Tíminn - 31.10.1986, Síða 6

Tíminn - 31.10.1986, Síða 6
6 Tíminn ÚTLÖND FRÉTTAYFIRLIT BONN — Hans Dietrich Genscher utanríkisráöherra Vestur-Þýskalands sagöist ekki sjá að neinn leiðtogafund- ur yrði haldinn fyrr en sam- komulag um takmörkun vía- búnaðar hefði náðst og biði einungis undirskriftar. MOSKVA — Pravda, dag- blað sovéska kommúnista- flokksins, sagði áfvopnunar- viðræðurnar milli stórveldanna í Genf sýna að Bandaríkja- stjórn hygðist losa sig út úr þeim málum sem rædd voru á leiðtogafundinum í Reykjavík. TEHERAN — (ranskar her- þotur gerðu loftárásir á virki Iraka handan við Suðurvíg- stöðvarnar. Talsmaður (rans- hers sagði skaeruliða írans- stjórnar í herbúðum íraka handan víglínunnar einnig hafa sprengt vatnsorkuver í Norður-lrak í loft upp. JÓHANNESARBORG — Stjórn Botha forseta neitaði reiðilega ásökunum um að hún hefði staðið á bak við flugslysið fyrir tæpum tveimur vikum er varð Samora Machel Mósamb- ikforseta að bana. SEOUL — Yfirvöld í Suður- Kóreu sýndu vinstrisinnuðum stúdentum fram á lögreglu- styrk sinn en stúdentarnir, sem haldið hafa sig inni í bygging- um háskólans í Seoul í tvo daga, neituðu að gefast upp. TOKYO — Satoshi Sumita bankastjóri japanska Seðla- bankans gaf í skyn að bankinn hygðist lækka vexti í fjórða skiptið á þessu ári. Markaðs- sérfræðingar töldu að ráð- stöfunin myndi bæta dalandi efnahagslíf Japana og auka á vinsældir Reaganstjórnarinnar nú þegar stutt er í kosningar til þingsins. STOKKHÓLMUR Verkfalli 1,5 milljóna ríkis- starfsmanna í Svíþjóð, sem staðið hafði yfir í fjórar vikur, lauk þegar komist var að sam- komulagi um launasamning sem gildir til tveggja ára. RÓM — Matvæla- og land- búnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna(FAO) hefur ákveðið að senda hjálpargögn fyrir rúmlega 22 milljónir dollara til afganskra og eþíópískra flótta- manna sem og fórnarlamba þurrka í Nepal og fellibyls í Víetnam. Föstudagur 31. október 1986 Bretland: Sá sjálfstæði selst vel - Nýjasta dagblað Breta þykir bera með sérferska strauma sem margir hafa beðið eftir Breskur blaðamarkaður er mikili og nokkuð fjölskrúðugur. The Independent þykir þó koma með nýja strauma. Lundúnir-Reuter Nýjasta dagblað þeirra Breta, The Independent (Sá sjálfstæði), gerir það gott um þessar mundir. Salan á blaðinu gengur vel og auglýsendur laðast í meira mæli að því. Sam- keppnisaðilar í blaðaheiminum breska fylgjast því vel með gangi blaðsins þessa dagana. Sérfræðingar telja þó alltof snemmt að fara að spá því að blaðið eigi langa lífdaga fyrir höndum. Fleet Street, heiti sem breska press- an er vanalega kennd við þótt mörg blaðanna séu ekki lengur með rit- stjórnir sínar í þessu hverfi í Lundúnum, er nefnilega ekki þekkt fyrir að veita nýjum né gömlum fyrirtækjum öruggt skjól í stræti sínu. Þrátt fyrir varnaðarorð sérfræð- inga er ekki því samt að neita að blaðið hefur, í þær þrjár vikur sem það hefur komið út, komið með nýja og ferska anda í blaðaheim Breta. Blaðið reynir að höfða sem mest til ungra og velstæðra menntamanna á aldrinum 20 til 45 ára og þykir gera fjármálum og erlendum málefnum afargóð skil auk þess sem myndir í blaðinu þykja skýrar og góðar. Flest blöð Bretlands byggja efni sitt á samsetningi af kynlífssögum og nektarmyndum sem og glæpum og hneykslismálum ýmiskonar. Nægir að nefna blöðin Sun og News og The World í þessu sambandi. Enginn einn eigandi er að The Independent og þykir það góð til- breyting því venjulega eru það auð- ugir blaðakóngar sem ráðið hafa mestu ef ekki öllu um framtíð blað- anna í Fleet Street. Eigendur The Independent hafa reiknað út að selja þurfi um 375 þúsund eintök af blaðinu á dag til að reksturinn geti staðið undir sér. Hingað til hefur það tekist og gott betur, raunar seldust um 600 þúsund eintök af blaðinu fyrstu dagana. „Salan hefur verið ótrúlega stöðug síðustu daga“, sagði Douglas Long framkvæmdastjóri hins nýja blaðs sem telur söluna nú vera milli 350 til 400 þúsund eintök á dag. Ljóst þykir að hið nýja blað muni ekki einungis þurfa að ná til sín nýjum lesendum til að halda lífi heldur einnig taka lesendur frá risum á borð við The Times, The Guardian og The Daily Telegraph. Slíkt gæti reynst erfitt en á meðan fylgjast margir með af áhuga og íhuga nýja möguleika sem nú bjóðast í blaðaút- gáfu vegna nýrrar og fjölbreyttrar tækni. Vatíkanið: Samkynhneigðir bundnir við þrá Valíkanið-Keuter Vatíkanið gaf í gær út sína fyrstu meiriháttar yfirlýsingu í tíu ár varð- andi samkynhneigða menn og konur. Þar var sagt að kenna ætti samkynhneigðum einstaklingum að kynlíf þeirra væri siðferðislega óboð- legt rómversk-kaþólsku kirkjunni. Afstaða kirkjunnar hefur verið skrifuð upp af siðanefnd þeirri, sem lítur eftir að farið sé að reglum kirkjunnar, og send til allra biskupa rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Yfirlýsingin birtist í tólf síðna plaggi sem Jósef Ratzinger kardínáli og æðsti embættismaður siðareglu- nefndarinnar skrifaði upp og sam- þykkt var af Jóhannesi Páli páfa. Ratzinger sagði að nauðsynlegt hefði verið að skrifa plaggið þar sem borið hefði á því á undanförnum árum að sumir teldu samkynhneigð vera réttlætanlega eða jafnvel góða. í plagginu er sú afstaða rómversk- kaþólsku kirkjunnar, að þrá sam- kynhneigðra sé ekki syndsamleg heldur kynlíf þeirra, ítrekuð. Bent er á að samkynhneigðir einstaklingar geti tekið þátt í starfi kirkjunnar svo framarlega sem þeir stundi ekki kynlíf af þessu tagi. Þær skoðanir sem fram hafa kom- ið á undanförnum árum, nefnilega að samkynhneigð sé ekki sérstaklega fordæmd í biblíunni eða að fyrirmæli hennar eigi ekki lengur við í nútíma- þjóðfélagi, eru harðlega gagnrýndar í áðurnefndu plaggi og sagðar standa „gegn sannleikanum". Vatíkanið rak í ágústmánuði síð- astliðnum bandarískan guðfræðing, Charles Curran, úr starfi sínu sem kennara við kaþólska háskólann í Washington. Hann þótti hafa aðrar skoðanir en kirkjan á siðferðislegum hlutum tengdum kynlífi, þar á meðal samkynhneigð. í september varð Raymond Hunthausen erkibiskup í Seattle einnig að láta af mörgum störfum sínum vegna skoðana sinna á þessum málum. Hafa þessar ákvarðanir Vatíkans- ins vakið miklar umræður og deilur innan bandarískra kirkjusafnaða. Páfi vill fara til Brasilíu aftur árið 1988 en þangað kom hann árið 1980. Páfi vill heimsækja Brasilíu í annað sinn Brasilía - Reuter Jóhannes Páll páfi vill heimsækja Brasilíu í annað sinn árið 1988. Það var Ivo Lorscheiter erkibiskup, for- seti landssamtaka brasilískra biskupa, sem tilkynnti þetta í gær. Lorscheiter, sem hitti páfa í Va- tíkaninu í síðustu viku, sagði Jó- hannes Pál hafa lýst yfir áhuga sínum að koma aftur til Brasilíu einhvern tímann á árinu 1988. Erkibiskupinn sagði páfa hafa hug á að heimsækja eitthvað af þeim svæðum sem hann kom ekki til í heimsókn sinni til Brasilíu árið 1980. Brasitía er eitt af fjölmennustu rómversk-kaþólsku ríkjum heims og er talið að um 90% þeirra 135 milljón manneskja sem landið byggja játi þá trú. ÚTLÖT UMSJÓN: Heimir Berqsson BLAÐAMAÐUR Ástralía: Brautglugga og gerði síðan við Melbourne-Reuter Gluggaviðgerðamaður einn í Ástralíu hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðisbundið fangelsi fyrir að láta brjóta glugga sem hann síðan bauðst til að gera við. Cesare Dichiera, 43 ára gamall Melbournebúi, borgaði ungum aðstoðarmanni sínum fé fyrir að henda múrsteinum í gegnum glugga. Dichiera kom síðan vett- vang og bauðst til að skipta um rúðu og gera það á kostakjörum. Dichiera játaði að hafa látið brjóta glugga félagsmiðstöðvar einnar sem hann fékk síðan það hlutverk að gera við. Dómarinn í málinu sagði að Dichiera hefði neyðst til að selja fyrirtæki sitt vegna þess hve mikla athygli mál þetta hefði vakið. Hann sagðist því hafa ákveðið að dæma gluggabrjótinn og viðgerð- armanninn Dichiera í skilorðis- bundið fangelsi þar sem hann hefði fyrir fjölskyldu að sjá.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.