Tíminn - 04.04.1996, Blaðsíða 15

Tíminn - 04.04.1996, Blaðsíða 15
*r\rvi- *■ ;-----------t-» w*********!!1^ T Fimmtudagur 4. apríl 1996 . .................. - -... iHÍfffHÍff ......................... —.............. 15 Málverk af drápunum í ípatjevhúsi. hin annaöhvort af Maríu eöa Anastasíu. Meö hliösjón af lýs- ingum á aöförunum viö moröin þykir þó mjög ólíklegt aö þau hafi komist lífs af. Hollustan viö keisaradóm og keisaraætt, sem stendur djúpum rótum meö Rússum og er nán- ast trúarlegs eölis, dó aldrei út á sovéttímanum og fundur beina fjölskyldunnar Rómanov hefur átt drjúgan þátt í aö þær kennd- ir eru orönar virkur — og vegna endaloka fjölskyldunnar og sov- éskrar fortíöar viökvæmur — þáttur í rússneskum veruleika, þ.á m. stjórnmálum og valda- baráttu. Þess vegna m.a. hefur dregist á langinn aö veita jarö- neskum leifum fjölskyldunnar og þjóna hennar viöeigandi greftrun. í Moskvu og Péturs- borg sjást margir klæddir svört- um-hvítum-gullnum flíkum - þ.e.a.s. meö keisaralitunum. Tvíhöföa keisaraörninn er aftur kominn í ríkisskjaldarmerki Rússlands og á húfur hershöfö- ingja þess. Moröstaöurinn í Jekaterín- búrg er oröinn aö pílagríma- staö. Siöur er oröinn aö nýgift hjón krjúpi og biöjist fyrir viö stóran steinkross, sem reistur hefur veriö þar sem ípatjevhús- ið stóð. Veikt fólk og heilsutæpt kemur þangað með blóm, krossa og kertaljós, kannski í von um bata. Þjóöernissinnar eru líklega vonbestir um aö geta gert sér pólitískan mat úr þessu, en ólík- legt er að kommúnistar banda- menn þeirra séu eins hrifnir í því samhengi. Frá sjónarhóli rússnesku rétttrúnaðarkirkjunn- ar séö er eölilegt, meö hliðsjón af því hvern dauðdaga Róm- anovfjölskyldan hlaut, að taka hana í dýrlingatölu, en því hlyti aö fylgja að patríarki kirkjunnar yröi ótvírætt aö fordæma morö- in og þann sem fyrirskipaði þau — Lenín. Pétursborg og Jekater- ínbúrg vilja báöar fá Rómanov- fjölskylduna jarösetta hjá sér. Jeltsín er sagöur ætla aö leiða mál þetta allt hjá sér þangab til eftir forsetakosningar. Anatolíj Sobtsjak, yfirborgar- stjóri Pétursborgar, sagöi nýlega í einkaviðræðu að hann teldi þaö aðeins „tímaspursmál, hve- nær Rússland yröi stjórnarskrár- bundiö keisaradæmi með Ge- orgíj stórfursta sem keisara." Georgíj þessi er af Rómanovætt, 15 ára og býr skammt frá Madr- id hjá móöur sinni, Maríju Vladímírovnu stórfurstynju. Allnokkrir fleiri Rómanovar eru á dreif um heiminn og hafa sumir gert það gott. Einn þeirra, sem opinberlega heitir Paul Ilynski og er náfrændi síðasta Rússakeisarans, er borgarstjóri í Palm Beach í Flórída. Hótel Örk j ■ ■ 1 Swspufííðfk Bensmslóö ■ M 1 1 J 1 I áS 1 Hnngtofgið /B V vefður upplýst \ _ M0T 1 UJUMVimiiiii, iu.i4i i l i« jm.c ^ / Hfíiigv^w |TÍ Isí W | 1 1 ■m- u I Hringtorg við Hveragerbi Vegageröin hefur auglýst út- boö á gerö hringtorgs á vegamótum Þjóbvegar 1, Þorlákshafnarvegar og inn- komu í Hveragerbi, Breibu- mörk. Mikib hefur verib um slys á þessum vegamótum og segir í Framkvæmdafrétt- um Vegagerbarinnar ab hringtorg hafi þótt farsæl- asta lausnin mibab vib fjár- veitingar. Vegamótin viö innkomuna í Hveragerði eru svokölluð X- gatnamót en þau eru alltaf mjög hættuleg, eftir því sem segir í Framkvæmdafréttum. Þar kemur fram að vegamótin hafa veriö einn stærsti „svart- bletturinn" á þjóðvegakerf- inu. Á árunum 1984-1994 uröu þar 25 umferöarslys, þar af 5 meö miklum slysum á fólki. Oft er X-gatnamótum breytt meö því að mynda tvö T- gatnamót en það þótti of kostnaðarsamt á þessum staö. Mislæg gatnamót kosta einnig miklu meira en svo að fjár- veitingar dugi til. Hringtorg varö því fyrir valinu þótt það muni óneitanlega tefja fyrir umferö um Hringveginn. -GBK Afreksmenn fá styrki Afreksmannasjóöur ÍSÍ úthlut- abi 1,3 milljónum króna á öbr- um fundi sjóbsins á árinu. Af þeim kom 1 milljón í hlut Frjálsíþróttasambands íslands vegna lokaundirbúnings fyrir Ólympíuleikana í Atlanta. Líklegt er aö langflestir kepp- endur Islands á Ólympíuleikun- um komi úr rööum frjálsíþrótta- manna. Meö úthlutuninni vildi sjóösstjórnin einnig viðurkenna FRÍ fyrir frábæran árangur kepp- enda á Evrópumótinu innan- húss nýverið. Aörir sem fengu úthlutað voru Júdósamband Islands, kr. 200 þúsund og Sundsamband ís- lands, kr. 125 þúsund. Meö þessu hefur Afreks- mannasjóöur ÍSÍ veitt tæplega 6,7 milljónum króna til afreks- íþróttafólks á árinu og rúmum 56 milljónum frá árinu 1990. ■ Islandssmótiö í sveitakeppni ferfram í dymbilvikunni: VIB eba Landsbréfum spáb sigri Úrslit íslandsmótsins í sveita- keppni fara fram nú í dymb- ilvikunni en 10 sveitir munu spila til úrslita. Tvær umferb- ir eru á mibvikudag, þrjár á skírdag, tvær á föstudaginn langa og tvær á Iaugardag. Spilastaöur er Bridshöllin, Þönglabakka. Sveitirnar sem eigast viö eru eftirfarandi í töfluröð: Samvinnuferöir Landsýn VÍB Aðalsteinn Jónsson Ólafur Lárusson Landsbréf Þormóður Rammi Lyfjaverslun íslands Búlki hf. Anton Haraldsson Bangsímon Eins og komið hefur fram í blaöinu spá fróöir menn Lands- bréfum eöa VÍB sigri en báöar sveitirnar eru skipaðar fremstu spilurum landsins og kæmi sig- ur þeirra því ekki á óvart. Samt er ekkert fyrirsjánalegt í bridge og þátttaka Alla ríka og liös- manna hans frá Austurlandi í úrslitunum segir meira en mörg orö því til staöfestingar. Sjón er sögu ríkari og hvetur umsjónar- maður þáttarins áhugasama spilara að kíkja í Mjóddina um páskana og horfa á það besta sem íslenskur bridge hefur upp á aö bjóöa. Páskaþrautir Samkvæmt venju fá lesendur hér þrjár páskaþrautir til að stytta þeim stundir í páskafrí- inu. Öll spilin miðast viö sveitakeppni og munu svörin BRIDGE BJÖRN ÞORLÁKSSON veröa birt í næstu viku. Gleðilega páska. ♦ 83 ¥ 954 ♦ 86543 ♦ T54 N S 4, ÁDGT9 ¥ G3 ♦ Á + ÁKDG2 Suður er sagnhafi í fjórum spöðum og vestur hefur vörn- ina á aö spila þrisvar sinnum hjarta. Hvernig er besta fram- haldið? Á 9864 ¥ 842 ♦ D542 * Á2 N S A ÁKDGT ¥ ÁK6 ♦ ÁK98 * 8 Suður er sagnhafi í 6 spööum án þess aö andstæðingarnir blandi sér í sagnir. Vestur spilar laufdrottningu sem drepin er á ás og trompar lauf. Þá er spaða- ás tekinn og báöir fylgja lit. Hvernig er besta framhaldib? * DG7 ¥ 64 * G52 * KG743 N S á - ¥ ÁKDG97 ♦ ÁK63 * Á52 Suður spilar 6 hjörtu og AV blanda sér ekki í sagnir. Vestur spilar út hjartasjöu. Hvernig er best að spila?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.