Tíminn - 01.08.1995, Blaðsíða 1
STOFNAÐUR 1917
79. árgangur Þriöjudagur 1. ágúst 1995 141. tölublaö 1995
Framtíb Morgunpóstsins
er ennþá óljós. Sigurbur
Már Jónsson:
„Við
vitum
ekkert"
„Vib vitum ekki hvert framhald-
ib er. Þab er helst ab eigendur
blabsins geti eitthvab sagt um
þab. En þab kom út blab nú í
morgun og vib erum ab undir-
búa þab sem koma á út á
fimmtudag," sagbi Sigurbur Már
Jónsson starfandi ritstjóri Morg-
unpóstsins í samtali vib Tímann
ígær.
Óvissa ríkir um framtíb blabsins
nú, eftir ab ritstjórinn Gunnar
Smári Egilsson lét af störfum. Eins
eru skuldir blaösiris miklar. Stjórn
blaösins, þaö er Miöils hf., glímir
viö aö leysa málin en ekki náöist í
stjórnarmenn í gær. Fram hefur
komið hjá Árna Möller stjómar-
formanni aö útgáfu Mánudags-
póstsins veröi hætt. Eftir er þó að
taka ákvörðun um hvort fimmtu-
dagsútgáfan haldi áfram og þar
meö útgáfan yfirleitt. Þá eru laun
starfsmanna fyrir júní ennþá
ógreidd en Árni hefur sagt aö með
þau verði staðiö í skilum.
Árni Möller er stærsti eigandi
Miðlis hf. Þorgeir Baldursson,
framkvæmdastjóri Prentsmiðj-
unnar Odda, sagði í samtali viö
Tímann í gær að prentsmiðjan
ætti enga aöild aö reksti þess
hlutafélags lengur. Samkvæmt
heimildum Tímans mun þaö þó
ekki vera rétt. Friðrik Friðriksson
er skráður eigandi að nokkm
hlutafé, en það mun í raun vera í
eigu Odda sem hefur í því veð-
bönd og Friðrik er í ákvörðunum
sínum í stjórn Miðils bundinn því
sem Oddamenn vilja. ■
Tónleikarnir á Kirkju-
bœjarklaustri:
Löggan legg-
ur hald á
falsaba miða
Lögreglan í Reykjavík lagbi í gær
hald á 100 falsaba abgöngumiba
ab Uxa, tónleikunum sem haldn-
ir verba á Kirkjubæjarklaustri um
verslunarmannahelgina. Mib-
arnir höfbu verib Ijósritabir og
voru líkir gildum abgöngumib-
um. Upp komst um fölsunina
þegar komib var meb þá í prent-
smibju til rifgötunar.
Forsvarsmenn Uxa vilja hvetja
fólk til aö vera á varðbergi gagn-
vart fölsun sem þessari og þá sér-
staklega eru starfsmenn prent-
smiðja, ljósritunarstofa og ann-
arra í þeim geira hvattir til að
hafa augun opin. í ljósi þessa
meðal annars verður gæsla á
Kirkjubæjarklaustri öflug og á
tónleikastað verður fariö yfir alla
aðgöngumiöa. ■
Morgunpósturinn heyrir allt, eöa svo er bifreiö blaösins merkt. Framtíö blaösins er nú mjög óljós og starfmenn þess segjast ekkert vita hvert framhaldiö
veröur. Tímamynd: Pjetur.
Barnaspítalinn reyndist bara reykur af kosningabombu:
Mokað ofan í tilraunaholur
Ekkert bendir til þess ab
barnaspítali rísi á subvestur-
hluta Landspítalalóbarinnar í
náinni framtíb. Bygging sér-
staks barnaspítala var ab því
er virðist ekki annab en sjón-
hverfing í hita kosningabar-
áttu.
Kosningaloforð Árna Sigfús-
sonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar, borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins, fyrir síöustu borgar-
stjórnarkosningar, sem Guð-
mundur Árni Stefánsson, þá
heilbrigðisráðherra, studdi,
virðist úr sögunni.
Tekin var hefðbundin og há-
tíðleg skóflustunga að mann-
virkinu og hún ljósmynduð og
kvikmynduð. Síðan voru grafn-
ar nokkrar tilraunaholur í lóð-
ina sem heppnuðust að sögn
vel. Ofan í þær hefur nú verið
mokað.
Pétur Jónsson, borgarfuiitrúi
og fjármálastjóri Ríkisspítal-
anna, sagði í viðtali við Tímann
í gær að þetta mál hefði fyrir
kosningar ekki fengið samþykki
þáverandi borgarráðs, meiri-
hluta sjáifstæðismanna. Árni og
Vilhjálmur hefðu því veriö að
lofa upp í ermina með að borg-
in greiddi 100 milljónir króna
til verksins. Ríkið átti hins vegar
að greiða meginhluta verksins,
500 til 600 milljónir króna.
Pétur Jónsson sagði að vissu-
lega væri það möguleiki að ríkið
færi af stað með framkvæmdir
við barnaspítala. Þá yrðu borg-
aryfirvöld að taka afstöðu til lof-
orða sjálfstæðismanna um 100
milljónirnar.
Innan heilbrigðiskerfisins
virðast menn ekki á einu máli
um nauðsyn þess að reisa sér-
stakan barnaspítala. Nútíma
lækningar byggist ekki eins
mikið og fyrr á því að fólk liggi
lengi á spítala. Þetta á einnig við
um barnadeildir. ■
Hreindýraveiöin byrjar í dag:
Enginn búinn að taka veibikort
Eins og komið hefur fram í
fréttum er um mun færri
veibidýr að ræða í hreindýra-
stofninum í ár en undanfarin
þrjú ár. í ár má veiöa 291 dýr
á móti 740 á síöasta ári, en
veiöitímabilib hefst einmitt í
dag.
„Ég held ekki," segir Hákon
Aðalsteinsson, aöspurður hvort
urgur sé í mönnum vegna færri
veiðidýra. „Þetta er bara þaö
sem menn bjuggust við. Ég
held að allir séu sáttir við þetta,
maður heyrir ekki annað. Það
eru einhverjir, kannski, sérstak-
lega veiðiglaðir menn sem ur-
gast eitthvað útaf því, en það er
ekki neitt sem skiptir máli."
Veiðitímabilið hefst í dag.
„Það er enginn búinn að taka
veiðikortið ennþá," sagði Aöal-
steinn Aðalsteinsson seinni-
partinn í gær, en hann er starfs-
maður hreindýraráðs og sér um
veiðiskapinn. Aðalsteinn bætti
við: „Þeir geta nú komið í kvöld
eftir kortum."
Aðalsteinn segir að hrein-
dýrastofninn sé um 2.500 dýr á
sumarhögum, en um 1.900 á
vetrarfóðrum. Ákvöröun um
fjölda veiðidýra fer þannig fram
að veiðistjóri og hreindýraráð
gera tillögu um fjölda veiði-
dýra. Síðan skiptir hreindýraráð
veiðidýrunum á milli sveitarfé-
laga sem sjá síöan um arðskipt-
ingu til einstaklinga. „Þessi arð-
skipting getur farið fram á ýmsa
vegu. Það er hægt að úthluta
þessu í veiðileyfum sem fyrir-
fram greiddum arði, síðan má
líka láta þessar heimildir til sölu
hjá hreindýraráöi. Eins er hægt
að fela mönnum að veiða upp í
kvótann og leggja inn kjöt og
skipta þá arði. En arðurinn er
alltaf hjá þeim sem hafa beiti-
löndin á mó.ti hreindýrunum,"
segir Aðalsteinn.
„Þú biður bara um leyfi hjá
mér," segir Aðalsteinn þegar
blaöamaður spyr hvort ekki sé
erfitt að nálgast leyfi til hrein-
dýraveiða. „Ef ég á leyfi, þá sel
ég þér leyfi og útvega þér eftir-
litsmann. Þá getur þú farið og
veitt þitt hreindýr. Til þess þarft
þú aö hafa byssuleyfi á stóran
riffil og veiðikort." Aðalsteinn
segir að veiðileyfin séu eftirsótt
og býst við því að verða í vanda
núna, þar sem leyfin séu færri
en undanfarin ár. Auk þess viti
hann ekki fyrir víst hversu
mörg leyfi hann fái til sölu. Enn
sem komið er sé hann búinn að
fá þrjú, þau séu öll seld og
miklu meira en það.
Verð veiðileyfanna er mis-
jafnt eftir veiðisvæðum og kyni
dýranna. Á svokölluöu Besta
svæði, en um það er hægt að
komast á bílum, kostar kýrin 30
þúsund, tarfurinn 42 þúsund
undir 60 kílóum, en tarfar yfir
60 kílóum fara í 54 þúsund.
Viðkomandi veiðimaður á bráð-
ina. „Þetta er ekkert stórkost-
lega dýrt í rauninni, því hann á
þarna heilmikib kjöt," segir Að-
alsteinn.
-TÞ