Tíminn - 23.08.1995, Síða 8
ö
ShI If'f íjIWIpJ
Mi&vikudagur 23. ágúst 1995
Rannsóknarlögregla
ríkisins:
Skeljungs-
ránið enn
Rúmum 108 þúsund tonnum afaflamarki þorsks úthlutaö: Kvótaskipum fœkkar á þriöja
hundraö:
Stórir verba stærri
óupplýst
Skeljungsmálið svokalla&a,
þegar tveir menn rændu
starfsmenn Skkeljungs, sem
voru á leið í íslandsbanka í
Lækjargötu með helgarsölu á
bensínstöðvum félagsins á
Reykjavíkursvæðinu, er enn
óupplýst. Talið var að þjófarnir
hefðu haft á sjöttu milljón upp
úr krafsinu.
Að sögn Harðar Jóhannes-
sonar hjá RLR, er málið enn til
rannsóknar hjá embættinu, en
hefur engan árangur borið. ■
Margrét Frí-
mannsdóttir
Steingrímur j.
Sigfússon
Formannsslagur
Alþýöubandalagsins:
20 fundir
meb Mar-
gréti og
Steingrími
Formannskandídatar Al-
þýðubandalagsins verða
kynntir í bak og fyrir á 20
fundum um landið allt á
næstunni.
Fyrstu framboðsfundirnir
eru á ísafirði og Patreksfirði.
Þar verða þau Margrét Frí-
mannsdóttir og Steingrímur J.
Sigfússon kynnt á opnum
fundum.
Fyrsti kynningarfundurinn
verður á Isafirði í kvöld kl.
20.30 á Hótel ísafirði, en á
morgun á sama tíma í Félags-
heimilinu á Patreksfirði.
Aðeins félagsbundnir al-
þýðubandalagsmenn kjósa
formann. Hægt er að ganga í
flokkinn til loka september til
að hafa áhrif á kjörið. ■
Sverrir Leósson, formaður Út-
vegsmannafélags Norður-
lands, segir að næsta fiskveiöi-
ár verði gífurlega erfitt fyrir
útgerðir í landinu. Hann telur
jafnframt að einhverjar út-
gerðir muni týna tölunni og
skipum muni áfram fækka
sem stunda vei&ar í atvinnu-
skyni.
„Þróunin verður sjálfsagt sú
að þeir sem eru svona minni og
smærri munu detta úr lestinni.
Það þýðir að þeir stóru verða
stærri ogþeir minni færri," segir
formaður Útvegsmannafélags
Norðurlands.
Fiskistofa hefur sent útgerö-
um fiskiskipa, sem leyfi hafa til
veiða í atvinnuskyni, veiðileyfi
og tilkynningar um aflaheim-
ildir á næsta fiskveiðiári sem
hefst 1. september n.k. Að þessu
sinni eru gefin út 1.078 afla-
marksveiðileyfi. Af þessum
fjölda aflamarksskipa sem veiði-
leyfi fengu var úthlutaö afla-
marki til 879 skipa. Aflamarks-
skip, sem fá leyfi en eru án afla-
hlutdeildar og fá því ekki út-
hlutað neinum kvóta em alls
199. Þá hefur aflamarksskipum
fækkað umtalsvert, eða um 232
. Jí s
V. K Mm/lm
Jónas Vigfússon, sveitarstjóri í Hrísey:
„Ekki menn með mönnum nema
þeir eigi gamla dráttarvél"
Það er í tísku í Hrísey að eiga
gamla dráttarvél, sem við-
komandi gerir síðan upp, set-
ur jafnvel á hana kassa aftan í
beislið svo auðveldara sé að
flytja ýmislegt lauslegT með
dráttarvélinni. Þetta er sam-
kvæmt upplýsingum Jónasar
Vigfússonar, sveitarstjóra í
Hrísey.
Þetta má upphaflega rekja til
þess að lítið er um bíla í bæn-
um, nema þá í atvinnuskyni.
Fólk geymi bíla á Árskógströnd,
þar sem ferjan leggur upp, og
kaupi þess í stað gamlar dráttar-
vélar, sem það hefur gert upp.
Þessar vélar, sem eru orðnar all-
nokkrar, hafa vakiö verðskuld-
aða athygli ferðamanna.
Jónas segir að í Hrísey sé í
raun kominn vísir að forn-
minjasafni fyrir gamlar, upp-
gerðar dráttarvélar og bendir á
áð á 17. júní hátíðarhöldum í
fyrra, sem voru reyndar haldin
18. júní, hafi menn farið í
„skrúðgöngu" á gömlum drátt-
arvélum og það hafi vakið mikla
athygli.
Jónas segir sumarið hafa farið
hægt af stað í Hrísey, enda kalt
framan af. Síöan hafi lifnað tals-
vert yfir og fjöldi ferðamanna
aukist. Þann 1. desember síðast-
liðinn voru skráðir 280 til heim-
ilis í eyjunni, en á sumrin má
segja að íbúafjöldi aukist um
50%, en fólk sem á hús í eyj-
unni kemur þangaö til sumar-
dvalar.
Á meðfylgjandi mynd sem
tekin var í Hrísey nýlega má sjá
eina af dráttarvélunum.
Tímamynd BG
Skipverjar á Ægi fundu seglskútuna Söru í gœrmorgun, en henni var stoliö á mánudag:
Ægir meb „Söruna" í togi
til Reykjavíkur í dag
Varðbergsma&ur í turni varð-
skipsins Ægis fann rétt fyrir há-
degi í gær, skútuna Söru sem
stoiiö var úr Reykjavíkurhöfn
aðfaranótt mánudags, en várð-
skipiö leita&i að skútunni sam-
kvæmt beiöni Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Skútan var þá um
80 sjómílur suður af Selgrunni
og var á leiö í suöurátt. Taliö er
aö fyrri eigendur skútunnar,
sem eru franskir, hafi stolið
henni og ætlað aö sigla henni
til Frakklands.
Það voru skipverjar á togar-
anum Ólafi Jónssyni, sem
fundu skútuna fyrst á mánu-
dagskvöld, en þá var hún stödd
rúmlega átta sjómílur suð-
vestur af Eldey og hafði franski
fáninn verið dreginn að húni.
Skipverjar náðu sambandi við
skipverja skútunnar og sögöust
þeir vera eigendur hennar. Ab
sögn Harðar Jóhannessonar,
hjá RLR, þykir þab fullsannað
að eigendur hennar eru ís-
lenskir og keyptu þeir skútuna
á uppboði hér á landi fyrir
þremur árum. Skútan hafði
verið kyrrsett hér á landi vegna
vangoldinna björgunarlauna
og í kjölfarið safnaði hún á sig
skuldum sem varð til þess að
hún var boðin upp.
Það var um ellefu leytið í
gærmorgun sem varðskips-
menn komu auga á skútuna og
voru komnir að henni um
klukkan tólf á hádegi. Haft var
samband viö skútuna og skip-
verjum um borð í henni, sem
voru tveir sagt að fella segl.
Nokkru síðar fóru nokkrir varð-
skipsmenn á léttbát yfir í Söru
og fluttu mennina tvo, sem
sýndu engan mótþróa með
góðu yfir í varðskipið.
Varðskipið tók skútuna í tog
í gær og hélt áleibis til Reykja-
víkur og er væntanlegt með
hana snemma dags í dag, en
þar munu liðsmenn RLR bíða
tvímenninganna og færa þá til
yfirheyrslu.
skip á yfirstandandi fiskveiðiári
og þá aðallega vegna úreldingar
hjá Þróunarsjóði sjávarútvegar-
ins.
Á næsta fiskveiðiári verbur
leyfilegur heildarafli þorsks 155
þúsund tonn. Þar af er línuafli
13. 810 tonn, til jöfnunarað-
gerða verður varið 11.070 tonn-
um, krókabátar fá úthlutab
21.500 tonnum og því er út-
hlutað aflamark í þorski aðeins
108.620 tonn sem deilt er niður
á flotann. Krókabátum verður
einnig úthlutað 2 þúsund tonn-
um í ýsu og 1500 tonnum af
ufsa. Til jöfnunaðgerða verður
varið 2.350 tonnum af ýsu,
2.741 tonni af ufsa, 2.545 tonn-
um af karfa, 785 tonnum af grá-
lúðu og 511 tonnum af skar-
kola.
Af öðrum fisktegundum verð-
ur leyfilegur heildarafli ýsu um
60 þúsund tonn, 70 þúsund
tonn af ufsa, 65 þúsund tonn af
karfa, 20 þúsund tonn af grá-
lúðu, 13 þúsund tonn af skar-
kola, 125 þúsund tonn af sum-
argotssíld, 63 þúsund tonn af
úthafsrækju, 6700 tonn af inn-
fjarðarrækju, 9.250 tonn af
hörpudiski og 1500 tonn af
humar. ■
BÆIARMÁL
Kópavogur
Bæjarráð Kópavogs hefur ákve&ið
að styrkja kvennalið UBK í knatt-
spyrnu um 80 þúsund krónur til
þátttöku í Norðurlandamóti í
Þrándheimi. Styrkurinn er veittur
vegna góðrar frammistöðu liðs-
ins og kemur til viðbótar styrks
íþróttaráðs, sem nemur tveim
apex-fargjöldum til Noregs.
•
Fyrirhugað er að halda Hafnar-
daga í Kópavogi 22.-23. septem-
ber nk. Dagskrá Hafnardaganna
ver&ur tvískipt með ráðstefnu fyr-
ir forráðamenn fyrirtækja fyrri
daginn en dagskrá fyrir almenn-
ing seinni daginn.
•
Úthlutaö hefur verið sérstyrkjum
íþróttaráðs Kópavogs. Meðal
þeirra sem fengu styrki er Hand-
knattleiksdeild HK vegna æfinga-
og keppnisferðar til Færeyja og
vegna Kópavogsbikarsins 1995,
Tennisfélag Kópavogs vegna
náms- og kynnisfer&ar til Banda-
ríkjanna og vegna æfingabú&a í
Þýskalandi og Sunddeild UBK
vegna bæjarkeppni milli Kópa-
vogs og Mosfellsbæjar.
Hafnarfjöröur
í lok júlímána&ar voru samtals
426 Hafnfirðingar á atvinnuleys-
isskrá, 266 konur og 160 karlar,
samkvæmt tölum frá Vinnumi&l-
un Hafnarfjarðar.
Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur
hafnað erindi Handknattleiks-
sambands íslands um a& sjá um
kvöldverð eftir landsleik vð Rúm-
eníu 1. okt. nk.
•
Bæjarráð hefur samþykkt að veita
bæjarstjóra heimild til að ganga
frá erlendri lántöku hjá Union
Bank of Norway International A/S
a& fjárhæð 15 milljónir danskar
krónur.