Tíminn - 03.06.1995, Side 4

Tíminn - 03.06.1995, Side 4
4 Wmíuu Laugardagur 3. júní 1995 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 5631600 Símbréf: 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmiója hf. Mánaðaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Bless, Ólafur Ragnar Bless Framsókn, er aöaluppsláttur Vikublaðsins, mál- gagns Alþýðubandalagsins, í tölublaði sem tileinkað er miðstjórnarfundi flokksins um síðustu helgi. Svo er að skilja að helsta mál fundarins hafi verið að ræða starf og stefnu Framsóknarflokksins og lýsa áhyggjum yfir stöðu hans í hugarheimi sósíalista. Kveðjuorðin til Framsóknar eru sótt í síðustu ræðu sem Ólafur Ragnar Grímsson heldur sem flokksfor- maður á miðstjórnarfundi. Helstu áhersluatriði ræö- unnar eru tekin saman: Framsóknarflokkurinn hefur aldrei afneitað vinstristefnu með jafnótvíræðum hætti og nú. Sjálfsblekking að halda að Framsóknarflokkur- inn sé lykill vinstrimanna að stjórnarráðinu. Liðin tíð að verkalýðshreyfingin sé andófsafl gegn hægri stjórn. Ríkisstjórnin naut aðstoðar verkalýðshreyfingarinnar. Hér er ekkert ab finna um stefnumál Alþýöubanda- lagsins eða sett fram nein markmið um fyrir hvað sá flokkur ætlar að beita sér. Það er engu líkara en að Ól- afur Ragnar haldi að hann sé enn í andófi innan Fram- sóknarflokksins og sé þess umkominn að segja félög- um hans fyrir verkum. Ólafur Ragnar sagði bless við Framsókn og sagði sig úr flokknum ásamt nokkrum öðrum Möðruvellingum fyrir margt löngu. Síðan hefur hann verið í forystusveit tveggja ann- arra flokka, gegnt æðstu trúnaðarstörfum sem Alþýðu- bandalagið hefur upp á að bjóða og er nú ab enda ann- að kjörtímabilið sem formaður flokksins. Fjölbreyti- legar vinstristefnur Ólafs Ragnars hafa ekki átt upp á pallborðiö hjá framsóknarmönnum, úr hvaba flokki sem hann hefur boðað þær. Ólafi Ragnari skal bent á, að hann er formaður Al- þýðubandalagsins og honum stendur nær ab ákvarða markmið þess flokks en Framsóknar. Hann hefur hvorki umboð né neinn siðferðilegan rétt til að hlut- ast til um innri málefni annarra flokka eða ákveða upp á eigin spýtur hvort þeir eru svikarar við eitthvað'sem hann kallar vinstristefnu eða mobsuðu eins og félags- hyggju, sem enginn fæst til að skilgreina svo vit sé í. Og enginn hefur veitt formanni Alþýðubandalags- ins neins konar heimild til ab ákveða með hverjum framsóknarmenn kjósa að starfa hverju sinni og með hverjum ekki. Þab eru engin svik við Olaf Ragnar þótt framsóknarmenn kæri sig ekki um að lyfta honum upp í ráðherrastól, enn síður svik við kjósendur Fram- sóknarflokksins, eins og gamli Möðruvellingurinn lætur í veðri vaka. Er tími til kominn að alþýðubanda- lagsmenn og aðrir fari að átta sig á því að Framsóknar- flokkurinn er frjálslyndur miðjuflokkur, en ekki hand- bendi þeirra eða annarra til að komast í valdastóla með merkingarlitla orðaleppa að yfirvarpi. Ekki er nóg með að miðstjórnarfundurinn hafi ákveðið að Framsókn hafi afneitað vinstristefnu, held- ur eru Allaballar að komast að því að þeir geta ekki beitt verkalýðshreyfingunni fyrir sig, eins og áður fyrr. En langt er um liðið síðan það var. Verkalýðshreyf- ingin hefur fyrir löngu sagt skiliö við hálfkommana í Alþýðubandalaginu, þótt þeir hafi ekki tekib eftir kveðjuorbum hennar fremur en ab þeir stjórna ekki Framsókn. Alþýðubandalagið er tímaskekkja, sem burðast með úr sér gengna hugmyndafræði og hugsjónir sem eiga sér litla stoð í nútímanum. í fálmkenndum tilburðum til að fóta sig í tilverunni .er leitað að öðrum sökudólg- um til að afsaka fánýti eigin tilvistar. Tíminn er liðinn. Bless Qlafur Ragnar, bless Alþýðubandalag. Þorp nœrri ánni jangsei í Síberíu. í þessum byggingum búa nokkur hundrub manns og er öll verslun og þjónusta innanhúss og jarbgöng á milli blokkanna. Þorpib stendur vib námuop. Svona er hægt ab byggja hagkvœmt, ef menn hafa smekk og skapferli til ab skipuleggja líf fólks á þennan máta. Umhverfib er ekki annab en endalaus túndran. Tímamynd OÓ Oddur Ólafsson: Reynt ab endurvekja gamla byggð Stundum er verið aö birta í blöb- um eða sýna í sjónvarpi myndir af því þegar verið er að sprengja stórar íbúðablokkir og jafna heilu hverfin við jörðu. Þetta eru gjarn- an hverfi sem standa utan við út- hverfi stórborga og fyrir kemur að húsin eru eyðilögð áður en nokk- ur manneskja flytur inn í þau. Svona fréttir af skipulagsmistök- um berast bæði frá Evrópu og Ameríku. Ástæburnar fyrir svona húsasprengingum eru nær alltaf ' þær sömu, að nýju hverfin séu mannfjandsamleg og engum bjóðandi aö einangrast í þeim. Ofurskipuleggjendur Þegar rofa tók til í Evrópu eftir síðari heimsstyrjöld hófu metn- aðarfullir arkitektar að reisa full- komin íbúðarhverfi í anda fransks öfugugga, sem hélt að hann ætti að skipuleggja líf manna í smáatriðum og sjá um að þeir hefðu allar daglegar þarfir innan seilingar. Lærisveinarnir héldu ab þeir væru sjálfir snillingar og kusu sjálfa sig til að ráöskast meb eigur og allar stundir fjöldans með því ab skipuleggja allt umhverfi hans út í ystu æsar. Þannig urðu „fyrirmyndar- hverfin" til. Líflausir steinkumb- aldar, líflausir leikvellir, skólinn á sínum stað, lögreglustöðin á sín- um. Sviplaus og steindaub versl- ana- og þjónustumiðstöð, þar sem hægt var að kaupa allt en úr- valið ekkert, og svo skyldugur fót- boltavöllur og bíóhús og geril- sneydd sundlaug. Hið fullkomna og tilbreytingar- snauba svefnhverfi varð til, iangt frá öðru mannlífi, og hversdags- leikinn varð álíka grár á sunnu- dögum og alla aðra daga vikunn- ar. Svefnhverfin fyrir utan Stokk- hólm, Dallas, Stuttgart og Mar- seille eru öll eins. Nema þau sem búib er að jafna við jörðu. Reglustikubyggð Um svipað leyti og þab rann upp fyrir skipuíagsyfirvöldum í mörgum borgum að ofskipulögö svefnhverfi voru ekki það sem koma skyldi, enda gallarnir of augljósir þegar á reyndi, kepptust íslenskir arkitektar og skipuleggj- endur bæja vib ab búa fólki lífs- máia, sem búinn var til meö reglustikum. Langt utan við ystu bæjarbyggðir og gömul úthverfi fengu þessir undarlegu aftur- haldssinnar að reisa hvert kumb- aldaþorpið af öðru, ofskipulögb og sviplaus, og þeir eru enn að og telja fólki trú um ab þetta séu boðlegar mannabyggöir. Og fólk leggur aleiguna í þetta, að viðbættum ævitekjum sem enn er ekki farið að vinna fyrir. í fjötrum hugarfarsins Fyrir nokkrum árum kom ung- ur arkitekt með þá hugmynd frá útlöndum, að lífga upp á svæðið við gömlu Reykjavíkurhöfnina. Hann sýndi fábrotna tillöguupp- drætti ab hugmyndinni. Þetta þóttu undur mikil og vakti óskipta athyglí fjölmiöla, sem tóku tilbreytingunni vel. Þá var eins og enginn vissi að áratugir eru liðnir síðan mörgum gömlum hafnarhverfum var breytt í lífleg íbúðar- og athafna- svæbi. Með gámavæðingu og alls kyns breytingum á flutninga- tækni urðu gömlu hafnimar úr- eltar og nýjar voru gerðar á öbr- um stöðum. Nákvæmlega þetta hefur líka skeð í Reykjavík, þótt yfirvöld og skipuleggjendur séu enn í fjötrum hugarfarsins. En þetta er samt að- eins farib ab breytast og Reykja- víkurhöfn mun einhvern tíma ganga í endurnýjun lífdaganna. Það munu vera nær 40 ár síðan gömlu hafnarhverfi í Boston var gjörbreytt. Reist fyrirferðarlítil há- hýsi meb fjölda íbúða, kajarnir geröir að markaðstorgum og vörugeymslunum umbreytt í líf- leg athafnasvæði. Þar sem víða annars staðar eru háhýsi reist í og við mibborgir, en íbúðaturnar uppi í sveitum eru nær óþekkt fyrirbæri nema á ís- landi og í Síberíu. Borgarmenning í hættu Langt er síðan borgar- og bæjar- yfirvöld í grónum menningar- löndum hófu áróður fyrir því að fólk héldi áfram að búa í miðbæj- um. Líflegar borgir voru að gefa upp öndina og verða álíka stein- dauðar og svefnbæirnir sem dorma utan við þær. Því var fólk hvatt og það að- stoðab til ab halda við og endur- nýja gömlu hverfin, sérstaklega með tilliti til að búa í þeim. Borg- armenning þrífst ekki í tómum hverfum og enn síður í svefnbæj- um. Það sýnir sig að það er ekki nóg aö iðandi líf sé í kringum fyrir- tækin á daginn. Ef miðbæirnir tæmast utan mesta annatímans, tekur doðinn vib og síðan hrörn- unin. Hagsmunir Seint og um síðir er farið að. votta fyrir einhvers konar lífs- löngun í gömlu Reykjavík. Fólks- flótti og síðan fyrirtækjaflótti hef- ur hrjáö gömlu Reykjavík svo illa að fasteignir hafa hríðfalliö í verði og voru um skeið að verða óselj- anlegar, og leigutekjur lækkuöu samkvæmt lögmáli markaðarins. Einu sinni voru glæsiíbúðir yfir verslunum í fjölda húsa í mið- borginni og götum sem þaöan liggja. Þær tæmdust eins og fjöldi íbúba á svæðinu og kontórar, heildsölur og lagerar tóku viö og síðan tómib eitt. Gleðilegt er að frétta af ágætu verkefni, sem borgin og Þróunar- félagið stóðu að og er kallað „íbúb á efri hæð". Gamalt húsnæði er lagfært og innréttað sem íbúðir og fólki gert kleift ab eignast þær eða leigja. Vibbrögðin eru eins og við er að búast, því eftirspurn eftir íbúðar- húsnæði í og við gamla miðbæ- inn hefur ávallt verib mikil... En þar sem markaðslögmálin hafa löngum verið torskilin á Fróni, er varla von að svona kröfum mark- aðar hafi verið svarað fremur en mörgum öðrum. Málið er líka það, að svefnbæja- byggðirnar hafa hentað bygg- ingafyrirtækjum sérlega vel, og þá er ekki ab sökum að spyrja, hags- munir og velferð fjöldans hljóta að víkja. Lífsmark Hér hefur aðeins lítillega verið minnst á skipulagsmál og svefn- hverfi í Reykjavík. En málið er, að um allt landi, jafnvel á minnstu stöðum, hafa þröngsýnir og af- burða ósmekklegir og menningar- snauðir tæknimenn rábið skipu- lagi og lagt sínar dauðu hendur á mannlegt umhverfi Víöa verður ekki aftur snúiö frá reglustikubyggb og svipleysi mannabústaða sem gerðir eru í anda svefnbæjanna. En annars staðar er hægt ab bæta umhverfi og mannlíf og er „íbúð á annarri hæb" vottur um að lífsmark leyn- ist meb þeim sem meb skipulags- mál fara. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.