Tíminn - 23.08.1995, Blaðsíða 3
Mi&vikudagur 23. ágúst 1995
fiítitstefi
3
Hundraö ára kvenfélag
á Króknum:
Bjóöa
nærri 3000
manns í
kaffiboð
Körlum tekst enn ekki oð lœra á þvottavélar og verja skemmri tíma meö börnum sínum en fyrir 10 árum:
Aukinn frítími Svía
allur í imbakassann
Þab eru líklega ekki mörg fé-
lög á íslandi sem hafa náb
því ab verba aldargömul.
Kvenfélag Saubárkróks er
eitt þeirra, en þab verbur
100 ára á föstudaginn kem-
ur.
Aldarafmælisins munu kon-
ur á Króknum að sjálfsögbu
minnast tilhlýðilega, mebal
annars með sýningu á hug- og
handverki félagskvenna, yfir-
liti yfir það sem þær hafa gert
í eina öld. Sýningin heitir
„Gengin spor" og verður opn-
uð í Safnahúsinu á afmælis-
daginn.
A sunnudag verður bæjar-
búum öllum, rúmlega 2.700
manns, boðið til kaffisamsæt-
is í íþróttahúsinu. Kvenfélags-
konur segjast vonast til að
sem allra flestir bæjarbúar sjái
sér fært að fagna aldarafmæl-
inu með þeim, þiggja veiting-
ar og skoða sýninguna.
Á hundrað árum hafa verib
haldnir 590 fundir í stjórn
Kvenfélags Sauðárkróks og
milli 360 og 370 konur hafa
verið skráðar félagar. Formað-
ur félagsins er Helga Sigur-
björnsdóttir. ■
Er hugsanlegt ab eins mundi
fara fyrir Islendingum og
Svíum, ab fleiri frístundum
yrbi kannski öllum eytt fram-
an vib imbakassann? Væri þá
kannski til lítils barist fyrir
styttri vinnutíma, sem lengi
hefur verib ofarlega á óska-
iista flestra launaþræla?
Þróun á vinnutíma og frí-
stundum fólks í Svíþjób er
mebal þess sem sagt er frá í
nýrri skýrslu Sameinuðu þjóð-
anna um þróun lífsgæða. Frí-
tími bæði karla og kvenna þar í
landi hefur aukist um 2% að
meðaltali síðasta áratuginn.
Mest hefur frístundum fjölgaö
(10%) meðal karla á þrítugs-
aldri, en af konunum eru það
aðallega eldri aldurshóparnir
sem vinna skemur en fyrir tíu
árum.
„Fleiri frístundir þýða fyrst og
fremst að fólk eyðir nú fleiri
stundum í að horfa á sjónvarp
og víseó", segja skýrsluhöfund-
ar. Karlar eyða nú jafnabarlega
17,5 stundum á viku framan
við skjáinn en konur 3 stund-
um skemur. Aftur á móti lesa
karlar nú 26% skemur en áður
og konur 12% minna. Flykkist
fólk stöðugt meira að skjánum í
stað þess að lesa blöð eða bæk-
ur þyrftu Svíar að reyna að
finna dýrmætari leiðir til notk-
unar á sínum aukna frítíma, að
mati skýrsluhöfunda.
Stofna Þýsk-íslenska
verslunarráöiö:
60 stofn-
endur
strax
skráöir
Skemmdir af völd-
um jaröskjálfta?
Fjöldi fyrirtækja í Þýskalandi
og á íslandi hafa látib skrá
sig sem stofnfélaga ab Þýsk-
íslenska verslunarrábinu, eba
32 í Þýskalandi og 29 á ís-
landi.
Stefnt er að því að ráðið opni
skrifstofu hjá Verslunarráði ís-
lands fljótlega eftir ab því verb-
ur komið á laggirnar í október
næstkomandi. ■
Nú er unnib ab viðgerbum á
brúnni yfir Jökulsá á Fjöll-
um, sem er á þjóðvegi númer
7, skammt austan Asbyrgis.
Um er að ræba nokkuð um-
fangsmiklar vibgerbir, sem
lýkur ekki fyrr en á næsta
ári.
Nokkrar skemmdir hafa kom-
ib í ljós á vestari brúarstólpa og
gera menn því skóna ab rekja
megi þær til jarðskjálfta og hef-
ur stólpinn hafi skemmst og
gliðnað frá. Auk þess sem gert er
við steypuskemmdir, verður
brúin máluð og hugab ab öðr-
um skemmdum.
Tímamynd BG
Sjávarútvegur vanbúinn til ab taka áhœttur viö aö reyna eitthvaö nýtt:
Skortur á áhættufjár-
magni hamlar nýjungum
Sverrir Leósson útgerðarmað-
ur Súlunnar EA á Akureyri og
formabur Útvegsmannafélags
Norburlands segir ab íslensk-
um sjávarútvegi hafi verib
skorinn svo þröngur stakkur í
rekstri ab atvinnugreinin get-
ur ekki tekib mikla áhættu við
reyna eitthvab nýtt á nýjum
slóbum.
Hann telur einsýnt að ef
breyting á að verða á þessu þurfi
að koma til einhver stuðningur
af hálfu stjórnvalda eða annarra
aðila sem tilbúnir séu að leggja
fram áhættufjármagn vib rann-
sóknir og leit á nýjum nytjateg-
undum við íslandsstrendur.
Sverrir telur einnig ab þekking
okkar á auðlind sjávar sé ekki
nægjanleg og sé í allt of miklum
mæli takmörkub við hefð-
bundna nytjastofna.
í gærkvöldi var von á jap-
anska túnfiskveiðiskipinu hing-
að til lands að sækja vistir, en
talið er að skipið hafi verið á til-
raunaveiðum sunnarlega á
Reykjaneshryggnum. Töluverð
spenna og eftirvænting ríkir
meðal íslenskra útvegsmanna
vegna þessara veiða Japana,
enda telja menn að þarna geti
verið á ferðinni mjög svo at-
hyglisverður hlutur. Sérstaklega
ef það kemur á daginn að í út-
hafinu við ísland sé að finna
vænlegar veibislóðir á túnfiski,
en mjög hátt verb er greitt fyrir
afurðina á Japansmarkaði.
í þessu sambandi vekur það
einnig athygli að flestar nýjung-
ar í fiskveiðum íslendinga virð-
ast þurfa að koma erlendis frá.
Til að mynda voru það Norð-
menn sem kenndu landanum
að veiða síld og rækju auk þess
sem íslenskar útgerðir fóru ekki
að senda skip sín í Smuguna fyrr
en þeir fréttu af þeim möguleika
frá færeyskum skipstjórnar-
mönnum. ■
Könnunin leiddi líka í Ijós að
bilið milli heildarvinnutíma
kvenna og karla hefur mjókk-
að. Konur vinna nú 46,5 stund-
ir en karlar 45 stundir á viku.
Höfuðá,stæðan er sú húsverkin
hafa styst um 3,5 tíma hjá kon-
unum — fyrst og fremst elda-
mennskan og uppvaskið —
niður í 21,5 stundir á viku að
jafnaði. Þótt karlarnir hafi bætt
vib sig klukkutíma verja þeir þó
ennþá 10,5 stundum minna í
húsverkin vikulega en konurn-
ar.
Karlar reynast ennþá eiga í
miklum erfiðleikum við að læra
á þvottavélina. „Svenson" eyð-
ir aðeins 20 rpínútum á viku í
þvottastúss borið saman við 2
klukkustundir sem konur nota
til að þvo af sjálfum sér og öðr-
um.
Konur verja líka um tvöfalt
lengri tíma í ummönnun barna.
Hvað mest kemur þar kannski á
óvart að hópurinn sem fengið
hefur flestar viðbótarfrístundir,
karlar á þrítugsaldri, ver nú enn-
þá styttri tíma en áður til að
annast börnin sín en fyrir ára-
tug, eða rúmlega hálfri klukku-
stund skemur á viku. Konur á
sama aldri verja nú aftur á móti
2 stundum meira á viku í barna-
umönnun. ■
Dagvörudeild Kristjáns
Ó. Skagfjörö seld
Nathan og Olsen:
Ó. Skagfjörö
hættir á mat-
vörumark-
aðnum
Kristján Ó Skagfjörð hf. hefur
dregib sig út úr sölu á mat- og
dagvörum meb sölu á dagvöru-
deild fyrirtækisins til Nathan
og Olsen. Jónína G. Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Kristjáns Ó.
Skagfjörb hf. segir að þessar
breytingar komi tvímælalaust
til með að styrkja fyrirtækið,
þó vissulega væri eftirsjá í huga
hennar, sérstaklega þar sem
með deildinni flyttust nokkrir
starfsmenn sem lengi væru
búnir ab vinna hjá fyritækinu.
„Við erum ab hætta í þessum
geira og á sama tíma er Nathan
og Olsen að auka hagkvæmni
sína og auka vöruúrval fyrir
sína viðskiptavini. Spurning-
unni hvort rekstur þessarar
deildar hafi verið óhagkvæmur
hjá okkur er erfitt að segja um.
Þetta er ágætis viðskipti sem
þessu fylgja, en viö emm ekki
með eins umfangsmikla veltu í
dagvörum eins og við þyrftum
að hafa til að dreifingin væri
nógu hagkvæm og því höfum
við ákveðið ab snúa okkur að
öðru sem við höfum og sinna
því betur," segir Jónína og
bendir á að á þessum viðskipt-
um séu báðir að hagnast.
Hún segir ennfremur að í
framtíðinni myndi fyrirtækið
einbeita sér að veiðarfærum og
byggingarvömm og þar væri
engan bilbug að finna. ■