur á topp-
inn.
Ferill og sigurganga Gullits,
sem Jackie Charlton, þjálfari
írska landsliösins í knattspyrnu,
hefur kallað „hinn fullkomna
nútíma knattspyrnumann",
vom þó sífellt trufluð af hné-
meiöslum og aðgerðum. Sem
dæmi má nefna, að í undanúr-
slitum í Evrópukeppni bikar-
hafa árið 1989 mætti hann þó í
úrslitaleikinn rétt mánuöi síöar,
þar sem hann skorabi tvö mörk
í 4-0 sigri á Steua Bucarest. Þá
var Gullit nánast úr leik áriö á
undan HM'90 á Ítalíu. Þó lék
hann alla fjóra leiki hollenska
Iiðsins í keppninni, en var ekki
svipur hjá sjón, sem og reyndar
hollenska liðið í heild, sem var
slegið út úr keppninni á fyrstu
stigum hennar.
Mikill tími í súginn
Næstu tímabil fóru að miklu
leyti í súginn. Gullit var viö þaö
aö komast í gott form og farinn
aö sýna snilld sína, þegar
meiösli gerbu ávallt vart við sig
aö nýju. Nú hins vegar er Gullit
í líkamlega góðu formi og hygg-
ur á sigra í ensku úrvalsdeild-
inni, eftir góð ár meö hollenska
landsliðinu, AC Milan og Samp-
doria.
Þegar Gullit var spurður hvort
hann væri að ganga til liðs við
Chelsea til ab „trappa" sig niö-
ur, hló hann og sagði að hann
heföi aldrei verið í betra formi.
Þaö líklega dettur engum í hug
að fara að rökræða þaö viö hr.
Gullit. ■
Reuter-fréttastofan um leik íslands og Svíþjóöar í knattspyrnu:
Stjömur Svía máttu sín
lítils gegn vöðvastælt-
um íslendingum