Tíminn - 31.10.1986, Qupperneq 1
^ ^ ^ STOFNAÐUR1917
liminn
SPJALDHAGI
allarui
upplýsingar
á einum staó
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986 - 248. TBL. 70. ARG.
ISTUTTU MALI...
SAMORA MACHEL forseti
Mósambik lést samstundis þegar flug-
vél hans hrapaði á suður-afrískt land-
svæði fyrr í þessum mánuði. Það var
Pik Botha utanrfkisráðherra Suður-
Afríku sem sagði þetta í tilefni blaða-
fregna um að Machel hefði verið í lífi
fjórum klukkustundum eftir flugslysið.
HRAUN flæddi út úr opum í norð-
austurhlíðum eldfjallsins Etnu í gær
og fylgdi hraunflæðið í kjölfar þriggja
jarðskjálfta á Sikiley. Sérfræðingar
flugu til fjallsins en ekki var haldið að
hraunflæðið ógnaði byggðum við ræt-
ur fjallsins.
MATTHÍAS BJARNA-
SON , samgöngumálaráðherra hef-
ur hafnað hugmyndum um að aðrir
aðilar en Flugleiðir sjái um póstflug.
Hugmyndir þess efnis komu fram ný-
lega hjá Pósti og síma vegna óánægju
stofnunarinnar með þjónustu Flug-
leiða. Telur P&S að of oft hafi komið
fyrir að Flugleiðir hafi látið póstflutn-
inga sitja á hakanum. Hefur P&S lýst
vonbrigðum sínum með þessa ákvörð-
un ráðherrans.
VINNUSLYS Bíldshöfða í gær
þegar 16 ára piltur lenti með annan
fótinn undir malbikunarvél. Unnið var
að malbikunarframkvæmdum þegar
slysið átti sér stað. Mun líðan piltsins
vera eftir atvikum góð.
VINNUVEITENDASAM-
BAND íslands hefur sent ASÍ bréf,
þar sem hvatt er til þess að undirbún-
ingi fyrir komandi kjarasamninga verði
flýtt svo sem kostur er. VSÍ telur
áríðandi að hefja viðræður hið fyrsta
milli fólaganna. Bréf þetta er árangur
af birtingu ályktunar ASÍ, sem Tíminn
greindi frá í gær, en þar var mörkuð
stefna félagsins í komandi samning-
um.
MARGARETHE II Dana-
drottning hefur sæmt Guðrúnu J. Hall-
dórsdóttur, skólastjóra Námsflokka
Reykjavíkur, riddarakrossi Dannes-
brogsorðunnar fyrir hin miklu og góðu
störf hennar í sambandi við dönsku-
kennsluna í íslenskum skólum. Sendi-
herra Dana, H.A. Djurhuus, afhenti
henni orðuna 24. þ.m.
KOMIN ERU á markaðinn jóla-
kort Styrktarfélags vangefinna. Að
þessu sinni eru þau með myndum af
verkum listakonunnar Sólveigar
Eggerz Pétursdóttur og Úlfs Ragnars-
sonar, læknis.
Kortin verða til sölu á skrifstofu félags-
ins, Háteigsvegi 6, í versiuninni Kúnst,
Laugavegi 40 og á heimilum félagsins.
Öllum ágóða af sölu jólakortanna verð-
ur varið til styrktar málefnum vanaef-
inna, en um þessar mundir er verið að
Ijúka framkvæmdum við byggingar
félagsins í Víðihlíð.
GUNNLAUGUR Finnsson
kaupfélagsstjóri á Flateyri og fyrrum
alþingismaður hefur ákveðið að gefa
kost á sér í prófkjöri Framsóknar-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi. Áður
hafa tilkynnt þátttöku Ólafur Þ. Þórðar-
son, Pétur Bjarnason og Guðmundur
Hagalínsson. Prófkjörið fer fram 6.-7.
desember en framboðsfrestur rennur
út 8. nóvember.
KRUMMI
„Næsta skrefið er
flytja inn síld
Rússlandi. “
Hér má sjá nokkra þeirra, sem staðið hafa í undirbúningi fiskmarkaðar í Hafnarfirði, en það er stjórnarfólk úr Útvegsmannafélagi Hafnarfjarðar
og hafnarstjórn bæjarins. í baksýn má sjá hvar fiskmarkaðnum er hugsaður staður. límamjnd: Svemr
Fiskmarkaöur í Hafnarfirði:
Leitað verður eftir
hlutafjárloforðum
á alménnum fundi á laugardag
Útvegsmannafélag Hafnarfjarð-
ar í samvinnu við hafnarstjórn
Hafnarfjarðar hefur ákveðið að
gangast fyrir söfnun hlutafjárlof-
orða fyrir hlutafélag sem stofnað
yrði um rekstur fiskmarkaðar í
Hafnarfirði. í þessu skyni hefur
Útvegsmannaféíagið ákveðið að
boða til sérstaks fundar um málið
á laugardag. Auk þess að safnað
verður hlutafjárloforðum á fundin-
um mun Gunnlaugur Sigmundsson
gera þar grein fyrir niðurstöðu
nefndar sem skipuð var af sjávar
útvegsráðuneytinu um rekstur fisk-
markaðar og fulltrúi frá hafnar-
stjórn Hafnarfjarðar mun gera
grein fyrir fyrirhuguðum bygginga-
framkvæmdum bæjarfélagsins í
tengslum við þennan uppboðs-
markað.
Á blaðamannafundi sem boðað
var til af hafnarstjórn og Útvegs-
mannafélagi Hafnarfjarðar í gær
gerðu hlutaðeigandi aðilar grein
fyrir hugmyndum sínum um upp-
boðsmarkað á fiski í Hafnarfirði.
Að sögn Guðrúnar Lárusdóttur
formanns Útvegsmannafélagsins
er hugmyndin sú að markaðurinn
geti annað 240 tonnum af fiski á'
sólarhring og til þess að koma
rekstri slíks markaðar af stað þurfi
að koma til 12-14 milljónir í hluta-
Fíkniefnalögreglan í Reykjavík:
Tveir í gæsluvarðhald
vegna amfetamínsmygls
Tveir menn hafa verið úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald vegna
talsverðs magns af amfetamíni
sem fannst á vinnustað þeirra.
Maður var handtekinn fyrir réttri
viku síðan, og var hann úr-
skurðaður í tuttugu daga gæslu-
varðhald síðastliðinn laugardag.
Hann er 45 ára gamall. Síðastlið-
inn mánudag var síðan annar
maður handtekinn, 32 ára gamall
og hefur hann verið úrskurðaður
í vikulangt gæsluvarðhald frá
þriðjudegi að telja.
Ástæðan fyrir því að ekki hefur
verið sagt frá þessu máli er sú að
fréttaleynd hefur hvílt á rannsókn
málsins meðan hún hefur staðið
yfir. Reynir Kjartansson rann-
sóknarlögreglumaður, sem vinn-
ur að rannsókn málsins sagði í
samtali við Tímann að ekki væri
víst að öll kurl væru enn komin
til grafar.
Málið hefur verið nokkuð um-
fangsmikið og hafa sjö aðilar
verið yfirheyrðir í tengslum við
rannsóknina. Þá hafa alls verið
framkvæmdar sex húsleitir, og
við þær hafa fundist nokkur
grömm af amfetamíni.
Amfetamínið sem varð kveikj-
an að handtöku mannanna
tveggja fannst á vinnustað þeirra
í stóru fyrirtæki í Reykjavík. Var
efnið falið í aðstöðu starfsfólks-
ins. Báðir mennirnir sem hand-
teknir voru, voru starfsmenn
fyrirtækisins. Þeir hafa báðir
ítrekað komið við sögu hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar.
- ES
fé. Hafnarfjarðarbær hefur hins
vegar boðist til að útvega húsnæði
undir starfsemina, enda kæmi slík-
ur markaður til með að verða mikil
lyftistöng fyrir bæjarlífið. Bæjar-
ráð hefur ákveðið að láta reyna á
það hvort unnt sé að fá aðra en
bæinn til þess að taka þátt í bygg-
ingu húsnæðis fyrir fiskmarkaðinn
og í því skyni var leitað eftir
tilboðum í slíkar byggingar. Til-
boðin sem bárust voru mjög mis-
munandi og voru á bilinu á milli
20-50 milljónir króna. Á blaða-
mannafundinum í gær kom fram
að vilji er fyrir því að hafnarstjórn-
in taki að sér nauðsynlegar bygg-
ingaframkvæmdir ef hagsmunaað-
ilar eða aðrir hafa ekki áhuga á að
taka þátt í þeim. Þegar er hafnar-
aðstaða fyrir hendi þar sem er
Óseyrarbryggjan, en byggja þarf
fiskmarkaðshúsið sjálft, frysti- og
kæligeymslu, og hús undir skrif-
stofur og ýmis konar þjónustu.
Mikill áhugi mun vera meðal
Hafnfirðinga um að fiskntarkaður-
inn verði staðsettur í bænum, en
önnur byggðalög, s.s. Reykjavík,
Sandgerði o.fl. hafa einnig hug á
að fá markaðinn í sitt bæjarfélag.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra hefur sagt að hann
muni á þessu þingi beita sér fyrir
nauðsynlegum lagabreytingum á
lögum um Verðlagsráð sjávarút-
vegsins til þess að tilraun um
uppboðsmarkað á fiski geti komist
í framkvæmd sem fyrst.
- BG