Tíminn - 23.08.1995, Blaðsíða 11
Miövkudagur 23. ágúst 1995
ewÆiImlKlttl
'aryWT'rWW
11
Stóraiót Suðurlands á Gaddstaöaflötum
Stórmót Suðurlands fór fram 11.
og 12. ágúst. Veðrib á laugardeg-
inum var þokkalegt en var vætu-
samt á sunnudeginum. í A-flokki
gæðinga sigrabi Hjalti frá Hala
undan Þokka frá Garbi en knapi
var Kristinn Gubnason, en Funi
frá Hvítárholti undan Örvari frá
Nebra-Ási og Trausti Þór Gub-
mundsson, sem voru efstir eftir
forkeppnina, lentu í þribja sæti. í
B-flokki sigrabi Bobi Ófeigssonur
frá Gerbi. Knapi var Örn Karls-
son. Bobi virtist mjög öruggur
meb þetta sæti. Annar var Ernir
frá Eyrarbakka undan Ób frá
Torfastöbum. Knapi Skúli Steins-
son. Bábir þessir hestar verba trú-
lega áberandi í klárhestahópnum
á fjórbungsmótinu næsta ár.
I unglingaflokki var efstur Elvar
Þormóðsson á Sindra frá Svana-
vatni en þeir hafa verið ósigrandi í
sumar. Annar var Helgi Gústafsson
á Dropa. Hrund Albertsdóttir sigr-
aði í Barnaflokknum á Tappa frá
Selfossi og Heiðar Þormóbsson
varð að láta sér lynda annað sætið
á Degi frá Búlandi en Heiðar hefur
staðið sig mjög vel í sumar.
Parakeppni sem verið hefur fast-
ur liður á þessum mótum fór
þannig að þessu sinni að parið frá
Ljúfi, Helgi Gíslason á Dropa og
Berglind Sveinsdóttir á Molda,
urðu efst. Næst kom parið frá
Geysi, Elvar Þormóðsson á Sindra
og Kristín Þórðardóttir á Glanna,
og í þriðja sæti varð svo parið frá
Sleipni, þær Brynhildur og Elín
Magnúsdætur á Tígli og Riddara.
Enn einu sinni sigraði Sigurbjörn
Bárðarson töltib á Oddi. Sveinn
Ragnarsson varð í öbru sæti á Tindi
frá Hvassafelli og Þórður Þorgeirs-
son þriðji á Höldi frá Reyðarfirði.
Lúta frá Ytra-Dalsgerði í Eyjafirði
sigraði í 150 metra skeiðinu á 15,7
sek. Knapi Þórður Þorgeirsson, og
Ósk frá Litla-Dal sigraði í 250
metra skeiöi á tímanum 22,4.
Knapi var Sigurbjörn Bárðarson.
Báðar eru þessar hryssur eyfirskar.
í 300 metra stökki sigraði Chap-
lín á 22,9, knapi Siguroddur Péturs-
son og í 300 metra brokki Nari frá
Laugarvatni á 37,1, knapi Bjarni
Bjarnason..
Stigakeppni félaganna var mjög
tvísýn fram á síðustu stundu en
hún fór þannig:
1. Geysir Rangárv.sýslu 48 stig.
2. Ljúfur Hverageröi og Ölfus 47
stig.
3. Sleipnir Selfossi 46 stig.
Kynbótadómar á Gaddstaba-
flötum:
Efstu hrossin góð
en mikið af lélegu
Á Stórmóti Suðurlands komu að
venju mörg hross í kynbótadóm.
Eins og ab líkum lætur miðað vib
árstíma voru þab einkum hryssur.
Einn hestur 6 vetra hlaut þó fulln-
aðardóm og nábi því að komast
yfir 8-markið. Þetta var Magni frá
Búlandi í Austur-Landeyjum.
Magni er undan Sörla frá Búlandi
Kolfinnssyni frá Kjarnholtum og
Snældu frá Búlandi sem er Snældu-
Blesadóttir. Hrafn frá Holtsmúla er
því á bakvið Magna bæbi í móður
og föðurætt. Magni hlaut í ein-
kunn fyrir byggingu 7,95 og er
fótagerðin þar lökust sem trúlega
má rekja til Hrafns. Fyrir hæfileika
fékk Magni 8,07, 8 fyrir allt nema
8,5 fyrir skeið; aðaleinkunn 8,01.
Einn hestur hlaut fullnaðardóm í
4ra vetra flokknum, Goði frá Prest-
bakka á Síðu, undan Anga frá Laug-
arvatni og Gyðju frá Gerðum. Goði
hlaut 7,95 fyrir byggingu og 7,60
fyrir hæfileika; aðaleinkunn 7,78.
Þetta er heldur álitlegur foli enda
foreldrarnir vel þekktir. Goði hefur
þó ekki náð þeirri góðu fótagerð
sem Angi skilar svo vel í sínum af-
Oddur komirw aftur ígott form.
kvæmum.
í hópi hryssna 6 vetra og eldri
komu til dóms hvorki meira né
minna en 101 hryssa. Þar af hlutu
fullnaðardóm 98 hryssur. Ansi var
þessi hópur sundurleitur en aðeins
26 hryssur fengu einkunn 7,70 og
þar yfir og fjórar nábu 8 markinu,
Efst stóð Birta frá Breiðabólstað,
dóttir Hrafns frá Holtsmúla og Há-
tíðar frá Ytri-Skógum. Hún hlaut
8,05 fyrir byggingu og 8,23 fyrir
hæfileika skeiðlaus, þar af 9 fyrir
tölt og 9 fyrir vilja; aðaleinkunn
8,14. Þarna er á ferðinni mjög góð
klárhryssa sem er laus við slaka
fótagerð en þar fékk hún 8,5. Önn-
ur var Gletta frá Árgerbi í Eyjaíirði
með 8,05 fyrir byggingu og 8,10
fyrir hæfileika skeiölaus, þar af 9
fyrir tölt og 9 fyrir fegurð í reið; að-
aleinkunn 8,08. Þessi hryssa fékk 9
fyrir háls og herbar sem er sjald-
gæft undan Ófeigi frá Flugumýri.
Móbir Glettu er Elva Snældu-Blesa-
dóttir. Þarna er líka á ferðinn gott
klárhross. Þriðja hryssan. var Harpa
HEJTA-
MOT
KARI
ARNORS-
SON
frá Hrafnhólum undan Hrafni frá
Hrafnhólum og Ófeig frá Þingnesi.
Harpa hlaut 8,00 fyrir byggingu og
8,03 hæfileika, þar af 9 fyrir stökk;
aðaleinkunn 8,01. Fjórða hryssan
sem náði 8 markinu var Ör frá
Kálfholti undan Krumma frá Kálf-
holti og Rispu frá Kálfholti. Ör fékk
8,13 fyrir byggingu, þar af 9 fyrir
höfub og 7,87 fyrir hæfileika þar af
ekki nema 6,5 fyrir skeið; aðalein-
kunn 8,00. Allar þessar fjórar
hryssur eru út af Hrafni frá Holts-
múla. Hann er fabir Birtu, afi
Hörpu og langafi Glettu og Örvar.
Hann er líka reyndar afi næstu
hryssu, Orku frá Tungu í Gaul-
verjabæjarhreppi sem fékk 7,99 í
aðaleinkunn. Hún hlaut 8,20 fyrir
hæfileika skeiðlaus þar af þrjár níur
fyrir tölt, brokk og vilja. Orka er
undan Blakk frá Reykjum og Blökk
frá Tungu sem er undan Sörla frá
Sauðárkróki. Sú hryssa sem kom
næst í röðinni var Ósk frá Refsstöb-
um undan Borgfjörð frá Hvanneyri
og Gömlu-Jörp frá Refsstöðum.
Hún fékk 8,15 fyrir byggingu og
þar af 9 fyrir háls og heröar en 7,79
fyrir hæfileika skeiðlaus og þar af 9
fyrir stökk. Þá kom íra frá Syöra-
Skörðugili undan Merg frá Syöra-
Skörðugili og Unu frá sama stað
meb 7,80 fyrir byggingu, þar af 9
fyrir bak og lend og 8,10 fyrir hæfi-
leika, þar af 9 fyrir stökk; aðalein-
kunn 7,95. Ósk frá Kálfholti hlaut
7,70 fyrir byggingu og 8,19 fyrir
hæfileika; abaleinkunn 7.94. Hún
er undan Mána frá Ketilsstöðum og
sú síðasta sem nábi 7,90 í aðalein-
kunn var Kolskör frá Glæsibæ II.
Hún er undan Otri frá Sauðárkróki
og Koltirjnu Hrafnsdóttur frá
Glæsibæ. Kolskör fékk 7,73 fyrir
byggingu og 8,07 fyrir hæfileika.
Þar af fékk hún abeins 6 fyrir brokk
sem trúlega má rekja til föðurins
en hún fékk 9 fyrir vilja sem líka
má rekja til Oturs. Alls voru 53
hryssur af 98 fulldæmdum í þess-
um flokki sem ekki nábu gamla
ættbókarmarkinu 7,50.
Ein 5 vetra hryssa
yfir 8.
{flokki 5 vetra hryssna komu 50
hryssur til dóms og þar af hlutu 42
fullnaðardóm. Þrettán hryssur
fengu 7,50 eöa hærra í aðalein-
kunn. Efst var Víma frá Kjarnholt-
um, undan Kolgrími frá Kjamholt-
um I og Rakel frá Kjarnholtum I.
Víma fékk slakan byggingardóm,
7,65 en ágæta einkunn fyrir hæfi-
leika, 8,37, mjög jafnar og góðar
einkunnir, þar af fimm sinnum
8,5. Aðaleinkunn var 8,01. Önnur
var Hending frá Víðidal í Skagafirði
meö 8,13 fyrir byggingu og 7,80
fyrir hæfileika; abaleinkunn 7,96.
Hending er undan Sörla frá Sauðár-
króki sem hlýtur aö vera með síð-
ustu afkvæmum hans en móðirin
er Yrpa frá Víðidal.
í þriðja sæti var Sunna frá Skarði
undan Ófeigi frá Flugumýri og
Rödd frá Skarði. Hún fékk fyrir
byggingu 7,85 en fyrir hæfileika
8,00 (8 á línuna); aðaleinkunn
7,93. Fjórða hryssan sem fór yfir
7,90 var Glíma frá Vindheimum í
Skagafirði undan Mekki frá Varma-
læk og Byltingu frá Vindheimum.
Glíma fékk 8,18 fyrir byggingu, þar
af 9 fyrir fótagerö og 7,67 fyrir
hæfileika skeiðlaus; aðaleinkunn
7,92.
Níu hryssur í þessum flokki voru
aðeins byggingadæmdar og stóð
þar langefst Júrósokka (hvílíkt
nafn) með 8,25 og þar af 9 fyrir
fótagerö. Sokka er sonardóttir Ljóra
frá Kirkjubæ. Tvær 4ra vetra hrysss-
ur voru fulldæmdar og reyndust
tilkomulitlar.
Á þessari sýningu komu fram
nokkur góð kynbótahross en ótrú-
lega mikið af lélegu innan um. ■
Kynbótasýning á Vindheimamelum um verslunarmannahelgina:
Engin hryssa yfir 8-markiö
Um verslunarmannahelgina var
ab venju haldib mót skagfirsku
félaganna á Vindheimamelum,
eins og getib hefur verib um í
HESTAMÓTUM. Þá fór fram
kynbótasýning en síbsumarssýn-
ing hefur verib árviss atburbur
þar. Ab þessu sinni var enginn
stóbhestur leiddur til dóms en
allmargar hryssur. í flokki
hryssna 6 vetra og eldri komu
30 hryssur í dóm og þar af hlutu
25 fullnabardóm.
Engin þessara hryssna hlaut þó
aðaleinkunn yfir 8 en átta hryssur
fengu einkunn yfir 7,70. Efst stóð
Senna frá Ytra-Skörðugili með
7,83 fyrir byggingu og 8,00 fyrir
hæfileika; aðaleinkunn 7,91.
Senna er undan Létti frá Flugu-
mýri sem er í eigu Hrossaræktar-
sambands Skagfirðinga, en hross
undan honum eru nú að koma til
dóms. Léttir er 10 vetra gamall.
Móðir Sennu er Hrefna 4576 frá
Flugumýri, góð hryssa. Senna fékk
9 fyrir háls og herðar og 9 fyrir
vilja. Hún á efalaust eftir að
hækka í hæfileikum þegar skeiöib
nýtist henni betur. Önnur var Ás-
rún frá Ytra-Vallholti með 7,73
fyrir byggingu og 8.07 fyrir hæfi-
leika. Ásrún er líka vel ættub en
hún er undan Kolfinni frá Kjarn-
holtum og Lindu frá Ytra-Vallholti
sem var meö góðan dóm á sínum
tíma. Þriðja hryssan var Spá frá
Skúfstöbum undan Safír frá Vibvík
og Glettu frá Skúfstöðum. Hún
hefur slaka byggingareinkunn
7,60 en góða einkunn fyrir hæfi-
leika 8,14 þrátt fyrir að stökkið
mistækist; abaleinkunn 7,87. í
fjórða sæti var Bára frá Aðalbóli í
Aöaldal. Bára er undan Bárbi frá
Bárbartjörn en undan honum hafa
verib að koma athyglisverð hross.
Móðir Báru er Drífa frá Aðalbóli
sem er mjög góð klárhryssa undan
Feng frá Bringu. í Báru er mikið
Sauöárkróksblóð því Bárður er
undan Hauki frá Hóli Sörlasyni og
Fengur fabir Drífu var líka undan
Sörla. Bára fékk 8,05 fyrir bygg-
ingu og 7,69 fyrir hæfileika, nán-
ast skeiðlaus; abaleinkunn 7,87.
Næst var Viðarsdóttir frá Viövík
Frygg með lélega einkunn fyrir
byggingu 7,53 en góða hæfileika-
einkunn 8,06, þar af 9 fyrir vilja.
Ólga frá Ytra-Vallholti, dóttir
Oturs frá Sauðárkróki og Lindu frá
Ytra-Vallholti, kom næst líka með
lélega byggingareinkunn 7,53 en
7,97 fyrir hæfileika. Brokkiö er þar
slakt og geöslagið. Linda gefur
hross vel yfir meöallag en hefur
ekki tekist að skila topphrossum.
Ekki feitan gölt aö flá
Ekki var feitan gölt ab flá í 5
vetra hryssunum en efsta hryssan,
Sunna frá Sigríðarstöðum, var með
7,75 í aðaleinkunn. Fyrir byggingu
hafði hún 7,83 og fyrir hæfileika
7,67 skeiðlaus sem er þokkaleg ein-
kunn. Sunna er undan Roba, syni
Byls frá Kolkuósi og Nasar frá Sig-
ríðarstöbum sem er undan Kóral frá
Akureyri. í henni er því mikið
Kolkuósblób. Næst kom Þokkabót
frá Ásmúla undan Þokka frá Garði
og Sollu frá Sólheimum. Hún hlaut
7,58 fyrir byggingu og 7,81 fyrir
hæfileika; aðaleinkunn 7,69. Það
eru einkunnir fyrir höfuö, réttleika
og hófa sem fella hana, en hún fær
8,0 fyrir fótagerö. Þriöja hryssan,
Kvika frá Litla-Dunhaga, er undan
Gassa frá Vorsabæ og er dótturdótt-
ir Náttfara frá Ytra-Dalsgerði. Hún
hlaut 7,80 fyrir byggingu og 7,59
fyrir hæfikeika; abaleinkunn 7,69.
Tvær hryssur frá Miðsitju voru
sýndar í þessum flokki, Fregn und-
an Kröflu frá Sauðárkróki og Stíg-
anda frá sama staö, og Sigð sem er
undan Klið Kröflusyni og Perlu frá
Stóru-Hvalsá. Þær fengu báðar all-
góða byggingareinkunn 7,93 en
slaka einkunn fyrir ganghæfileika.
Hryssur með þetta góðan dóm
fyrir byggingu eiga vissulega mögu-
leika á því að hækka sig í aðalein-
kunn ef sýning tekst bærilega.
Rétt er að geta hryssu sem aðeins
var byggingardæmd, Brana frá
Kirkjubæ, en hún fékk 8,05 fyrir
byggingu og þar af 9 fyrir höfub.
Hún er undan Braga frá Reykjavík
og Glókollu frá Kirkjubæ.
Aðeins voru sýndar tvær 4ra i
l vetra hryssur. Önnur þeirra Nótt frá
Sólheimum sem er undan Toppi frá
Eyjólfsstöðum og Brúnku frá Sól-
heimum, fékk 7,98 fyrir byggingu.
Fyrir hæfileika fékk hún 7,33; aðal-
einkunn 7,65. Þessi hryssa á örugg-
lega eftir að bæta miklu viö sig. Hin
hryssan, Hugrún frá Ytra-Vallholti
sem er undan Létti frá Sauðárkróki
og Lindu frá Ytra-Vallholti, hlaut
7,31 í aðaleinkunn. Sýningarnar á
Vindheimamelum á þessu ári hafa
ekki skilað mörgum snjöllum kyn-
bótahrossum ef Fáni frá Hafsteins-
stöðum er undan skilinn, en hann
er enn meö hæsta kynbótadóm
sumarsins. Það vantar meiri breidd
í hópinn en vafalaust hafa margar
góðar hryssur, sem haldiö var geld-
um í fyrra vegna landsmóts, verib í
folaldseign á þessu sumri en engu
að síður sýnist mér ab ræktendufá.
Norburlandi verði ab taka betur á
hvað hryssurnar varðar. ■