Tíminn - 31.03.1989, Side 13
Föstudagur 31. mars 1989
Tíminn 13
rbvr\i\ðð i Mnr
Dustin HofTman í verðlaunahlutvcrki sínu í „Regnmanninum“ þar sem hann ieikur einhverfan stærðfræðisnilling.
Með honum er Tom Cruise sem leikur bróður Hoffmans.
Regnmaðurinn Hoffman
og barstúlkan Foster
hlutu óskarsverðlaun
„Ég vil þakka öllu því einhverfa fólki sem ég kynntist,
fjölskyldum þeirra og læknum fyrir ómetanlegan stuðning,“
sagði Dustin Hoffman þegar hann tók við óskarsverðlaunun-
um fyrir leik sinn í „Regnmanninum“ en þar leikur Hoffman
einhverfan mann sem er sérfræðingur í stærðfræðiþrautum
en getur ekki horfst í augu við fólk né tekist á við daglegt líf.
Þetta eru önnur verðlaun Hoffmans, en hann fékk óskarinn
fyrir leik sinn í Kramer vs. Kramer fyrir tíu árum.
Jodie Foster stóð einnig með ósk-
arinn í höndunum eftir afhendingu
frægustu kvikmyndaverðlauna
heims í Los Angeles í fyrrinótt. Hún
fékk verðlaunin fyrir leik sinn í
myndinni „Hinir ákærðu“ en þar
leikur hún barstúlku sem leitar réttar
síns eftir að henni hefur verið nauðg-
að fyrir framan kráargesti sem
hvöttu nauðgarana til dáða.
Pað var einmitt „Regnmaðurinn"
sem sópaði að sér flestum óskars-
verðlaununum. Sú mynd hlauteinn-
ig verðlaun sem besta mynd ársins,
Jodie Foster sem hlaut verðlaun fyrir leik sinn sem fórnarlamb nauðgara í
„Hinir ákærðu“. Með henni á rnyndinni er leikarinn Leo Rossi.
leikstjóri myndarinnar Barry Levin-
son hlaut verðlaun fyrir bestu leik-
stjórnina og handritið var valið besta
upprunalega handritið.
Kevin Kline hlaut óskarinn fyrir
leik sinn í aukahlutverki í bresku
gamanmyndinni „Fiskurinn Wanda"
og Geena nokkur Davis hlaut verð-
laun fyrir leik í aukahlutverki sem
sérvitur hundatemjari í myndinni
„Á faraldsfæti“.
Mestu vonbrigðin hafa að líkind-
um verið hjá Sigourney Weaver, cn
hún var bæði útnefnd til verðlauna
fyrir besta leik í kvenaðalhlutverki í
myndinni „í þokumistrinu" og í
aukahlutverki í kvikmyndinni
„Vinnandi stúlka". Slíkt hefur ein-
ungis gerst fjórum sinnum áður, en
þá fengu leikkonurnar óskar fyrir
aukahlutverk, en Weaver fór tóm-
hent heim.
Danir geta unað vel við sitt því
danska myndin „Pelle“ hlaut óskars-
verðlaunin sem besta myndin með
erlendu tali. Er þetta annað árið í
röð sem dönsk mynd hlýtur þessi
verðlaun, en í fyrra var „Gestaboð
Babette“ valin besta myndin.
Svíinn Max von Sydow var meira
að segja tilnefndur til óskarsverð-
launa fyrir leik sinn í myndinni þó
hann talaði þar einungis sænsku og
dönsku. Sophia Loren er eini leikar-
inn sem leikið hefur á öðru tungu-
máli en ensku og hlotið óskarsverð-
laun fyrir aðalhlutverk. Það var fyrir
leik sinn í ítölsku myndinni „Tvær
konur“.
Teiknikvikmyndin „Hver skellti
skuldinni á Kalla kanínu“ stóð sig
einnig vel, hlaut þrenn verðlaun.
Það voru verðlaun fyrir bestu klipp-
inguna, bestu myndbrellur og klipp-
ingu á hljóði. Kemur það engum á
óvart sem séð hafa myndina.
Franska myndin „Hættuleg
kynni“ hlaut einnig þrenn verðlaun, '
fyrir bestu búningana, besta handrit
samið upp úr sögu og fyrir bestu
listrænu leikstjórnina.
Þá er aðeins eftir að nefna besta
lagið. Þau verðlaun fékk Carly
Simon fyrir lagið „Let the river run“
í myndinni „Vinnandi stúlka".
Kópavogur
Steingrímur
Hermannsson
Almennur stjórnmálafundur með Steingrími Hermannssyni
forsætisráðherra verður haldinn í Félagsheimili Kópavogs
fimmtudaginn 13. apríl n.k.
Flokksstarfið
Skúli Sigurgrímsson
Skrifstofan að Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvik-
udaga kl. 9-12 s. 41590.
Alltaf heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl. 17.-19.
Skúli Sigurgrímsson bæjarfulltrúi er til viðtals alla miðviku-
daga kl. 17.30-19.00.
Einnig eftir nánara samkomulagi.
Vinnuhópar eru að fara í gang um hina ýmsu þætti
bæjarmála.
Komið, látið skrá ykkur í hópana og takið þátt í stefnumótun
og starfi flokksins.
Framsoknarfelögin í Kópavogi.
Halldór Ásgrfmsson Jón Kristjónsson
Almennir stjórnmálafundir
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og Jón Kristjánsson al-
þingismaður boða til almennra stjórnmálafunda á Austurlandi vikuna
28. mars-2. apríl sem hér segir.
í FélagsheimMinu Stöðvarfirði, föstudaginn 31. mars kl. 20.30.
I Hofgarði öræfum, sunnudaginn 2. apríl kl. 15.00.
Arnesingar
Jón Helgason,
alþingismaður
Guðni Ágústsson,
alþingismaður
Unnur Stefánsdóttir,
varaþingmaður
Árlegur stjórnmálafundur og viðtalstími þingmanna Framsóknar-
flokksins verður haldinn að Borg, Grímsnesi mánudaginn 3. apríl
n.k. kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Fundarboðendur.
Reykjanes
Fulltrúaráð framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi er boðað til
fundar þriðjudaginn 4. apríl n.k. kl. 20.30 að Hamraborg 5, Kópavogi.
K.F.R.
BLIKKFORM
SmiSiuveai 52 - Simi 71234
Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið-
gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla
bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælQnhúðaðir í
öllum litum.
Póstsendum um allt Jand
(Ekið niður með Landvélum).