Tíminn - 21.11.1995, Blaðsíða 16

Tíminn - 21.11.1995, Blaðsíða 16
IWtfll Þri&judagur 21. nóvember 1995 Vebrlb (Byggt á spá Veöurstofu kl. 16.30 í gær) • Suburland og Faxaflói: Noröaustan stinningskaldi, skýjaö en úr- komulítiö. Hiti 2 til 6 stig. • Breiöafjöröur til Stranda og Noröurlands vestra: Noröaustan stinningskaldi eöa allhvasst. Slydda eba rigning þegar líöa tekur á dag- inn. Hiti 0 til 4 stig. • Noröurland eystra og Austurland ab Glettingi: Austan og norö- austan stinningskaldi og slydda eða rigning á morgun. Hiti -2 til +3 stig. • Austfirbir: Austan stinningskaldi og rigning í fyrstu. Gengur í suö- austan golu eba kalda og súla meö kóflum undir hádegi. Hiti 1 til 5 stig. • Suöausturland: Subaustan kaldi og súld meb köflum. Hiti 1 til 5 stig. Hœsta tilbobiö í Krossanesverksmibjuna kom inn á bcejar- stjórarfund, en þá var allt um seinan, verksmibjan seld. Sverrir Leósson, útgerbarmabur Súlunnar: Þetta minnir á myrkraverk Tveir útger&armenn böröust mundi Siguröur Einarsson hafa um aö eignast Krossanesverk- smiöjuna viö Akureyri, Sigurö- ur Einarsson í Vestmannaeyj- um, og Sverrir Leósson á Akur- eyri. Tilboö Sverris barst á bæj- arstjórnarfund í lok síöustu viku — mínútum of seint aö því er viröist. Tilboö Sverris er taliö hafa veriö snöggtum hærra en tilboö Þórarins Kristjánssonar í Gúmmívinnslunni hf., Sigurbar Einarssonar og fleiri aöila, en upphæö þess er enn leyndarmál aö því er viröist. Sverrir var ósáttur viö gang mála þegar Tíminn ræddi viö hann í gær. Skip Sverris og Sigurðar hafa lengi veriö burðarásinn í starf- semi verksmiðjunnar og landað þar. Sverrir segir ljóst að hann muni ekki leggja upp afla hjá verksmibjunni eftir þetta. Án efa Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráöherra: Margir þurfa ab berjast ryrir til- veru sinni „íslenskar stofnanir og ís- lenskir hagsmunir eru í hættu í þessari endurskoöun. En viö verbum aö taka þátt í því eins og ööru," sagbi Halldór Ás- grímsson, utanríkisráöherra um sparnaöaráform í nor- rænni samvinnu. Halldór sagði að þrátt fyrir þetta hefði hann engar efa- semdir um áframhaldandi gagnsemi norrænnar sam- vinnu. -JBP veriö sama sinnis. „Þetta minnir mann á myrkra- verk. Manni finnst nú að þegar Akureyrarbær er að selja hlut sinn í ákveðnu fyrirtæki, þá hljóti þaö aö vera akkur í því að selja fyrir sem mestan pening. Þá finnst mér að bærinn hljóti ab verða að viröa ákveðnar leikreglur og auglýsa eignarhlutinn til sölu samkvæmt tilboðum sem yrðu opnuö í viö- urvist tilboðsgjafa ákveðinn dag og á ákveðnum tíma. Svo var ekki," sagöi Sverrir Leósson út- gerbarmaöur Súlunnar EA í sam- tali við Tímann í gær. Hann kom of seint með besta tilboðið í kaup á Krossanesverksmiðjunni að því er virðist inn á fund bæjarstjórnar Akureyrar fyrir helgi. En hvers vegna tefldi Sverrir á tæpasta vab- ið? „Mönnum í bæjarapparatinu, sem er heldur illa við mig, segja að ég hafi haft alla möguleika á að fylgjast meb eins og abrir. En það er alveg ljóst í mínum huga að þetta var ekkert að dúkka upp á borð bæjarstjórnar fyrir viku eða tíu dögum síðan. Þetta er búiö aö vera til umræbu og ég vissi að það voru viðræður í gangi milli fóður- verksmiðjunnar Láxár hf. og bæj- arins, en þar er Kaupfélagið stór aðili að, auk þess sem Laxá er á sömu lóbinni. Mér fannst þab hiö besta mál, þetta er skyldur rekstur þannig að hægt hefði verið að samnýta tæki og tól, mannskap og húsnæöi. En svo áttar maður sig á ab málið er í allt öörum far- vegi," sagði Sverrir. Sverrir sagðist hafa rætt við bæjarstjóra í gærmorgun á annan tíma. Hann sagði ab vinnulagið Krossanesverksmiöjan. minnti sig á samningahríðina sem varð þegar rætt var við ÍS og SH. Sverrir s^gðist skilja vel ab bæjarstjóri ætti erfitt með að hafa sitt fram. Framsóknarmennirnir fimm væru varla jafnokar eins krata, sem væri „hækjan" í stjórn bæjarins og virtist ráða því sem hann vildi. Rekstur Krossanesverksmiðj- unnar hefur verið erfiður um langt árabil. Fyrirtækið hefur ekki borgað arö og hlutaféð hefur ver- ib fært mikið niður. Sverrir orðar það svo að „milljónin hafi orðið fimmtíuþúsund". -JBP Fjárfestar ekki hrifnir af fjár- magnstekjuskatti. Fyrrverandi formabur Samtaka fjárfesta: Óttast feluleik Fjármagnstekjuskattur, sem nú er rætt um aö veröi lagöur á, flatur 10% skattur á nafn- vexti, leigutekjur, aögreiöslur af hlutabréfum, afföllum, sölu og gengishagnabi er tal- inn geta fært ríkissjóði allt aö 900 milljónir króna á ári aö mati þverpólitískrar nefndar sem um máliö fjallar. Ég óttast þab að menn leiti til útlanda með peningana sína, leiti í öryggið og þarmeð hefjist aftur gamalkunnur feluleikur með féö," sagði Sigurjón Ás- björnsson, fyrrverandi formað- ur Samtaka fjárfesta í gær. Nú- verandi formaöur er Þorvaröur Elíasson, skólastjóri, en ekki náöist í hann í gær. -JBP Andstaba vib aublindaskatt mebal flestra hagsmunaabila í sjávarútvegi. LÍÚ: Frjálslyndir umbótamenn í Granda valda vonbrigöum Kristján Ragnarsson formaöur LÍÚ segir ab auölindaskattur á sjávarútveg mundi skerba kjör bæbi sjómanna og landverka- fólks, auk þess sem hann telur aö sjávarútvegurinn hafi enga buröi til aö taka á sig nýja skattheimtu. Hann lýsir jafn- framt yfir undrun á ummæl- um forrábamanna Granda hf. sem hafa látib aö því liggja aö ríkiö geti fariö betur meö fé en sjálf atvinnugreinin. Formab- ur LÍÚ telur aö slík sjónarmið eigi ekki viö þá sem hafa talib sig til frjálslyndra umbóta- manna. Hólmgeir Jónsson fram- Eblilegar skýringar á þeim tíma sem tók aö rannsaka mál Ceorgíu- mannanna. Þórir Oddsson sem stjórnaöi rannsókn RLR: Hef ekkert samviskubit vegna þessara manna Eins og kunnugt er féll dómur í máli tveggja Georgíumanna sl. föstudag, en þeir hafa setiö í gæsluvarbhaldi síðan í sum- ar, ákærðir um nauögun á tveimur hafnfirskum konum. Annar mannanna var sýknaö- ur en hinn var dæmdur fyrir ab hafa nýtt sér ölvunar- ástand þolanda til aö koma fram kynferöislegum vilja sín- um. Ekki er ljóst hvort dómn- um veröur áfrýjaö en rann- sókn málsins var mjög flókin að sögn RLR og þess vegna tók þennan tíma ab fá úrskurö. Niðurstöður dómsins byggðust að miklu leyti á DNA-rannsókn- um sem voru afar flóknar og viða- miklar að sögn Þóris Oddssonar sem sá um rannsókn RLR í mál- inu. Komið hafi í ljós að allt ab 10 manns hefbu átt samræði vib konurnar og svoköllub lífsýni á neybarmóttöku hafi ekki aðeins verið skobuö, heldur einnig sæb- issýni á fötum. Þá hafi þurft að fá sérfrótt vitni frá Noregi sem vitni, sérfræðing í DNA-rannsóknum, en vitniö sé eftirsóttur fagmaöur á þessu sviði. „í dóminum var allt lagt fram til grundvallar sem rannsókn sérfræðingsins leiddi í ljós gegn neitun sakborning- anna." Þórir segir um sýknudóminn aö hann hafi sínar skoðanir á dómsniðurstöðunni og hafi ekkert samviskubit gagnvart þessum mönnum, því faglega hafi verið staðiö að rannsókn- inni. „Maður veröur auðvitaö að taka því sem dómstólar ákvarða. Ég vek hins vegar at- hygli á því að í dóminum er tek- iö undir flest þau atriöi sem haldið var fram viö sóknina þótt dómarar hafi ekki treyst sér til ab stíga skrefið til fulls." Þórir segir mörg dæmi um ab meðferö erlendra manna hafi verið flýtt vegna ýmissa prakt- ískra sjónarmiba. Þetta séu hálf vegalausir menn oft á tíðum og það sé í allra þágu að þeirra mál- um sé lokiö sem fyrst. Erfitt sé að gæta manns sem bíður dóms, ef hann kornist úr landi sé lík- legt ab hann komi aldrei aftur. Svona rannsóknir kalli því á mikil fjárútlát af hálfu hins op- inbera. Þá segir Þórir ekki rétt sem komib hefur fram í fjöl- miðlum að tungumálaþýöingar hafi seinkab málinu, þeir hafbi verið heppnir meb túlka. Ríkissaksóknari mun væntan- lega taka ákvörbun um áfrýjun í dag. -BÞ kvæmdastjóri Sjómannasam- bands íslands segir að samtökin séu andvíg veiðileyfagjaldi, en frekari afstaba til málsins muni væntanlega verða tekin á for- mannafundi SSÍ sem haldinn verður í lok vikunnar. Þá er ekki annað vitað en ab önnur hags- munasamtök sjómanna séu einnig andvíg auðlindaskatti í sjávarútvegi. Hinsvegar hafa þær raddir heyrst innan raba sjómanna að það sé eins gott að greiða það til ríksins sem út- gerðin tekur af þeim til að fjár- magna kvótakaup. Þjóðvaki hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um veiðileyfagjald í sjávarút- vegi. I umræöum um tillöguna hefur komið fram stuöningur við hana frá þingflokkum krata og Kvennalista. Þar fyrir utan hefur Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi formaður Alþýðu- bandalagsins lýst yfir skilyrtum stubningi við tillöguna, auk þess sem Pétur Blöndal, einn af þingmönnum sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur lýst yfir stuðn- ingi við veiðileyfagjald. Hann neitar því ab skiptar skoðanir séu um málið innan útvegsins og telur að sjónarmið forráðamanna Granda hf. sem hafa lýst yfir vilja til að ræða þetta mál sé „algjör sérstaba," auk þess sem þeir hafa fjöldann allan af fyrirvörum. Formaöur LÍÚ lýsir hinsvegar yfir undrun yfir ummælum forstjóra Granda þess efnis aö auðlindaskattur mundi ekki þýöa aukin útgjöld fyrir sjávarútveginn vegna þess að gengið yrði fellt á móti til að hjálpa iönaöinum. „Þab hlýtur aftur aö þýða versnandi lífskjör og meiri skattgreibslur til ríksins til að spreða úr. Ég hélt að það væri ekki sjónarmið þeirra sem ég hélt 'að væru frjálslyndir um- bótamenn sem stjórna Granda. Þessvegna kom mér það mjög á óvart að þeir telji aö ríkið geti farið betur með fé en atvinnu- greinin sjálf," segir formaður LÍÚ. -grh íslensk teikni myndasaga Ný teikni- myndasaga hef- ur göngu sína í Tímanum í dag og fjallar hún um Auðun vest- firska. Eins og vera ber þegar átakið „Veljum íslenskt" er í gangi, setur blaðið íslenskt í önd- vegi því þessi saga er íslensk að öllu leyti — íslenskt efni og íslenkur höfundur. Haraldur Einarsson kennari teiknaði söguna og byggði textann á Auðunnar þætti vest- firska. Haraldur teiknaði söguna Vesturfararnir sem birtist í blaðinu í fyrra. Auðunn vestfirski leysir af hólmi „Einstæðu mömmuna" sem nú mun fara í ótímabundið orlof. Sjá blaösíöu 12 ÞREFALDUR 1. VINNINGIR

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.