Tíminn - 31.03.1989, Qupperneq 15

Tíminn - 31.03.1989, Qupperneq 15
Föstudagur 31. mars 1989 TímÍRn 15 MINNING Guðlaugur Jóhannsson bóndi Litla Bakka, Miöfiröi. Fæddur 9. nóvember 1897 Dáinn 15. mars 1989 Frændi niinn, Guðlaugur Jó- hannsson, bóndi á Litla Bakka í Miðfirði, iést á heimili sínu þann 15. þessa mánaðar á nítugasta og öðru aldursári. Guðlaugur var fæddur á Litla Bakka 9. nóvember 1897. For- eldrar hans voru hjónin Jóhann Guðlaugsson, bóndi á Litla Bakka, og Margrét Jóhannsdóttir. Guðlaugur ól allan sinn aldur á Litla Bakka. Eftir lát föður síns tók hann við búi með móður sinni, en hún lést háöldruð árið 1970. Eftir það bjó Guðlaugur einn á Litla Bakka. Hann var ekki maður mikil- lætis, sundurgerðar eða undir- hyggju. Gerði engar kröfur, hvorki til samfélagsins né samferðamanna. Hann gerði einvörðungu kröfur til sjálfs sín. hann vildi engum manni skulda neitt og standa við öll sín orð. Þetta var lífsspeki þessa greinda og hljóðláta einbúa. Guðlaugur bjó ekki stóru búi, enda er Litli Bakki lítil jörð en notadrjúg. Honum þótti vænt um skepnurnar sínar og sinnti þeim af alúð og natni. í ársbyrjun 1983 varð hann fyrir því óhappi að lærbrotna er hestur sló hann. Það var mikið fannfcrgi og vonskuveður er þetta skeði og það tók hann fjórar stundir að komast heim til bæjar til að hringja á hjálp. rúmlega 100 metra leið. Þetta afrek 85 ára gamals manns vakti athygli er skýrt var frá í fjölmiðlum. Hann þurfti að vera nokkra mánuði á sjúkrahúsi eftir þetta slys, en hugurinn var alltaf heima á Litla Bakka. Hann sagði við blaðamann sem heimsótti hann á spítalann. „Ég sakna æskustöðv- anna. Þar þekki ég minn Guð og rnína sál og það er eitthvað sem dregur mig þangað." Guðlaugur átti því láni að fagna að eiga góða nágranna sem liðsinntu honum hvenær sem hann þurfti með. Þegar hann lenti í slysinu sem áður er greint, þá tóku nágrannar á Bjargshóli og frændfólk á Mýrum í Hrútafirði skepnurnar hans og hirtu um á meðan hann ekki gat sinnt þeim sjálfur. Núna síðustu æviárin, þá voru það hans góðu nágrannar sem gerðu honum það kleift að vera heima á Litla Bakka. Sérstaklega vil égþargeta um heimilisfólk á Barkar- stöðurn. auk þeirra sem áður er frá greint, Ég vil flytja öllu þessu fólki þakkir fyrir þess vinskap, velvilja og greiðasemi. Guðlaugur fylgdist vel með frétt- urn og þjóðmálum í gegnum útvarp- ið. Hann mátti ekki missa af fréttun- um og alls ekki af veðurfréttum. Ríkisútvarpið var hans fjölmiðill til síðustu stundar. Þó Guðlaugur frændi minn hlyti ekki mikla skóla- göngu í lífinu þá eru mér í barns- minni sendibréfin sem hálfsystir hans og móðir mín fékk frá honum. Hnitmiðaður stíll og falleg rithönd. Núna síðastliðið sumar fékk ég scndibréf frá honum og undraðist ég hve maður kominn á tíræðisaldur skrifaði enn hnitmiðaðan stíl og fallega rithönd. Mér er kunnugt um að daginn áður en hann sofnaði svefninum langa, einn heima á Litla Bakka, skrifaði hann bréf til bróður síns í Reykjavík. Bréf þetta sýnir greinilega að Guðlaugur hélt sinni andlegu reisn til síðustu stundar. Blessuð sé minning hans. Guðrún Gunnarsdóttir, Hvanneyri. Ólafur Njáll Guðmundsson Fæddur 25. júní 1945 Dáinn 14. febrúar 1989 Miðvikudaginn 15. febr. s.l. barst mér frétt til Skotlands, að tveir bátar hefðu farist á ísafjarðardjúpi degin- um áður. Grunur læddist að mér, að einhverjir nákomnir hefðu verið þar innanborðs. Ég hringdi heim til sona minna, sem sögðu mér að mann- björg hefði orðið á öðrum bátnum, þá menn þekkti ég. Með Dóra ÍS-213 hefðu farist Oli Njáll frændi minn og eigandi bátsins, ennfremur skipstjóri hans, Ægir Ólafsson. Éinhvern veginn fór það svo, þrátt fyrir sárindin, að ég sætti mig við lát Óla Njáls undir þessum kringumstæðum. Hann fórst við skyldustörf sín með valinkunnum manni, sem hann hafði fengið til liðs við sig. Það var frænda mínum eðlilegra eins og hann var gerður að fara í Djúpið en deyja á sóttarsæng, fyrst hann átti að fara svona ungur frákonunnisinniogbörnum. Veðrin hafa verið hroðaleg við ísafjarðar- djúp undanfarin misseri og maður hefur nánast beðið eftir harmafregn- um sem þessum. Þetta eru dýrar fórnir. Föðurfaðir Ólafs Njáls fórst af bát við ísafjarðardjúp þann 23. mars 1917. Hann hét Guðmundur Teófíl- usson og föðurnafn hans grískt að uppruna. Eiginkona Guðmundar var Ketilríður Veturliðadóttir. Hún bar yngsta barn þeirra undir belti er hún missti mann sinn í hafið. Þetta síðasta barn þeirra í röð 9 systkina var skírt Guðmundur Elías og var hann faðir Ólafs Njáls. - Öskar Friðbjarnarson í Hnífsdal sagði mér frá því, er hann lauk barnaskóla- göngu sinni á Hesteyri veturinn 1940-1941, að hann hefði kynnst Ketilríði Veturliðadóttur. Óskar var þá 13 ára gamall. Fyrirvinna Ketil- ríðar var þá sonur hennar, Ólafur Helgi Guðmundsson. Óli Njáll var skírður í höfuðið á honum með fyrra nafnið. - Unglingurinn Óskar Frið- bjarnarson kynntist þessu fólki.Ólaf- ur Helgi var vandaður maður og öllum góður, hann lést fyrir allmörg- um árum. Ketilríði lýsir Óskar svo, að hún hafi verið ein vandaðasta og einstakasta kona að allri gerð, sem hann hafi fyrirhitt á ævi sinni. Á þessum tíma voru 18 heimili til staðar á Hesteyri í Jökulfjörðum, þar var verslun og mikil umferð fólks frá Ströndum og víðar. Ketilríður bjó þarna með öll sín börn, kom þeim til manns og hafði heimili sitt opið upp á gátt öllum ferðalöngum til fæðis og gistingar. Móðurfaðir Ólafs Njáls var Hall- dór Sigurðsson, skipstjóri á ísafirði. Kona hans var Svanfríður Alberts- dóttir. Halldór og Svanfríður voru samhent hjón og stráðu hlýleika og gæfu til allra sinna samferðamanna. Hann hlaut riddarakrossinn fyrir upphaf að togveiðum á minni bátum á fslandi og Svanfríður var heiðurs- félagi Slysavarnafélagsins. Þau eign- uðust 11 börn og ólu upp eitt fóstur- barn. Svanfríður og Halldór voru í miklu vinfengi við Ketilríði á Hest- eyri. Árið 1942 giftu þau Lilju dóttur sína Guðmundi E. Guðmundssyni, yngsta syni Ketilríðar á Hesteyri. Lilja og Guðmundur bjuggu á Isafirði og eignuðust 4 börn, Hákon Pétur, sem er giftur og býr á Akur- eyri, Ólafur Njáll, sem lætur eftir sig eiginkonu og 4 börn á ísafirði, Katrín, sem er gift og býr á Eski- firði, Ketill Guðmundur. sem dó á sóttarsæng þann 17. júlí 1985. - Eftir farsælt og ástríkt hjónaband missti Lilja Halldórsdóttir Guð- mund E. Guðmundsson eiginmann sinn þann 15. júní 1985. Óli Njáll ólst upp í föðurgarði og naut ástríkis og umhyggju sem best getur verið frá hendi foreldra og annarra að- standenda. Meö þessari upprifjun á forfeðrum Óla Njáls vil ég konia á framfæri bæði fyrir sjálfan mig og aðra hve sterkur efniviður var í þessum góða dreng. Ég bast föstum böndum við Óla Njál og systkini hans. Hann var hláturmildur og hvers manns hug- Ijúfi. Hann vissi einnig hvað hann vildi, var vinnusamur og lagði oft á sig meira ok en þörf var á. Það þótti honum sjálfsagður hlutur í lífshlaup- inu og gerði þá helst gaman að sjálfum sér. Ég minnist þess eitt skipti er Óli Njáll frændi minn kom til mín að Hallsstöðum við ísafjarð- ardjúp. Við gengum þar niður að sjó og ég tók byssu með, því selur var fyrir neðan. Ég var kominn á þann aldur að ég hafði byssuleyfi. Ég skaut selinn rétt framan við klapp- irnar, en ég sagði Óla ekki, að ég ætlaði að synda eftir honum. Sundið eftir selnum gekk vel, enda veður gott. Hins vegar slapp selurinn úr hönd- um mér í blóðflekknum og ég hafði ekki annað út úr þessu en að súpa hveljur. Reyndar náðum við honum með hrífusköftum á fjörunni. Óli Njáll hló að þessu atviki í tíma og ótíma og minnti mig oft á þennan atburð. Eftir því sem ég man best fékk hann skinnið af selnum, en kjötið var borðað heima. Síðasta skipti sem ég talaði við Óla Njál var nú s.l. haust, vegna flutnings á laxi innan úr Djúpi til ísafjarðar. Hans bátur var ekki til- tækur en hann benti mér á góða menn til verksins. Ég var uggandi um þessa báta, er þeir fóru hlaðnir laxi út Djúpið í misjöfnum veðrum, framhjá Æðey og Snæfjallaströnd. Ekki datt mér í hug þá að hann færi þarna niður. Árið 1965 gekk Ólafur Njáll að eiga unga stúlku frá Árskógsströnd í Eyjafirði. Hún hafði skólavist í Húsmæðraskólanum Ósk á ísafirði. Við hlógum oft saman að því gríni Óla Njáls, að „Vetrarhjálpin" hefði greitt götu hans við val á eiginkonu. Þessi unga stúlka heitir Anna Gunn- laugsdóttir og eignuðust þau Óli saman 4 börn, Guðjón Helgi, f. 18. mars 1966, Freygerður, f. 20. janúar Aðalfundur Samvinnubankans Aöalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður hald- inn aö Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík, fimmtudag- inn 6. apríl 1989 og hefst kl. 14.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa veröur lögö fram til- laga um heimild til bankaráös um útgáfu jöfnunarhluta- bréfa og tillaga til breytinga á samþykktum bankans. Aögöngumiöar og atkvæðaseölar til fundarins veröa afhentir á fundarstaö. Bankaráð Samvinnubanka íslands hf. Blaðberar óskast í eftirtalin hverfi Blöndubakka, Leirubakka, Maríubakka, Núpabakka. Vesturberg. Tiniirm DJÚÐVIIJINN S. 686300 S. 681866 S. 681333 t Héðinn Maríusson Túngötu 12, Húsavík verður jarðsunginn kl. 10.30 frá Húsavíkurkirkju, laugardaginn 1. apríl. Helga Jónsdóttir og börnin. t ÞAKKARÁVARP Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu Ingibjargar Jónsdóttur Skálanesi. Sérstakar þakkir færum við Vegagerðinni og öllum öðrum sem veittu ómetanlega aðstoð. Jón Einar Jónsson börn, tengdabörn og barnabörn. 1968, Hanna Mjöll f. 7. nóv. 1972 og Heiða Björk f. 6. apríl 1976. - Eldri börnin tvö hafa stofnsett sín heimili, en tvær yngri dæturnar eru enn heima að Urðarvegi 53, þar sem Óli Njáll og Anna stofnsettu sitt heimili. - Þessi góða stúlka, sem varð Óla Njáli stoð og stytta gegn um tíðina, stendur nú í sömu sporum og Ketil- ríður gamla 1917. - Úr fjarlægð vil ég þakka foreldrum Önnu og Eyja- firðinum að gefa okkur hana Önnu vestur á firði til þess hlutverks, sem hún hcfur þar á hendi. Fjölskyldan hér að Stórateigi 22 í Mosfellssveit sendir Önnu, Lilju, börnunum, öllum aðstandendum og velunnurum Ólafs Njáls samúðar- kveðjur. Jarðarför hans fór fram á ísafirði laugardaginn 18. mars s.l. - Ennfremur fylgja hér með kveðjur og hluttekning til aðstandenda Ægis Ólafssonar vegna fráfalls hans. Gylfi Guðjónsson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.