Tíminn - 21.10.1995, Blaðsíða 7

Tíminn - 21.10.1995, Blaðsíða 7
Laugardagur 21. október 1995 %ÍIHfÍ8H FJÁRMÁL HEIMILANNA 7 Stofnaöu þinn Einkabanka: Reikningamir borgabir vib heimilislegan tölvuskjáinn Edda Gubmundsdóttir. Ef þér lei&ast bi&ra&ir í bönk- um, þjónustugjöldin pirra þig og þú fær& stööumælasekt í hvert sinn sem þú stígur fæti þínum inn í bankastofnun — en ert tölvueigandi og átt mó- tald, þá áttu þess kost, fyrir milligöngu Landsbankans, a& fría þig mána&arlegu banka- ergelsi me& því a& sækja um og setja upp Einkabanka heima í stofu. Fyrir um 5 árum tók Lands- bankinn upp þjónustu viö fyrir- tæki, sem fólst í því aö þau gætu fylgst meö bankavi&skiptum sínum í gegnum tölvur fyrirtæk- isins. Sí&an í september hafa einstaklingar einnig getaö nýtt sér þessa þjónustu og hefur henni verið vel tekið, ab sögn Eddu Guðmundsdóttur, starfs- manns á marka&ssviöi Lands- bankans, en alls eru um 700 ein- staklingar og fyrirtæki tengd Einkabankanum og fjöimargar umsóknir bíða afgreiðslu. Edda var beðin um aö leiba mann- eskju í gegnum þetta ferli og upplýsa hana í leiöinni um hvaða ávinning hún heföi af því að tengjast Einkabanka Lands- bankans. „Viökomandi byrjar á því aö sækja um Einkabankann á þar til ger&u eybublaði og fær síðan diskling meö hugbúnaði, sem tengir hann vib okkar kerfi." Að jafnaöi líöa um tveir dagar frá því aö sótt er um Einkabankann og þar til tengingin fæst. Heima hjá sér þarf manneskjan aö eiga tölvu (PC eða Macintosh), mó- tald og símalínu, og ef hún kann ekki aö fara meö þessi tæki, get- ur hún fengið aöila frá Lands- bankanum til aö hjáipa sér viö tenginguna. Einnig fær hún leiðbqiningablað um þaö hvern- ig hún keyrir forritið upp í tölv- unni. Ef viökomandi á ekki mó- tald, getur hann fengið það hjá fyrirtækjum sem eru á samningi við Landsbankann og veita um- sækjendum um Einkabankann afslátt á tækjunum, en þau kosta milli 10 og 20 þúsund eftir því hversu hraövirk þau eru. Þegar tölvan er tengd við kerfi bank- áns, er borgaö 1900 kr. stofn- gjald, en eftir þaö em borgaðar 950 kr. í ársgjald. Á sama tíma er viðkomandi að spara sér ýmis þjónustugjöld bankanna og aö sjálfsögöu dýrmætan tímann. Nú eru komin mánaöamót hjá tilraunadýri okkar og hyggst þaö komast aö því hvaða ávinning þaö haföi af því aö tengjast Einkabankanum. Manneskjan sest viö tölvuna og ætlar sér að borga gíróseðla og reikninga, sem vom farnir aö mynda haug á mottunni fyrir neban póstlúg- una. „Hún þarf aö slá inn tvenns konar lykilorö: annaö er aö- gangsorð og hitt er aðgangs- nafn. Aögangsoröinu þarf að breyta mánaöarlega, eöa oftar ef fólk vill, af öryggisástæöum, en forritið lætur vita hvenær þarf að skipta um orö. Eftir að hafa slegiö inn orðin er hún komin inn í kerfið. Þá kemur upp val- mynd og hún velur þá greiðslu reikninga. Svo kemur önnur val- mynd upp og þar skrifar hún inn númerið sem er neöst á gíró- seðlunum, sem sýnir eiganda greiðslunnar. Síðan gefur hún upp sitt reikningsnúmer og þá fer greiðslan beint út af hennar reikningi og inn á þennan reikn- ing sem hún tilgreindi, hvort sem það er af skuldabréfi, víxli eöa gíróseðli." Eins og sést á þessari lýsingu er bæði beinn og óbeinn sparn- aöur viö notkun Einkabankans. Sá óbeini felst í tíma- og bensín- sparnaöi, en beinn sparnaður er á ýmsum þjónustugjöldum banka. Tékkhefti kosta 270 kr. (notkun ávísana minnkar með þjónusm Einkabankans), út- prentuð reikningsyfirlit í bönk- um kosta 45 kr., en í Einkabank- anum er hægt aö prenta út reikningsyfirlit hvenær og hve oft sem er. Millifærsla milli banka kostar 80 kr., en er fólki tengt Einkabankanum að kostn- aðarlausu. Þegar reikningar em borgaöir í banka meö debetkorti eöa ávísunum, eru borguö færslugjöld (9.50 kr. fyrir debet- færslu en 19 kr. fyrir ávísun), sem notandi Einkabankans borgar ekki. „Viökomandi er með miklu betri yfirsýn yfir stöbu sína hjá bankanum. Fyrir þá, sem eiga erfitt meö aö fylgj- ast meö tékkhefti sínu, em lík- urnar á því að fara yfir og þurfa aö borga fit-kostnað, minnk- andi." Auk greiðslu reikninga, milli- færslu og reikningsyfirlita getur notandi Einkabankans: - séð stööu sína gagnvart bankanum, þ.e. stöðu allra inn- lána og útlána. - fengið gengi dagsins, gengis- þróun síöustu 12 mánaöa eða lengra aftur í tímann. - fengiö upplýsingar um inn- láns- og útlánsvexti og vísitölur. - reiknaö út skuldabréf. Ef þú ert aö spá í að taka skuldabréf, geturðu reiknað út afborganir, vexti og veröbætur. - fengið upplýsingar um stööu skuldabréfa. - séö greiðsluskrá víxla. Þar getur þú fengiö upplýsingar um gjalddaga og greiöslustöðu, van- skil og kostnað viö víxla. Edda segir aö ekki sé nein þjónusta inni í þessu kerfi til aö hjálpa fólki, sem komið er meö fjármál heimilisins í hnút. Fyrir þann hóp sé hins vegar annar möguleiki, en það er að hafa samband viö þjónustufulltrúa, sem fær alla reikninga viðkom- andi senda til sín og sér um ab þeir séu borgaðir af reikningi viöskiptavinarins. Þetta sé aub- veldasta leiðin fyrir þá sem eng- in afskipti vilja hafa af bankan- um og þá þurfi enga tölvu, mó- tald eöa símalínu. Aðspurö hvort þessi þjónusta Einkabankans hafi verið misnot- uö á einhvern hátt, segir Edda aö enginn hafi brotist inn í kerf- ið og engin mistök oröiö, sem ekki hafi verið hægt að leiðrétta strax að morgni. Fyrir skömmu var þjónustu- tími Einkabankans lengdur, en nú er hægt ab notfæra sér þjón- ustu hans allan sólarhringinn. LÓA Unglist '95,... eins og hún leggur sig: Hin hliö unga fólksins Myndlist, tónlist, Transcen- dental LoveMachine, djass, stuttmyndamaraþon, ljós- myndamaraþon, leiksmiöja, listsmiöja, internetsmiöja, dans og kaffiþamb meö ýmsu móti stendur ungu fólki til boöa á Unglist '95 sem hefst í dag og stendur fram til sunnu- dagsins 29. okt. Menningarsamtök ungs fólks standa að þessari listahátíð ungs fólks sem veröur ýtt úr vör meö nokkrum vel völdum oröum Davíös Þórs Jónssonar, Radíus- bróöur, í opnunarávarpi í Ráö- húsi Reykjavíkur í dag. Guðmundur A. Erlingsson, í framkvæmdanefnd Unglistar, telur vera mikla þörf á þessari hátíð þrátt fyrir t.d. óháöu lista- hátíðina og fleiri hátíöa sem efnt er til regulega. „Mér finnst vera þörf á þessu því að þarna fær ungt fólk á þessum aldri tækifæri til aö sýna sín verk og ég held aö þaö sé mjög gott fyr- ir ungt fólk aö koma úr felum með sín verk og sýna þau. Þarna fær ungt fólk að sýna hvaö í því býr og sérstaklega er það jákvætt í kjölfar þessarar umræöu sem er búin aö vera um ungt fólk síö- ustu vikur. Þarna fáum viö að sýna á okkur aöra hlið." Fjölmargir forvitnilegir dag- skrárliöir veröa frá kl. 9.00 á morgnana og fram á kvöld flesta daga hátíðarinnar en að sögn Guðmundar hefur einn þeirra þó vakið mesta athygli. „Sú nýjung sem vekur kannski hvað mesta athygli er Sveim í svart/hvítu. Það eru bæði tón- leikar og kvikmyndasýning sem veröa í Tjarnarbíó á þriöjudags- kvöldiö. Þar ætlum viö aö sýna gamlar þöglar myndir á borö við Metropolis og Orustuskipiö Potemkin og Chaplin-myndir. Á sviöi fyrir neðan tjaldiö munu íslenskar danshljómsveitir leika undir. Eins og þaö er orðab þá veröur svart/hvítri fortíð bland- að saman við litríka nútíö. Áöur fyrr var fólk sem glamraöi á pí- anó eöa þaö voru einhverjar sin- fóníuhljómsveitir undir en núna ætlum við aö poppa þetta svolítið upp og hafa íslenska ambient danstónlist." Fortíðin er víöar nærri á há- tíöinni en í þöglu myndunum því undir lok hátíðarinnar verö- ur málþing um unglingamenn- ingu undir yfirskriftinni Miö- bærinn fyrr og nú. Þar veröa ýmsir nafntogaðir og misaldrað- ir Reykvíkingar með framsögur um mannlífið í miöbænum fyrr og nú. Af öðrum dagskrárliðum má nefna listsmibju þar sem ungt fólk getur komiö, málaö eöa gert eitthvað annaö skapandi. Einnig verður leiksmiöja í Hinu húsinu en hún fer þannig fram aö Rúnar Guöbrandsson tekur fólk í grunnæfingar í leiklist og síbasta dag hátíöarinnar veröur Hinu húsinu breytt í alls herjar leikhús og stuttar leiknar „myndir" veröa út um allt hús. Stuttmyndamaraþonið hefst og lýkur á laugardag og fá kepp- endur 8 klukkustundir til aö festa stuttmyndina á filmu. Þátttakendur mæta kl. 12.00 á hádegi, í dag 21. okt., í Ráöhús Reykjavíkur meö eigin vide- ótökuvélar. Þar fá þeir mynd- verkefni og 5 mínútna langa vídeóspólu og ber þeim aö skila spólunum í Hitt húsiö kl. 20.00 aö kveldi sama dags. Ljós- myndamaraþonið hefst á sama tíma og sama stað en þar fá keppendur 12 tíma til aö festa myndir á filmu. Aö sögn Guðmundar er ekki sjáanlegur mikill munur á þátt- töku í listahátíðinni eftir fram- haldsskólum en þó segir hann aö þáttur Iönskólans sé stór þar sem nemendur þaðan veröa meö hönnunarsýningar alla há- tíðina og sýna húsgagnasmíöi, fatahönnun og margt fleira. Hátíöin fer fram víöa um miö- bæinn. í Hinu húsinu veröur gallerí, uppákomur á hverju kvöldi í Tjarnabíó, listsmiöjan veröur í Hafnarhúsinu og Há- skólabíó sýnir valdar ljós- og stuttmyndir. -LÓA

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.