Tíminn - 31.03.1989, Page 4

Tíminn - 31.03.1989, Page 4
4 Tíminn r~ i Mnr Sigrún Magnúsdóttir Létt spjall á laugardegi Er sameiginlegt framboö stjórnarandstöðunnar í borgarstjórn Reykja- víkur vænlegur kostur í næstu borgarstjórnarkosningum sem verða vorið 1990? Þetta og margt fleira munum við taka til umræðu á léttum spjallfundi laugardaginn 1. apríl n.k. Fundurinn verður haldinn í Nóatúni 21 og hefst kl. 10.30. Stefnt er að því að fundinum sé lokið kl. 12.00. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi mun á fundinum reifa þær hug- myndir sem uppi hafa verið að undanförnu um hugsanlegt sameigin- legt framboð stjórnarandstöðuflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur. Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík. Konur á Höfn og nágrenni Fundur um sveitarstjórnarmál verður haldinn á Höfn Hornafirði föstudaginn 31. mars kl. 20.30. Gestir fundarins verða: Guðrún Jónsdóttir, bæjarfulltrúi og Unnur Stefánsdóttir formaður LFK. Allar áhugakonur um sveitastjórnarmál eru velkomnar. Stjórn LFK Sunnlendingar Framsóknarfélögin í Árnessýslu halda sína árlegu árshátíð síðasta vetrardag 19. apríl i Hótel Selfoss. Allir velkomnir. Nánar auglýst síðar. Nefndin. Suðuriand FUF í Árnessýslu og Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu áformar að halda félags- málanámskeið í lok mars og í apríl. Um er að ræða byrjenda- og framhaldsnámskeið. Námskeiðin eru öllum opin sem áhuga hafa. Þátttaka tilkynnist sem fyrst til formanna félaganna. Sigurðar Eyþórssonar í síma 34691 og Ólafíu Ingólfsdóttur í síma 63388. FUF og FFÁ. Páskahappdrætti SUF 1989 Útdráttur í Páskahappdrætti SUF er hafinn. Vinningsnúmer eru sem hér segir: 20. mars, vinningur nr. 1, 5242 vinningur nr. 2, 3145 21. mars, vinningur nr. 3, 1995 vinningur nr. 4, 144 22. mars, vinningur nr. 5, 538 vinningur nr. 6, 7401 Vegna fjölda áskorana eru númerin fyrir dagana 23. til 26. mars í innsigli hjá borgarfógeta til 5. apríl 1989. Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma. Enn er tækifæri til að hljóta glæsilega vinninga. Hvert miðanúmer gildir alla útdráttardagana það er 20. til 26. mars 1989. Munið, ykkar stuðningur styrkir okkar starf. SUF Reykjanes Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222. K.F.R. Borgnesingar, nærsveitir. Spilum félagsvist í samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 31. mars kl. 20.30. Fyrsta kvöldið í 3 kvölda keppni. Mætum vel og stundvíslega. Framsóknarfélag Borgarness. Vinnuveitendasambandið reiknar út mismunandi ávöxtunarleiðir: Bestu vextirnir hjá ríkissjóði flynd 3. ElMSTftKLIMGUR UIMMUR 25 M.KR. 1 HftPPDRflTIl. Ó 5 H.KR. SKULDLAUSfl EIGM FVRIR. SAMAMBURÐUR fl ÁUÖXTUM FJflRFESTIMGAR FVRIR 0G EFTIR SKATTft. A.7 DlSérst. skattur □ Tckjuskattur O J* jóðarbókhlaða □ Stórcignarsk. S Eignarskattur I Hrcinar tckjur RíKISSK.BR UERDBRÉF LEIGUHÚSM. HLUTABRÉF UERSL.HÚSM Hér er sýnd niðurstaðan ef miðað er við 7,5% ávöxtun (vexti umfram verðtryggingu, arð af hlutabréfum eða leigu af húsnæði) í dæmunum fimm. Af ríkisskuldabréfunum heldur eigandinn öllum vöxtunum óskertum. Af verslunarhúsnæði mundi hann hins vegar aðeins halda eftir 0,5% raunvöxtum en hin 7 prósentin færu í skatta. Þessi niynd sýnir hins vegar hver ávöxtunin þyrfti að vera í hverju dæm til þess að fjármagnseigandinn héldi 7,5% ávöxtun eftir skatt. Einstaklingur sem ynni 25 millj.kr. í happdrætti og keypti fyrir þær fjórar fjögurra herbergja íbúðir til að leigja út þyrfti að krefja leigjendur sína um 80 þús. króna leigu á mánuði til þess að hafa jafn miklar ncttótekjur af leigunni (sem hann vitanlega teldi að fullu fram til skatts) eins og hann gæti haft í ávöxtun af spariskírteinum ríkis- sjóðs fyrirsömu upphæð, samkvæmt útreikningum í fréttabréfi Vinnu- veitendasambands Islands. VSI tek- ur fram að ekki sé þó reiknað með viðhaldskostnaði á húsnæðinu og ekki verður heldur séð að reiknað hafi verið með fasteignagjöldum. VSÍ hefur þar reiknað út áhrif tekju og eignaskatta á mismunandi form fjárfestingar og sparnaðar: Ríkisskuldabréf sem eru alveg skattfrjáls. Bankabréf og önnur verðbréf sem eru tekjuskattsfrjáls en eignaskatt- skyld. íbúðarhúsnæði til útleigu sem er bæði tekjuskatts- og eignaskattskylt (ekki reiknað með viðhaldskostn- aði). Hlutabréf, sem eru tckjuskatts- frjáls af tekjum undir 90.000 kr. og verðmæti þeirra undir 900 þús. telst ekki til eignaskattsstofns. Verslunar- og skrifstofuliúsnæði, sem auk tekju- og eignaskatta ber sérstakan skatt sem er 2,2% af fasteignamati. Heimilt er að afskrifa eignirnar um 2% á ári. í dæmum sínum athugar VSÍ sparnaðar eða fjárfestingarmögu- leika einstaklings sem á fyrir 5 millj.kr. skuldlausa íbúð og yrði svo heppinn að vinna stóra vinninginn í Háskólahappdrættinu. En hlutföllin gilda vitanlega þótt féð væri tilkomið á annan hátt, t.d. vegna arfs. VSI segir fasteignarekstur greini- lega litinn óhýru auga af löggjafan- um sem smíðar skattalögin. Eftir síðustu skattahækkanir sé ólíklegt að nokkrum einstaklingi detti til hugar að eiga meiri fasteignir en brýna nauðsyn beri til, því enginn leigjandi geti greitt leigu sem sé sambærileg við ávöxtun þá sem nú býðst af fjármunum t.d. í ríkis- skuldabréfum eða öðrum verðbréf- um. Af 5 milljóna ríkisskuldabréfum með 7,5% vöxtum hefði eigandinn 375.000 kr. vaxtatekjur (auk verð- tryggingar) á ári algerlega skatt- frjálsar. Til að halda eftir sömu nettótekjum af 5 milljóna kr. leiguíbúð þyrfti, samkvæmt útreikn- ingum VSÍ, að leigja hana fyrir 770.000 kr. á ári (rúm 64.000 kr. á mán.). Og af 5 milljóna kr. skrifstof- uhúsnæði þyrfti 940.000 kr. leigu- tekjur (rúm 78.000 kr. á mán.) til þess að halda eftir 375.000 kr. nettó- tekjum eins og af ríkisskuldabréfun- um. Hlutabréfaeign segir VSÍ heldur- ekki vel séða af löggjafanum, nema þá í mjög litlum mæli. Ekkert fyrir- tæki geti boðið hluthöfum sínum þann 16,2% arð, sem þarf til þess að þeir haldi eftir skatt 7,5% hreinum tekjum af fjármagninu, eins og ríkið borgar þcim af bréfum sínum. Bankabréf og önnur verðbréf þurfa að skila 2,8% hærri vöxtum en ríkisskuldabréfin, þ.e. fyrir eiganda sem á fyrir 5 millj.kr. aðrar skatt- skyldar eignir. Tekið skal fram að þar sem ein- staklingur þarf ekki að greiða eigna- skatt af eignum undir 2,5 milljónum (hjón 5 millj.) gilda framangreind dæmi ekki um þá einstaklinga sem eru að safna sinni 1. og 2. milljón. Þeir þurfa t.d. ekki að borga neina skatta af verðbréfum sínum. Tekju- skatt af húsaleigu sleppa þeir hins vegar ekki við. Samvinnuskólinn aö Bifröst: Fyrsta konan í formannsstöðu Ragnheiður Björk Guðmunds- dóttir var kjörinn formaður Skóla- félags Samvinnuháskólans á Bifröst. 16. mars sl. og er hún fyrsta konan sem gegnir formannsstöðunni í rúm- lega sjötíu ára sögu skólans. Samkvæmt nýrri reglugerð er Samvinnuskólinn sjálfstæð stofnun með eigin stjórn sem skipuð er fulltrúum samvinnuhreyfingarinnar og menntamálaráðuneytisins. Á síð- asta ári var ákveðið með samþykki ráðuneytisins að brevta skólanum í sérskóla á háskólastigi og tók Sam- vinnuháskólinn til starfa sl. haust. I tilkynningu frá skólanum segir að skólastörf á háskólastigi hafi gengið vonum framar í Samvinnu- skólanum nú í vetur og sérstæð kennslufræði skólans mótast mjög vcl við fyrstu framkvæmd. M.a. hafi nemendur farið í kynnisferðir í fyrir- tæki, skoðað tilhögun verslana og skilað ýtarlegum greinargerðunt eft- ir úttektir á rekstri fyrirtækja í atvinnulífi nu. -ABÓ Ragnheiöur Björk Guömundsdóttir formaöur Skóiafélags Sanivinnuhá- skólans á Bifröst.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.