Tíminn - 18.10.1995, Qupperneq 1

Tíminn - 18.10.1995, Qupperneq 1
SIMI 563 1600 79. árgangur Kirkjuþing sett í gœr. Biskup íslands: Setning í skugga svip- legra fráfalla 26. þing hinnar íslensku þjób- kirkju hófst í gær meb gubs- þjónustu í Bústabakirkju. Helstu mál þingsins eru ný rammalöggjöf um starfsemi þjóbkirkjunnar sem gerir ráb fyrir auknu sjálfstæbi kirkj- unnar. Biskup íslands flutti ávarp í upphafi þingsins. Hann sagðist vona að kirkjuþingsmenn færbu þab til starfa þingsins sem best gæti gagnast kirkjunni og sagði enga dirfsku að halda því fram að með því að vinna meb kirkj- unni væri um leið stuðlab að sem bestu og farsælustu þjóðfé- lagi. Meginhluti ræðu biskups, hr. Ólafs Skúlasonar, fór í kveðju- orb til Jóns Einarssonar prófasts Borgfirðinga og séra Þórhalls Höskuldssonar prests á Akur- eyri. Hann sagði þá báða hafa sett mjög sterkan svip á kirkj- una þann tíma sem þeir hefðu verið í þjónustunni og þeir hefðu átt mikinn þátt í árang- ursríku starfi kirkjuþings. Svip- leg fráföll þeirra yllu því að „gleði samfara hugsun um þessa kirkjuþingsdaga hvarf sem dögg fyrir sólu". Að lokinni guðsþjónustu flutti Björn Bjarnason mennta- málaráðherra ávarp. Dagskrá þingsins hefst kl. 10.00 í dag með aðalræðu hr. Ólafs Skúla- sonar, biskups íslands, en alls stendur þingið í 10 daga. -BÞ Útvarpsstjóri mun ekki leysa Guömund Emilsson frá störfum er varöa SÍ: „Höldum uppi stöðugri gagnrýni" „Vib höldum áfram ab kvarta. Þab eru alltaf ab koma upp ný og ný mál varb- andi samskipti Gubmundar og hljóbfæraleikara. Vib verbum bara ab láta vita af því og halda uppi stöbugri gagnrýni þegar vib á," sagbi Sigurbur S. Þorbergsson, í stjórn Starfsmannafélags Sin- fóníuhljómsveitar íslands, um vibbrögb útvarpsstjóra vib beibni Osmo Vánska um leysa Gubmund Emilsson undan þeim störfum sem snúa ab Sinfóníuhljómsveit íslands. Heimir Steinsson, útvarps- stjóri, ákvað að verða ekki við beiöninni. Sigurður sagði að stjórn Starfsmannafélags SÍ vildi að Guðmundur Emilsson yrði leystur frá þeim störfum er sneru að SÍ en vildi svo ekki tjá sig frekar um málið fyrr en búið væri að ræða það meðal félaga Sinfóníuhljómsveitarinnar. ■ STOFNAÐUR 1917 Miðvikudagur 18. október 1995 195. tölublað 1995 Biskupar syngja viö messu viö upphaf kirkjuþings. Tímamynd: CS Kaflaskil í samskiptum aöila vinnumarkaöaríns efuppsögn samninga fer fyrir Félagsdóm. VSÍ: Óróleikinn hefur ekki enn skabað atvinnulífið Þórarinn V. Þórarinsson fram- kvæmdastjóri VSÍ segir ab fundasamþykktir verkalýbsfé- laga um uppsögn samninga kunni ab leiba til þess ab þab verbi ab skoba málib lögfræbi- lega fyrir Félagsdómi. Hann segist ekki minnast þess ab slíkt hafi ábur gerst í samskiptum abila vinnumarkabarins og tel- ur þab reyndar meb ólíkindum ef þab verbur raunin. Framkvæmdastjórinn segir að óróleikinn á vinnumarkaði, sem varð til í framhaldi af ákvörðun Kjaradóms og um- ræðunnar um kjaramál þing- manna, ráðherra og embættis- manna, sé ekki enn farinn að Vib fyrri umræbu um lánsfjár- lög, sem fram fór á Alþingi í gær, gerbi Steingrímur J. Sigfús- son málefni Flugstöbvar Leifs Eiríkssonar ab umtalsefni og sagbi skuldavanda stöbvarinn- ar ýtt á undan sér ár frá ári. I ár væru áætlaðar verulegar lántökur vegna rekstrar hennar og ríkisstjórnin virðist því eins og fyrri ríkistjórn ekki ætla sér að taka á þessu vandamáli. Stein- skaða atvinnulífið, hvorki á sviði fjárfestinga eða á öðrum sviðum. Aftur á móti mundu af- leiðingarnar koma fljótlega fram ef fjármagnsmarkaðurinn færi að taka mark á þessum óró- leika og fjárfestar óttuðust að uppsögn samninga verði að veruleika með tilheyrandi átök- um á vinnumarkaði á næsta ári. „Þá þarf ekki um neitt sár að binda. Vextir mundu fara hækk- andi og það mundi draga úr fjárfestingum," segir Þórarinn V. Hann segir að viö slíkar aðstæð- ur mundi aðeins „léttgeggjaður maður hætta sínum peningum til fjárfestinga í efnahagsum- hverfi þar sem geðþóttaákvarð- grímur gagnrýndi einnig að þetta eina samgöngumannvirki lands- ins væri í forsjá utanríkisráðu- neytisins en ekki samgönguráðu- neytisins eins og önnur sam- göngumannvirki. Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr- verandi utanríkisráðherra, kvaðst í umræðunum vilja upplýsa að í fimm skipti hafi veriö reynt að leita lausna á fjárhagsvanda flug- stöðvarinnar viö borö fyrri ríkis- anir réðu því hvort samningar stæðu eða ekki." Hann segir menn hafa enn þá trú á þjóðarsálinni að hún vilji virða lög og reglur í samskiptum manna á milli. Þrátt fyrir allt og alla þá hafa íslendingar reynt að halda lög- og reglubundnu sam- félagi á annað þúsund ár og vonandi verður engin breyting þar á, enda engin teikn á lofti sem benda til annars. Þórarinn V. segir að öllum ætti að vera orðið það ljóst að forsendur kjarasamninga muni halda efnislega. Ef það á hins- vegar ab vera regla að uppsögn samninga ræbst af geðþótta- ákvörðun annars abilans stjórnar en þáverandi og núver- andi samgönguráðherra þráfald- lega lagst gegn öllum hugmynd- um þar að lútandi. Ráðherranum hafi meðal annars verið boðið að málefni Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar yrðu flutt frá utanríkisráðu- neytinu til samgöngurábuneytis- ins í tengslum við aðgerðir til lausnar vanda stöbvarinnar en það hafi engan árangur borið. -ÞI mundu núverandi samningar verða þeir síðustu, enda til lítils að semja við stéttarfélög eftir það. Hann segir einnig að það hafi aldrei áður hvardfað að neinum að hægt sé að slíta samninginum „bara vegna þess að manni dettur það í hug." Hann segir að það sé líka nýr hugsunarháttur hjá einstaka verkalýbsforingjum í samskipt- um aðila að „það sé á færi þeirra einna að ákveða að nú sé komið nóg." -grh Fjáraukalög: 150 millj. í birgðavanda Fjármálaráðherra ætlar að flytja breytingartillögu við fjárauka- lög þessa árs um að heimila greiðslu á 150 milljóna króna framlagi vegna birgöastöðu sauðfjárræktarinnar. Hann sagði í umræðum á Alþingi í gær um fjáraukalög 1995 að í samningi bændasamtakanna og ríkisvaldsins, sem samþykktur hafi verib á Búnaðarþingi og liggi nú fyrir Alþingi, sé gert ráð fyrir 250 milljón króna framlagi til iausnar birgðavanda sauð- fjárræktarinnar og eigi 150 milljónir króna að koma til að- gerða á þessu ári. ÞI. jón Baldvin Hannibalsson á Alþingi í gœr um lausn á vanda Flug- stöövar Leifs Eiríkssonar: Halldór fimm sinnum á móti

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.