Tíminn - 28.09.1995, Qupperneq 4

Tíminn - 28.09.1995, Qupperneq 4
4 WítttÍVM Fimmtudagur 28. september 1995 STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7 Útgáfufélag: Tímamót hf. Ritstjóri: Jón Kristjánsson Ritstjórnarfulltrúi: Oddur Olafsson Fréttastjóri: Birgir Gubmundsson Ritstjórn og auglýsingar: Brautarholti 1, 105 Reykjavík Sími: 563 1600 Símbréf: 55 16270 Pósthólf 5210, 125 Reykjavík Setning og umbrot: Tæknideild Tímans Mynda-, plötugerb/prentun: ísafoldarprentsmibja hf. Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verb í lausasölu 150 kr. m/vsk. Heimsókn Finnlandsfor- seta og norrænt samstarf Opinberar heimsóknir eru fastur liöur í samskiptum þjóöa. Þær eru þáttur í því aö treysta vináttubönd og skapa traustari tengsl meö persónulegum samskipt- um æðstu stjórnenda. Slíkar heimsóknir eru felldar í mót formfestu, en eru eigi að síður mikilvægur þátt- ur í samskiptum sjálfstæöra ríkja. Ein slík opinber heimsókn til íslands er nú afstað- in, en síðustu tvo daga hafa Martti Ahtisaari, forseti Finnlands, og eiginkona hans Eeva Ahtisaari dvalið hér á landi í boði Vigdísar Finnbogadóttur, forseta ís- lands. Hér er um opinbera heimsókn forustumanns vina- þjóðar að ræða, en samskipti Finria og íslendinga eiga sér traustar rætur. Þjóðirnar hafa bábar um ára- bil tekið þátt í samstarfi Norðurlandaþjóba undir merkjum Norðurlandaráðs. Saga Finna á þessari öld hefur ekki síst mótast af samskiptum við volduga nágranna í austri. Þær breytingar, sem urðu eftir lok kalda stríðsins og með skiptingu Sovétríkjanna, höfðu gífurleg áhrif í Finn- landi, en þeir áttu mikil viðskipti austur á bóginn og útflutningur þeirra þangað hrundi og afleiðingarnar urðu geigvænlegt atvinnuleysi og efnahagskreppa. Þess sjást nú merki að Finnar séu á leið upp úr öldu- dalnum. Finnar eru nú aðilar að Evrópusambandinu og virðist stuðningur þar í landi vera meiri við aðildina heldur en raunin er á í Svíþjóð, svo dæmi sé nefnt. Ástæðan kann að vera að Finnar hafa ekki dregið dul á að meb aðildinni séu þeir að skipa sér í sveit með þjóðum Vestur-Evrópu og aðildin sé öryggismál jafnt og efnahagsmál. Það er fagnabarefni að forseti Finnlands telur að aðildin að Evrópusambandinu dragi ekki úr mikil- vægi norræns samstarfs nema síður sé. Vilji æðstu ráðamanna í þessu efni er þýðingarmikill. Ekki síst eru þessi mál viðkvæm nú, þar sem einmitt þessa dagana standa yfir fundarhöld í Norðurlandaráði þar sem ræddar eru gagngerar breytingar á starfsemi þess. Veigamikill þáttur í þeim er sá að vægi sendi- nefnda þjóbanna minnkar, en stefnumótunin fer í ríkara mæli fram í svokölluðum „flokkahópum", sem eru samtök stjórnmálaflokka sem eiga aðild að Norðurlandaráði. í öbru lagi mun skipulag þess verða einfaldað til muna með því að fækka þeim nefndum sem þar starfa. Vonandi verða þessar breyt- ingar til þess að styrkja samstarfið en ekki til þess að draga úr vægi smæstu þjóðanna í ráðinu, sem vissu- lega er hætta á. íslendingar þurfa við þessar nýju að- stæður að leggja sérstaka rækt við norrænt samstarf, til þess að hverfa ekki undir væng stærri þjóða í þessu nýja umhverfi. Það hlýtur að vera einlæg von íslendinga að eiga gott samstarf við Finna, hvort sem heldur er tvíhliða eba undir merkjum norrænnar samvinnu. Þjóðirnar hafa mörgu að mibla hvor annarri. Finnar hafa lagt margt fram til okkar menningarheims, eins og forseti íslands kom inn á í hátíðarræðu, og má þar ekki síst nefna framlag til arkitektúrs, hönnunar, íþrótta og alls konar iðnaðar, svo ótalin séu áhrifin á menning- arsviðinu sem eru ekki síður drjúg. Finnsku forsetahjónin eru aufúsugestir hér á landi og megi heimsókn þeirra treysta enn frekar bönd þessara vinaþjóða. Faraó; Davíb og Ahtisaari Óvænt innlegg í umræbuna um fjárhagsstöbu Reykjavíkurborgar kom frá forseta Finnlands í há- degisverbarbobi hjá íslenska for- sætisrábherranum í gær. Þar flutti finnski forsetinn ræbu eftir ab hafa farib í skobunarferb um höf- ubborgina og til Nesjavalla. Finnski forsetinn sagbi m.a.: „Vib höfum í dag farib og skob- ab allra nýtískulegustu fyrirtæki Reykjavíkur. Um gróna dali og f jöll höfum vib ekib ab gufuorku- verinu á Nesjavöllum, sem vib höfum ekki ábur séb neitt í lík- ingu vib. Vatnsveitumannvirkin vib Gvendarbrunna vöktu líka abdáum okkar. Vib komum í Ráb- húsib þar sem allt er í nýjasta stíl og njótum þessa stundina hrif- andi útsýnisins úr Perlunni og dá- umst ab þeirri einstæbu húsa- gerbarlist sem hún ber vitni." Minnir á hrifningu á pýramídunum Þessi orb Finnlandsforseta bera vott um mikla hrifningu á fram- kvæmdaglebi og stórhugnum sem einkennt hefur höfubborgar- búa lengi vel. Segja má ab þetta séu svipub vibbrögb og þegar ferbamenn koma til Egyptalands og dást ab pýramídunum, hversu stórfenglegt verkfræbilegt og skipulagslegt afrek þeir eru, auk þess fagurfræbilega gildis sem GARRI þeir hafa. En Martti Ahtisaari var aldeilis ekki búinn ab tala og í beinu framhaldi af þessum hrifningar- orbum um stórhug Reykvíkinga sagbi hann orbrétt: „Næstum allar byggingar, sem vib höfum séb, hefur Davíb Odds- son formlega tekib í notkun, sem fremur en allt annab sýnir dugn- ab og frumkvæbi forsætisrábherr- ans meban hann var borgarstjóri í Reykjavík." Augljóst er ab forseti Finnlands hefur verib vel upplýstur um þab hverjum allir hinir glæsilegu minnisvarbar í höfubborginni voru reistir og hver þab var sem formlega opnabi allar þessar glæsilegu byggingar. Þab er greinilegt af þessu ab enn er Reykjavík borg Davíbs í hugum þeirra sem hingab koma og skoba minnismerkin fallegu. Reykjavík og Egypta- land til forna Líka þetta atribi er eins og meb pýramídana í Egyptalandi, allir vita ab þeir voru reistir faraóum til eilífrar dýrbar. En þab er kannski óþarfi ab spilla ánægjunni af þessum vin- gjarnlegu lofsorbum finnska for- setans meb því ab draga fram þriöju sögulegu samlíkinguna frá Egyptalandi til forna. Gordon Child og fleiri sagnfræöingar hafa nefnilega í gegnum tíöina bent á aö þaö var bygging pýramídanna sem á endanum varö forn-eg- ypskri menningu ab aldurtila, því samfélagiö þoldi einfaldlega ekki ab öll verömætasköpunin væri soginn úr hagkerfinu og grafin í fullkomlega gagnslausum og óaröbærum hlutum eins og pýr- amídunum. Núverandi meirihluti í borgar- stjórn Reykjavíkur, sem stendur í því erfiöa verki þessa dagana ab koma skikki á fjármál borgarinnar og fær aö launum ómælt van- þakklæti, mun trúlega skrifa und- ir þá söguskýringu aö þó pýram- ídar séu fallegir, þá eru þeir líka hættulegir sibmenningunni, ef þeir eru reistir í óhófi. Garri Höll Kristjáns VII. og danskur bóndabær Amalíuborg í Kaupmannahöfn samanstendur af fjórum höllum. Þar hefur veriö absetur konunga og drottninga í á þriöja hundraö ár. Margrét II. býr í höllinni sem kennd er viö Kristján IX. og er glæsibygging utan sem innan. Ein höllin er kennd vib Kristján kóng VII. og var fullbyggö 1754. í tímans rás lét höllin mikiö á sjá, sérstaklega innvibir, einsog eöli- legt má telja. Ab því kom aö nauösynlegt var aö gera höllina upp og allt frá árinu 1992 hafa fariö fram gagngerar breytingar á hinu glæsilega húsi, sem telst til þjóbargersema Dana. Ab sögn dansks tímarits hafa herskarar ibnaöarmanna, arki- tekta og sérfræöinga í menningar- sögu unnib aö endurbyggingunni í nokkur ár. Markmiöiö er aö koma höllinni í upprunalegt horf og er ekkert til sparaö aö svo megi veröa. Gull og marmari Gólf eru marmaraklædd upp á nýtt og glæsisalir meö útskomum skreytingum eru gulli lagöir á nýj- an leik. Margt þarf ab endurnýja og annab er gert viö af kunnáttu- fólki, sem leggur metnaö sinn í aö höllin verbi nánast alveg eins og hún var á valdatíma Kristjáns VII. Gluggar eru margir og miklir og gardínurnar fyrir þá eru ofnar í Frakklandi meb gömlum aöferb- um og eru mynstrin þau sömu og franskir listiönaöarmenn geröu fyrir sömu glugga fyrir nær tveim- ur og hálfri öld. Gobelínteppi eru gerö upp og eru þau mörg og gríb- arstór. Þau veröa í sínum gull- römmum í höllinni. Höll Kristjáns VII. er á þrem hæöum undir háu risi, eins og aörar hallir Amalíuborgar, og er Á víbavangi þar hátt til lofts og vítt til veggja. Húsgögn og skrautmunir, sem eru margir og forkunnar íburöarmikl- ir, ganga gegnum endurnýjunina eins og allt annab sem tiíheyrir höllinni. Innangengt verbur úr höll Margrétar II. yfir í glæsibygging- una, sem veriö er aö endurbyggja eftir langt tímabil sem henni hef- ur ekki veriö haldib viö. í framtíöinni er höllin ætluö fyrir tigna gesti sem sækja dönsku kóngafjölskylduna heim. Hún er ætlub þjóöhöföingjum. Þegar endurbyggingu og nauö- synlegu vibhaldi veröur lokiö, mun almenningur eiga þess kost aö skoöa herlegheitin og njóta dýröarinnar þegar erlent tignar- fólk þarf ekki ab nota höllina. Kostnabur Sé kostnaburinn viö endurnýj- un og viÖhald hallar Kristjáns VII. reiknabur í íslenskum krónum, nemur heildarupphæbin 610 milljónum. Samkvæmt upplýsingum danska blabsins, sem þessar upp- lýsingar eru sóttar í, greiba dansk- ir skattborgarar 410 milljónir af þeirri upphæb, en 200 milljónir leggja sjóbir í einkaeign (private fonde) fram. Endurbyggingin verbur afmæl- isgjöf til drottningarinnar, sem verbur 56 ára í apríl næstkom- andi. En hún hefur fylgst mjög vel meb vibhaldinu og er sérstak- lega ánægb meb hve vel er á mál- um haldib og fylgt nákvæmlega því markmibi ab koma höllinni og innbúi í upprunalegt horf. Subur á Alftanesi var reistur mebalstór danskur sveitabær um áratug eftir ab höll Kristjáns VII. var byggb. Hann er búib ab end- urreisa aftur og aftur og bæta vib alls kyns skúrum og séríslenskum arkitektúr. Eftir endurnýjun er ekkert eins og þab ábur var. Þarna er búiö aö gera viö einlyft hús meb risi og tiltölulega ný úti- hús fyrir 700 milljónir og enn er eftir aö framkvæma fyrir 300 milljónir til viöbótar. 100% upphæöarinnar koma frá skattborgurum. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.