Tíminn - 31.10.1986, Qupperneq 19
Föstudagur 31. október 1986
Tíminn 19
HELGIN FRAMUNDAN
Elín Ósk Óskarsdóttir sem Tosca
(Tímamynd Pjetur)
TOSCA í Þjóðleik-
húsinu í kvöld
Elín Ósk Óskarsdóttir fer í kvöld
með hlutverk Toscu í fyrsta sinn í
staðElísabetarF. Eiríksdóttur, en
í kvöld kl. 20:00 er síðasta sýning
á óperunni Toscu fyrir sýningar-
hlé, sem verður um tíma. Er sýn-
ingar hefjast aftur munu þær Elín
Ósk og Elísabet skiptast á í hlut-
verki Toscu, ástkonu listmálarans
Cavaradossi, sem Kristján Jó-
hannsson túlkar.
Tosca er fyrsta óperuhlutverk
Ehnar Óskar. Hún hóf nám i Söng-
skólanum haustið 1979 og var
Þuríður Pálsdóttir kennari hennar
þar. Hún lauk einsöngvaraprófi
1984 og hélt þá til framhaldsnáms
hjá Pier Miranda Ferraro í Mílanó.
Fyrir nokkrum árum hlaut hún
önnur verðlaun í keppni ungra
einsöngvara í sjónvarpinu og hélt
sína fyrstu einsöngstónleika í
Gamla bíói á liðnu hausti. Hún
söng í G-dúr messu Schuberts í
Mílanó og víðar á Ítalíu, auk þess
að taka þátt í tónleikahaldi þar. En
frumraun Elínar Óskar á óperu-
sviðinu verður í Þjóðleikhúsinu í
kvöld.
f kvöld fer Malcolm Arnold
með hlutverk Scarpia, en í því
hlutverki verður Róbert Becker
þegar sýningar hefjast að nýju.
Þá verða einnig mannabreyt-
ingar á hljómsveitarstjórninni og
verður Guðmundur Emilsson þá
hljómsveitarstjóri í stað Maurizio
Barbacini.
Uppreisn á ísaf irði
Sýningar á Uppreisn á ísafirði,
hinu vinsæla leikriti Ragnars Arn-
alds um Skúlamálin í leikstjórn
Brynju Benediktsdóttur verða
bæði á laugardags- og sunnu-
dagskvöld kl. 20:00 í Þjóðleikhús-
inu. Aðsókn og undirtektir hafa
verið mjög góðar. T.d. skrifar
Gunnar Stefánsson í Tímann í
leikhúsgagnrýni: "Þarkomaðþví
að íslenskur leikritahöfundur setti
saman leik um raunverulegar per-
sónur í sögu okkar, fólk sem Ufði
fram á minni núlifandi manna...
skemmtileg og lifandi upprifjun í
nútímaljósi. Sýning fyrir þá sem
hafa gaman af leikhúsi og sögu."
Helgi Björnsson í „Kötturinn sem f er sínar eigin leiðir"
(Ljóun. E.Ól.)
Alþýðuleikhúsið
Kötturinn sem fer
sínar eigin leiðir
Söngleikurinn Kötturinn sem
fer sínar eigin leiðir, eftir Ólaf
Hauk Símonarson verður sýndur í
Bsejarbíói í Hafnarfirði sunnud. 2.
nóvember kl. 15.00. 7 leikarar og
söngvarar koma fram í leiknum.
Leikstjóri er Sigrún Valbergs-
dóttir. Síðan verður söngleikurinn
sýndurþriðjud.4.nóv. kl. 17.00 og
miðvikudaginn 5. nóv. kl. 17.00 og
fimmtud. 6. nóv. kl. 17.00. Miða-
pantanir allan sólarhringinn í
síma 50184. Velkomin í Bæjarbíó.
WHT HHiÆf-™,
Norræna húsið:
Finnskur
sellóleikari
leikur á
sunnudaginn
Sunnudaginn 2. nóv. kl. 17.00
verða tónleikar í Norræna húsinu,
þar sem finnskur sellóleikari, Pauli
Heikkinen leikur ásamt breska
píanóleikaranum David Knowles.
Á efnisskránni eru verk eftir
Bach. Beethoven (12 tilbr. við „ Ju-
das Maccabaeus"), Aulis Sallinen
(Metamorfora) og Schubert („ Arp-
eggione" sónatan).
Pauli Heikkinen er fæddur 1950.
Hann nam við Síbelíusarakadem-
íuna í Helsingfors hjá prófessor
Arto Noras. Þá hefur hann sótt
tima (Master class) hjá Paul Torte-
lier, André Navarra og Mihail
Homizer.
Pauli Heikkinen starfar sem
sellóleikari með Sinfóníuhljóm-
sveit Tammerforsborgar. Hann
hefur haldið tónleika víða um
Finnland og leikið með mörgum
hljómsveitum í Finnlandi. Hann
hlaut 1. verðlaun í alþjóðlegri
keppni fyrir sellóleikara 1978 í
Ábo, en áður hafði hann hlotið
verðlaun í samskonar keppni í
Bristol.
Pauli Heikkinen hlaut styrk frá
Finnsk-íslenska menningarsjóðn-
um til íslandsfararinnar.
David Knowles lauk námi frá
Konunglega tónlistarháskólanum
í Manchester. Hann hefur verið
búsettur á íslandi í nokkur ár og
kennir m.a. við Tónlistarskóla
Garðabæjar og leikur undir hjá
Söngskólanum í Reykjavík.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
N emendaleikhús
Leiklistarskóla íslands:
Leikslok
í Smyrnu
Nemendaleikhús
Leiklistarskóla íslands sýnir
„Leikslok í Smyrnu" í leikgerð
Horst Laube, eftir samnefndu
leikriti Goldonis í kvöld, föstud. kl.
20:30 og síðan á sama tíma á
laugardags- og sunnudagskvöld.
Þýðingu gerði Árni Bergmann,
leikstjóri er Kristín
Jóhannesdóttir, leikmynd og
búninga Guðrún Sigríður
Haraldsdóttir, lýsingu sér Ólafur
Örn Thoroddsen um og Guðrún
Sigríður Haraldsdóttir, en tónlist
Hilmar Örn Hilmarsson.
Miðapantanir er hægt að gera
allan sólarhringinn í síma 21971.
Hægt er að greiða með Visa
greiðslukortum.
II Trovatore
- allra síðasta sýning
Laugardagskvöldið 1. nóvember
sýnir íslenska óperan II Trovatore
eftir Verdi í allra síðasta sinn. Sett
var inn aukasýning vegna mikillar
aðsóknar á síðustu sýningu, en
þar komust færri en vildu
Hljómsveitarstjóri er David Parry.
E.M. segir í leikdómi.
sýningin í heild er áhrifamikil sem
fyrr og skilur eftir hjá manni þá
tilfinningu að óperan Utla handan
við hornið sé töluvert mikið og
merkilegt leikhús."
Leikfélag Reykjavíkur í Iðnó:
Síðustu sýningar
á Svartfugli
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
Svartfugl , leikgerð Bríetar Héð-
insdóttur á frægu skáldverki
Gunnars Gunnarssonar, tvisvar
nú um helgina - á föstudags- og
sunnudagskvöld kl. 20:30 bæði
kvöldin. Þetta eru allra síðustu
sýningar á Svartfugli, en brátt
verður frumsýnt nýtt verk í Iðnó
og þvi verður Svartfugl að víkja.
Sigurður Karlsson og Margrét
Helga Jóhannsdóttir sem
Steinunn Sveinsdóttir og
Bjarni Bjarnason á Sjöundá í
Svartfugli.
Land míns föður
Landið hefur nú verið sýnt alls
156 sinnum og er því komið í röð
vinsælustu stykkja Leikfélagsins
frá upphafi. Uppselt er á nær allar
sýningar. Leikritið verður sýnt nú
á laugardagskvöld kl. 20:30.
Harald G. Haralds, Gísli Halldórsson og Margrét Ólafsdóttir í
leikritinu „Upp með teppið, Sólmundur!"
Upp með teppið, Sólmundur!
Leikritið Upp með teppið, Sól-
mundur! verður næst sýnt á mið-
vikud.5. nóv. kl. 20:30. Ekkiergert
ráð fyrir að sýningar á Sólmundi
standi lengur en út nóvember-
mánuð. Leikfélagið bendir starfs-
mannafélögum, skólum og öðrum
hópum, sem ætla að sjá Sólmund,
á að þeir ættu því að fara að hugsa
sér til hreyfings.
Sýning í GANGSKÖR gallerí:
Pastelmyndir
Probstners
Á morgun, laugard. 1. nóv kl.
14:00 opnar Janos Probstner
sýningu á pastelteikningum í
Gallerí Gangskör Amtmannsstíg
1. Hann sýnir 13 teikningar í
stærðinni 63X78 sm.
Janos Probstner er fæddur í
Búdapest í Ungverjalandi 1943 og
útskrifaðist úr keramikdeild
Listiðnaðarháskóla
Ungverjalands 1970 og kennir nú
við sama skóla. Hann stofnaði
1977 alþjóðlegt keramik
verkstæði í borginni Kecskémét,
þar sem hann býr. Þangað er
keramik-listamönnum boðið víða
að til að vinna að list sinni við
mjög fullkomnar aðstæður.
S.l. 6 ár hefur hann einnig unnið
að teikningum og tekið þátt í
samsýningum víða um heim.
Hann starfar nú sem gestakennari
við Myndhsta- og handíðaskóla
íslands og kennir teikningu við
keramikdeild og auglýsingadeild.
Sýningin stendur til föstudags
14. nóv. og er opin virka daga kl.
12:00-18:00 og um helgar kl.
14:00- 18:00.
Eitt af verkum Janos Probstners
í Gallerí Gangskör