Tíminn - 31.10.1986, Síða 9

Tíminn - 31.10.1986, Síða 9
Tíminn 9 Föstudagur 31. október 1986 VETTVANGUR SKATTKERFID ER BÆÐI GOTOTT OG ORETTLATT Sagði Guðmundur Bjarnason í umræðum um fjárlagafrumvarpið Hér fer á eftir hluti ræðu Guðmundar Bjarnasonar, alþingis- manns sem hann flutti við fjárlagaumræðuna. Frumvarp það til fjárlaga fyrir árið 1987 sem hér er nú til umræðu í sameinuðu alþingi er að þessu sinni lagt fram með umtalsverðum rekstrarhalla, rekstrarhalla upp á ' samtals 1 milljarð 583 millj. kr. Sjálfsagt geta allir verið sammála um það, að óæskilegt er að reka ríkisbúskapinn með umtalsverðum halla, eins og hér er gert ráð fyrir. Slíkt á auðvitað ekki eingöngu við um ríkisbúskap heldur að sjálf- sögðu einnig um öll fyrirtæki, stofnanir, sjóði og síðast en ekki síst um rekstur heimilanna. Öll verðum við að setja okkur það sem meginmarkmið, að við eyðum ekki meiru heldur en við öflum. Slíkt er aðeins réttlætanlegt við sérstakar aðstæður og þær aðstæður, sem hér hafa skapast eiga sínar skýring- ar. Megin orsökina má rekja til þess er ríkisvaldið tók þátt í kjara- samningum á sl. vetri og lagði þar verulega af mörkum með því ann- ars vegar að fella niður tekjur, einkum í formi Iækkaðra tolla og aðflutningsgjalda og hins vegar með því að auka útgjöld svo takast mætti að ná samningum á vinnu- markaðinum. Ég hygg að flestir séu sammála um, að þeir samning- ar hafa verið mikilvægir, þar hafi verið brotið blað og sú samninga- gerð hafi haft veruleg áhrif á fram- vindu og þróun efnahagsmála þess- arar þjóðar. Og sú þróun hefði ekki orðið í þá veru sem raun ber vitni ef ríkisvaldið hefði ekki tekið þátt í samningunum með þessu móti. Þetta leiddi hins vegar til þess, að verulegur halli er nú fyrirsjáan- legur á ríkisfjármálum yfirstand- andi árs og ljóst, að útilokað var, að snúa algjörlega við blaði og leggja að þessu sinni fram halla- laust fjárlagafrumvarp, til þess þarf lengri tíma, aðlögun einhverra ára, en vissuiega er hér reynt að snúa þróuninni við og áætlaður halli næsta árs er verulega lægri heldur en fyrirsjáanlegt er að verður á þessu ári. Tekjuhlið frumvarpsins upp á 40 milljarða króna skiptist f þrjá meginflokka, beina skatta, en þar er stærsti liðurinn tekjuskatturinn upp á 4,8 milljarða eða rúmlega 12% af heildartekjum ríkissjóðs, óbeina skatta upp á 31,3 milljarða, en þar er stærsti liðurinn sölugjald- ið, sem áætlað er að gefi nettó 15,5 milljarða kr. eða tæplega 40% af heildartekjum ríkissjóðs og svo fjármunatekjurnar, sem eru vaxta- greiðslur og arðgreiðslur af fyrir- tækjum eða stofnunum ríkisins upp ' á 2,7 milljarða kr. Endurskipuleggja þarf skattkerfið Varðandi skattamálin almennt vil ég setja fram það álit mitt eða þá skoðun, að það skattakerfi, sem við nú búum við sé bæði götótt og óréttlátt og þarfnist verulegra breytinga, og endurskipulagning- ar. Öllum er ljóst í raun og viður- kenna það a.m.k. undir niðri, að veruleg skattsvik viðgangist í þessu þjóðfélagi og það er brýnt að stjórnvöld takist á við þann vanda. Undan því verður ekki lengur ekist og hefði gjarnan mátt sýna við- brögð við þessu máli fyrr og af meiri festu heldur en gert hefur verið. Reyndar er það ekki ný saga, að slælega sé staðið að þess- um málum, því að þeir fjármála- ráðherrar sem ég hef átt samstarf við hafa lítið sýnt þessu máli skiln- ing eða lítið beitt sér varðandi það, að herða innheimtuaðgerðir og efla innheimtu skatttekna, sem eiga að renna til ríkissjóðs og nú er svo komið, að ekki verður lengur við unað. Það má e.t.v. segja að Albert Guðmundsson hafi í fjár- málaráðherratíð sinni sýnt tilburði í þá átt að efla innheimtu skatta með auglýsingaherferð og fjölgun starfsfólks á skattstofum en ég minnist ekki einnar einustu tillögu í þá átt úr fjármálaráðherratíð Ragnars Arnalds. Þaö þarf að taka á þessum skattsvikum og það þarf að herða til muna allar refsiaðgerðir. Það á að svipta þá menn atvinnuleyf- um, sem gerast brotlegir við skatta- lögin og beita öllum þeim ráðum öðrum tiltækum, sem leitt gætu til bættrar skattinnheimtu og leitt geta til þess, að menn skili í ríkissjóð þeim gjöldum, sem þeim ber og í réttu hlutfalli við tekjur þeirra eða afkomu fyrirtækja þeirra, sem því miður virðist þó vera verulegur misbrestur á. Ósanngjörn skattlagning Varðandi tekjuskattinn að öðru leyti vil ég einnig láta það álit mitt koma fram að mér finnst hann á undanförnum árum hafa orðið óréttlát og ósanngjörn skattlagning í þeirri mynd, sem hann nú er. Við horfum á fjöldann allan af þjóðfél- agsþegnum, sem virðast hafa ærið nóg að bíta og brenna, en taka lítinn þátt í rekstri þessa samfélags. Einhverra hluta vegna hefur þeim tekist að koma sér upp slíku kerfi, að þeir komast hjá því að greiða þau gjöld, sem þeim ber miðað við þann lífsmáta eða þá lifnaðarháttu, sem þeir hafa tamið sér. Tekju- skatturinn á í eðli sínu að vera jöfnunartæki stjórnvalda til þess að jafna á milli þeirra sem mikið bera úr býtum og hinna sem minna mega sín, en því miður virðist mér þróunin hafa orðið sú að undan- förnu, að hann hefur þvert á móti leitt til þess, að auka ójöfnuð í þjóðfélaginu. Sjálfsagt má segja, að það sé uppgjöf stjórnvalda að takast ekki á við þessi mál og láta skattinn á ný gegna því hlutverki, jöfnunarhlutverki, sem hann á að gegna, en miðað við óbreytt ástand stefnir hugur minn miklu fremur til þess, að tekjuskattur verði lagður niður í núverandi mynd og fundið verði upp nýtt skattaform, sem betur þjóni sínum tilgangi og þá þarf að fara aðrar leiðir til þess að jafna lífskjörin. Það ættum við fremur að gera í gegnum trygginga- kerfið heldur en skattakerfið. Geti menn hinsvegar bent á leiðir sem renna á ný styrkum stoðum undir tekjuskattskerfið og nái menn sam- an um að fara þær leiðir þá er ég tilbúinn til að endurskoða afstöðu mína. Varðandi söluskattinn má segja svipaða sögu. Söluskatturinn hefur á undanförnum árum þróast þannig, að auðvelt virðist vera fyrir ýmsa aðila, sem á annað borð eru þannig hugsandi að skjóta honum undan, gera ekki rétt skil til ríkissjóðs, jafnvel þó svo að þeir hafi nú innheimt þennan skatt af skattgreiðendunum, en stungið honum síðan í eigin vasa. Einnig vitum við, að brögð eru að því, að menn geri samninga sín á milli um að söluskattur skuli ekki lagður á og þannig skila sér ekki til ríkis- sjóðs þær tekjur, sem þó er ætlað Guðmundur Bjarnason flytur ræðu sína um fjárlagafrumvarpið. Tlmamynd Sverrír og ráðgert að eigi að greiðast af viðkomandi vörum eða þjónustu. Þetta er að sjálfsögðu óviðunandi. Ég hef átt viðræður við menn, sem mikið hafa fjallað um skatta- mál á undanförnum árum og þeir hafa látið það álit sitt í ljós, að e.t.v. sé nauðsynlegt að taka upp nýtt gjörbreytt skattkerfi. Það þurfi kerfisbreytingu. Nú másegja, að það hafi aldrei þótt góð latína, að framkvæma breytingar aðeins breytinganna vegna, en ( þessu tilfelli kann það að reynast nauð- synlegt og þessir skattfróðu menn, sem ég hef rætt við hafa einmitt bent á það, að með tíð og tfma verði skattalög úrelt, bæði götótt og óréttlát einkum af tveimur ástæðum. Önnur ástæðan er sú, að smám saman læra menn á viðkom- andi skattkerfi finna í því smugur og finna leiðir og aðferðir til þess að komast undan að greiða réttmæt gjöld. Smugur og undanþágur Hin ástæðan er sú, að í tímans rás freistast stjórnvöld einnig til þess, að samþykkja alls konar undanþágur og breytingar á skatta- lögum, ýmiss konar smugur, sem verða síðan þess valdandi, að þeir sem lag hafa á og vilja til geta einnig komið sér undan að greiða réttmæt gjöld eða þau gjöld sem þeim ber með því að nota sér þessi göt, sem stjórnvöld hafa búið til. Þetta er það sem hugsanlega réttlætir kerfisbreytingu breyting- arinnar vegna og jafnvel má færa að því rök, að slíka kerfisbreytingu þyrfti að gera með vissu árabili, e.t.v. 10, 15 eða 20 ára bili, þá þyrfti að taka upp nýtt skattkerfi og hverfa frá því, sem menn hafa áður búið við, sem þá er gjarnan og trúlega orðið hriplekt. Þetta kann að þykja nokkuð harður dómur, en svona horfir þetta mál við mér og þó nú sé ekki tími til þess að ræða frekar um þær leiðir eða þær aðgerðir, sem ég teldi skynsamlegt að viðhafa, þá er nauðsynlegt að menn geri það, og það fyrr en síðar, því að óviðun- andi er að sætta sig við það ástand, sem nú ríkir. Orkuskatt á alla orku í frumvarpinu er gert ráð fyrir sérstöku innflutningsgjaldi af olíu og bensíni sem áformað er að skili ríkissjóði 600 millj. kr. á árinu 1987. Nauðsynlegt er að styrkja fjárhag ríkissjóðs og hafa ýmsar þjóðir í Vestur-Evrópu notað lækkun olíuverðs á heimsmarkaði til að styrkja fjárhag ríkjanna og lækka erlendar skuldir. Hér hefur allur hagur lækkaðs olíuverðs á síðastliðnum mánuðum komið í hlut fyrirtækja og einstaklinga og í sjálfu sér ekki nema gott eitt um það að segja. Ekki hefur enn verið endanlega ákveðið hvernig að þessu máli skuli staðið og er þessi skattlagning því enn í athugun hjá ríkisstjórn og stjórnarflokkum. Ég hefi sett fram þá skoðun mína og geri það einnig hér, að leggja beri orkuskatt á alla orku, jafnt inn- lenda sem innflutta, afla með því ríkissjóði tekna og jafna um leið þann gffurlega og óréttláta mismun sem er á orkuverði í landinu. Það má t.d. gera með því að skatturinn sé jafnhá upphæð í aurum eða krónum á orkueiningu og verði síðan felldur niður eða endur- greiddur hjá þeim orkukaupendum sem nú þegar kaupa orkuna yfir einhverju ákveðnu hámarksverði. Þetta yrði þá um leið eitt skref í þá átt að jafna búsetuskilyrðin í land- Þingmenn falla í freistni Einn liður útgjaldahliðar fjár- lagafrumvarpsins eru fjárfest- ingarnar. Þessi liður hækkar einnig nokkuð umfram verðlagsforsendur frumvarpsins og er samtals upp á 5,2 milljarða kr. Á undanförnum árum hafa stjórnvöld gengið mjög á þessa fjárfestingarliði. Opinber fjárfesting hefur dregist saman og minnkað hlutfallslega miðað við heildarútgjöld ríkisins, en nú er reynt að snúa nokkuð við á þeirri braut. Það er að sjálfsögðu bæði auðvelt og einnig mjög freistandi að vera með yfirboð hvað varðar framlög til fjárfestinga og stofn- kostnaðargreiðslna af hálfu ríkis- ins og ýmsir þingmenn hafa einmitt fallið í þá freistni. Þó að framlög til hafnarframkvæmda svo eitthvert dæmi sé tekið hækki úr 74 millj. kr. í 160millj., um 86millj. eða 116%, þá er vissulega auðvelt að segja að hér sé um allt of lítið fjármagn að ræða. Það hefði þurft að vera mikið hærra. Og mér er það auðvit- að vel ljóst ekki síður en öðrum þingmönnum, að kröfur og óskir um fjárveitingar til hafnarmála og allra annarra opinberra fjárfest- inga eru háar, svo háar að þær upphæðir sem tilgreindar eru hér í þessu frumvarpi duga hvergi nánd- ar nærri. Ef ég tek t.d. dæmi úr mínu kjördæmi, Norðurlandskjördæmi eystra, þá gerir áætlun Vita- og hafnarmálastofnunarinnar ráð fyr- ir því, að brýnar framkvæmdir í því kjördæmi séu upp á 130-140 millj. og er þó sjálfsagt ekki allt talið. Það mætti því segja með nokkrum sanni og með fullum rökstuðningi, að það veitti ekki af þessum 160 millj. kr., sem áætlaðar eru í framkvæmdirnar í þetta eina kjördæmi og ég býst einnig við því, að svipaða sögu megi segja um mörg önnur kjördæmi. Þeim veitti ekki af tugum eða jafnvelhundruð- um milljóna króna til þess að fullnægja óskum og því sem talið er brýnustu þarfir varðandi fram- kvæmdir í höfnum á viðkomandi stöðum. Varðandi hafnarmannvirki lang- ar mig að nefna eitt mál sem ég tel hafa mikla sérstöðu. Hluti af sam- göngumálum Hríseyinga er ferja sem gengur milli eyjarinnar og hafnar á Árskógssandi en þar eru svo mikil þrengsli orðin í höfninni m.a. vegna vaxandi og öflugrar útgerðar þar að ferja Hríseyinga hefur nánast enga aðstöðu til að leggjast þar að og athafna sig. Þetta er orðið algjört ófremdará- : stand. Fólksflutningar með ferjunni eru stöðugt vaxandi og verður vart lengur ekist undan því að taka á þessu máli. Tillaga Vita- og hafn- armálastofnunarinnar er að þar verði byggð sérstök ferjubryggja og er það auðvitað dýrt mannvirki. Ekki er líklegt að hafnarsjóður Árskógshrepps telji sig skuldbund- inn til að Ieggja fram hlut á móti ríki í þessari framkvæmd og Hrís- eyingar eiga að sjálfsögðu nóg með sína höfn. Á þessu verður því að taka með sérstökum hætti enda er hér um samgöngumál að ræða, nánast hluta af vegakerfi Hrísey- inga, sem ekki verður lengur ekist undan að leysa. Um fjárveitingar til skólamann- virkja má segja svipaða sögu og um framlög til hafna. Þar er einnig ljóst, að um allt of lága upphæð er að ræða til þess að fullnægja óskum. Og á undanförnum árum hefur þar að auki skapast sú staða milli ríkis annars vegar og sveitar- félaga hins vegar, að mörg sveitar- félög sem virðast hafa haft rúman fjárhag hafa farið í framkvæmdir, byggt skóla, sundlaugar, íþrótta- hús eða einhver önnur mannvirki, sem rr'kið á að taka þátt í sam- kvæmt lögum, án þess að framlög frá ríki hafi verið fyrir hendi. Við þetta hafa myndast verulegar skuldakröfur af hálfu sveitarfélag- anna á hendur ríkissjóði og í sumum sveitarfélögum eru þessar upphæðir famar að skipta milljóna tugum. Ég tel því, að mjög brýnt sé að skoða það, hvernig hægt sé að standa að uppgjöri við þessi sveit- arfélög. það er í raun hreinn skrípaleikur, að vera að úthluta einhverjum hundruðum þúsunda eða í besta falli tveimur, þremur e.t.v. fjórum millj. kr. til sveitar- félaga, sem telja sig eiga inni milljóna tugi hjá hinu opinbera. Menn verða að átta sig á, hvernig standa eigi að þessum uppgjörs- málum og reyna síðan að koma á áætlanagerð fyrir áframhaldandi framkvæmdir á þessu sviði og sjálf- sagt mætti segja, að gott væri að koma á slíkri áætlanagerð varðandi flestar eða allar framkvæmdir hins opinbera. Þessi aðferð hefur gefist vel hvað varðar vegaframkvæmdir. Þar hefur um langt árabil verið , unnið samkvæmt svokallaðri fjög- urra ára áætlun og þó að hún standist e.t.v. ekki alltaf, þá hygg ég þó að ekki hafi gengið betur að standa við áætlanir í öðrum mála- flokkum heldur en einmitt þar og það ætti því að vera gott fordæmi fyrir stjórnvöld til þess að taka upp svipaða langtíma áætlanagerð varðandi aðrar opinberar fram- kvæmdir. Þessari hugmynd hef ég reyndar hreyft oft áður bæði hér í fjárlaga- umræðu og á öðrum vettvangi og vil enn ítreka það, að ég tel að hér þurfi að taka til hendi og e.t.v. er staðan í skólamálunum einmitt hvatningin eða það sem rekur á eftir að í þetta verkefni verði nú gengið án frekari tafar eða um- hugsunar. Framlög til að styrkja sveitarfé- lög við vatnsveituframkvæmdir eru í frumvarpinu áætluð kr. 10 millj. Fjölmörg smærri sveitarfélög eru nú að undirbúa eða vinna að mjög dýrum vatnsveituframkvæmdum sem sumar hverjar kosta tugi mill- jóna kr. Það er því ljóst að upp- hæð sú sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu dugar skammt til að aðstoða þau sveitarfélög sem hér eiga hlut að máli.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.