Tíminn - 04.04.1996, Page 12
& ÖRKIN /SÍA BL095
12
Fimmtudagur 4. apríl 1996
LADA
getur verið
raunhæfur
kostur
fyrir þig
Lada Sport - Öflugri og betur búinn.
Mun öflugri vél, léttara stýri, stærra farangursrými,
betri sæti, ný og breytt innrétting.
989.000 kr.
Lada Skutbíll - Rúmgóður og kraftmikill
Hentar þeim sem þurfa talsvert farangursrými.
Jafnvígur sem vinnubíl! og fjölskyldubíll.
697.000 kr.
Lada Samara - Lúxus án íburðar.
Samara er rúmgóður, sparneytinn og ódýr bíll sem
hefur notið mikilla vinsælda hér á landi í gegnum tíðina.
664.000 kr.
Lada Safír - Ódýrasti bíllinn á íslandi.
Sterkbyggður og eyðslugrannur fimm manna bíll sem
hentar vel í bæjarakstri og er öruggur í langferðum.
588.000 kr.
Negld vetrardekk og
sumardekk fylgja.
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236
John Travolta í danssveiflunni frœgu í Saturday Night Fever.
Köflótt stjömuskin
hjá John Travolta
Eftir velgengni Pulp Fiction
hefur leibin legib upp á vib
hjá John Travolta eftir mögur
ár þar á undan. Nú er svo
komib ab á stuttum tíma hafa
tvær myndir meb honum í
abalhlutverki verib meb þeim
absóknarmestu í Bandaríkjun-
um. Þetta eru Náib þeim
stutta (sjá umfjöllun annars
stabar á síbunni) og Brotin ör
sem Regnboginn frumsýnir
innan skamms. Ferill hans
hefur þó verib ansi rysjóttur
en þótt hann hrapi úr svibs-
ljósinu um tíma virbist hann
alltaf rísa upp aftur (hann er
kallabur „The Comeback
King'' í Hollywood).
Travolta fæddist í Englewood
í New Jersey 18. febrúar 1954
og er því tiltölulega nýkominn
á fimmtugsaldurinn. Hann
hætti í skóla 16 ára gamall til að
reyna fyrir sér sem leikari og
fyrsta alvörutækifærib kom þeg-
ar hann fékk hlutverk Dannys
Zuko í söngleiknum Grease.
Hann átti síðar eftir aö verða
stórstjarna þegar hann lék sama
hlutverk á móti Oliviu Newton-
John í kvikmynd sem gerð var
eftir söngleiknum. Stuttu áður
hafði hann getið sér gott orð
KVIKMYNDIR
ÖRN MARKÚSSON
fyrir ab leika dansarann Tony
Manero í Saturday Night Fever
og hlotið sína fyrstu tiinefningu
til Óskarsverðlauna. Báðar
myndirnar eru á meðal aðsókn-
armestu mynda sögunnar en
tekjurnar af Grease voru um
400 milljónir dollara.
Eftir að ferill Travolta tók
þetta risastökk og strákar út um
allan heim höfðu hermt eftir
klísturgreiðslunni frægu úr Gre-
ase var varla hægt annað en að
fara niður á við. John Travolta
fór ansi nálægt botninum. í
rúmlega 10 ár var fátt um fína
drætti í kvikmyndum með hon-
um í aðalhlutverki. Myndir eins
og Two of a Kind, þar sem hann
lék á ný á móti Oliviu Newton-
John, og Perfect eru hroðalegt
minnismerki um þennan tíma.
Eftir þá síðarnefndu tók hann
sér frí frá kvikmyndaleik í fjög-
ur ár en birtist aftur í gaman-
myndinni Look Who's Talking
árib 1990 sem varð óvæntur
smellur.
Þegar hlutirnir höfðu snúist
honum í hag virtist sagan ætla
að endurtaka sig. Gæði mynd-
anna sem á eftir fylgdu minnk-
uðu með hverri mynd og flestir
voru við það ab gleyma John
Travolta á ný. Þá gerðist það að
efnilegur leikstjóri í Hollywood,
Quentin Tarantino, bauð hon-
um að leika glæpamanninn og
eiturlyfjafíkilinn Vincent Vega í
Pulp Fiction. Hún sló eftir-
minnilega í gegn og Travolta
hlaut sína aðra tilnefningu til
Óskarsverðlauna.
Síðan þetta gerðist hefur hon-
um tekist að halda ferlinum
réttu megin við strikið, a.m.k.
ef litið er á aðsóknartölur. Það
verður gaman að sjá hvort
næstu myndir Travolta, Pheno-
menon og Michael, ná að fanga
athygli kvikmyndahúsagesta.
Listi yfir myndir John Travolta
1. Broken Arrow (1996)
2. Michael (1996)
3. Phenomenon (1996)
4. Get Shorty (1995)
5. White Man's Burden (1995)
6. Pulp Fiction (1994)
7. Look Who's Talking Now
8. Boris and Natasha (1991)
9. Chains of Gold (1991)
Okurlánari í Hollywood
Náib þeim stutta (Get Shorty) *★*
Handrit: Scott Frank. Byggt á samnefndri
skáldsögu Elmores Leonard
Leikstjóri: Barry Sonnenfeld
Abalhlutverk: john Travolta, Gene Hack-
man, Danny DeVito, Rene Russo, Dennis
Farina, Delroy Lindo, james Gandolfini og
David Paymer
Laugarásbíó
Bönnub innan 12 ára
Það er stór hópur úrvalsleikara
sem fer með abalhlutverkin í
Náib þeim stutta en honum
stjórnar Barry Sonnenfeld, sem
upphaflega var þekktur töku-
maður áöur en hann sneri sér að
leikstjórn og gerbi ágæta mynd
um Addams-fjölskylduna. Hon-
um hefur síöan vaxiö ásmegin
og er hér kominn með sína
bestu mynd til þessa.
John Travolta leikur hér mjög
skemmtilega persónu, okurlán-
arann Chili Palmer, sem orðinn
er leiður á starfinu. Hann fer til
Los Angeles til ab leita tveggja
manna sem skulda af lánum og
annar þeirra er ruslmyndafram-
leiðandinn Harry Zimm (Hack-
man). Sá á ekki bót fyrir rassinn
á sér en hefur með klækjum
komist yfir gott handrit að kvik-
mynd. Palmer, sem alltaf hefur
haft áhuga á kvikmyndum,
ræbst með honum í verkefnið
en til að þab gangi upp verður
að ná í þann stutta, hinn mikils-
virta leikara Martin Weir
(Danny DeVito). Málin flækjast
hins vegar þegar fleiri lána-
drottnar Zimms fara að krefja
hann um borgun og þar ab auki
á snarbilaður mafíósi, Ray Bones
(Dennis Farina), ýmislegt sökótt
við Palmer.
Kvikmyndabransinn í Holly-
wood fær aldeilis á baukinn í
ágætu handriti Scotts Frank en
myndin byggir á sögu eftir hinn
vinsæla reyfarahöfund Elmore
Leonard. Gáfurnar eru yfirleitt
ekkert að flækjast fyrir persón-
unum, hvort sem um er að ræða
misvitra glæpamenn eða virta
„stórleikara". Okurlánarinn
Chili Palmer er hins vegar fædd-
ur til að vera kvikmyndafram-
leiðandi í borginni; getur lagt
kalt mat á peningamálin og sér
auðveldlega í gegnum tvískinn-
ungshátt íbúa Hollywood.
Nokkrar kostulegar aukaper-
sónur koma við sögu og reyndar
er það þess virði að sjá myndina
þótt ekki væri nema bara til aö
kynnast Ray Bones, frábærlega
leiknum af Dennis Farina. Af
öbmm leikurum er þab að segja
ab John Travolta passar hárfínt í
hlutverk Chili Palmers og það er
dálítið fyndið út af fyrir sig að
sjá Gene Hackman leika frekar
misheppnaða týpu. Hann er allt
annað en vanur því.
Það mætti sjálfsagt fetta fingur
út í ýmsar gloppur í söguþræði,
t.d. vantar dálítiö upp á að sum-
ar hliðarsögur séu klárabar enda
persónur mjög margar, en sem
gamanmynd og afþreying stend-
ur Náið þeim stutta fyllilega fyr-
ir sínu.