Tíminn - 27.07.1995, Side 10

Tíminn - 27.07.1995, Side 10
10 Wimmu Fimmtudagur 27. júlí 1995 Auglýsing um aö álagningu opinberra gjalda á árinu 1995 sé lokiö í samræmi viö ákvæöi 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt og 12. gr. laga nr. 113/1990 um tryggingaiÖgjald, er hér meö aug- lýst aö álagningu opinberra gjalda á árinu 1995 er lokiö á alla aöila sem skattskyldir eru samkvæmt framangreindum lögum, sbr. I. kafla laga nr. 75/1981 og II. kafla laga nr. 113/1990. Álagningarskrár veröa lagöar fram í öllum skattum- dæmum í dag, fimmtudag 27. júlí 1995, og liggja frammi á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá um- boösmönnum skattstjóra í hverju sveitarfélagi dag- ana 27. júlí til 10. ágúst aö báöum dögum meötöld- um. Álagningarseölar, er sýna álögö opinber gjöld 1995, vaxtabætur og barnabótaauka, hafa veriö póstlagöir. Kærur vegna allra álagöra opinberra gjalda, vaxta- bóta og barnabótaauka, sem skattaöilum hefur veriö tilkynnt um meö álagningarseöli 1995, þurfa aö hafa borist skattstjóra eöa úmboösmanni hans eigi síÖar en mánudaginn 28. ágúst 1995. 27. júlí 1995. Skattstjórinn í Reykjavík. Cestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi. Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn ÍVestfjaröaumdæmi. Elín Árnadóttir. Skattstjórinn í Norburlandsumdæmi vestra. Bogi Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Noröurlandsumdæmi eystra. Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi. Karl Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi. Hreinn Sveinsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum. Ingi T. Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi. Sigmundur Stefánsson. TÖKUM yUMFERÐAR RÁÐ Aðsendar greinar sem birtast eiga í blaöinu þurfa aö vera tölvusettar og vistaöar á diskling sem texti, hvort sem er í DOS eöa Macintosh umhverfi. Vélrit- aöar eöa skrifaöar greinar (jGjj; geta þurft aö bíöa birtingar vegna anna viö innslátt. Auglýsing frá Hitaveitu Reykjavíkur Gestamóttaka Nesjavallavirkjunar veröur lokuö frá 28. júlí til 9. ágúst, vegna ráöstefnu Nor- ræna sumarháskólans. Listamennirnir sex viö opnun sumarsýningarinnar í Myndlistarskólanum á Akureyri. Frá vinstri: Kristinn C. Jó- hannsson, Ragnheibur Þórsdóttir, Helgi Vilberg, Rósa Kristín Júlíusdóttir, Anna C. Torfadóttir, Gubmundur Ár- mann Sigurjónsson og Samúel Jóhannsson. Mynd k/ Sumarsýning '95: Fastur liður myndlist- armanna á Akureyri Sumar 95 nefnist sýning á verkum sjö myndlistarmanna sem nú stendur yfir í Mynd- listarskólanum á Akureyri. Er þetta í sjötta sinn sem hópur starfandi myndlistarmanna á Akureyri stendur fyrir sýn- ingu af þessu tagi. Upphafs- menn ab sumarhópnum eru þeir Helgi Vilberg, myndlist- armaöur og skólastjóri Mynd- listarskólans á Akureyri og Guömundur Ármann Sigur- jónsson, myndlistarmabur og kennari, auk þess sem ýmsir abrir myndlistarmenn hafa tekiö þátt í starfi hans. Þeir Helgi og Guðmundur sögöu aö upphaf sumarsýning- anna mætti rekja til þeirrar hugmyndar aö gefa starfandi myndlistarmönnum á Akureyri tækifæri til að koma saman og kynna hvað þeir væru að fást við. Þetta hafi síðan orðið að ár- legum vibburði þar sem mynd- listarmenn koma saman og sýna verk sín. Að vissu leyti megi líkja þessu sýningarhaldi við starf Septemberhópsins sem setti ákveðinn svip á myndlist- arlíf Reykjavíkur um langt skeið. Sumarhópurinn hefur verið breytilegur frá ári til árs, en nokkrir myndlistarmenrt hafa takið þátt í sýningum hans frá upphafi. Að þessu sinni taka þátt í Sumarsýningu 95, auk þeirra Helga Vilbergs og Guð- mundar Armanns, þau Ragn- heiður Björk Þórsdóttir, Samúel Jóhannsson, Kristinn G. Jó- hannsson, Rósa Kristín Júlíus- dóttir og Anna G. Torfadóttir. Sumarsýningin er fjölbreyti- leg, þar sem ólíkum viðfangs- efnum listamannanna er á að skipa. Guðmundur Ármann heldur sig við grafísk verk, sem hann er þekktastur fyrir. Að þessu sinni kemur hann fram með ákveðna nýjung þar sem hann vitnar til listasögunnar í nokkrum verka sinna. Nefnir hann þau verk Nekt og er uppi- staða þeirra grafísk útsetning á verkum þekktra listamanna. Þessum tilraunum listamanns- ins má raunar líkja við nútíma- legar útsetningar á verkum tón- bókmenntanna og á hann á- kveðinn heiður skilið fyrir að brjóta hefð með þessum hætti, því með útfærslum sínum tekst honum að gefa fyrirmyndun- um annað líf og áhorfandanum nýja sýn á hin margbreytilegu form sem mannslíkaminn býr yfir. Helgi Vilberg heldur sig á slóðum málverksins og eru verk hans unnin meb akríllitum á striga. Landslag leitar á huga hans í þeim myndum sem hann sýnir að þessu sinni, og að vissu leyti má greina þar aft- urhvarf til hins hefðbundna málverks og nákvæmni í vinnu- brögðum. í sumum mynda sinna skiptir hann myndfletin- um upp og gefur landslaginu þannig aukna vídd — leyfir á- horfandanum að horfa lengra inn í þá veröld sem hann skap- ar í myndum sínum. Kristinn G. Jóhannsson kem- ur nokkuð á óvart á þessari sýn- ingu, ef litið er til fyrri verka hans. Hann leikur sér með lítið þorp, sem hann byggir upp með hörðum rúmfræöilegum formum. í þeim sex myndum, sem hann sýnir, birtist sama þorpið við margvíslegar að- stæður. Hann flytur þab til í tíma og rúmi — úr sumarsól í kvöldhúm og þaðan undir næt- urhimin. Hann færir þaö einnig á milli árstíða og notar mögu- leika rúmfræðinnar og litanna til þess að skapa húsaþyrpingu sinni nýtt umhverfi í hverri mynd. Myndirnar njóta sín best sem röb, enda sterkur skyldleiki þeirra augljós. Viðfangsefni Samúels Jó- hannssonar er mannslíkaminn og andlitið líkt og á fyrri sýn- ingum hans. Að þessu sinni einbeitir hann sér fremur að túlkun andlitsins en formum hinna ýmsu líkamshluta. Myndmál hans er sterkt, bæði hvab varðar liti og form, og svipbrigði í andlitum hans eru hörb. Stundum virðist hann vinna meb óbærilegan léttleika í tilverunni í myndum sínum — hughrif sem skapa léttúb og þunga í senn, en eru ekki svo fjarri manneskjunni þegar á allt er litib. Anna G. Torfadóttir sýnir að þessu sinni orginal að línole- umdúkristu, sem hún kallar Passíu. Verkið var upphaflega unnib fyrir Kirkjulistaviku á Ak- ureyri og í því birtast ákveðin trúarleg tákn. Það opnast eins og bók þar sem listakonan sýn- ir bæði myndflötinn og einnig andhverfu hans eða spegil- mynd. Með uppstillingu verks- ins á rauðum dúk þar sem ljós loga á þremur kertum höfðar hún mjög sterkt til hinna kirkjulegu hefða, þótt í raun megi líta verkið frá mismun- andi sjónarhornum. Önnur verk Önnu eru unnin með blandaðri tækni. Hún vinnur annars vegar með stækkabar ljósmyndir, sem hún klippir saman (collage), og beitir síðan litum til að gefa klippimyndun- um líf og meiningu. í mynd hennar Haf aldanna birtist mik- il barátta og átök þar sem hún eftirlætur áhorfandanum að beita hugarflugi sínu um hvað átökin snúast. í annarri mynd hennar er rithöfundurinn Franz Kafka í aöalhlutverki þar sem hann mætir augnaráöi sýn- ingargesta. Ragnheiður Þórsdóttir veflist- arkona sýnir þrjú verk unnin úr bómull, silki, ull og hör. í tveimur verkanna birtist lands- lag, en í því þriðja höfðar hún til trúarlegrar vitundar þar sem hún vefur ljós á stikur. Verkin eru lifandi og myndmálið sterkt, en að vissu leyti er eins og verkin séu unnin undir naí- vískum áhrifum. Slíkt þarf þó alls ekki ab draga úr listrænu gildi þeirra, fremur þvert á móti, þar sem menntaður lista- mabur kýs að þreifa fyrir sér á þessum vettvangi. Verk Rósu Kristínar Júlíus- dóttir eru unnin með blandaðri tækni, þar sem hún beitir akríllitum á striga, grisju og silki, en notar einnig saumnál þar sem hún saumar og handstingur myndir í hinn málaða flöt. Aðferð Rósu er ný- stárleg,“ þar sem hún leitar myndefna í daglegu lífi jafnt sem í hugarflugi og gefa sýn- ingu sem þessari skemmtilega fjölbreytni. Þórður Ingimarsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.