Tíminn - 31.10.1986, Síða 8

Tíminn - 31.10.1986, Síða 8
Timimi MÁLSVARIFRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason Ritstjóri: NíelsÁrni Lund Aöstoöarritstjóri: OddurÓlafsson Fréttastjóri: Eggert Skúlason Auglýsingastjóri: SteingrimurGíslason Skrifstofur: Síöumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.-, Vemdum velferðarkerfið Fjárlög fyrir áriö 1987 voru rædd á Alþingi í gær. Útgjaldaliðir frumvarpsins eru upp á 41,5 milljarð króna en tekjur eru áætlaðar um 40 milljarðar, og er rekstrarhalli ríkissjóðs því áætlaður um 1,5 milljarður króna. Megin orsök þessa rekstrarhalla má rekja til þess er ríkisvaldið tók á sig fjárhagsbyrðar vegna kjarasamning- anna í vetur sem eiga sinn stóra þátt í þeirri góðu stöðu efnahagsmála sem nú er. Guðmundur Bjarnason, varaformaður Fjárveitinga- nefndar flutti ítarlega ræðu við umræðuna og kom m.a.inn á málaflokka sem þarfnast úrbóta. Hann taldi núverandi skattakerfi bæði ranglátt og götótt og að það þarfnaðist verulegra breytinga og endurskipulagningar. Sérstaklega átaldi hann hvernig komið væri fyrir tekjuskattinum og sagði um það atriði: „Tekjuskattur- inn á í eðli sínu að vera jöfnunartæki stjórnvalda til þess að jafna milli þeirra sem mikið bera úr býtum og hinna sem minna mega sín, en því miður virðist þróunin hafa orðið sú að undanförnu að hann hefur þvert á móti leitt til þess að auka ójöfnuð í þjóðfélaginu.“ Ljóst er að nokkur atriði í frumvarpi fjármálaráð- herra eru sett fram án nokkurs samráðs við þingflokk Framsóknarflokksins, og þar af leiðandi óvíst um afgreiðslu þeirra. Par má nefna viðbótarlækkun framlaga ríkissjóðs til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sem stendur í sambandi við skólaakstur grunnskólanema, en ekkert samkomulag liggur fyrir milli sveitarfélaganna og ríkisins um skiptingu þess kostnaðar. Hugmyndir fjármálaráðherra um frestun á fram- kvæmdum ÁTVR eru góðra gjalda verðar en aftur á móti orkar tvímælis að sá niðurskurður bitni einungis á byggingu Áfengisverslunarinnar í Mjóddinni sem ákveð- in var 1977, en þess í stað allt kapp lagt á að opna áfengisútsölu í Kringlunni en þar keypti ÁTVR húsnæði á þessu ári. Svo virðist sem ákvörðun um þetta hafi verið tekin eftir að KRON keypti verslun í Mjóddinni fyrir nokkru. Sé svo, er um pólitíska geðþóttaákvörðun fjármálaráðherra að ræða sem ekki er líðandi. í ræðu sinni gagnrýndi Guðmundur skerðingu tekna ríkisútvarpsins og benti á að nauðsynlegt væri að endurnýja dreifikerfi þess og koma útsendingum Rásar 2 til allra landsmanna. Þetta mál hefur aldrei verið rætt innan þingflokks Framsóknarflokksins og taldi Guð- mundur ólíklegt að þessi niðurskurður yrði samþykktur þar. Orðrétt sagði hann síðan:„í harðnandi samkeppni hljótum við að gera þá kröfu, að svo sé að Ríkisútvarp- inu búið , að það geti gegnt því hlutverki sínu að þjóna öllum landsmönnum. Því er síst tími til þess nú, að ráðast á tekjustofnana, veikja með því undirstöðurnar og draga úr möguleikum Ríkisútvarpsins að gegna sínu mikilvæga hlutverki.“ í lok sinnar ræðu lýsti Guðmundur Bjarnason varafor- maður Fjárveitinganefndar ánægju sinni með megin markmið frumvarpsins sem miða að því að viðhalda efnahagslegu jafnvægi í landinu, og sagði síðan: „Við verðum að standa vörð um það velferðarþjóðfélag sem við höfum á undanförnum árum verið að byggja upp og eigum að vera óhrædd við að afla ríkinu þeirra tekna sem nauðsynlegar eru til að halda því uppi með fullri sæmd.“ 8 Tíminn Föstudagur 31. október 1986 GARRI 1400 heildverslanir Alþýðublaðid fjallaði um heild- versianir á íslandi í ieiðara í gær og sagði m.a.: „ Umfang verslunar á íslandi hef- ur aukist mikið hin síðari ár, og fjárfesting í verslun hefur sjaldan veríð meiri en nú. í upplýsingum, sem Alþýðublaðið fékk frá Þjóð- hagsstofnun, kemur fram að heild- verslanir á íslandi voru tæplega 1400 áríð 1984. Þetta jafngildir því, að hér sé ein heildverslun á hverja 168 neytendur. Af þessum fjölda heildverslana voru aðeins 36 sem unnu að út- ílutningsverslun, 1008 störfuðu að almennri heildverslun, 50 voru í bensín- og olíuinnflutningi. Hjá 850 hcildverslunum voru starfs- menn 5 eða færri. Menn geta velt því fyrír sér hver þörf er á slíkum fjölda heildversl- ana hérá landi, og hvaða áhrifþuð hefur til verðhækkana að svo marg- ar heildverslanir þurfa að halda lífi með öllum þeim tilkostnaði sem þvífylgir.“ Ja, Ijótt er ef satt er, eins og kertingin sagði, og sannar þetta enn einu sinni það sem Garri hefur oft haldið fram að samvinnuversl- un sé miklu hagkvæmari í rekstri en einkavcrslun. Samvinnufyrir- tæki reka hvað sem öðru líður ekki neinar 1400 heildverslanir hér í landinu. Og það ánægjulega er að hér er Alþýðublaðið farið að halda fram sjónarmiðum félagshyggju- fólks, og mætti gera slíkt oftar. Vinnuþrælkun í verslunum Annað sérkennilegt bar líka fyrir augu þegar blöðunum í gær var flett. Morgunblaðið hefur eins og menn vita vcrið að stunda það nú næstliðið að vera á móti Sjálf- stæðisflokknum og sjálfstæðis- mönnum. Þessu er haldið áfram í Stak- steinum blaðsins í gær. Þar er vitnað í grein úr blaði Verslunar- mannafélags Reykjavíkur eftir for- mann þess félags, margyflrlýstan sjálfstæðismann og raunar lengi í fremstu röð í flokknum. Hann ræðir þar afgrciðslutíma verslana og vill sem skiljanlegt er halda honum innan skynsamlegra marka. Þar er hann með hagsmuni félagsmanna í VR í huga, sem ella eiga á hættu að þeim verði þrælkað út með óhóflega iöngum vinnu- tíma. Stakstcinahöfundur setur sig hins vegar upp á móti þessu. Hann heldur fram gagnstæðum hags- munum og hirðir engu þótt starfs- fólk í búðum þurfi að sæta vinnu- þrælkun á borð við það sem þekkt- ist fyrir tíma vinnulöggjafarinnar. Hann cr allur í því sem frjáls- hyggjumenn kalla frelsi í vcrslun, hvað sem það kostar. J6n Baldvin í klemmu Jón Baldvin Hannibalsson hefur á víxl og nokkurn veginn jöfnum höndum stefnt yflr til vinstri og hægri og biðlað ýmist til sjálf- stæðismanna eða alþýðubanda- lagsmanna. Hitt er Ijóst að hér lendir hann í klemmu. Ætlar hann að standa með blaði sínu og reyna að halda hér ein- hverju í líkingu við heilbrigða sky n- semi í verslunarmálum? Eða ætlar hann að elta frjálshyggjuöflin í Sjálfstæðisflokknum í því að leyfa hindrunarlausa vinnuþrælkun á verslunarfólki? Garri. VÍTTQG BREITT Bókvit og framleiðsluraunir Upplýsingaöld er gengin í garð og bætt og aukin menntun gerir kleift að nýta upplýsingarnar. Ask- arnir eru fleytifullir af bókviti. Sýnt er fram á með gildum rökum að menntastofnanir séu í fjársvelti, æðri menntun ábótavant og að Lánasjóður námsmanna 'sé svo naumur að ekki sé við unandi og komi það í veg fyrir að enn fleiri geti stundað langskólanám en raun ber vitni. Háskólum þarf að fjölga um helming. Á sama tíma og menntunarpost- ularnir smala ungviðinu í háskóla sína og reka linnulausan áróður fyrir að belgja menntakerfið enn út, og sér enginn maður fyrir hvar verður látið staðar numið, vantar 5- 6 þúsund manns á almennan vinnumarkað, aðallega í fram- leiðslugreinar. „Nauðsynlegt að sækja vinnuafl erlendis frá,“ segir formaður Fé- lags íslenskra iðnrekenda í viðtali við Tímann í gær. Aðeins í iðnfyr- irtækin vantar yfir þúsund manns. Víglundur Þorsteinsson telur að huga þurfi að skólakerfinu „þannig að það bjóði ungu fólki upp á menntun til starfa við framleiðslu- greinarnar - en stýri ekki öllum í stúdentspróf með það að takmarki að háskólamennta alla þjóðina“. Útlendingar í skítverkin? Eitthvað til í þessu hjá for- manninum. En honum sést yfir lítið atriði sem iðnrekendur mættu huga nánar að. Eru þau launakjör sem þeir bjóða starfsfólki við fram- leiðslustörf svo kræsileg að sótt sé í störf hjá þeim? Hætt er við að fátt ungt fólk sætti sig við þá framtíðar- sýn að vinna æfilangt við færiband eða saumavél fyrir þau kjör sem í boði eru. Þessu er náttúrlega svar- að með því að atvinnugreinarnar standi ekki undir hærri launum. En þá er spurning hvers konar rekstur það sé sem ekki getur boðið lífvæn- leg laun, og hvort hann eigi yfirleitt nokkurn rétt á sér. íslendingar eru hér að vaða inn í vel þekkt mynstur. Unga fólkið er orðið svo vel menntað að það getur ekki og viil ekki starfa við framleiðslu, ómenntuðu gamlin- gjarnir svo fáir að þeir anna ekki illa launuðu skítverkunum og þá er gripið til þess ráðs að flytja inn vinnuafl frá löndum þar sem at- vinnuleysi ogeymd ríkir. Menntaði starfskrafturinn er jafn illa settur og áður, framboðið á honum er meira en eftirspurnin. Og þegar atvinna minnkar við framleiðslu og sorphreinsun situr aðflutta vinnu- aflið sem fastast og bætist í sívax- andi hóp jafnt sprenglærðra sem menntunarsnauðra atvinnuleys- ingja. Þjóðfélagsleg vandamál hrannast upp og sumum þjóðum virðist ekki sjálfrátt um hvernig þær leika sjálfar sig af skammsýni, menntunarhroka og snarbrjáluð- um framtíðarspám einhverra aula sem fengið hafa á sig sérfræðings- stimpil. Launakjörin ráða úrslitum Víða um land er tilfinnanlegur skortur á fólki til að vinna við fiskvinnslu. Á tyllidögum er hún kölluð undirstöðuatvinnugrein. En hún er víst öll meira og minna á hausnum og fólk sækir í hreinlegri og betur launuð störf. Það er sama hvað fiskverð hækkar erlendis, fiskvinnslan getur ekki greitt þau laun sem gerir hana að lífvænlegum og eftirsóttum atvinnuvegi. Skorturinn á vinnuafli er ekki vegna þess að þessi vinna sé erfið og lítt hreinleg. Það eru launakjör- in sem ráða úrslitum. Það sést glöggt á því að margir eru um hvert pláss sem losnar á fiskiskipaflotan- um. Vinna um borð í togurum og öðrum fiskiskipum er erfið og vosbúð meiri en annars staðar. En góðir tekjumöguleikar gera sjó- mennskuna eftirsóknarverða. Menn vilja vinna og leggja hart að sér, aðeins ef launin eru í góðu lagi. Það er því ekki af leti eða ómennsku að fólk vantar í fram- Ieiðslustörf. Launakjörin ráða því hvaða störf eru eftirsóknarverð og hver ekki. Páll Torfi Önundarson,læknir, skrifar grein í Mbl. í gær. Þar sýnir hann fram á mikla offramleiðslu á læknum, þar sem um 3oo þeirra sem starfa erlendis hafi litla von um atvinnu hér á landi. Telur hann að ekki sé þörf á að útskrifa fleiri lækna hér næstu 10- 15 árin. En allir viðkomandi aðilar skelli skollaeyrum við staðreyndum og áfram er haldið með síauknum hraða að mennta fleiri lækna til þess eins að senda þá og fjölskyldur þeirra, nauðugar viljugar til starfa á erlendri grund. Greinarhöfundur segir að það sé engum til góðs að halda áfram á sömu braut, ekki læknanemum, heilbrigðiskerfinu né þjóðfélaginu yfirleitt. Það skyldu ekki vera fleiri grein- ar sem eru að yfirfyllast af sér- menntuðu fólki, sem enginn veit hvað á að gera við, síst af öllu það sjálft. Nýjustu fréttir eru að það sé fýsilegt að láta Kínverja fara að prjóna íslenskar ullarpeysur, þar sem vinnulaun eru fimmfalt lægri en hér á landi. Það er tími til kominn að mál þessi séu tekin föstum tökum og menn reyni að fara að gera sér grein fyrir hvar skórinn kreppir í atvinnulífi og hvers uppvaxandi kynslóð má vænta í framtíðinni í sambandi við atvinnu og afkomu. Einsýnir sérhyggjumenn hafa ráðið ferðinni alltof iengi og atvinnurek- endur verða að átta sig á því að rekstrargrundvöllur fyrirtækja þeirra hiýtur að miðast við að starfsfólk sé sæmilega haldið. Flótti úr framleiðslugreinunum og innflutningur á vinnuafli sam- rýmist hvorki íslensku atvinnulífi né þjóðlífi yfirleitt. OÓ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.