Tíminn - 23.08.1995, Qupperneq 5
Mi&vikudagur 23. ágúst 1995
5
Rússneskar stúlkur
sœkjast eftir vestrœn-
um karlmönnum til
eiginorös og sá
áhugi er gagnkvœm-
ur. Rússneskir karl-
menn vilja og stofna
til hjónabanda vest-
ur á bóginn, en erfiö-
legar gengur meö
þaö
Oskadraumur rúss-
neskra stúlkna númer
eitt er aö eignast eigin-
mann, aö því tilskildu ab
hann sé vestrænn. Þaö er
a.m.k. mál margra sem teljast
þekkja vel til í Rússlandi og
hiö sama fullyrba hjúskapar-
miblarar þarlendis.
Helst af öllu vilja þær rúss-
nesku giftast Bandaríkjamönn-
um, fyrrverandi „höfubóvin-
um" sínum úr kalda stríöinu, en
næstir á óskalista þeirra eru
Þjóðverjar og skandínavar.
„Daubþreyttir á ofur-
frelsuðum konum ..."
Mafíur og annað álíka liö
reynir ab hagnast á þessari eftir-
spurn, oft meö allt annaö en
gæfulegum afleiöingum fyrir
stúlkurnar, sem leita til þess-
háttar aöila. En þar aö auki
starfa á þessum vettvangi fjöl-
margar einkareknar hjúskapar-
miölunarstofnanir, sem sprottiö
hafa upp í Rússlandi síöustu ár-
in. Ein sú þekktasta af slíkum er
Alliance (á rússnesku Aljans) í
Moskvu. Forstööukona þar er
tæplega fimmtug fráskilin kona,
Tamara Sjkunova aö nafni, fyrr-
um blaöamaöur viö sovéskt
kvennatímarit. Aöalþátturinn í
starfsemi Alliance er hjúskapar-
miölun innanlands, en þar aö
auki hefur stofnunin þegar
komiö í kring um 300 hjóna-
böndum rússneskra kvenna og
vestrænna karlmanna. Þessi
þáttur í starfsemi stofnunarinn-
ar er í stööugri þenslu.
Sjkunova nefnir í blaöaviötali
sem dæmi Natösju, tvítuga
stúlku frá þorpi í Suöur-Rúss-
landi. „Hún var ein af þessum
bústnu, rússnesku stúlkum með
söðulnef og stór, barnsleg augu.
Hún bar það meö sér að hún var
nærgætin og hjartalagiö gott.
Sannkölluð perla fyrir mann,
sem vill eignast húslega, yfirlæt-
islausa konu sem veröur góö
móöir. Og viðskiptavinir mínir
eru einmitt margir í leit aö
þessu. Margir útlendir karl-
menn, sérstaklega þeir banda-
rísku, eru orðnir dauöþreyttir á
ofurfrelsuðum konum Vestur-
landa. Þeir óska sér einskis frek-
ar en aö fá fyrir konu ljúfa, eðli-
lega, slavneska stúlku. Slavnesk-
ar konur hafa sem sé sál, en það
hafa vestrænu femínistarnir
ekki."
Sjkunova er ekki í vafa um að
þessi hjónabönd „austurs" og
„vesturs" séu báðum aðilum í
hag. Rússnesku konurnar nostri
viö vestræna eiginmenn sína,
nuddi þá ef þeir séu meö bak-
verk og færi þeim drykk, þegar
þeir komi þreyttir heim. Þetta
líki karlmönnum og þá verði
þeir reiöubúnir að uppfylla allar
óskir konunnar um fatakaup og
annað. „Þaö þarf aö ala karl-
mennina upp, því að hæverska
og gjafmildi eru fæstum þeirra
meöfædd."
Sjkunova nefnir tvennt, sem
hún þakkar umfram annaö góð-
um árangri sínum í hjúskapar-
wmm
Rússneskar konur eru sagbar allþreyttar á karlþjób sinni.
Ástarkveöjur
frá Rússlandi
Rússneskir hermenn (í Tjetjeníu): „herinn er ekki miklu betri en refsifangabúbir."
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEIFSSON
miðluninni milli fyrrverandi
austur- og vesturblokkar. í fyrsta
lagi sé hún sjálf nokkuð snjöll í
þessari grein og í ööru lagi sé aö
rússneskar konur virðist um
þessar mundir hafa alveg sér-
stakt aödráttarafl fyrir vestræna
karlmenn. Þaö stafi auk annars
af því að þær séu bráðfallegar,
margar hverjar, og engu spilli ab
þær séu gjarnan með holdugra
móti, miðað við það sem nú
gerist á Vesturlöndum. „Þær eru
ekki eins og þessi vestrænu
straubretti sem eru meö ekkert
hér eöa þar," útskýrir Tamara.
„Latir, hirðuleysislegir,
drykkfelldir..."
Áöumefnd Natasja var í ástar-
sorg eftir ab kærasti hennar,
búlgarskur kaupsýslumaður sem
selt hafbi tyggigúmmí í þorpinu
hennar, haföi yfirgefið hana. En
Sjkunova var fljót aö sýna henni
fram á, að engin eftirsjá væri í
„ómerkilegum, búlgörskum um-
renningi, sem þar á ofan hefði
verið nískur og lélegur elskhugi."
Natasja tók gleði sína eftir að Tá-
mara haföi bætt upp á útlit
hennar meö aöstoð hárgreiðslu-
stofu og snyrtisérfræðinga. Alli-
ance sendi myndir af Natösju til
umboðsmanna sinna á Vestur-
löndum, hliðarmyndir aðeins, af
því að stúlkan var þaö búlduleit
að hugsanlegt var að þaö félli
ekki nógu vel aö vestrænum
smekk.
Natasja leitaði til Alliance í
maí og í ágúst var hún gift
Bandaríkjamanni. Hjá þeim er
síban allt í lukkunnar velstandi
og vinir eigimannsins eru þegar
farnir aö snúa sér til Sjkunovu
með rússneska kvenkosti í huga.
Ástæðurnar til þess að rúss-
neskar stúlkur sækjast svo mjög
eftir vestrænum karlmönnum til
eiginorðs eru margar. Þær vilja
komast í betra líf og í augum
þeirra margra eru Vesturlönd
sæluríki. Konur eru nokkru fleiri
en karlar í Rússlandi, eða 1140
konur á hverja 1000 karlmenn.
Og svo eru margar rússneskar
konur orönar allþreyttar á karl-
þjóö sinni, að sögn Sjkunovu.
"Sumir þeirra em allsæmilegir
og þesskonar karlmenn verða hér
fleiri og fleiri, sem betur fer," seg-
ir hún. „Og margir þeirra verða
líka smámsaman ríkari og ríkari.
En flestir þeirra em ennþá latir,
hiröuleysislegir og drykkfelldir
og getan kannski farin aö bregö-
ast þeim þegar um 35 ára aldur."
Sparsamir skandínavar
Sjkunova segir aö því fari fjarri
að þetta sé eingöngu rússnesku
karlmönnunum sjálfum aö
kenna. „Herþjónustan eyöilegg-
ur marga þeirra. Herinn er ekki
miklu betri en refsifangabúöir.
Aörir fara á taugum af því að þeir
em of tekjulágir til aö geta séð
fyrir fjölskyldu."
Hún telur samt aö rússneskir
karlmenn hafi ýmsa kosti fram
yfir þá vestrænu, geti þeir fyrr-
nefndu notið sín. Þannig séu þeir
örlátari en vestrænir karlmenn.
„Um skandinavíska karlmenn
hef ég t.d. heyrt, að þeir séu mjög
sparsamir og eigi það jafnvel til
aö láta konuna borga sinn hluta
af reikningnum - en því get ég
næstum ekki trúab."
Ekki einungis rússneskar kon-
ur, heldur og karlmenn, vilja
gjarnan stofna til hjónabanda
vestur á bóginn. En rússneskum
karlmönnum, sem leita til Alli-
ance í þeim erindagerðum, er erf-
itt ab koma út, og hjónabönd
þeirra verða endingarlítil mörg
hver. „Ég get ekki haft hann
lengur," stendur í bréfi til Ta-
möm frá bandarískri konu, sem
útvegað hafði sér rússneskan eig-
inmann meö hennar hjálp.
„Hann þvær aldrei upp, hjálpar
aldrei til með neitt og hreyfir
ekki fingur, nema hvað hann
leikur rússnesk lög, sem em ekk-
ert nema þunglyndið, á gítar og
svo drekkur hann eins og þurr
svampur." ■