Tíminn - 13.06.1995, Síða 16
k
Vebrlb (Byggtá spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
• Horfur á landinu í dag: Vestlæq átt, gola eöa kaldi. Um landiö vest-
anvert verbur skýjaö aö mestu, þokubakkar oq súld á stöku staö. Aust-
an til á landinu veröur léttskýjaö víöast hvar. Hiti veröur á bilinu 10 til
14 stig vestan til en 16 til 19 stig austanlands yfir daginn.
• Horfur á miövikudag: Suövestan gola og súld sunnan- og vestan-
til, en biartviöri annarsstaöar. Hiti 7 til 12 stig sunnan og vestan lands,
en 11 til 20 stig annarsstaöar.
• Horfur á fimmtudag: Hæg vestan og norövestan átt um mest allt
land. Smá skúrir suövestan og vestan lands, en þurrt aö mestu annars-
staöar. Hiti 7 til 14 stig.
• Horfur á föstudag: Sunnan gola eöa hægviöri. Skýjaö sunnan og
suövestan lands, en bjartviöri annarsstaöar. Híti 9 til 16 stig.
• Horfur á laugardag og sunnudag: Útlit er fyrir hæga breytilega átt
meö skúrum víöa um land, einkum þo vestan og norövestan íands. Hiti
7 til 14 stig.
Innheimtustofnun í vandrœbum meb meblagsskuld-
irnar. Ríkib hœkkabi „bolatollinn" og feburnir borga
síbur en ábur:
Talað um hundruð
milljóna lán til að
borga meðlögin
Þegar ríkisstjórnin ákvab í
desember 1992 ab hækka
meblagsgreibslur um 36% og
lækka barnabætur jókst
greibsluskylda jöfnunarsjóbs
sveitarfélaga verulega, eba úr
tæplega 300 milljónum
króna í rúmlega 550 milljónir
króna. í ljós kom ab barnsfeb-
ur áttu enn erfibara meb ab
greiba meblögin en ábur. Er
nú svo komib ab jöfnunar-
Stjórn Félags íslenskra
bókaútgefenda:
Ólafur Ragn-
arsson for-
maður
Ólafur Ragnarsson, forstjóri
Vöku- Helgafells, hefur verib
kjörinn formabur Félags ís-
lenskra bókaútgefenda og var
þab gert á aðalfundi félagsins
þann 23. maí síöastliðinn. Ný
stjórn hefur ab öbru leyti skipt
meö sér verkum og er Halldór
Guðmundsson hjá Máli og
menningu varaformaður félags-
ins, ritari er Bragi Þóröarson hjá
Hörpuútgáfunni og gjaldkeri er
Sverrir Kristinsson frá Hinu ís-
lenska bókmenntafélagi. ■
sjóburinn getur ekki sinnt
eblilegu hlutverki sínu.
Fulltrúaráð Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga hefur nú
krafist þess að fram fari heildar-
endurskoðun á meðlagskerfinu
og starfsemi Innheimtustofn-
unar sveitarfélaga þannig að
leysa megi jöfnunarsjóðinn
undan því hlutverki sem hann
gegnir í sambandi við fjárvönt-
un Innheimtustofnunar. Óvið-
unandi sé fyrir jöfnunarsjóð-
inn að innheimtan lagist ekki
frá því sem nú er, en líkur á að
svo verði munu ekki taldar
miklar.
Bent er á að sveitarfélögin
hafa ekkert ákvörðunarvald um
greiðslur barnsmeðlaga, en
jöfnunarsjóður sveitarfélag-
anna hefur þá skyldu að greiða
Innheimtustofnun þau meðlög
sem ekki innheimtast.
Krefst fulltrúaráð Sambands
íslenskra sveitarfélaga þess að
tryggt verði með samkomulagi
milli ríkisstjórnarinnar og sam-
bandsins að greiöslur jöfnunar-
sjóðsins til Innheimtustofnun-
ar vegna ársins 1995 verði ekki
hærri en 300 milljónir króna.
Ella þurfi jöfnunarsjóöurinn aö
taka lán vegna óinnheimtra
meðlaga, lán sem yrði þá upp á
hundruð milljóna króna að
best verður séð. ■
Tímamynd: Þl
Eins og sjá má var aur um allt á hlaöinu á Sveinbjarnargeröi viö fjósiö og verkstœöishúsiö.
Brú hrynur á Fnjóská:
Skribuföll úr Vaöla-
heiöi í leysingum
Frá Þórbi Ingimarssyni,
fréttaritara tímans á Akureyri.
Tvær skribur féllu úr Vablaheibi
síbdegis á sunnudag. Önnur
skriban féll fyrir ofan bæinn
Sveinbjarnargerbi á Svalbarbs-
strönd og stöbvabist þar á hús-
um. Hin féll nokkru norbar eba
fyrir norban bæinn Garðsvík.
Bábar skriburnar áttu upptök
Félag íslenskra bókaútgefenda sendir ríkisstjórn íslands áskorun:
Burt með vsk. af bókum
Stjórn Félags íslenskra bóka-
útgefenda lýsir þungum
áhyggjum sínum af þeim
mikla samdrætti sem orbib
hefur í bóksölu á íslandi á síb-
ustu tveimur árum og því al-
varlega ástandi sem nú ríkir
hjá þorra fyrirtækja í bókaút-
gáfu og prentibnabi af þeim
sökum.
í bréfi sem félagið hefur sent
ríkisstjórn íslands kemur fram
að sú ákvörðun stjórnvalda aö
leggja virðisaukaskatt á íslensk-
ar bækur árið 1993 hafi beint og
óbeint orðið til þess að fjöl-
margir aöilar sem tengjast bóka-
útgáfu hafi orðið að draga veru-
lega saman seglin vegna alvar-
legrar rekstrarstöðu, störfum í
útgáfuiðnaði fækkað verulega
og atvinnuleysi aukist stöðugt.
Félag bókaútgefenda skori því
á nýja ríkisstjórn að beita sér
fyrir því að viröisaukaskattinum
verði létt af íslenskum bók-
menntum og stuðli því þannig
að því að menningarleg útgáfu-
starfsemi styrkist.
Félagið telur að bæði menn-
ingarleg og efnahagsleg rök séu
fyrir því að aflétta innheimtu
virðisaukaskatts á íslenskar bók-
menntir. ■
sín efst í heibinni þar sem snjóa
leysir nú ört í fyrstu hlýindum
sumarsins og fluttu verulegt
magn af aur meb sér nibur á
láglendi. Gríbarlegir vatnavext-
ir eru í Fnjóská og er nýleg brú
yfir ánna nú nánast fallin, en
asahláka hefur verib á þessum
slóbum.
Mildi er talin að ekki varð
verulegt tjón í Sveinbjarnargerði
af völdum skriöufallsins en skrið-
an stöðvaöist þar að mestu á
gömlu fjósi og verkstæðishúsi.
Aur flæddi þó framhjá húsunum
og um athafnasvæði heima á
bænum en þar er meðal annars
rekið stórt hænsnabú. Einhverjar
skemmdir munu hafa orðiö á
verkstæöishúsinu en ekki er vit-
ab um verulegar skemmdir á öbr-
um húsum. Ovistlegt var um að
litast í Sveinbjarnargerði eftir að
skriðan féll en fengnar voru stór-
virkar vinnuvélar til þess að
hreinsa mesta aurinn sem meöal
annars huldi aðgang að hænsna-
húsunum frá íbúðarhúsinu.
Skriban sem féll norðan Garbs-
víkur olli ekki skemmdum á
mannvirkjum þar sem hún féll
nokkru frá bæ en litlu munaði að
hún færi yfir þjóðveginn er ligg-
ur frá Akureyri austur yfir Víkur-
skarð.
Rétt fyrir hádegi í gær slitnaði
svo ljósleiðari þar sem hann
liggur á milli Sauðárkróks og
Dalvíkur, en það er rakið til
mikilla vatnavaxta. Allri síma-
umferö var beint inn á aörar
leiðir og því urðu símnotendur
lítt varir viö bilunina sem af
hlaust. ■
Örlög meirihlutasamstarfs rábast í Firöinum í dag:
Jóhann Bergþórsson
eða annar umsækjandi?
MÁL DAGSINS
Alit
lesenda
Síbast var spurt:
Á aö gefa þeim sem ekki
geta hœtt aö reykja
kost á meöferö á þar til
gerörí stofnun?
NÚ er spurt: Á jóhann G. Bergþórsson aögeta veriö bœöi
bœjarverkfrœöingur og bœjarfulltrúi í Hafnarfiröi?
Hringið og látið skoðun ykkar f Ijós. Mínútan kostar kr. 25.-
SÍMI: 99 56 13
Klukkan 17 í dag er ætlunin ab
fundur bæjarstjórnar Hafnar-
fjarbar hefjist. A þeim fundi er
talib trúlegt ab meirihluti Sjálf-
stæbisflokks og Alþýbubanda-
lags muni riðlast. Tekist verbur
á um rábningu nýs bæjarverk-
fræbings. Spurningin er hver af-
staba krata til rábningarinnar
er. Ingvar Viktorsson, oddviti
kratanna vildi ekkert um þab
segja í samtali vib blabib í gær-
dajg.
I það minnsta 9 byggingaverk-
fræðingar sækja um stöbuna,
einn rekstrarverkfræðingur og
einn arkitekt. Einn þeirra er stað-
gengill bæjarverkfræbings, og
góöur krati að auki, Kristinn Ó.
Guðmundsson. Auk þess munu
fjórir umsækjenda flokksbundnir
Alþýðuflokksmenn en 7 umsækj-
enda eru Hafnfirðingar.
í gærdag vildu Alþýðuflokks-
menn ekkert segja um niðurstöðu
sína. Þeir funduöu um helgina
um málib og segjast koma sam-
hentir til bæjarstjórnarfundar.
Sjálfstæðismenn funduöu líka og
eru flestir á móti því að félagi
þeirra í bæjarstjórn, Jóhann
Gunnar Bergþórsson, fái stööu
bæjarverkfræöings. Alla vega ekki
ef hann hyggst sitja áfram í bæj-
arstjórn. Magnús Gunnarsson
leggur til að Bjöm Ingi Sveinssón
verði ráðinn bæjarverkfræðingur.
Lúðvík Geirsson, bæjarráðsmaður
Alþýðubandalagsins, lýsti yfir
samþykki við ráðningu Björns
Inga í bæjarrábinu í gær.
Umsækjendur eru þeir Brynjar
Brjánsson, Arnar Jóhannesson,
Halldór Hannesson, Kristinn Ó.
Guömundsson, Sigurður Haralds-
son, Jóhann Gunnar Bergþórs-
son, Guðmundur Ásmundsson,
Guðmundur Elíasson, Sigurþór
Aðalsteinsson, Björn Ingi Sveins-
son og einn sem óskaði nafn-
leyndar. ■